Morgunblaðið - 01.05.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.05.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAt 1976 15 Terttu Jurvakainen hjá verkum sinum. Ljósmynri Mbl. Friðþjófur „Kemst ekki hjá að mála íslenzku fjöllin" Terttu Jurvakainen. sér- stæður jjestur frá Finnlandi í Kjarvalsstöðum sýnir um þess- ar mundir finnsk listakona, sem tók sig til á eigin spýtur, leigði stóran sendiferðabíl I Finnlandi, fyllti hann með málverkum eftir sig, sendi farminn f bílnum til íslands með skipi og nú eru 79 verk eftir hana til sýnis þar. Sér- stætt framtak erlends listamanns, sem þarf sjálfur að borga allan kostnað af flutningi og uppsetn- ingu sýningarinnar, kostnaði sem nemur um það bil einni milljón íslenzkra króna. „Ég veit að þetta er fjárhagslegur leikur sem ég lagði út f," sagði Terttu, „en ég sé ekki eftir því að hafa komið hingað til þessa fallega lands." Terttu Jurvakainen er fædd f bænum Muhos f norður Finnlandi u.þ.b. 600 km norðan Helsinki. „Fyrir tæpum tveimur árum fór skógur og vatn að spretta fram úr myndum mfnum," sagði hún í stuttu spjalli, „þá flutti ég á fagran stað í skógi nálægt Muhos og abstraktformið, sem ég hafði áður sinnt mest vék fyrir sjón- rænum formum, fólki, trjám, Björg sýnir grafík í lit og svart-hvítu BJÖRG Þorsteinsdóttir listmálari sýnir nú 35 verk í sýningarsal Byggingarþjónustu arkitekta við Grensásveg (Málarahúsinu). Öll verk hennar á þessari sýningu eru málmgrafík bæði I svarthvitu og lit, myndir sem eru unnar meS sýru i málm, svokallaðri ætingu og siðan er verkið þrykkt með mikilli pressu. listasprang Eftír Arna Johnsen fuglum. Fyrr lagði ég talsvert stund á grafik. en mér likuðu lit- irnir betur, mun betur, og því kom ég til þeirra, snerist að þeim". Og það má lika sjá i myndum Terttu, þvi þar rikja sterkir og áberandi litir, i öllum regnbogans útgáfum. Terttu hefur sýnt viða i Finn- landi, víða i Svíþjóð og einnig í Þýzkalandi, Noregi og viðar. Siðast sýndi hún i Helsinki i desember. „Finnar eru mjög hrifnir af málverkum," sagði hún, „en ég held að þeir viti ekki hve fagurt land ísland er og gott. Ég ætla að taka margar myndir hér „Fyrirmyndirnar sæki ég i einföldustu hluti," sagði Björg i spjalli við okkur," ég vinn t.d. með hanzka eða einhverja flik á likan hátt og sumir nota epli I uppstillingu. Þannig reyni ég að sameina lifandi form og abstrakt. Siðustu verk min byggjast mikið á hringformum, sem ég klýf siðan með einhverju lifandi formi." Þetta er þriðja einkasýning Bjargar, en hún hefur tekið þátt i tugum samsýninga erlendis oft á alþjóðlegum grafiksýningum og einnig hefur hún sýnt málverk sin og teikningar jöfnum höndum. Á þessu ári sýnir hún t.d. verk eftir sig á Rieka moderne safninu i Júgóslavfu, i Noregi, Vestur og Austur-Þýzkalandi, Póllandi og Ítalfu. Björg er með litla vinnustofu i Reykjavik, en kvaðst vera að leita sér að rúmgóðri og bjartri vinnu- stofu. „Þetta hefur æxlazt þannig," sagði Björg, „að ég hef unnið við grafik á vetrum að undanförnu, en málað á sumrin. Þetta er starf mitt, að mála, vinn fullan vinnu- dag og reyni eins og hægt er til þess að geta siðar sett upp sýn- ingu. Þetta er eins og hver önnur vinna nema það að ekki er um föst Björg Þorsteinsdóttir við verk sin. laun að ræða og yfirleitt er þetta ólaunað." „Áhugi fólks?" „Jú, fólk veit miklu meira um grafik nú en fyrir nokkrum árum jafnvel og áhuginn er vaxandi. Flestir geta eignazt graffkmyndir vegna þess að þær eru ekki svo dýrar og fólk finnst mér mjög já- kvætt gagnvart þessu. Hópur ungs fólks er líka farinn að sér- hæfa sig á hinum ýmsu sviðum grafiklistar, en um 25 félagar eru i Grafikfélaginu og flestir þeirra eru starfandi. Þaðfer þvi saman mikill áhugi hjá listafólki og almenningi og það er spennandi." Sýning Bjargar verður opin til n.k. mánudagskvölds og hún er opin daglega frá kl. 14-—22. Vandamál barna einstæðra f oreldra — rædd á fundi FEF á þriðjudag og sýna í Finnlandi og ég veit að ég á eftir að mála islenzku fjöllin og hlíðamar þegar ég kem heim, því ég elska þau og mun ekki komast frá þeim. Ég á ekki til orð til að lýsa hrifningu minni á þessum fjöllum og kemst því ekki hjá þvfaðmála þau. „Ég kom til íslands," svaraði Terttu, „vegna þess að íslending- ur búsettur í Finnlandi skoðaði hjá mér myndir með konu sinni, sagði mér frá íslandi og Kjarvalsstöðum og taldi það góða hugmynd að ég kæmi f heimsókn hingað með myndir mfnar. Ég hugsaði og hugsaði f marga mánuði og kannaði síðan möguleikana á sýn- ingaraðstöðu hér. Allt gekk og hér er ég og sé ekki eftir því að hafa komið þótt leikurinn geti orðið dýr, því sá kostnaður sem ég verð sjálf að leggja fram er um 1 millj. ísl. króna." Sýning hennar er opin á venju- legum sýningartíma í Kjarvals- stöðum fram til 9. maf, sérstæður gestur með sérstæða sýningu sem hefur vakið mikla athygli sýn- ingargesta. Félag einstæðra foreldra heldur fé- lagsfund á Hallveigarstöðum þriðju dagskvöldið 4. maf og hefst hann kl. 21. Þar mun Sigurjón Björnsson, sálfræðingur, fjalla um vandamál bama einstæðra foreldra frá uppeld islegu sjónarmiði séð og svara fyrir- spurnum gesta Iðulega heyrast þær raddir að böm einstæðra foreldra eigi að mörgu leyti erfiðara uppdrátt- ar en böm kjarnafjölskyldunnar, og skilyrði þeirra séu miklum mun verri. Þá er almenn skoðun að börn ein- stæðra foreldra eigi oft við hegðun- ar- og agavandamál að glfma og ekki sfzt séu erfiðleikar þeirra geðræns eðlis. Er ekki að efa að mörgum einstæðum foreldrum mun þykja fengur í að hlýða á Sigurjón Björns- son og leggja fyrir hann spurningar um málið. Hópurinn sem um ræðii — þ.e. böm einstæðra foreldra inn- an 17 ára aldurs — er um þrettán þúsund talsins og þvf má Ijóst vera að mikið er f húfi fyrir þjóðfélagið, ef misbrestur er á því að af þess hálfu sé ekki búið að þessum einstakling- um eins og gagnvart kjarnafjöl- skyldubömum. Þá verða flutt skemmtiatriði og kaffi selt við vægu verði. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og nýir félag- ar eru velkomnir.(Fréttatilkynning) Veizlukaffi 1. maí Eins og undanfarin ár verður veizlukaffi í Iðnó í dag, 1. maí. Á boðstólum verða m.a. pönnukök- ur, rjómatertur, flatkökur, smurt brauð og margs konar aðrar teg- undir af tertum og smákökum. — Húsið verður opnað kl. 2.30. M Þetta eldhús er til sýnis hjá okkur frá 9-18. wm Við bjóðum upp á eldhúsinnréttingar af gerðum sem uppfylla óskir vandlátustu húsbyggjenda. jsyf ___ Gerum verðtilboð meðan beðið er — Igfjp y^Teiknum og ráðleggjum þeim, sem þess óska. |fp, _____- • innréttingar hafa 15 ára reynslu í framleiðslu eldhúsinnréttinga—þær eru pi framleiddar af fagmönnum. jg| Einnig höfum við til sýnis — innihurðir — fataskápa — baðskápa j^‘> I Gjörið svo vel og lítið inn í sýningarsal ^ y,nsam|e9a I 1 a • sondið upplysingar um , okkar að Skeifunni 7, ^ j p. eidhús — fataskápa 1 SÍmÍ 31113 ■" Tilboð meðfylgjandí teikninga I 83913. ^ ^ I •— Nafn......................... | ' Heimilisfang ........................... ^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.