Morgunblaðið - 09.04.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. APRlL 1976
15
Hreppurinn vill kaupa
Rey khóla af ríkinu
Jarðarkaup
Meirihluti hreppsnefndar Reyk-
hólahrepps hefur nýlega sam-
þykkt að athuga um kaup á
Reykhólum. — Ríkið á Reykhóla
og er hún kirkjujörð svo að Reyk-
hólakirkja er ekki á flæðiskeri
stödd hvað eignir snertir.
Lengi hefur verið togstreita um
Reykhóla og hafði Landnám ríkis-
ins yfirráðarétt yfir þeim og átti
að skipta Reykhólum niður í smá-
býli, en þegar sú stefna gekk sér
til húðar tók Jarðeignadeild ríkis-
ins yfirráðaréttinn aftur og vildi
breyta stefnu i ýmsum greinum.
Reykhólar voru ein mesta
hlunnindajörð landsins, en með
sífelldum mannaskiptum hafa
þau gengið mjög úr sér og eru þau
ekki svipur hjá sjón, sem áður
var. Til þess að þessi umsögn geti
ekki valdið misskilningi skal á
það bent, að bændur vita hve
mannaskipti við hirðingu búfjár
hafa oft neikvæðar afleiðingar og
er ekki verið að halla á þann er
við tekur. Æðarvarp og selveiðar
eru mjög viðkvæmar búgreinar
og tekur oft nokkurn tíma fyrir
þá búgrein að aðlaga sig nýjum
mönnum og siðum.
Annars er það hálfgerð ráðgáta
hvers vegna hreppsnefndin vill
kaupa Reykhóla, þvi að til
skamms tima hefur það verið
álitið einna best að ríkið ætti allar
jarðir.
A Reykhólum hefur nýlega
verið reist verksmiðja, sem ríkið á
meirihlutann í og á það þvi
beinna hagsmuna þar að gæta.
Reykhólar munu verða dýr
jörð, ef seldar verða og mun sú
orka er streymir úr borholum og
hverum mikils virði, einkum ef sú
orka yrði verðlögð með svipuðum
pris og jarðhitinn á Svartsengi
svo ekki sé minnst á oliu.
Ekki skal um það spáð hér
hvort sé á uppleið nýtt Votmúla-
mál, því að ætla má að Reykhóla-
hreppur hafi næg verkefni fram-
undan þó ekki sé ráðist í jarðar-
kaup, nema að vel athuguðu máli.
Við lestur á þessari frásögn í
Kirkjuritinu er bréfritari ekki
alveg sannfærður um að heilagur
andi hafi þar verið á ferðinni og
leita ýmis atriði í þessari frásögn
á hugann. Hvers vegna þurfti
heilagur andi að hafa túlk. Ekki
þurftu postularnir þess er þeir
töluðu tungum á hvítasunnunni
forðum. Ég veit að islenskan er
erfitt mál, en hefði það ekki verið
huggulegt ef heilagur andi hefði
talað íslensku gegnum hinn
norska mann. Erlendir menn
skildu tungúr postulanna forðum
en enginn í Laugardalshöll nema
túlkarnir.
Svo virðist sem hinn norski
maður hafi heilagan anda í kistu
handraðanum, þvi að hann gat
komið upp á pallinn og talað tung-
um og hætt þegar hann vildi, eða
með öðrum orðum sagt, að það
virðist hafa verið hægt að setja
þetta tungutal i dagskrá með ná-
kvæmri tímalengd. Hins vegar
ber að hafa það i huga að hinn
norski maður hefur að minnsta
kosti þrisvar rekið út iltan anda
og í sínu heimalandi er hann
mikils virtur maður, sem ekki er
vændur um að hafa hrekkjar-
brögð i frammi.
Ég hef ekki tækifæri hér að
leggja dóm á það hvað gerðist í
raun og veru í Laugardalshöll. Eg
deili hins vegar á fjölmiðla fyrir
heimóttabrag þeirra að ræða
þetta mál ekki hispurslaust og
opinskátt og mikið væri það nú
ánægjulegt að fá í kastljósi Sjón-
varpsins þennan atburð ræddan.
Við eigum rétt til þess i kristnu
samfélagi að slíkir merkisat-
burðir séu ekki látnir ganga fram-
hjá garði.
Miðhúsum, 29. mars. 1976.
Sveinn Guðmundsson.
Heilagur andi
I ágúst 1975 var haldið kristi-
legt stúdentamót i Laugardals-
höll og voru þar mættir kristnir
menntamenn frá öllum Norður-
löndunum. Svo að hér var i sjálfu
sér um mjög merkilegan atburð
að ræða. Aðeins eitt fyrirbrygði
sem þar gerðist verður rætt um
hér og það er: Að talað var tung-
um i höllinni eins og segir í 4.
hefti Kirkjuritsins 1975.
Nú hefði mátt ætla að allir fjöl-
miðlar hefðu þotið upp til handa
og fóta og siður blaðanna fylltar
með stórum fyrirsögnum um
þennan atburð og einkum þegar
þess er gætt, að hartnær 100%
íslendinga, sem komnir eru til
víts og ára hafa játað þvi að þeir
trúi á heilagan anda. Hvað gerist.
Jú, allir fjölmiðlar þegja þunnu
hljóði, að ég best veit. Ekki mun
það þó algengt að talað sé tungum
á fjöldasamkomum hér á landi og
það á samkomu sem vel menntað
fólk er á, sem á að geta séð i
gegnum einfaldan blekkingavef.
22480
AIT.LYSINGA-
SÍMINN ER: