Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1976 29 — Kjörinn formaður Framhald af bls. 12 manns á stofnfundinn, eigin- konur, foreldrar og jafnvel ömmur og afar. I stjórn félagsins voru kosnar auk Elínar: Jóhanna Kristjónsdóttir, Edda Þorvarðar- dóttir, Ásdis Konráðsdóttir, Gyða Vigfúsdóttir, Ólöf Benónýsdóttir og Ölöf Gunnarsdóttir. — Hvers vegna . . . ? Framhald af bls. 24 vöruðu sig á þeim. Enda er allt sameiginlegt með þessum þremur skipssköðum, þau fara öll í sæmi- legustu sjóveðrum, þegar menn álíta að sérstakrar aðgæslu sé VERIÐ FYRRI TIL Hafið Chubb Fire slökkvitæki ávallt við hendina. Vatnstæki kolsýrutæki dufttæki slönguhjól slönguvagnar eldvarnarteppi Munið: Á morgun getur verið of seint að fá sér slökkvi- * tæki Ólafur Gíslason & Co h.f., Sundaborg Sírni: 84800. MS MS M2 sw MS MY Adolst augl V^/TEIKr IMDAM ræti 6 simi MS ÝSINGA- UISTOFA ÓTA 25810 ekki þörf og eiga sér einskis ills von. Þau fara öll svo snögglega að engum vörnum verður við komið. Það spurðist ekkert til tveggja skipanna, sem fórust, og menn veltu því mikið fyrir sér hvað hefði gerst. I þriðja og vonandi síðasta slysinu af þessu tagi vorum við skipverjar á Hrafni Sveinbjarnarsyni II sjónarvottar að því sem gerðist. Og eftir þá lífsreynslu get ég ekki þagað þegar ég sé hvernig forsvars- maður Siglingamálastofnunar rikisins ætlar svo smekklega að snúa sig út úr málinu og sömu- leiðis forsvarsmaður slysavarna- mála á Islandi, Hannes Hafstein, i Dagblaðinu þann 13. apríl. i sama blaði og reyndar, mjög hæfur skipstjóri, sem var sjónarvottur að síðasta slysinu lýsir því yfir að full ástæða væri til að athuga sjóhæfni þeirra tveggja báta, sem eftir eru af þessari gerð, segir slysavarnafélagsmaðurinn: „Ég trúi þvi ekki að þessir bátar séu neitt varhugaverðari en önnur skip svo þessir skaðar eru vafa- laust tilviljun." Mig langað að lokum að biðja þessa tvo menn, sem með öryggis- mál skipa og sjómanna fara, að hugleiða að þessar þrjár „tilviljanir" hafa kostað 16 íslenska sjómenn lífið. Og ennþá gætu gerst tvær „tilviljanir" í við- bót af sömu gerð. Skúli Óskarsson, vélstjóri m/s Ilrafni Sveinbjarnarsvni II Grindavfk. — Minning Guðmundur Framhald af bls. 31 hans, að eyða þyrfti dýrmætum tíma og fyrirhöfn til þess að þrifa upp gólf eða stéttar, þar sem hinn öruggi fagmaður hafði farið hendi um með pensla sína eða málningarrúllur. Þessi snyrti- mennska Guðmundar Jóhannes- sonar var algild, og birtist ekki síður í klæðaburði og umgengni á heimili sinu. Svipmynd sú,sem hér hefir verið dregin upp af Guðmundir Jóhannessyni, málarameistara, er í hæsta máta ófullkomin, enda gerð af kunnáttulitlum leikmanni, sem aldrei hefir getað haldið á málara- pensli sjálfum sér eða öðrum til gagns. Því 'skal nú botn slegi’nn í þessar hugleiðingar. En enda þótt myndin hefði í öllum tilvikum mátt vera betri, verður hún þó að hafa sinn ramma. Sú umgerð verður kannski best táknuð með fjórum venjulegum orðum, sem hvert í sínu lagi gætu táknað eina hlið rammans. Þessi einkunnarorð eru: Drengskapur, hjálpsémi, samviskusemi og heiðarleiki. Eiginkonu Guðmundar Jóhannessonar, börnum þeirra, tengdabörnum og skyldmennum öllum eru fluttar innilegustu samúðarkveðjur. H.Þ. — íþróttahús eða samkomusalur Framhald af bls. 14 talaði aftur og sagðist skilja afstöðu foreldra barna i Hlíðaskóla fyllilega en varpaði fram þeirri spurningu, hvort hér væri ekki verið að gera bjarnar- greiða Hann sagðist ekki vilja tefja málið en endurtók að þetta yrði slæm lausn Markús Örn Antonsson talaði því næst og sagði, að auðvitað bæri að hlynna að íþróttum en fráleitt væri að gera það á kostnað annars félagsstarfs. Hann ræddi það siðan nokkuð að húsið gæti nýtzt fyrir samkomuhald skólans og taldi það fara vel saman að nýta húsið bæði sem íþróttahús og samkomuhús. Úlfar Þórðarson (S) sagði réttara að hafa húsið stærra en fyrirhugað er og drap á að nú væru bekkjardeildir fyrir fatlaða í Hlíðaskóla. Talaði Úlfar svo um iþróttir fatlaðra og sagði þær þurfa meira pláss en iþróttir annarra og ekki ætti að vera eftirsjá í að veita meira fé í byggingu stærra húss. Birgir ísleifur Gunnarsson (S) tók síðastur til máls og sagði, að sér hefði borizt ósk um að fresta afgreiðslu málsins og fyndist sér að ræða mætti málið betur og var það samþykkt. — Minning Halldór Framhald af bls. 31 huggun og styrkur að frelsarinn er til. Að þeir vissu um hann, að hann er sá sem vekur upp dauða . . . Hann gat látið þau augu, sem nú voru brostin, sjá hið eilifa Ijós, hann gat gefið þeim limum sem hnigu til dufts, líf og krafta til að lyfta sér hátt yfir stjörnurnar, stirðnað hjarta i köldum barmi myndi verða sett af stað aftur af heitum hjartslætti Guðs sjálfs og vér sem stóðum hjá og vissum hið eina vissa, aó öllu var lokið að eilifu, gátum af náð hans brosað gegnum tárin og sagt: Við sjá- umst aftur.“ Blessun og friður sé yfir minningu lífs Halldórs Kr. Júlíussonar. Guðmundur Óskar Olafsson Höfum opnað TEPPADEILD að Smiðjuvegi 6 100 mismunandi gerðir og mynstur af gólfteppum frá GiltEdge og CMC í háum gæðaflokki -u SMIDJUVEGI6 SÍMI44544

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.