Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 24
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1976 Skólaslit í Skálholti Sunnudaginn annan maí var lýðháskólanum í Skálholti slitið að aflokinni guðsþjónustu í dóm- kirkju staðarins. Skólaslitin hófust með ávarpi Arnórs Karlssonar kennara þar sem hann bauð heimafólk og gesti velkomna til skólaslitanna. Gestir voru all margir og þar á meðal nokkrir fyrrverandi nemendur lýðháskólans. Að loknu ávarpi Arnórs söng skólakórinn allmörg lög undir ágætri stjórn söngkennarans, Lofts Loftssonar, og tókst söngur- inn mjög vel miðað við allar aðstæður. Þessi söngur þeirra Skálhylt- inga var um ýmislegt athyglis- verður og táknrænn fyrir innra starf lýðháskólanna. Það sem fyrst vakti athygli var að ekki var látið nægja að syngja eitt erindi þeirra ljóða, sem lögin voru gerð við eða valin við. Svo sem kunnugt er, er efni Ijóðanna kveikja laganna sem við þau eru samin, m.ö.o. Ijóð og lag mynda eina heild, ekki aðeins fyrsta vísan heldur þær allar eða flestar. Orð Ijóðsins forma laglín- una og í samræmi við þann hug- blæ sem þau skapa í huga tón- skáldsins velur hann þeim tónteg- und og hrynjandi Ijóðs og bragar- háttur skapar hljóðfall lagsins. Þessi staðreynd varð mér óvenju ljós við að hlýða á söng þessa unga fólks, sem ekki lét sér nægja að syngja eina vísu og endurtaka hana, heldur fleiri vísur, stund- um ljóðið allt, og leitaðist við að túlka efni þeirra með söng sínum. Annað var það sem gerði þennan söng táknrænan fyrir lýð- háskólana. Þarna sungu allir með, allt heimilisfólkið, sem á annað borð gat sungið, bæði nemendur, starfsfólk og kennarar, og það var kannski heldur ekki tilviljun að fyrsta lagið sem skólakórinn söng var „Ó faðir ger mig litið ljós“, lag Jónasar Tómassonar við sálm séra Matthíasar, bæn um að verða öðrum að liði, síðasta lagið var ísland ögrum skoríð lag Sigvalda Kaldalóns við ljóð Eggerts Ólafs- sonar, þar sem föðurlandinu er þakkað og því beðið blessunar. Þetta tvennt, guðstrú og ætt- jarðarást, hefur löngum verið lífs- kvika og fjöregg lýðháskólanna. Að loknum söngnum lék einn nemandi skólans á píanó af mik- illi leikni og kunnáttu. Þetta var norsk stúlka, sem dvalið hefur í skólanum í vetur, Gry Ek að nafni. Hún er stúdent að mennt og reyndist hin styrkasta stoð í öllu félagslífi skólans auk þess sem hún spilaði í kirkjunni í vetur, hafði áður fengið smá til- sögn í meðferð hins mikla dóm- kirkjuorgels hjá kunnáttumönn- um. Þessi norska stúlka skartaði í fögrum og litsterkum þjóðbún- ingi, sem gæddi hana meðal annars óvenjulegum þokka. Þessu næst flutti Gry Ek ávarp frá nemendum og þakkir til skól- ans og með hennar leyfi er ávarp- ið birt orðrétt hér í lok þessarar greinar, þar sem það sýnir mat hinnar útlendu og menntuðú stúlku á skólaformi því, sem hún er nú að kynnast persónulega í fyrsta skipti, þótt hún vafalaust þekki til þessara skóla í heima- landi sínu, þar sem þeir hafa starfað i meira en hundrað ár og notið mikillar viðurkenningar. Að lokum flutti rekfor lýðhá- skölans, sr. Heimir Steinsson, skólaslitaræðu. Hann gat þess í upphafi máls síns að nú væri að ljúka fjórða starfsári hins unga skóla. Margt væri enn í mótun og fámenni til nokkurs baga í sam- bandi við félagslíf, sem þó hefði verið framar öllum vonum. Nægar væru umsóknir um skól- ann en heimavistir leyfðu ekki fleiri en verið hefðu í skólanum í vetur, 25 nemendur, þótt allt annað skólarými væri miðað við helmingi fleiri nemendur. Sem texta að ræðu sinni hafði rektor 23. kafla Heimskringlu, þar sem segir frá meðferð Erlings Skjálgssonar á þrælum sínum, sem hann reyndi að hjálpa á alla lund miðað við þeirra tíma hætti, og fleyg eru síðustu orð þessarar frásagnar „og öllum kom hann til nokkurs þroska“. Þetta atferli Erlings Skjálgssonar heimfærði ræðumaður upp á ráðandi skóla- kerfi, sem fremur væri miðað við heild og mælanlegan árangur í námi en hjálp við hvern einstakl- ing, honum til heilla og hamingju. Vegna hins ómennska eðlis kerfisins, væri það miklum erfið- leikum bundið á eðlilegan hátt að hjálpa öllum til nokkurs þroska Einhverjir yrðu alltaf utangátta vegna mismunandi upplags og uppeldis og hrekktust í urð upp- reisnar eða annarra sálrænna erfiðleika, óbeint fyrir tilstuðlan skyldunámsskólanna. Hér geta lýðháskólarnir bætt úr óhjákvæmilegum ágöllum ráð- andi skólakerfis. Þeir miða starf sitt fyrst og fremst við einstakl- inginn — að koma honum tii nokkurs þroska. — Vegna fá- mennis og hins prófsvipulausa náms og vegna þess umhverfis, öryggis og kyrrðar, er minnir á gott heimili, hefur þessum skól- um á undraverðan hátt tekist að segja ráðvilltum unglingum til vegar. Öll var ræða rektors hin athyglisverðasta, flutt í þeiiji anda sem hér hefur verið lýst þótt orðin séu annars. Að síðustu sungu allir við- staddir skólasöng þeirra Skálhylt- inga, ljóð sr, Sigurðar Einars- sonar við lag dr. Páls ísólfssonar: Eilífur guð yfir öldum — árljós- um vakir, úr Hátíðaljóðum er flutt voru á Skálholtshátíð 1966. Að skólaslitaathöfninni lokinni drukku allir viðstaddir kaffi í boði skólans. Handavinna nemenda var til sýnis í setustofu skólans og var það með ólíkindum hversu fjöl- breytt hún var og hvað sumir munanna voru með miklu snilldarhandbragði. Handavinnu- kennari skólans er Renata Skúla- son dýralæknisfrú í Laugarási. Þennan bjarta vordag skartaði Skálholtsstaður öllu sínu feg- ursta, sannarlega „upphafinn staður" bæði úti og inni. Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum. Ávarp Grv Ek Skáiholtsskólanemenda „Kæri skólastjóri, ágæta skóla- fölk og gestir. Sökum þess að skólaumsjönar- maður okkar, Gylfi Yngvason, er önnum kafinn við próflestur, hefur mér verið falið að taka til orða fyrir hönd nemenda i hans stað. Varla verður annað sagt en að hvert og eitt okkar hafi haft mjög gott af því starfi sem hér hefur verið unnið i vetur hvað snertir námsefni og persónuþroska. Skól- inn veitir nemendum glögga inn- sýn í það þjóðfélag, sem við búum við og í þeirri ró og kyrrð, sem yfir staðnum ríkir, gefst hverjum og einum tækifæri til að athuga sinn gang og komast í sátt við sjálfan sig. Vegna þess hversu fámennur skólinn er, myndast mjög fljótt meðal nemenda sá andi er gerir alla virka og stuðlar að félags- iegum þroska þeirra og fyrir suma geta áhrif skólans orðið að vegamótum í lífi þeirra. Að vísu er sumt sem mætti betur fara en má kannski rekja það til þess hversu skólinn er ennþá á mótunarstigi. Persónulega óska ég þess að lög fáist samþykkt um gildi lýðháskóla á íslandi sem allra fyrst í samræmi við norræn lýðháskólalög. Við óskum skólanum allra heilla um langa framtíð. Sem sagt veturinn hefur reynst öllum góð- ur og við viljum með þessu þakka öllu því ágæta fólki sem í hlut hefur átt til að gera okkur vetur- inn ánægjulegan. Eg vil enda mál mitt með per- sónulegum kveðjum frá hverjum og einum um bjarta og góða fram- tið ykkar allra, og vonumst við öll til að hitta ykkur aftur innan skamms. Sér í lagi viljum við þakka Heimi Steinssyni og Dóru Þórhallsdóttur fyrir vel unnin störf og má ég biðja þau að koma hingað_og taka við þakklætisvotti frá okkur.“ (Orðrétt eftir hand- riti Gry Ek.) Hafið er ekki ótæmandi matarnáma: Meðal frltfkaninitiir á mannsbarn mínnkaði um 11% á þremur árum 0 ÞÆR vonir sem menn hafa hundið við það að geta leitað til hafsins eftir fæðu þegar matvælalindir á landi verða fyrir sfauknum þrýstingi vegna fðlksfjölgunar, eru nú mjög að dofna. Dagblöð f Tðkyó, London og Lima segja dag hvern frá vaxandi samkeppni um fiskveiðar á höfunum og togstreytu landa á milli um minnkandi afla. Ofveiði er algeng og mengun hafanna fer sffellt versnandi. 0 Árlegur fiskafli f heiminum er nálægt 70 milljðnir tonna og er ein helzta náma mannkynsins fyrir næringarrfkustu eggjahvftu- efni, — mun mikilvægari en kjöt. Árunum 1950 til 1970 meir en þrefaldaðist aflamagn fisks f heiminum, eða úr 21 milljðn tonna f um 70 milljón tonn. Þessi gevsilega árlega aukning fisksafla (um 5%) fór langt fram úr fólksf jölguninni, og jðk meðalfisknevzlu á hvern mann úr 8 kflóum árið 1950 f 19 árið 1970. Kíló 1PóO lPoO 1970 10ö0 Fiskskammtur á hvert mannsbarn á árunum 1950—74. A aðeins fimm árum, þ.e. frá 1965 til 1970 jókst fiskafli í heiminum um 18 milljónir tonna eða 35%. Ef sú þróun hefði haldið áfram hefði aflinn árið 1965 orðið um 95 milljónir tonna. En á árunum 1970 til 1973 snerist þessi þróun við og aflinn minnkaði um næstum því 5 milljónir tonna. Á sama tíma og mannfjöldinn hélt áfram að aukast minnkaði með- alfiskmagn á hvern mann um 11% á þessum þremur árum, með þeim afleiðingum að verð- lag á fiski tók gífurlegt stökk. Aflinn árið 1974 er talinn um 69.000 tonn, þ.e. milljón tonn- um minni en aflinn 1970. Þegar stofnar helztu nytja- fiska dragast saman eykst sá tími og þeir fjármunir sem var- ið er í að færa hinn minnkandi afla heim. Margir fiskifræðing- ar telja nú að veiði neyzluhæfs fisks um heim allan hafi náð leyfilegu hámarki. Af 30 helztu neyzlufiskstegundunum eru nú margar ofveiddar, þ.e. stofn- arnir þola ekki einu sinni nú- verandi ásókn, hvað þá meiri. Án alþjóðlegs samstarfs um stjórnun fiskveiða og vaxandi mengunar kann aflinn jafnvel að dragast enn meir saman. Vandamálið er ekki einvörð- ungu sá möguleiki að það borgi sig verr en áður að fjárfesta í fiskveiðum, heldur einnig að það borgi sig alls ekki. 1 mörg- um fiskveiðilöndum leiðir auk- in fjárfestin i fiskiskipaflotum til ofveiði og í raun og veru dregur úr aflanum til lang- frama. Ríkar þjóðir sem fátækar munu verða illa úti ef algjört hrun verður í fiskveiðunum i heiminum. Þrýstingur að tak- markað akurlendi vegna fólks- fjölgunar neyddi Japana fyrir löngu til þess að snúa sér að hafinu sem eggjahvituefna- ná'mu og stuðla að fisk- og hris- grjónamataræði. Afleiðingin er sú að árleg fiskneyzla á hvern Japana er nú meir en 70 pund, sem er meira en i nokkru öðru mannmörgu landi. Fiskveiðar á Norðvestur- Atlantshafi eru mjög gott dæmi um hvað gerist þegar eftir- spurnin fer fram úr fjölgunar- getu eftirsóttustu neyzlufisks- stofnanna. Aflinn á þessu líf- fræðilega auðuga hafsvæði jókst stöðugt fram til ársins 1968, þegar hann náði 4,6 millj- ónum tonna. Sfðan hefur aflinn sveiflast mjög niður á við og fór niður í 4 milljónir tonna árið 1975 sem er 13% minnkun mið- að við árið 1968. Þessi hnignun átti sér stað þrátt fyrir mikla fjárfestingu sem ætlað var að stækka til muna fiskiskipaflota margra landa. ((•reinin hirtist f bladinu Daily Amer ican og er unnin úr skýrslu Worldwatch- stofnunarinnar frá þvf f marz).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.