Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1976 39 Nýr keppinautur Jimmy Carters Baltimore og Independence, 10. maí — AP. Reuter. EDMUND G. BROWN ríkisstjóri Kaliforníu hefur nú bætzt I hóp þeirra demókrata, sem keppa um ad verða forsetaefni flokksins við kosningarnar I haust. Jimmv Carter, sem hefur sigrað I hverri forkosningunni á fætur annarri að undanförnu og hrist af sér margan keppinautinn, á það nú yfir höfði sér að bfða ósigur fyrir Brown I forkosningunum í Marvland á þriðjudag I næstu viku. Sovézkir tundurspillar af sömu gerð og Storozjevoi Hjá republikönum er staðan þannig að Ronald Reagan fyrrum ríkisstjóri Kaliforníu, tók forust- una í fyrri viku þegar hann sigr- aði í forkosningunum i Texas, Indiana, Georgia og Alabama. Hefur Reagan nú tryggt sér 411 atkvæði til útnefningar á flokks- þingi republikana, en Ford for- seti 389 atkvæði. Edmund Brown, eða Jerry Brown eins og hann er venjulega nefndur, er 38 ára og hefur verið rikisstjóri Kaliforníu I rúmt ár. Hann ætlar aðeins að taka þátt í forkosningunum í Maryland, Nevada og Kaliforníu. Skoðanakannanir benda til þess að Brown muni bera sigur úr býtum í Maryland, og hefur það leitt til þess að Carter hefur hert baráttuna þar. Á fundi í Balti- more á laugardag sagði Carter að framboð Browns væri tilraun til að stöðva sókn sína, og stæðu ráðamenn í demókrataflokki Marylands þar að baki. „Látið ekki aðlaðandi framkomu Browns ríkisstjóra glepja ykkur,“ sagði Carter. „Brown er ekki að keppa um forsetaframboðið í Maryland. Hann er aðeins aðili þess hóps, sem vill skapa glundroða á flokks- þinginu. En það mun ekki tak- ast.“ Átti Carter þar við flokks- þing demókrata í New York í júli, þar sem frambjóðandinn verður valinn. Carter kvartaði yfir þvi að sjálfur þyrfti hann að taka þátt í kosningabaráttu í öllum þeim ríkjum, sem hafa forkosningar, en Brown byði sig aðeins fram í þremur þeirra, og gæti því beitt sér af alefli i Maryland. Brown hefur ferðast um Mary- land að undanförnu og haldið fundi víða, og allsstaðar fengið mjög góðar móttökur. Á morgun, þriðjudag, verða for- kosningar I Nebraska og Vestur Virginíu, og telja stjórnmála- menn mjög áriðandi fyrir Ford forseta að vinna sigur þar eftir ósigrana í fyrri viku. Skoðana- kannanir hafa bent til þess að þetta takist hjá Ford, en forskot hans þar hefur farið minnkandi. Ron Nessen, talsmaður Hvita hússins, sagði í dag að forsetinn væri bjartsýnn, en teldi að mjótt yrði á mununum. Tapi Ford á morgun, gæti það haft úrslita- áhrif á forkosningar i næstu viku í heimaríki hans, Michigan, sem Reagan leggur mikla áherzlu á að vinna. Á flokksþingi republikana, sem haldið verður í Kansas City í sumar, verða alls 2.258 fulltrúar, og þarf því 1.130 atkvæði til að hljóta útnefningu sem forsetaefni flokksins. Vantar Reagan því enn 719 atkvæði, en Ford 741. Uppreisn — segja svíar SÆNSKA herstjórnin staðfesti á laugardag að „eitthvað óvenju- legt“ hefði gerzt í Eystrasalts- borginni Riga í nóvember í fyrra, en neitaði að láta hafa eftir sér nokkur ummæli um það hvort áhöfnin á sovézkum tundurspilli hefði gert uppreisn. Reuters-fréttastofan skýrir frá þessu í frétt frá Stokkhólmi á laugardag. Er það haft eftir áreið- anlegum heimildum innan her- stjórnarinnar — en ekki staðfest — að áhöfnin á tundurspillinum Storozjevoi hafi bersýnilega læst foringja skipsins inni í klefum sínum og reynt að sigla skipinu til Svíþjóðar. Áður en skipið komst út úr sovézkri landhelgi voru so- vézkar herþotur sendar til að reyna að stöðva það. Skutu þær eldflaugum að skipinu í fjórar klukkustundir, og reyndu aðal- lega að hæfa stýri þess. Segja um borð þessar sömu heimildir að sovézk freigáta, sem var að elta tundur- spillinn, hafi orðið fyrir eldflaug í öliu irafárinu, og að nokkrir úr áhöfn hennar hafi farizt. Áhöfnin á Storozjevoi gafst upp áður en komið var út úr landhelg- inni, og var skipið dregið inn til Riga til viðgerðar. Reuter hefur eftir heimildarmönnum sínum að í stað þess að senda fyrirmæli öll á dulmáli, hafi sovézku yfirvöldin notað talstöðvar, og því hafi verið auðvelt að fylgjast með atburðun- um. Mikið hefur verið ritað um þetta mál i sænsk blöð, og er það talin ástæðan fyrir því að Georgei Fedosov ofursti, hermálaráðu- nautur sovézka sendiráðsins í Stokkhólmi, fór heim til Moskvu í fyrri viku. Storozjevoi er einn af stærstu og nýjustu tundurspillun sovézka flotans, um 4.000 tonn, og vel bú- inn eldflaugum. Áhöfnin er 250 manns. Ronald Reagan á framboðsfundi — Ylræktar verið Framhald af bls. 40 Þýzkalandi, en sá hefði verið einn af þeim er hingað kom fyrir nokkrum árum á vegum Samein- uðu þjóðanna til að gera úttekt hér á aðstæðum til ylræktar. Hann væri sérfræðingur í rekstrarhagfræði gróðurhúsa og í markaðsmálum gróðurhúsaaf- urða. Kvað Björn það koma helzt til greina nú, að þessi sérfræðingur yrði fenginn hingað til lands til að kanna þetta mál frekar eða sendur yrði maðúr til Svíþjóðar, en þar skammt frá Málmey væri umfangsmikil stofnun, angi af Lundarháskóla, þar sem væru margir sérfræðingar í málum af þessu tagi, og kæmi til greina að bera undir þá það sem á döfinni væri. — Bernharð Framhald af bls. 1 hins opinbera. I skýrslu nefnd- arinnar mun sagt, að hún hafi ekkert fundið, sem renni stoðum undir ásakanir um að Bernharð hafi þegið 1.1 milljón dollara frá Lockheed fyrir að hvetja til kaupa á flug- vélum þess. Blaðið gat ekki heimilda sinna og talsmaður stjórnarinnar sagði aðeins, að von væri á skýrslunni bráð- lega. — Organisti Framhald af bls. 2. 1840 í Tómasarkirkju í Leipzig, eftirtalin verk eftir Johann Se- bastian Bach: Prelúdía og fúga í Es-dúr Kóralforleikur „Schmiicke dich, o liebe Seele" Passacaglia f c-moll Prelúdía og fúga í a-moll Pastorale Toccata f F-dúr. — Upprifjunin Framhald af bls. 3 eftir þessum bilstjórum og gáfu tveir bílstjórar sig fram, sem töldu sig hafa tekið stúlku upp i bíla sína, þennan umrædda morgun. Sem fyrr segir sögðu þau Sævar, Kristján og Erla í fram- burði sínum að umrætt kvöld hafi verið farið f bátsferð frá steinbryggju Dráttarbraut- arinnar. I fyrri framburði sögðu þeir Sævar og Kristján Viðar að Geirfinnur hefði látið lff sitt í þeirri bátsferð, en síðan hefur Kristján breytt þeim framburði og heldur hann þvf nú fram, að Geirfinnur hafi látið lff sitt á athafnasvæði Dráttarbrautarinnar. Erla heldur því enn fram að báts- ferðin hafi verið farin, og at- burðirnir á svæði Dráttarbraut- arinnar gerzt að hefini lokinni. Samkvæmt fyrri vitnisburði Sævars og Kristjáns stóð báts- ferðin i 1—2 klukkutima og var aðaltilgangurinn að sækja spíra í plastbrúsum og áfengisflösk- um, en hvortveggja var bundið við baujur i Faxaflóa. I förinni voru samkvæmt framburði Sæ- var og Kristján, Magnús Leo- poldsson, Einar Bollason og Sigurbjörn Eirfksson auk þeirra sjálfra. Ennfremur 1—3 menn til viðbótar, en ekki hef- ur komið framhverjirþaðvoru. Einn þeirra var skipstjóri báts- ins. Valdimar Olsen varð eftir í landi. Sævar og Kristján Viðar sögðu að f bátnum hefði Geir- finnum lent í átökum við þá Einar, Magnús og Sigurbjörn og hlotið bana af. Sævar sagðist hafa staðið í lúkarsdyrunum og horft á en Kristján Viðar sagð- ist hafa reynt að hjálpa Geir- finni. Var nú haldið til lands og kváðust þeir Sævar og Kristján ekki vita betur en lík Geirfinns hefði verið tekið með í land. Þá sögðu ennfremur, að einn þremenninganna hefði sagt við þá, að þeir myndu hafa verra af ef þeir kjöftuðu frá. Þetta er i sem skemmstu máli fyrri framburður Sævars, Kristjáns og Erlu. Þeir Einar, Magnús, Sigurbjörn og Valdi- mar hafa allt frá byrjun neitað að vera nokkuð viðriðnir þetta mál og sagst ekkert við það kannast. Eftirgrennslan eftir öðrum mönnum, sem sagðir voru í umræddri bátsferð, hef- ur ekki borið árangur né held- ur eftirgrennslan eftir bátnum. — Breytt yfirstjórn Framhald af bls. 16 nokku8 verið gagnrýnd að því leyti hve hún mismunaði atvinnufyrir- tækjum eftir þvi hvar þau starfa á landinu. Á upphaflegum starfsregl- um sjóðsins hefur verið gerð nokkur breyting og þær rýmkaðar á þann veg, að nú veitir sjóðurinn lán til fiskiskipa. hvar sem er á landinu. Aðrar breytingar Ég tel, að ByggðasjóSur geti nðð markmiðum sínum um eflingu byggðar utan þéttbýlisins hér I Reykjavlk og næsta nágrenni borgar- innar án þess að mismuna atvinnu- fyrirtækjum I sömu grein. sem eiga við sömu eða svipað vandamál að strlða, hvar svo sem starfræksla þeirra fer fram. Með 16. grein frumvarpsins eru felld niður ákvæði úr núgildandi lög- um, þess efnis að Byggðasjóður hafi heimild til þess að gerast meðeig- andi I atvinnufyrirtækjum. Hefur það þótt gefast i11a. að lánasjóðir séu eigendur atvinnufyrirtækja. Tilgangi slnum nær Byggðasjóður betur með þvl að styrkja aðra aðila I þvl að byggja upp atvinnurekstur. Loks vek ég athygli á þeirri breyt- ingu, sem ráðgerð er varðandi skipt- ingu á greiðslu rekstrarkostnaðar Framkvæmdastofnunar. Samkvæmt núgildandi lögum skulu rlkissjóður. Seðlabanki íslands, Framkvæmda- sjóður og Byggðasjóður. auk sér- stakra sjóða. sem stofnuninni kann að vefða falin umsjá með, greiða I sameiningu kostnað af starfsemi Framkvæmdastofnunarinnar. I frum- varpinu er gert ráð fyrir að rlkis- sjóður og Seðlabanki hætti þátttöku sinni I greiðslu þessa kostnaðar. Eftir stóreflingu Byggðasjóðs. ætti greiðsla kostnaðarins ekki að verða neitt vandamál, enda er það næsta óeðlilegt og fá fordæmi fyrir þvl, að sllk stofnun þurfi á rekstraraðstoð að halda frá rlkissjóði og Seðlabanka. Þegar Þjóðhagsstofnun var komið á fót, var um það samið. að Seðla banki og rlkissjóður skiptu með sér kostnaði af rekstri þeirrar stofnunar og beinllnis út frá þvl gengið að sjóðir Framkvæmdastofnunar stæðu sjálfir undir rekstrarkostnaði hennar. Með frumvarpinu er lagt til að sú skipan verði lögbundin. Ég hef hér drepið á helstu þætti þessa frumvarps um breytingu á lög- um um Framkvæmdastofnun rlkis- ins, en vlsa að öðru leyti til greinar- gerðar með frumvarpinu. — Tilkynning sakadóms Framhald af bls. 3 Rannsókn er haldið áfram bæði af hálfu rannsóknar- lögreglu og fyrir dómi. Þau Sævar Marinó, Kristján Viðar, Erla og Tryggvi Rúnar eru öll í gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins og jafn- framt gert að sæta sérfræði- legri rannsókn á líkamlegu og andlegu heilbrigði og er sú rannsókn hafin fyrir nokkru. Ástæða er til að ætla að menn þeir sem staddir voru í Dráttar- braut Keflavíkur umrætt sinn hafi skýrt einhverjum frá því. Þá er ástæða til þess að ætla að þeir Sævar Marinó, Tryggvi Rúnar og Kristján Viðar hafi skýrt einhverjum frá afdrifum Guðmundar Einarssonar. Er hér með skorað á þá sem slíka vitneskju hafa að gefa sig þegar fram við rannsóknarlög- regluna. Frá sakadómi Revkjavfkur. — Orðið við ósk Framhald af bls. 3 „Dýrlingur og James Bond ts- lands“ og auðkennd er stöfunum S.P. Með bréfi dags i dag, 10. þ.m., hefur af ákæruvaldsins hálfu verið gerð krafa um rannsókn fari fram i sakadómi Reykjavíkur um sakarefni þessi. I fyrsta lagi verði rannsakað ætlað brot ábyrgðarmanns dag- blaðsins Timans gegn 108. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19, 1940 sbr. 16. gr. og 15. gr. 2. mgr. laga nr. 57, 1956 um prentrétt. í öðru lagi verði rannsökuð sannindi eða ósannindi þeirra að- dróttana, sem fram koma í fyrr- nefndri blaðagrein og varðað gætu deildarstjórann og rann- sóknarlögreglumanninn refsi- ábyrgð samkvæmt 131. gr. hegn- ingarlaganna ef sönnuð væru. I þriðja lagi verði rannsakað hvort þeir tveir félagar — annar eða báðir — hafi við rannsókn mála tekið sér eitthvert opinbert vald, sem þeir ekki hafa og þannig gerst brotlegir gegn 116. gr. hegningarlaganna eða misnot- að stöðu sína og hallað réttindum einstakra manna á þann veg að varði við 139. gr. sömu laga. — Bridge Framhald af bls. 3 umferð var spilað við Suður—Af- ríku þar sem allt var í háalofti. Vannst þessi leikur með minnsta mun 11—9. Eitt minusstig var afraksturinn í fimmtu umferðinni en það var á móti Ungverjum. tslenska sveitin er með 49 stig eftir fimm umferð- ir. I kvöld spilar íslenska sveitin við Marokko en hinn heimsfrægi hollenski spilari Slavenburger nú í landsliði þeirra. Risarnir USA og ítalia hafa lit- ið fengið af stigum enn, eru vafa- laust þreyttir eftir heimsmeist- arakeppnina. — Heildaraflinn Framhald af bls. 2. dæmi um minnkandi afla væri að eitt af þekktari skipum landsins, sem reyndar stundaði loðnuveið- ar fram eftir vetri, hefði fengið um 500 tonn af þorski eftir loðnu- vertíð í hitteðfyrra, í fyrra hefði báturinn fengið um 300 tonn, en að þessu sinni aðeins um 150 tonn frá lokum loðnuvertíðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.