Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1976
Tilkynning sakadóms um Geirfinnsmálið:
Brey ttur framburður vitna
HÉR fer á eftir fréttatilkvnn-
ing, sem sakadómur Reykja-
vfkur sendi frá sér í gær um
hin nýju vióhorf I rannsókn-
inni á hvarfi Geirfinns Einars-
sonar. Að neðan er svo greint
frá fvrri framburði þeirra
Sævars Marínós Ciecielskis,
Kristiáns Viðars Viðarssonar
og Erlu Bolladóttur í málinu,
en haiui er all frábrugðinn
seinni framburði þeirra: Hér
keniur fréttatilkvnning saka-
Jóms í heild:
Svo sem áður hefir verið frá
greint hefir að undanförnu
staðið yfir umfangsmikil
rannsókn við sakadóm Reykja-
víkur, sem einkum hefir beinzt
að þvi að upplýsa hver orðið
hafi afdrif tveggja horfinna
manna, þeirra Guðmundar
Einarssonar úr Reykjavík og
Geirfinns Einarssonar frá
Keflavík.
Rannsókn út af hvarfi
Guðmundar Einarssonar hófst í
síðari hluta desember sl. og
hafa siðan setið í gæzluvarð-
haldi þrir menn, sem grunaðir
eru um að hafa átt sök á dauða
Guðmundar. Menn þessir heita
Sævar Marinó Ciesielski,
Kristján Viðar Viðarsson og
Tryggvi Rðnar Leifsson. í
framburði þeirra hefur komið
fram, að Guðmundur hafi látizt
í átökum við þá að Hamars-
braut 11 í Hafnarfirði, og þeir
síðan búið um lík hans og kvatt
til kunningja sinn, Albert
Klahn Skaftason, sem komið
hafi í bifreið að Hamarsbraut
11 og aðstoðað þá við að flytja
lík Guðmundar út í Hafnar-
fjarðarhraun. Albert Skaftason
kannast við að hann hafi farið
ferð þessa en eigi vitað hvað
verið var að flytja. Albert var í
gæzluvarðhaldi frá 23.
desember til 19. marz 1976.
Þrátt fyrir leit hefur lík
Guðmundar ekki fundizt enn.
Þá hefir rannsókn málsins á
siðara stigi mjög beinzt að því
að upplýsa um tildrög öku-
ferðar, sem fyrrnefndir Sævar
Marinó og Kristján Viðar eru
taldir hafa farið í ásamt Erlu
Bolladóttur sambýliskonu
Geirfinnur Einarsson
Sævars Marinós, og fjórða
manni, þ.e. ökumanni, sem ekki
er enn ljóst hver var, til Kefla-
víkur og þar að Dráttarbraut
Keflavikur, og að atferli þeirra
þar. Ferð þessi var að öllum
líkindum farin að kvöldi 19.
nóvember 1974, en eftir þann
tíma var Geirfinns Einarssonar
saknað. Samkvæmt frásögnum
Guðmundur Einarsson.
þeirra Kristjáns Viðars og Erlu
urðu þau vitni að ágreiningi og
átökum milli manna. Telur
Kristján Viðar sig þar hafa séð
til manna, sem eltu og
umkringdu mann einn og
þjörmuðu siðan að honum með
höggum og barsmíðum og jafn-
vel eggvopnum. Hafi maður
þessi verið orðinn mjög illa á
sig kominn og blóðugur er hann
sá hann siðast. Þá hafi
einhverjir manna þessara hins
vegar stuggað sér frá og Sævar
Marinó farið með sig að bifreið
þeirra. Telur Kristján Viðar sig
minnast þess, að er þeir voru
komnir í bifreiðina, hafi hann
séð riffil i höndum Sævars
Marinós, en Erlu sá hann þá
ekki. Þá hefir Erla nú nýlega
skýrt svo frá, að Sævar Marinó
hafi er þetta gekk yfir verið
með riffil i höndunum og
haldið honum mjög að sér og
nánast lagt hann í hendur
hennar og sagt henni fyrir
verkum um það hvernig hún
skyldi beita honum gegn nær-
stöddum manni, sem þá var
þegar mjög illa á sig kominn.
Hafi hún síðan að fyrirmælum
Sævars Marinós beint þessu
vopni að manninum og hleypt
af. Hafi henni þá sortnað fyrir
augum, misst byssuna í hendur
Sævars Marinós, sem stóð fast
að baki hennar, en siðan
hlaupið á brott og falið sig, og
síðan komizt til Hafnarfjarðar
og Reykjavikur eins og áður
hefir verið frá skýrt. Eftir
myndum að dæma telur Erla
næsta sennilegt, að sá, sem
fyrir þessu varð, hafi verið
Geirfinnur Einarsson. Ekki er
frekar upplýst um afdrif hans.
Treglega hefir gengið að fá
Upprifjun á fyrri fram-
burði í Geirfinnsmálinu
Einarssyni. Hafði hún komið að
banamönnum Guðmundar,
þeim Sævari, Kristjáni Viðari
og Tryggva Rúnari, þar sem
þeir voru að pakka líki
Guðmundar inn í lak í húsinu
Hamarsstígur 11 í Hafnarfirði
nóttina sem Guðmundur hafði
verið myrtur í þessu sama húsi.
Fylgdu handtökur i kjölfar
þessara upplýsinga Erlu Bolla-
dóttur og lá fljótlega fyrir játn-
ing umræddra þriggja manna.
Að lokinni rannsókn fjár-
svikamálsins var Erlu Bolla-
dóttur sleppt, Eftir að Erlu var
sleppt taldi hún sig verða fyrir
ýmsu ónæði svo sem sím-
hringingum ónafngreindra
aðila og hún taldi sér ógnað.
Var árásin á Geirfinn
gerð eftir bátsferðina?
EINS og fréttatilkvnning saka-
dóms Revkjavfkur frá f gær ber
með sér, er framburður þeirra
Kristjáns Viðars Viðarssonar
og Erlu Bolladóttur um
aðdragandann að láti Geirfinns
Einarssonar ailmjög frábrugð-
inn þeim framburði, sem þau
höfðu áður gefið. Þykir
Mbl. rétt að rifja upp fvrri
framburð þeirra í málinu, svo
og framburð Sævars Marfnós
Ciecielski, sem féll mjög í
sama farveg, en frá þessum
fyrri framburði var skýrt á
blaðamannafundi, sem Örn
Höskuldsson rannsóknar-
dómari hélt f skrifstofu sinni f
sakadómi Reykjavikur föstu-
daginn 26. marz.
Upphaf málsins var það, eins
og margsinnis hefur komið
fram í fréttum Mbl., að þau
Sævar Ciecielski og Erla Bolla-
dóttir voru hneppt í gæzluvarð-
hald í desember s.l., grunuð um
að hafa svikið 950 þúsund
krónur út úr Pósti og síma.
Viðurkenndi Sævar afbrot
þetta og Erla, sem var sambýlis-
kona Sævars, viðurkenndi að
hafa tekið út helming fjár-
hæðarinnar. Við frekari yfir-
heyrslur gaf Erla upplýsingar,
sem leiddu til þess, að upp
komst um morðið á Guðmundi
Dráttarbrautin f Keflavik, þar sem Erla Bolladóttir segist hafa skotið að manni úr riffli, að öllum
líkindum Geirfinni Einarssvni. Myndin var tekin f gær.
Heildarafli landsmanna
124 |)ás. lestum minni
t DAG, 11. maí, er lokadagurinn,
en enn mun samt töluverður
fjöldi skipa halda áfram netaveið-
um. Þessi vertfð hefur verið ein
sú léiegasta um margra ára skeið
og kemur það glögglcga fram i
skýrslu Fiskifélags tslands um
2 í gæzlu
hjá Fíkni-
eínadómstóli
FÍKNIEFNADÓMSTÓLLINN
úrskurðaði um heigina 2 menn
í gæzluvarðhald fyrir meint
fíkniefrí'amisferli. Fékk annar
10 daga gæzluvarðhald en hinn
15 daga. Arnar Guðmundsson
fulltrúi við dómstólinn sagði
við Mbl. í gærkvöldi, að á
þessu stigi væri ekkert hægt
að segja um umfang þessa
máls, rannsókn þess væri í
fullum gangi.
heildarafla landsmanna frá ára-
mótum til 30. aprfl s.l. Þar kemur
fram að heildaraflinn er nú
522.388 lestir á móti 647.135 lest-
um á sama tima f fyrra, eða
124.780 lestum meiri. Munar hér
mest um loðnuaflann, sem nú er
118 þús. lestum minni en í fyrra.
1 skýrslunni kemur fram, að
þorskafli bátaflotans er nú
115.856 lestir á móti 123.479 lest-
um í fyrra. Á aðalveiðisvæðinu
frá Ilornafirði til Stykkishólms er
Lokadagurinn er í dag og eins
og frá öndverðu starfi Slysavarna-
félags tslands verður merkjasölu-
dagur félagsins í dag. Með
merkjasölunni fjármagnar SVFÍ
það nauðsynjastarf, sem félagið
hefur unnið um árabil með þeim
ágætum, sem alþjóð er kunnugt. í
dag óskar SVFl eftir stuðningi
aflinn nú 89.931 lest á móti 97.566
lestum í fyrra. Togaraaflinn er nú
64.189 lestir, en var í fyrra 63.491
lest. Loðnuaflinn varð að þessu
sinni 338.070 lestir en 1 fyrra
456.000 lestir. Rækjuaflinn er
núna 3.755 lestir á móti 2.681 lest
í fyrra og hörpudiskafli 485 lestir
á móti 537 lestum í fyrra. Guð-
mundur Ingimarsson, fulltrúi hjá
Fiskifélagi Íslands, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að gott
Framhald á bls. 39
almennings og enginn veit hvort
hann þarf ekki á aðstoð SVFÍ að
halda á morgun. SVFÍ hvetur for-
eldra til að leyfa börnum sínum
að selja merki félagsins. Með-
fylgjandi mynd er tekin af einni
af björgunarsveitum SVFÍ í
starfi.
Lokadagurinn merkja-
söludagur SVFI að venju
Prófessor Michacl Schneider að æfa sig á orgel Dómkirkjunnar f
gær. Ljósmynd Mbl. RAX.
Dómkirkjan í kvöld:
Heimsfrægur organisti
Hinn heimsfrægi organleik-
ari prófessor dr. Michael
Schneider er hér í boði félags
islenzkra organleikara. Hann
mun halda tónleika í Dómkirkj-
unni á þriðjudagskvöld 11. maí
kl. 8.30. Þá mun hann halda
fyrirlestur á vegum Tónlistar-
skólans í Reykjavík, og auk
þess gefa þeim organleikurum,
sem þess óska, tækifæri til að
leika fyrir sig á miðvikudag 12.
maí. Héðan mun hann halda til
Þýzkalands á fimmtudag. Efn-
isskráin á tónleikunum í Dóm-
kirkjunni er hin sama og Felix
Mendelssohn-Bartholdy hafði
Framhald á bls. 39