Morgunblaðið - 09.04.1976, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. APRlL 1976
Fréttabréf úr Gaulverjabæjarhreppi
Margt í búskaparvafstr-
inu er ekki upplífgandi
Seljatungu, 28. marz
Raunverulega gætu öll frétta-
bréf héöan af Suðurlandi byrj-
að með lýsingu á dæmalaust
umhleypingasamri og þreyt-
andi veðráttu. Ég get að
minnsta kosti tekið undir með
Magnúsi í Mykjunesi, þegar
hann segir í fréttabréfi í Mbl.
fyrir skömmu, að „þetta sé
veðraleiðinlegasti vetur, sem
komið hafi um áratugi“. Glögg-
ir menn hér um slóðir telja
raunar að ekki hafi verið svo
stormasöm og óstöðug veðrátta
í hálfa öld, a.m.k. ekki jafn
samfellt og nú.
Annars segja sumir að þeir
sem lítið hafi að segja grípi
jafnan til þess að tala um veðr-
ið. Vera kann að þetta geti
stundum staðizt en hreint frá
núna. Veðráttan hefir veruleg
áhrif á sálarheill fólks. Sáman-
ber ljóðlfnurnar í dægurlaginu:
Bjartar vonir vakna, í vorsins
Ijúfa blæ . . .“. Efum við Sunn-
lendingar þá svartsýnir núna
venju fremur? Ég treysti mér
ekki að svara því. Eða réttara
sagt, ég legg ekki í það vafa-
sama fyrirtæki að svara því
fyrir almenning. Annað mál er
það að margt er það í búskapar-
vafstrinu sem ekki er mjög
upplífgandi, og dregur raunar
sumt af þvi skugga frá slæmri
veðráttu.
Allir þekkja söguna um
vondu heyin frá s.l. sumri hér
um mesta landbúnaðarhérað
landsins og skal ég ekki endur-
segja hana. Þakka má þó fyrir
ef að af henni verður ekki sum-
staðar framhaldssaga í ýmissi
mynd, alvarlegri en þegar er
koniið í ljós. En þegar höfum
við uppskorið minni afurðir,
meiri kjarnfóðurkaup og
minnkandi tekjur. Ofaná það
hefir svo bætzt ört versnandi
verzlunarkjör landbúnaðarins,
staðreynd sem form. Stéttar-
sambands bænda, Gunnar á
Hjarðarfelli, lýsir með eftirfar-
andi orðum í skilmerkilegri
grein í Mbl. 31. des., s.l.: „Ýms-
ar rekstrarvörur landbúnaöar-
ins hafa hækkað mjög mikið á
þessu ári og langt umfram með-
altalshækkun búvöruverðs. Þar
má nefna áburð, olíur, bensín,
rafmagn, kjarnfóður og ýmsa
aðra aðkeypta þjónustu ...“
Síðan ræðir Gunnar um rekstr-
arlánshungur landbúnaðarins
og það, að sifellt aukist kröfur
um staðgreiðslu á öllum rekstr-
arvörum landbúnaðarins og
kemst síðan réttilega að þessari
niðurstöðu: „Verði af fyrirætl-
unum um að taka um stað-
greiðslukerfi á helztu rekstrar-
vörum bænda má slá því föstu
að annar hver bóndi hið
minnsta verður tilneyddur að
hætta búrekstri á þessu ári.“
Hér er tekið til orða á skýrari
og skilmerkilegri hátt en bænd-
ur eiga yfirleitt að venjast, af
forustumönnum sínum um
vandamál stéttarinnar, lýst
hvernig viðhorfin gagnvart
áföllnum ifg yfirvofandi vanda-
málum eru í raun og veru.
Gunnar á Hjarðarfelli getur og
af reynslunni talað vegna ára-
tuga óeigingjarns starfs í for-
ustu fyrir hagsmunasamtökum
bændanna. Hann er og sá mað-
urinn sem vaxið hefur af
hverju verkefni enda mun
hann áreiðanlega studdur heils-
hugar í forustu gegn þeirri
árás, sem nú virðist eiga að
hefja á bændastéttinni fyrir
það að hún á nú loksins að fá
hækkanir á framleiðsluvörum
sínum sem búið er að halda
föstum síðan 1. des. með hertri
verðstöðvun viðskiptaráðherr-
ans. Það hefði raunar átt að
kalla slíka ráðstöfun herta vit-
leysu. Engu er lýkara en for-
usta launþega gengi blindandi í
kröfugerð sinni, sem þó vissu-
lega á samúð réttsýnna manna
meðan kröfugerðin er innan
þeirra marka, sem sýna að forv
usta launþega er af einlægni og
nauðsynlegri yfirsýn yfir hagi
framleiðslu og þjónustu, að
berjast fyrir bættum hag þeirra
sem lægst eru launaðir og fæst
hafa tækifærin til þess ?ð efla
sinn hag. En svo er ékki að
þessu sinni, og hefir sjaldnast
verið.
Annars ætlaði ég nú ekki að
dvelja svona lengi við þessi
mál, sem raunar sýnast alveg
óleysanleg svo að nokkurt vit sé
i.
Ég ætlaði að minnast á fund í
Gaulverjabæjardeild Mjólkur-
Framhald á bls. 23
Hnetuostur
Þeir kunna að gera ost frakkarnir.
Við stóðumst ekki freistinguna að stæla einn ostinn
þeirra og köllum hann Hnetuost.
Hnetuostur er ábætisostur úr Maribó-, Gouda-,
Óðalsosti og rjóma. Að ofan er hann þakinn
valhnetukjörnum, að utan söxuðum hnetum^.^
ostur er veizlukostur ®
50 þús. gestir
í Iðnó í vetur
ÓVENJULEG gróska hefur verið
í leikhúslífi borgarinnar nú á út-
mánuðum. Hjá Leikfélagi
Reykjavikur hefur verið fulit hús
í Iðnó semsagt á hverja sýningu.
Óvenjumargar sýningar eru á
fjölunum í Iðnó, eða fimm tals-
ins, þar sem ekki hefur verið
hægt að taka út neina þeirra sýn-
inga sem frumsýndar hafa verið i
vetur vegna aðsóknar. — Nálægt
50 þúsund manns hafa nú séð
sýningar LR I vetur.
Mvndin er úr Villiöndinni eftir
Ibsen, sem frumsýnd var um
miðjan marz í leikstjórn Þor-
steins Gunnarssonar (Sigríður
Hagalfn, Margrét Ólafsdóttir og
Pétur Einarsson í hlutverkum
sfnum).
Ætla að framleiða loft-
tæmiumbúðir fyrir fisk
Fyrirtækið W.R. Grace hefur
ákveðið að framleiða hentugar
lofttæmdar umbúðir fyrir fisk og
af þeirri ástæðu sendi það tvo
menn til Islands, til að vinna að
framgangi málsins. Hefur fyrir-
tækið m.a. óskað eftir samvinnu
við Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins í þessu sambandi.
Mennirnir tveir sem hingað
komu eru Kim Vakgaard, fulltrúi
frá aðalskrifstofu W-R- Grace á
Norðurlöndum, sem er í Kaup-
mannahöfn, einnig Marío Gilio-
Tos, sem er leiðtogi rannsóknar-
hóps, sem hefur aðsetur innan
rannsóknarstofnunar W.R. Grace
í Mílanó.
Hópurinn hefur fengið það
verkefni að reyna nýjar lofttæmd-
ar Cryovac-umbúðir, sem hentug-
ar eru til að pakka fiski í, bæði
ferskum og frosnum. Ekki er vit-
að hvenær þessar nýju umbúðir
geta komið á markaðinn, en það
verður ekki fyrr en búið er að
sannprófa gæði nýju umbúðanna.
Ljósmynd ÓI.K.M.
Þorsteinn Baldursson fyrir miðju
ásamt Kim Vakgaard og Marío
Gilio-Tos.
W.R. Grace fyrirtækið selur mikið
af umbúðum til íslands, sem
notaðar eru til að pakka osti og
kjöti.
Fulltrúar Evrópu-
ráðsríkjaræða
um náttúruvernd
Ráðherrar, er fara með
náttúruverndar- og umhverfis-
mál f aðildarrfkjum Evrópu-
ráðsins, eða fulltrúar þeirra
komu saman til fundar f
Brússel dagana 23. og 24. marz.
Einnig tóku fulltrúar Finn-
lands, Kanada, Júgóslavfu,
Lichtenstein, Portúgals og
Spánar þátt f fundinum. Er
þetta f annað sinn sem Evrópu-
ráðið efnir til ráðherrafundar
um þessi efni, en fyrri fundur-
inn var f Vfnarborg 1973. Sam-
einuðu þjóðirnar héldu alþjóð-
lega ráðstefnu um þessi efni f
Stokkhólmi 1972. Umhverfis-
málum er nú æ meiri gaumur
gefinn, einkum f þéttbýlum
iðnaðarlöndum þar sem margs
konar mengun hefur valdið
þungum búsif jum.
A fundinum í Briissel var
lögð áherzla á að í atvinnumál-
um yrði tekið tillit til náttúru-
verndar og almenningi tryggð-
ur aðgangur að þjóðgörðum og
öðrum friðuðum svæðum og
einnig var mikil áherzla lögð á
verndun jurta- og dýralífs þar
sem einstaka tegundir kynnu
að vera í útrýmingarhættu. Var
í þessu sambandi rætt um nauð-
syn á friðun og verndun far-
fugla, ekki einungis í sumar-
löndum þeirra heldur hvar-
vetna þar sem leið þeirra lægi
um, en friðunarreglur f þessu
efni eru mjög mismunandi frá
landi til lands og strangastar i
Norður-Evrópu, bæði að þvf er
varðar löggjöf og viðhorf al-
mennings. Samstarf stjórn-
valda og áhugamannasamtaka
um náttúruverndarmál var
talið mjög æskilegt.
Stefnt er að því að samræma
löggjöf um umhverfismál og
náttúruvernd og framkvæmd
Framhald á bls. 21