Morgunblaðið - 09.04.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.04.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. APRlL 1976 5 Tillaga fjögurra þingmanna: Áfengissala gegn framvísun áfengis- kaupaskírteinis Fjórir þingmenn, HELGI F. SELJAN (K), ODDUR ÓLAFS- SON (S), JÓN HELGASON (F) og BRAGI SIGURJÓNSSON (A) flvtja frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum. Meginefni frumvarpsins eru þessi: 0 1) Vinveitingaleyfi skuli ekki veitt lengur til fjögurra ára, heldur eins árs í senn, og gjald fyrir slikt leyfi skal hækkað úr kr. 4.000.— í kr. 40.000.— í hvert sinn. 2) Dómsmálaráðuneytið skal gefa út sérstök áfengiskaupa- skirteini með nafnnúmeri og mynd skírteinishafa. Öll sala og afhending áfengis á útsölustöð- um og póstafgreiðslustöðum skal óheimil, nema gegn fram- visun þessara sérstöku skírteina. ÁTVR skal skylt að skrá á nafnnúmer hvers kaupanda öll áfengiskaup hans. 3) Gæzluvistarsjóði ber að fjármagna „Leiðbeiningarstöð í ofdrykkjuvörnum." Stöðin beiti sér fyrir slíkum vörnum í atvinnulífinu og skipuleggi starf í öllum landshlutum. Önn- ur ákvæði hljóða um hækkun á sektarupphæðum. Frumvarp þetta er flutt að tilhlutan nefndar, er siðasta þing kaus til að kanna stöðu áfengismála í landinu. Væntan- leg er þingsályktunartillaga um aðra þætti, einkum fræðslumál, er snert geta vandamálið og mótaðgerðir. Orkubú Vestfjarða: S am eign arfyr ir tæki sveitarfélaga og ríkis um nýtingu jarð- varma og vatnsorku Eignarhluti sveitarfélaga 60%, ríkissjóðs 40% FRAM hefur verið lagt á Alþingi stjórnarfrumvarp um Orkubú Vestfjarða. Frumvarpið gerir ráð fyrir þvl, að rfkissjóður tslands og sveitarfélög á Vestfjörðum setji á stofn orkufyrirtæki, er nefnist Orkubú Vestfjarða. Til- gangur fyrirtækisins skal vera að virkja vatnsafl og jarðhita á Vest- fjörðum, eiga og reka slfk orku- ver, ásamt nauðsynlegum mann- virkjum til orkuflutnings og dreifingar. Þá skal fyrirtækið annast virkjunarrannsóknir og aðrar undirbúningskannanir, eft- ir þvf sem ákveðið verður hverju sinni. Eignarhluti ríkissjóðs skal vera 40% en sveitarfélag á Vestfjörð- um samtals 60% — í fyrirtækinu. Eignarhlutdeild sveitarfélaga skiptist innbyrðis í hlutfalli við íbúatölu þeirra. Fyrirtækið skal vera sjálfstæður réttaraðili og hafa sjálfstæðan fjárhag og reikn- ingshald. Sameigendur beri ein- falda óskipta ábyrgð á skuldbind- ingum Orkubús Vestfjarða, og skipting ábyrgðar fara eftir eignahlutföllum. Rafmagnsveitur rikisins, rikis- sjóður og sveitarfélög á Vestfjörð- um skulu afhenda Orkubúi Vest- fjarða orkuveitur á svæðinu til eignar sem stofnframlag sem og tilheyrandi mannvirki og eignir, enda yfirtaki fyrirtækið skuldir, sem svarar til stofnkostnaðar af mannvirkjum þeim, er það tekur við. Iðnaðarráðherra veitir Orkubúi Vestfjarða einkaleyfi til þeirrar starfsemi, sem felst í tilgangi fé- lagsins. Heimildarákvæði er þó um að undanskilja megi einstök orkumannvirki, s.s. til raforku- dreifingar, jarðvarmaveitna og fjarveitna með kyndistöðvum, innan þeirra sveitarfélaga, sem þess óska. Stjórn Orkubúsins Vestfjarða, skipuð 3 fulltrúum sveitarfélag- anna, einum frá iðnaðarráðuneyti og einum frá fjármálaráðuneyti, hefur á hendi yfirstjórn fram- kvæmda og rekstrar. Hún ræður og framkvæmdastjóra. Þá eru og i frumvarpinu ákvæði um aðal- fundi, ákvörðun gjaldskrár, lán- tökur og ábyrgð, sjálfskuldar- ábyrgð ríkissjóðs, undanþágu fyr- irtækisins frá sköttum til ríkis og sveitarfélaga, heimildarákvæði um eignarnám á jarðhita- og vatnsréttindum o.fl. Hvatinn að þessu frumvarpi mun hafa verið þingsályktun, sem Framhald á bls. 20 Albert Guðmundsson: Eðlilegt að taka hag- stæðasta tilboði þótt það sé frá Á fimmtudagskvöldiö urðu nokkrar umræður í borgarstjórn um tengikaup („fittings") fyrir Vatnsveitu Reykjavfkur. Inn- kaupastofnun Reykjavfkurborgar hafði leitað tilboða meðal sölu- aðila. Hagstæðasta tilboðið kom frá Bretlandi. Fyrstur tók til máls Sigurjón Pétursson (K). Hann taldi ekki rétt að kaupa vöru þessa frá Bret- landi meðan við ættum í deilum við Breta. Munurinn á lægsta til- Bretlandi boðinu og því næsta, sem ekki var frá Bretlandi, var 70.000 kr. Borgarfulltrúinn taldi muninn ekki meiri en það, að honum væri fórnandi til að verzla ekki við Breta. Albert Guðmundsson (S) tók næstur til máls og lýsti því yfir, að hann teldi eðlilegast að taka hagstæðasta tilboðinu, þótt það væri frá Bretlandi. Valgarð Briem (S) sagði ekki rétt að hafna hagstæðasta tilboðinu og að Framhald á bls. 20 Miinchener Akademie Kammerorchester Halda nokkra tónleika á íslandi MUNCHENER Akademi Kammerorchester er væntanleg til Reykjavfkur fyrir helgi og á sunnudag leikur hún f Háteigs- kirkju kl. 17. A efnisskránni verða Concert fyrir 4 fiðlur eftir C. Ricotti, H-moII svíta eftir J.S. Bach og Die Jahreszeiten eftir A. Vivaldi. Fyrir utan tónleikana f Háteigskirkju mun hljómsveitin leika á Dalvfk 12. aprfl og á Akureyri 13. aprfl. Einnig mun hljómsveitin leika f Hveragerði og á Seltjarnarnesi. Stjórnandi hljómsveitarinnar er A. Ginthör og stofnaði hann hana fyrir einu og hálfu ári. Meginþorri hljómlistarmannanna er enn við nám í Staatliche- Konservatorium Múnchen. Þá eru nokkrir hljóðfæraleikaranna frá Sinfóniuhljómsveit bayerska út- varpsins og Fílharmoniuhljóm- sveit Múnchenar, en alls eru 18 manns í hljómsveitinni. Hljómleikaförin til Islands er fyrsta utanför kammersveitarinn- ar, sem getið hefur sér gott orð fyrir tónleika í heimalandi sínu. LÆKJARGÖTU 2 - SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155 TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG20a Sími frá skiptiborði 281 55 I < . i ffl [

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.