Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 26
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1976 t Systir mín FRK ÁSA ÁSMUNDSDÓTTIR, fyrrverandi Ijósmóðir í Reykjavík andaðist í Landakotspítala föstudaginn 7 maí Fyrir hönd systur og annarra vandamanna Guðbjörg Kristinsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi JÓN SUMARLIOASON, Kópavogsbraut 5, Kópavogi. andaðist föstudaginn 7 mai Hrefna Ólafsdóttir, Ólafur Reynir Jónsson. Sigrún Kristinsdóttir, Guðrún Sif Jónsdóttir, Davíð Guðmundsson, Hallgrimur Smári Jónsson, Jóhanna B. Hauksdóttir, og barnaborn t Eiginmaður minn, AÐALSTEINN JAKOBSSON, Langholtsvegi 200, lézt i Landspitalanum 10 mai Lilja Magnúsdóttir t Móðir okkar DÝRLEIF PÁLSDÓTTIR, frá Möðrufelli andaðist í Landspítalanum 8 þ m Guðný Aradóttir, Páll Arason. Etginmaður minn + EIRÍKUR ÞORSTEINSSON fyrrverandi alþingismaður andaðist laugardag nn 8 mai Anna Guðmundsdóttir. t Eiginmaður minn, MAGNÚS VIGFÚSSON, húsasmiðameistari, varð bráðkvaddur að heimili sínu, Stigahlíð 42, sunnudaginn 9 mai Sólveig Guðmundsdóttir. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi STEINN JÚLÍUS ÁRNASON húsasmíðameistari, Njörvasundi 32 lézt í Borgarspítalanum sunnudaginn 9 þ m Anna Ólafsdóttir Guðríður Steinsdóttir Árni Steinsson Gyða Ragnarsdóttir og barnabörn. t Eigmkona mín, móðir okkar og tengdamóðir SIGRÍÐUR TÓMASDÓTTIR verður jarðsungin frá 13 30 Hrafnistu Fossvogskirkju, miðvikudaginn 12 maí kl Vilbergur Pétursson Svava Vilbergsdóttir Njáll Simonarson Margrét Vilbergsdóttir Bjami Ragnarsson t Útför móður okkar, GUÐRÚNAR SVANBORGAR ÞÓRARINSDÓTTUR, frá Hallstúni sem andaðist á Landakotspitala, 7 maí fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 14 maí kl 3. Þeim, sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Börnin Halldór Kristján Júlíusson fyrrv. sýslumaður - Minning Aldinn höfðingi, elsti stúdent landsins, er borinn til grafar í dag. Halldór Kristján Júlíusson var fæddur á Breiðabólstað í Vestur- hópi 29. 10. 1877, elsta barn hjón- anna Júlíusar héraðslæknis Halldórssonar, Friðrikssonar yfir- kennara við Menntaskólann í Reykjavík og konu hans Ingi- bjargar Magnúsdóttur Jónssonar prests á Grenjastað. Olst hann upp hjá foreldrum sinum í Klömbrum í Vesturhópi en var ekki gamall þegar hann fór að fara landveg til Reykjavikur og dvaldist þar á vetrum hjá Halldóri afa sínum. Var hann víst 8 ára er hann fór fyrstu ferðina og þá samferða námsmönnum. Sundriðu þeir ár á leiðinni, og sagði Halldór svo frá að hann hefði ekki gert sér grein fyrir hvað var að gerast. Lenti hann i mörgum svaðilförum á þeirri leið oft síðan. Halldór fór ungur í Latínuskólann og varð stúdent 1896, þegar skólinn varð 50 ára og má geta þess að þá útskrifuðust 17 stúdentar og af þeim lifðu 11 það að taka þátt i 100 ára afmæli skólans 1946. Halldór var þó nú einn á lífi af þeim fríða hópi, enda hefði hann orðið 80 ára stúdent í vor. Á þeim timum var mikið um berkla í skólanum og sagðist Halldór mundu hafa fengið berkla um fermingu, þá hefði hann heilt sumar verið mjög mæðinn og veill. En hann komst siðan fljótlega yfir það, og má segja að eftir það hafi hann aldrei kennt sér nokkurs meins og skorti nú hálft annað ár til tíræðs. Halldór nam lögfræði við Hafnarháskóla og kynntist þar kenningum Brandesar, sem höfðu mikil áhrif á hann æ síðan, og las heimspeki og margt og mikið á skólaárum sínum, annað en lög- fræði. Tilvitnanir í Schopenhauer og fornrómverska höfunda hafði hann jafnan siðan á reiðum höndum. Hann lauk lögfræðiprófi í ársbyrjun 1905 og gerðist síðan fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Reykjavík, uns hann var skipaður sýslumaður Strandamanna vorið 1909. Eftir það var hann sýslu- maður þeirra við miklar vinsæld- ir uns hann lét af embætti í júli 1939 og fluttist þá til Reykja- víkur. Hann var skipaður setu- dómari í hinu fræga Hnífsdals- máli 1927 og kom þar fram af sinni alkunnu röggsemi, einnig var hann nokkru fyrr setudómari í kunnu Stokkseyrarmáli. Lög- reglustjóri var hann skipaður á Alþingishátíðinni á Þingvöllum 1930, svo nokkuð sé talið, og lét jafnan mikið til sín taka. í því sambandi má rifja upp að faðir hans striddi móðurinni oft á því að er Halldór fæddist og henni var sagt að hún hefði eignast son, varð henni að orði: ,,Æ, ég vildi hann yrði ekki meinlaus," enda þótti það nokkuð eftir ganga. Ein- beitni og skörungsbragð Halldórs yfirkennara þótti einhvers vert. Halldór kvæntist 1907 Ingi- björgu Hjartardóttur, hrepp- stjóra á Efra-Núpi i Mið- firði, og er sonur þeirra Hjörtur menntaskólakennari, kvæntur Unni Árnadóttur. Halldór og Ingibjörg skildu samvistir. 1924 kvæntist hann í annað sinn og þá Láru Helgadóttur. Voru Helgi faðir hennar og Björn Jónsson ráðherra bræðrasynir. Lára missti ung föður sinn og var þá tekin i fóstur af ,Þóru systur Halldórs og manni hennar Guðmundi Björnssyni, sýslu- manni, þá búsettum á Patreks- firði. Lára dó árið 1971. Með Láru átti Halldór 6 börn, en þau eru: Pétur Emil Július, vélstjóri, f. 26. febr. 1924 á Borðeyri, fyrst kvæntur Krístínu Simonardóttur, bifrstj. í Rvk. Símonarsonar, og síðar Þórunni Benediktsdóttur Gröndals verkfr. og forstj. Hamars h.f. í Reykjavík. Ingi- björg, f. 8. des. 1926 á Borðeyri, gift Ingólfi Eyfeld Guðjónssyni, vélamanni. Helgi Kristján járn- smíðameistari í Rvk. f. 17. apríl 1928 á Borðeyri kvæntur Elísabetu Gunnlaugsdóttur. Þorgerður f. 29. des. 1929 á Borðeyri, gift Albert Beck sjómanni. Ásgerður, f. 31. jan. 1935 á Borðeyri, gift Jóhannesi Guðjóns- syni bónda á Furubrekku i Staðarsveit. Steingerður, f. 14. mai 1940 í Reykjavik, gift Emil Hávarði Bogasyni verslm. Sonur Halldórs og Þórhildar Eiríksdóttur, bónda í Blöndudals- hólum, Halldórssonar, var Eiríkur f. 21. ág. 1903 i Khöfn, dáinn 13. des. 1941. Eiríkur ólst upp hjá foreldrum Halldórs. Kvæntur Hólmfriði Sveinbjarnar- dóttur. Barnabörn Halldórs eru 36 að tölu. Halldór Kr. Júliusson var gleði- maður í vinahópi og höfðingi heim að sækja. Mörgum var minnisstætt að heyra hann syngja Útför KRISTMUNDAR FRÍMANS JAKOBSSONAR, Suðurkoti, Vogum, fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 1 2. mai kl 3 e.h. Blóm vinsamlega afþökkuð Fyrir hönd barna hins látna, Guðrún Benediktsdóttir. Faðir okkar og tengdafaðir ÓLAFUR GUÐMUNDSSON. trésmiðameistari, verður jarðsunginn frá Frikirkjunni i Reykjavík, miðvikudaginn 12 maí kl 1 3.30 Þeim er vilja minnast hans, er vinsamlega bent á minningar- kort Kristniboðsins eða K.F.U.M. og K Bjami Ólafsson, Hanna Arnlaugsdóttir, Guðm. Óli Ólafsson, Anna Magnúsdóttir, Felix Ólafsson, Kristin Guðleifsdóttir f Útför eiginkonu minnar móður okkar, dóttur og systur JÖRGÍNU JÚLÍUSDÓTTUR sem lést miðvikudaginn 5 maí, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag- inn 1 3 mai kl 1 3 30 Þeim sem vilja minnast hennar er góðfúslega bent á Landakotspitala Ólafur Björnsson, Július Ólafsson. Alma Ólafsdóttir, Sigriður Jörundsdóttir Heba Júliusdóttir, Sigrún Júliusdóttir „Gluntarna", enda var hann góður söngmaður og stöðugt hinn glaði stúdent áttatíu vetur. Eftir aldarlangt ferðalag fer að fækka samferðafólki. En margir eru þó, þegar Halldór Kr. Júlíus- son er kvaddur, sem minnast sterks persónuleika og skarpra tilsvara, muna hreinan svip og glettniglampa undir brúnum. Þeir ylja sér nú á kveðjustund við bjartar rninningar, þakka langan og litmikinn dag að kvöldi. Halldór Sigfússon Ég man glöggt, þótt ég væri barn að aldri, þegar Halldór Kr. Júlíusson tók við sýslumanns- störfum í Strandasýslu af Marinó Hafstein 1909, og er því liðinn fullur mannsaldur síðan ég veitti honum athygli og fundum okkar bar fyrst saman. Einu sinni á ári eða oftar lagði sýslumaður leið sina norður i afskekktustu byggð héraðsins, Árneshrepp. Kom hann þá oftast við heima, og gisti stundum, varð einu sinni eða tvisvar veðurtepptur einn eða tvo daga. Þótti mér maðurinn mikillar gerðar og höfðinglegur, og var ekki laust við að ég hefði í fyrstu af honum nokkurn beyg. En það hvarf þó fljótt, þvi i reynd var hann „Ijúfur og kátur", gerði sér engan mannamun og hafði yndi af að tala við börn. Komst ég snemma á snoðir um, að sýslu- maður var ekki aðeins lærður á bækur heldur var hann og enginn glópur í veraldlegum efnum. Ég minnist aðdáunar hans á land- kostum Norður-Stranda: Hvergi í sýslunni var betra til fanga, hvergi reki né hlunnindi meiri, hvergi gerðu kvíaærnar víðlíka gagn, hvergi voru sílspikaðri sauðir. Mér þótti þetta nýstárlegt sjónar- mið. Þá skoðun hafði ég drukkið í mig með móðurmjólkinni, að þetta væri ein harðbýlasta og versta sveitin á öllu landinu, en seinna hef ég skilið, að gestsauga sýslumannsins var glöggt. Sem yfirvald var Halldór Júlí- usson í senn röggsamur og virtur. Hann var góður mannasættir, hélt uppi friði og aga í héraði, enda lét honum vel sú list að kveða niður þrefara og málaþjarkara. Sóttu engir slíkir kumpánar gull í greipar hans. Halldór dró ekki lagasverðið úr slíðrum nema þess gerðist full þörf. En þá frýði eng- útfaraskreytingar Groðurhusið v/Sigtún siim 36770 S. Helgason hf. STEINIÐJA tlnholll 4 Sfmar 14477 og 142S4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.