Morgunblaðið - 11.05.1976, Side 15

Morgunblaðið - 11.05.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1976 15 Hraðað verði byggingu húsnæðis fyrir aldraða Alyktanir Bandalags kvenna í Reykjavík YMSAR álvktanir voru gerðar á aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík, sem haldinn var á s.l. vetri. Hér fara á eftir álvktanir um áfengismál, barnagæzlu, heil- brigðismál og kirkjumál: Áfengismál. Aðalfundurinn telur nauðsyn- legt að drykkjumannahælið i Vífilsstaðalandi, sem staðið hefur fullbúið til notkunar siðan í júlí s.l., verði tekið í notkun og full nýting verði þar svo fljótt sem mögulegt er, og að á þessu hæli verði jöfn aðstaða fyrir konur sem karla. Aðalfundurinn beinir þeim til- mælum til Alþingis að veita aldrei minna fé árlega í gæslu- vistarsjóð en sem nemur 2% af ágóða Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins, til þess að sjóðurinn geti staðið undir þeim kostnaði við uppbyggingu nauðsynlegra stofnana, sem lög kveða á um. Aðalfundurinn beinir þeim ein- dregnu tilmælum til Borgar- stjórnar Reykjavíkur að hún hlut- ist til um það, að skipulögð verði hið bráðasta þjónusta, sem veiti vernd og skyndihjálp þeim heimilum, sem þjökuð eru af völdum ofdrykkju. Fundurinn vill leggja áherslu á, að sú þjónusta, sem hér um ræðir, er orðin mjög aðkallandi. Aðalfundurinn skorar á alla þá aðila, sem hafa með áfengis- og fikniefnamál að gera, að láta einskis ófreistað til þess að upp- ræta sölu áfengis og fíknilyfja til unglinga og að þeir, sem gerast sekir um slíkt, hljóti þung viður- lög. Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík telur afnám áfengis- veitinga í opinberum veislum mikilvægan stuðning í baráttunni gegn áfengisbölinu, þar sem slíkt mun draga úr áfengisneyslu. 1 þessu efni hvetur fundurinn Alþingi til að samþykkja bann við áfengisveitingum í samkvæmum á vegum hins opinbera. Barnagæsla. Aðalfundirinn vill þakka menntamálaráðuneytinu fyrir að hafin skuli vera endurskoðun barnaverndarlaganna og treystir því að hún verði sem fyrst til lykta leidd. Fundurinn beinir þeirri áskorun til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, að komið verði hið bráðasta upp ráð- gjafar- og hjálparstöð fyrir and- lega og líkamlega þroskaheft börn, þar sem sjúkdómsgreining geti farið fram. Ætti þá einnig að koma til tilkynningaskylda af hálfu lækna, ljósmæðra, fæð- ingarheimila og ungbarnaeftir- lits. Fundurinn óskar eindregið eftir því, að athugaður verði sá möguleiki að koma upp fleiri dag- heimilum handa þroskaheftum börnum, og einnig vistheimili fyrir þau börn utan af landi, er verða að dveljast i Reykjavík til lækninga vegna sjúkleika síns. Fundurinn vill skora á mennta- málaráðuneytið að reglugerð um sérkennslu verði gefin út svo fljótt sem unnt er. Aðalfundurinn fer þess á leit við borgaryfirvöld að komið verði á ungbarnaeftirliti í öllum út- hverfum borgarinnar og óskar eindregið eftir, að slíkar deildir séu undir umsjón barnalækna. Jafnframt fagnar fundurinn því sem áunnist hefur í þessum efnum. Aðalfundurinn beinir þeirri eindregnu ósk til borgarjfirvalda, að svo fljótt sem unnt er verði gerðar ráðstafanir til að auðvelda fötluðum að fara ferða sinna (t.d. i hjólastól) og þá meðal annars með því að hafa hliðsjón af sliku við gerð og lagfæringar opinberra bygginga og skipulagningu umferðar. Aðalfundurinn skorar á borgar- yfirvöld, að hlutast til um að komið verði upp i borginni útibúi frá Slysavarðstofu Borgar- spítalans, sem hefði það hlutverk að sinna minni háttar meiðslum barna frá kl. 9—6 á daginn. Áður fyrr létu Landspítalinn og Landa- kotsspítalinn slíka þjónustu í té. Fundurinn vill benda á, hve nauð- Framhald á bls. 17 Nýtt — Nýtt Eftirlíking af grófum Viðarbitum Auðvelt í uppsetningu. Breidd : 1 5 cm Þykkt : 5 cm Lengdir : 300 og 360 cm HURÐIR hf.# Skeifan 13 Full búð af nýjum vörum Peysur og vesti á 2.300.— Léttar úlpur á 2.200.— Flauelsbuxur 1.1 90.— Smekkbuxur á 1 .060.— Stuttermabolir — Rúllakragabolir í mörgum litum á börn og fullorðna. Sundfatnað- ur á börn og fullorðna. Allt á börnin í sveitina. Póstsendum. Bella Laugaveg 99, gengið inn frá Snorrabraut. Sími 26015. Tré- klossar ný komnir Stærðir: 23—33 Verð 2.265.- Verð 3.650 - Verð 3.650.- Skósel sími 21270 Póstsendum. Til stúdenta- gjafa Stúdentastjarna. 14 k. gull. Verð 4.800 - Stúdinan hálsmen. stúdentinn bindispjrón. Við viljum einnig minna á hið glæsilega úrval okkar til stúdentagjafa Fagur gripur er æ til yndis. SMiAiOéiMfl Iðnaðarhúsið v/lngólfsstræti. Merkjasala Slysavarnadeildarinnar Ingólfs sunnudaginn 11. maí 1 975. Merkin afhent í flestum barnaskólum borgarinnar kl. 1 0— 1 5. Foreldrar hvetjið börn yðar til að selja merkin, 10% sölulaun. Farin verður sundaferð með 50 söluhæstu börnin. Slysavarnadeildin Ingólfur. rE-"j:ri Fólksbíla lförubíla Dróttarvéla og Jeppa hjólbaröar o O á gamla verðinu, án hækkaðs vörugjalds -Takmarkaðar birgðir Sparið þúsundir - kaupið Barum í dag. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ISLANDIH/F AUÐBREKKU 44-46 SÍM/ 42606 AKUREYRI: SKODA VERKSTÆOIÐ A AKUREYRI H/F. OSEYRI 8. EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR. GARÐABÆR: NÝBARÐI H/F GARÐABÆ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.