Morgunblaðið - 09.04.1976, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 09.04.1976, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. APRlL 197E 25 Sjötugur: Gísli Jónsson Höfh Hornafiröi Hann var fæddur 9. apríl 1901 að Hólmi á Mýrum, A- Skaftafellssýslu, sonur hjónanna Steinunnar Gisladóttur og Jóns Steingrímssonar silfursmiðs á Fossi, Hlfðarætt. Steingrimur silf- ursmiður bjó á Fossi. Var sonur Jóns í Heiðarseli, orðlagðs krafta- manns, sem var sonur Jóns í Hlíð í Skaftártungu, sem Hlíðarætt er kennd við. Kona hans var Ragn- hildur frá Arnardrangi. Kona Steingríms silfursmiðs var Þór- unn Eiríksdóttir frá Hlíð og Sig- riðar Sveinsd. læknis i Vik. Móðir Sigríðar Sveinsdóttur var Þórunn Skúladóttir fógeta Eiríkur frá Hlíð og Sigríður ólu upp dr. Jón Þorkelsson. Börn Steinunnar og Jóns eru Sigurborg, Gisli, Steingrimur — fórst við Sanda fulltíða efnismað- ur — Sigurður og Ragnar. Stein- unn var frá Hofi í Öræfum, dóttir hjónanna Vilborgar og Gísla Jóns- sonar póstafgreiðslumanns. Þau bjuggu á Hólmi á Mýrum. Það var þjóðbraut Öræfinga og Suður- sveitunga á leið í Hornafjörð. Heimilið var mannmargt og gest- kvæmt. Systkini Jóns Steingrímssonar, föður Gísla, sem hér um ræðir voru: Ólöf kona Páls Erlingsson- ar, sundkennara. Þau voru for- eldrar Steingríms bónda, Erl- ings sundkappa og yfirlögreglu- þjóns og sundkennaranna Ólafs og Jóns, sem alkunnugt er. Sigríður kona Sigurðar pósts í Arnanesi og Ragnheiður á Rauðabergi, Eiríkur á Fossi, Sveinn á Langholti, Mcðallandi, Jón í Gaulverjabæ og Prestbakka- koti, Steingrímur í Hörgslands- koti og Jón sterki á Eskifirði. Sú saga er af Jóni Steingrímssyni á Eskifirði að við uppskipum á 200 punda mélpokum bar hann þá á1 bakinu af bryggju í pakkhús uppi stiga á loft allan daginn og þótti afreksverk. Steingrímur faðir Lárusar í Hörgslandskoti, föður, Steingríms, sem þar býr nú, fyrr háseti Bjarna Ingimarssonar á Neptúnusi, duglegur, skýr og skemmtilegur. Þau hjón gerðu drengskaparbragð á móðurvana dreng úr Reykjavík, til sumar- dvalar, svo að faðirinn, sem var i ábyrgðarskiprúmi, kæmist á sjó- inn og skipið úr höfn. Svo var það haustið 1927, að vinur minn Erlingur Pálsson sagði frænda sinn Gísla hafa áhuga á að komast sem háseti á togarann Imperialist. Ég sagðist þá um sumarið hafa heyrt tvær fréttir, þar sem við á Imperialist vorum á lúðuveiðum fyrir vestan Grænland, og hafði hvorug frétt- ing verið hversdagsleg. Það var flug Lindbergs yfir Atlantshaf og Drangeyjarsund Erlings Pálsson- ar. Enginn hafði synt Drangeyjar- .sund í 9 aldir eða svo. „Mörg er sagt að sigling glæst / sjást frá Drangey mundi / þó ber Grettis höfuð hæst / úr hafi á Reykjasundi". Auðvitað yrkir Stefán G. visuna fyrir 1927. Gísli Jónsson réðst á togarann Imperialist og var á því skipi og svo á Júpiter nær 2 áratugi. Þessa tímabils verður getið hér í fáum línum, en á bak við það er mikil saga og merkileg eins og sá maður er, sem hér er um rætt. I undirstöðuriti Asgeirs Jakobs- sonar hins snjalla rithöfundar og fræðimanns, „Kastað í Flóanum", segir hæfileikaskipstjórinn Indr- iði Gottsveinsson, sem uppalinn var á árabátum og í fremstu röð skútuskipstjóra, „að slysagjarnt muni verða á togurunum eins og öðrum skipum, hafi þeir ekki vana menn af seglskipunum“. As- geir bætir við: Þetta hefur gengið eftir. Indriði Gottsveinsson var eins og segir i bók Asgeirs fyrsti togaraskipstjóri Islendinga og skipstjóri á fyrsta togara, sem Is- lendingar eignuðust, Coot frá Hafnarfirði, 1905. Coot var af eldri togarasjómönnum talinn Jrveikjan að togaraútgerð íslend- inga. Sérstaklega vornóttin fræga, þegar Coot fékk 4 þúsund af stórþorski i Faxaflóa. Þá var Einar Þorgilsson um borð. Hann sagði mér þá sögu í Hull 1924. Enda alkunn. 1918 heyrði ég Gest Kristin Guðmundsson, stýrimann og síðar skipstjóra, segja sömu sögu — um borð í bv. Snorra Goða. Þetta var svipaður afli og áraskip með 7 mönnum fékk á meðal vetrarvertíð. Þá er undan- skilin vertarvertiðin 1907, sem kölluð var góða vertíðin (Faxa- flói). Þótt Gísli Jónsson væri ekki vanur togaramaður, þá var hans verkmenning í samræmi við kenningu Indriða skipstjóra Gott- sveinssonar. Að slíkum vönum mönnum er góður fengur í skip- rúm. Aftur á móti voru jólasvein- ar af öðru sauðahúsi, ef einn og einn slíkur siæddist um borð. Bjössi frá Gröf afgreiddi það svo: „Þið kunnið ekkert, en heimtið hitt, að hafa í kaupinu metið, I’arðu í ýsuna, fíflið þitt, jeg fæ hann Gísla í netið.“ Gísli Jónsson var eins og hann átti kyn til vandaður maður. Skemmtilegur og ágætur. I sjóliði var hann i einu orði sagt úrvals- maður. Hann var mikill þrekmað- ur og hafði mikið vinnuþrek og úthald flestum meira. Hann var harður við sjálfan sig og brá sér ekki við sár. Því til sönnunar er þetta: Við vorum á sildveiðum sumarið 1937 á b/v Júpiter. Það slys vildi til í snurpingu, að sigur- nagli slitnaði við daviðu, en snurpað var með mótorspili. Gisli var auðvitað framámaður og varð fyrir siglurnaglanum, sem skall á honum af miklu kasti og lenti á framhandlegg Gisla, þar sem vöðvinn er þykkastur og gekk nokkur á kaf. Þetta var auðvitað svöðusár. Farið var með Gísla um borð og aftur i káetu, gefin deyfandi lyf, sárið hreinsað upp og saumað saman. Þegar við Bjarni Ingi- marsson, sem var 1. stýrimaður, höfðum lokið þessari „læknisað- gerð“ aftók Gísli með öllu, að siglt væri til læknis fyrr en túrnum væri lokið og búið að fylla skipið. Og auðvitað hlaut hann að ráða. Sárið hafðist vel við og fullan mátt fékk Gísli í sinn mikilsverða handlegg, því hann notaði sitt þrek í þágu sinnar þjóðar og dró ekki af. Dæmið hér að framan talar sínu skýra máii. I ágúst 1940 hafði Bjarni Ingi- marsson verið 5 ár 1. stýrimaður og tekinn við skipstjórn hjá mér á b.v. Júpíter og þeirri úrvalsskips- höfn, sem skipinu fylgdi. Eins af þeim fremstu var Gisli. Það er sama hvað hver segir, fræknasti íþróttaflokkur islenskur, sem stigið hefur á erlenda grund, voru gömlu togarakarlarnir. Owen S. Heilyer sagði: „Ég get tekið ofan fyrir íslendingunum, sjá hvernig þeir koma með skip sín sjóhlaðin i öllum veðrum í stríðinu. Sá frækni hópur var is- lensku þjóðinni mikils virði. Sagt — Aðalfundur '■ Framhald af bls. 25 vegna flugvélakaupa Air Viking gæti orðið milli 5 og 10 millj. kr. STJORNARKJÖK Endurkjörflir voru I bankaráð þeir Erlendur Einarsson, for- stjóri, Hjörtur Hjartar, frkvstj., og Vilhjálmur Jónsson, frkvstj. Til vara voru kjörnir Hallgr. Sig- urðsson frkvstj., Hjalti Pálsson, frkvstj. og Ingólfur Ölafsson kfstj. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Oskar Jónatansson, aðalbókari og Magnús Kristjáns- son, fyrrv. kfstj., en Ásgeir G. Jóhannesson, er skipaður af ráð- herra. (Fréttatilkynning frá Samvinnu- bankanum) var, að isl. skip hafi veitt og flutt á breskan markað 75% af öllum fiski i ófriðnum. Það var mikið afrek, unnið af afreksmönnum. Einn í þeim hópi var Gisli Jóns- son frá Höfn í Hornafirði og það i fremstu röð. Bróðir Gísla Jónssonar, Sigurð- ur, var víkingur að dugnaði. Hann hafði svo einbeittan svip og var svo garpslegur i framkomu, að umrenningar hrukku frá af dokkuveggnum erlendis, þegar Sigurður var vaktmaður. Skarpari maður til að moka ís upp úr lestarstíu var vandfundinn, enda var verkið ekki árennilegt og því síður eftorsóknarvert. Að bullsvitna við moksturinn og fara svo til dekks í alls konar veðrum, stundum í hávaðastormi og frost- byl, en verkið varð að gerast. Svo voru öll verk Sigurðar. Annar bróðir Gísla er Ragnar. Hann vann hjá okkur í 2—3 ár við landvinnu, meðal annars við jarðabætur í Kópavogi við sumar- bústað. Þar hagaði svo til 1932, að aðrir höfðu fest sér auðveldari bletti og gengið á snið við þann sem ég átti kost á. Vatnsrunninn gilskorning- ur var í landinu og var landið graslaust og grýtt, sumt var stór- grýti. Ragnar Jónsson færði til að giska 100 bílhlöss af grjóti og lét í gilið.. Enn sjást þess merki eftir 40 ár, að þar fór Ragnar höndum um að mestu leyti. Þvi landið lækkaði um skóflustungu í brekkunni, þar sem grjótið var tekið, þvert yfir brekkuna, en hún er um 80—90 metrar á breidd. Enga bíl hafði Ragnar heldur járnbrautarvagn og varð því að koma grjótinu á vagninn. Við þetta náðist nokkur jarðveg- ur, sem varð að grasflöt. Ragnar var stillingarmaður og prúð- menni. Að afloknu nær tveggja áratuga harðæri kom Gísli heim til Horna- fjarðar. Ekki til þess að slóra. Hann tók upp budduna og byggði sér og sínum vandað íbúðarhús og settist að í sínum heimastað. „Hann horfir djarft á hvern sem er — hjá honum á enginn neitt“. Einn er sá þáttur í skapgerð Gísla, sem ekki fyrnist. Það er hver höfðingi hann var í fram- komu og hreinn og beinn. Eitt sinn sagði ég: „Eg vona að kaupið verði gott.“ Þá svaraði Gisli: „Ég spyr ekki um kjör.“ Það var höfð- inglegt svar og lýsti Gísla vel. Um kjark Gísla Jónssonar er það að segja að hann tók aða sér að vera ferjumaður á Hornafirði. Ferjumannsstarf var aldrei feng- ið nema úrvalsmönnum. En eins og allir vita, er Hornafjörður ekki lamb að leika við. Meira straum- kast eða þyngri straumur inn- fjarða er ekki til við Island, enda var Gisli orðinn ýmsu vanur og traustur og ábyggilegur og vand- aður í alla staði. Mörg ár var Gísli ferjumaður við góðan orðstír, en auðvitað orðinn lúinn af marg- háttuðu áratuga vosi og þar kom að hann lét undan siga og fékk sér hægara „skiprúm“ og þurrara. Hann gerðist vaktmaður við Stokksnes og var það í nokkur ár. Síðan hann hleypti heímdragan- um 26 ára gamall, hefur hann aðallega verið i þremur störfum „á þremur stöðum" slíkt talar sínu máli. Fyrir hönd h.f. Júpiters og h.f. Marz þakka ég Gísla Jónssyni mikið starf og lofsvert. Með kærri afmæliskveðju og bestu óskum. Tryggvi Ófeigsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.