Morgunblaðið - 11.05.1976, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1976
Framkvæmdastofnunin:
Breytt yfirstjórn og
dregið úr miðstýringu
Frumvarpið málainiðlun stjórnarflokkanna, sem hafa ólík viðhorf til málsius
Ræða forsætisráðherra á alþingi í gær
Hér fer á eftir framsaga forsætisráðherra, Geirs Hallgrims-
sonar, með stjórnarfrumvarpi um breytingu á lögum um
Framkvæmdastofnun rtkisins. Í svarræðu ráðherra, síðar i
umræðunni, kom m.a. fram:
Q Frumvarp þetta er málamiðlun stjórnarflokkanna, sem
ekki hafa að öllu leyti sama viðhorf til þess, hvern veg
Framkvæmdastofnunin skuli upp byggð.
0 í frumvarpinu er engu að siður tekið tillit til þriggja megin
gagnrýnisatriða Sjálfstæðisflokksins, við upphaflegt
frumvarp með því að: 1) dregið úr miðstýringu, 2) horfið'
frá kommissarakerfi að því leyti að framkvæmdarí-ðið er
gert ábyrgara gagnvart stjórn stofnunarinnar og stjórn-
völdum og 3) fellt niður það lagaákvæði sem helzt bauð
upp á valdbeitingu, sem þó hefur ekki komið til í starfi
stofnunarinnar.
Geir Hallgrimsson forsætisráðherra.
Stefnuyfirlýsing
rikisstjórnar
Frumvarp það, sem hér er flutt, er
til efnda á því ákvæði stefnuyfirlýs
ingar rlkisstjórnarinnar, að lög Fram-
kvæmdastofnunar rfkisins skuli
endurskoðuð,
Strax við upphaf stjórnarsam-
starfsins var þingmönnunum Ingólfi
Jónssyni, Steingrími Hermannssyni.
Sverri Hermannssyni og Tómasi
Árnasyni falið að semja frumvarp til
laga um breyting á lögum Fram-
kvæmdastofnunar rlkisins. Fyrstu til-
lögur sfnar lögðu þeir fram haustið
1974, en að ósk minni héldu þeir
störfum sfnum áfram og tóku af-
stöðu til ýmissa hugmynda, sem
fram komu um breytingar á skipulagi
Framkvæmdastofnunar. í byrjun
sfðasta mánaðar lögðu þeir fram þær
tillögur. sem hér eru kynntar og
stjórnarflokkarnir hafa sameinast
um.
Allsnarpar umræður urðu um
Framkvæmdastofnun ríkisins
haustið 1971 hér á Alþingi. þegar
frumvarp til laga um hana var rætt.
M.a. var að þv! fundið að með stofn-
uninni var breytt um starfshætti við
efnahagslega ráðgjöf til rfkisstjórnar-
innar, Efnahagsstofnunin var lögð
niður og gerð að deild f Fram-
kvæmdastofnun. Með lögum
54/1974 var Hagrannsóknadeild
Framkvæmdastofnunar lögð niður,
og Þjóðhagsstofnun komið á fót. Sú
ráðstöfun hefur reynst heilladrjúg.
Þjóðhagsstofnun hefur áunnið sér
traust og tiltrú og reynst ómetanleg
við alla úttekt á efnahag þjóðarinnar
og ráðgjöf á þeim efnahagslegu um-
brotatfmum, sem við höfum lifað frá
þvf hún fékk sjálfstæðan grundvöll.
Mikilvæg nýjung:
sérstök byggðadeild
Samkvæmt 1. grein frumvarpsins
er Framkvæmdastofnun rfkisins
sjálfstæð stofnun, sem annast
áætlanagerð, byggðamál og lánveit-
ingar. Úr lögum eru felld ákvæði þar
sem mælt er fyrir um, að stofnunin
sé ríkisstjórninni „til aðstoðar við
stefnumótun í efnahags- og atvinnu-
málum", og hún annist hagrann-
sóknir.
Samkvæmt 1. gr. frumvarpsins
skal stofnunin starfa f þremur deild-
um: Áætlanadeild, Byggðadeitd og
Lánadeild. i þessu ákvæði kemur
fram það nýmæli, að mælt er fyrir
um sérstaka Byggðadeild við stofn-
unina, en samkvæmt 9. gr. frum-
varpsins, skal hún gera áætlanir um
þróun byggða og atvinnulffs f þeim
tilgangi að tryggja atvinnu og búsetu
f byggðum landsins. Deildin fjallar
um áhrif opinberra aðgerða á
byggðaþróun og gerir tillögur til úr-
bóta, ef þörf þykir. Hún skal i
störfum sfnum hafa nána samvinnu
við Áætlanadeild og Lánadeild. Sam-
kvæmt þessu tekur Byggðadeild að
sér hluta þeirra verkefna, sem
hingað til hafa heyrt undir Áætlana-
deild. Þar ber hæst landshluta-
áætlanir, sem unnar verða f sam-
hengi og samræmi við heildar
áætlanir Áætlanadeildar. Þá mun
deildin hafa nána samvinnu við
Lánadeild um útlán Byggðasjóðs.
I þessu sambandi vil ég vekja at-
hygli á þvf. aðhinn 5. mars s.l. ritaði
milliþinganefnd um byggðamál mér
bréf, þar sem hún mælti með þvf, að
við Framkvæmdastofnun rfkisins
verði sett á fót Byggðadeild, sem
hafi það verkefni að fylgjast með
framkvæmdum byggðamála. Segir
milliþinganefndin. að þar sem
byggðamál séu meðal megin við-
fangsefna Framkvæmdastofnunar
rfkisins. virðist eðlilegt að þau séu
tekin fastari tökum I nýrri deild,
Byggðadeild. Ég tel, að með 9. gr.
þessa frumvarps sé komið til móts
við óskir milliþinganefndarinnar, og
ef frumvarp þetta verður að lögum.
verður það á valdi stjórnar Fram-
kvæmdastofnunar að ákveða hve-
nær hin nýja deild tekur til starfa.
Önnur breyting:
fyrirkomulagi
yfirstjórnar breytt
Hér á Alþingi hafa menn löngum
deilt um það. hvernig yfirstjórn
Framkvæmdastofnunar rfkisins sé
best fyrir komið. Utan þings hefur
málið einnig verið tfðrætt. Hafa
menn einkum fundið að því fyrir-
komulagi. sem mælt er fyrir um f
núgildandi lögum, að rfkisstjórnin
skipi þriggja manna framkvæmda-
ráð, er annist daglega stjórn stofn-
unarinnar. Ráð þetta má leysa frá
störfum með mánaðarfyrirvara. Hafa
ýmsir látið f Ijós þá skoðun, að með
þessu ákvæði sé gengið of langt til
pólitfskrar yfirstjórnar á jafn mikil-
vægri stofnun og hér um ræðir. Mál-
efnum hennar væri betur borgið, ef
æðstu starfsmenn hennar væru
ráðnir með öðrum hætti, og hefur
þar t.d. verið vfsað til þess hvernig
bankastjórar eru ráðnir.
Með frumvarpinu er skipan
þessara mála breytt, þannig að nú
gilda svipaðar reglur um ráðningu
forstjóra og framkvæmdastjóra
deilda stofnunarinnar og t.d. um
bankastjóra. Samkvæmt 3. gr. frum-
varpsins skipar rfkisstjórnin stofnun-
inni forstjóra, samkvæmt tillögum
stjórnar Framkvæmdastofnunar-
innar. Á sama hátt skipar rfkisstjórn-
in f ramkvæmdastjóra einstakra
deilda. Ráðning þessara manna mið-
ast við 12 mánaða gagnkvæman
uppsagnarfrest. Samkvæmt þessu er
lagt til að framkvæmdaráð stofn-
unarinnar hverfi úr sögunni og jafn-
framt eru f 2. og 4. grein frumvarps-
ins ákvæði um breytingu á stjómar-
háttum f samræmi við þetta, þannig
að valdsvið stjómar er aukið.
Samráð við
samtök atvinnuveganna
í 5. gr. þar sem fjallað er um
Áætlanadeild er tekið mið af þvf, að
sérstakri Byggðadeild er komið á fót,
og henni falið það verkefni að gera
áætlanir um þróun byggða og at-
vinnulffs vfðsvegar um landið. Mælt
er fyrir um nánara samstarf Áætlana-
deildar við ráðuneyti og opinberar
stofnanir, þegar um er að ræða
áætlanir fyrir þessa aðila, fram-
kvæmdir rfkissins og aðrar opinberar
framkvæmdir, en deildin skal vinna
að þeim I samræmi við hlutaðeigandi
ráðuneyti og stofnanir.
Þá eru sett skýrari ákvæði um
samráð deildarinnar við samtök og
stofnanir atvinnuveganna við gerð
áætlana. Niður eru felld ákvæði þess
efnis að rfkisstjórnin skuli sam-
þykkja áætlanir. En ákvæði um slfka
samþykkt hafa valdið þeim misskiln-
ingi, að rfkisstjórmn ábyrgðist frá
upphafi allt fjármagn, sem fram-
kvæmd áætlunar kann að krefjast.
í svari 'við fyrirspurn um byggða-
áætlun Norður-Þingeyjarsýslu hér á
Alþingi fyrir skömmu. gerði ég ftar-
lega grein fyrir þeim viðhorfum, sem
rfkt hafa, til þess, sem felst f slfku
samþykki rfkisstjórnarinnar. Með
ákvæðinu, eins og það er f frumvarp-
inu, er ætlast til, að áætlanir fái
stefnumarkandi gildi og þar með
skfrskotað til allra hlutaðeigandi
aðila að hafa áætlanirnar til viðmið-
unar við ákvarðanatöku og stuðla
þannig að framgangi þeirra Raunar
hefur ekki verið öðruvísi á málin litið
en að skuldbindingar hins opinbera
vegna áætlana væru bundnar af rétt-
um lögheimildum ! hverju tilviki.
Gildi áætlunarinnar felst i henni
sjálfri, þvf að hún er nytsöm við
öflun heimilda, einkum fjárveitinga
og lánveitinga.
i stefnuræðu þeirri, sem ég flutti á
Alþingi haustið 1974, ræddi ég m.a.
um almenna áætlanagerð og sagði:
Áætlanagerðir sem
virk stjórntæki
„Slik áætlanagerð er nauðsynleg
til að öðlast yfirsýn yfir Ifklega og
æskilega þróun atvinnuveganna.
þannig að fullt samræmi sé milli
öflunar atvinnutækja og möguleika á
nýtingu vinnuafls og landsgæða. Al-
menn áætlanagerð er ekki valdbund-
in framkvæmdaáætlun. heldur til
viðmiðunar og leiðbeiningar fyrir
einstaklinga, samtök þeirra, fyrir-
tæki og atvinnuvegi. Þá er ekki sfst
nauðsynlegt, að hið opinbera sýni
gott fordæmi og geri vandaðar
áætlanir um opinberar framkvæmdir
og um byggðaþróun f samráði við
sveitarfélög."
Ég tel, að með þeim breytingum,
sem gerðar eru á lögum um Fram-
kvæmdastofnun rfkisins með þessu
frumvarpi, sé stuðlað að þvf að
áætlanagerðin verði virkara stjórn-
tæki, þar sem mælt er fyrir um
nánara samráð milli Áætlanadeildar-
innar og þeirra, sem eftir áætlunun-
um skulu starfa. 9. grein frumvarps-
ins fjallar um Byggðadeild, en um
hana hefur þegar verið rætt.
Framkvæmdasjóður
og byggðasjóður
Um Lánadeild er skýrt fram tekið í
10. gr. að Lánadeild hafi með hönd-
um starfrækslu Framkvæmdasjóðs
og Byggðasjóðs. Þá er mælt fyrir um
það, að deildin skuli árlega semja
áætlun um fjáröflun og útlán Fram-
kvæmdasjóðs jslands, og vinna f
samvinnu við aðrar stofnanir að þvf
að samræma áætlun þessa lánsfjár-
áætlun rfkisstjórnarinnar. Við af-
greiðslu fjárlaga fyrir þetta ár var
slfk lánsfjáráætlun i fyrsta sinn lögð
fram hér á Alþingi, og hefur rfkis-
stjórnin ákveðið að slfkur háttur
skuli á hafður framvegis. Þetta ný-
mæli f lögum Framkvæmdastofn-
unarinnar tekur mið af þeirri ákvörð-
un.
Lagt er til, að þau ákvæði falli úr
12. gr. núgildandi laga, þar sem
segir að stjórn Framkvæmdastofn-
unar geti að fengnu samþykki rfkis-
stjórnarinnar og ! samráði við banka
og stærstu fjárfestingasjóði sett al-
mennar reglur um hverskonar fram-
kvæmdir skuli hafa forgang umfram
aðrar. Skuli þá lánastofnanir og
opinberir sjóðir haga lánveitingum í
samræmi við það. Engri stofnun sé
þó skylt að veita lán, sem hún telji
ekki eðlilega tryggð.
Á þetta ákvæði hefur aldrei reynt,
og að flestu leyti samræmist það illa
almennum sjónarmiðum um hag-
stjóm f frjálsu markaðskerfi. Raunar
hefur það aldrei leyst neinn vanda að
grfpa til slfkra örþrifaráða. sem fólg-
in væru t.d. f að banna ákveðnar
tegundir bygginga.
Engar efnisbreytingar eru gerðar á
5. kafla núgildandi laga um Fram-
kvæmdasjóð islands.
Fjáröflun ByggSa-
sjóðs stóraukin
i 14. gr. frumvarpsins um fjáröflun
til Byggðasjóðs er mikilvægasta
breytingin fólgin i þvf, að f stað
lögbundins framlags úr rfkissjóði að
upphæð 100 milljónir króna árlega
næstu ár, er lagt til að rfkissjóður
leggi Byggðasjóði til fjármagn,
þannig aðárlegt ráðstöfunarfé sjóðs-
ins verði eigi lægra en sem svarar
2% af útgjöldum fjárlaga.
Í stefnuyf irlýsingu rfkisstjórnar-
innar frá 29. ágúst 1974, segir, að
framlag til Byggðasjóðs „nemi 2%
af útgjöldum fjárlagafrumvarps".
Þótt það ákvæði verði að lögum,
sem hér var lýst að framan, er Ijóst,
að samkomulag það milli stjórnar-
flokkanna, sem gert var við stjórnar-
myndunina og lýst er i stefnuyfirtýs-
ingunni, mun gilda á meðan núver-
andi samstarf þeirra varir. þ.e.a.s. að
framlag rfkissjóðs til Byggðasjóðs
verði áfram 2% miðað við útgjaldalið
fjárlagafrumvarps án tiilits til eigin
ráðstöfunarfjár sjóðsins. Þetta er
pólitfsk skuldbinding, sem ekki
verður frá horfið, og hin lögbundna
regla er hins vegar til viðmiðunar
sem lágmarksskuldbinding til fram-
búðar.
í 19. gr. frumvarpsins er lagt til,
að Framkvæmdastofnuninni verði
heimilað að afla Byggðasjóði 600
milljónum króna að láni á næstu 5
árum, eftir að frumvarpið er orðið að
lögum, gegn ábyrgð rfkissjóðs. f nú-
gildandi lögum er þessi heimild
bundin við 300 milljónir króna á ári.
i þessum tveimur ákvæðum um
fjármögnun Byggðasjóðs kemur
greinilega fram áhugi stjórnvalda á
þvi að efla sjóðinn og styrkja, þannig
að hann hafi i raun getu til að sinna
verkefnum sfnum. Framkvæmda-
stofnun rfkisins hefur tekið að sér
ýmis verkefni, sem áður voru hjá
öðrum aðilum, eins og t.d. sérstakar
lánveitingar til skipasmfða innan-
lands. Starfsemi sjóðsins hefur
Framhald á bls. 39
Framkvæmdastofnun:
Síðbúið frumvarp sem
felur I sér fátt nýtt
— segja stjórnarandstæðingar
1 UMRÆÐUM í neðri deild
Alþingis í gær um frumvarp
ríkisstjórnarinnar um breyt-
ingu á lögum um Framkvæmda-
stofnun rfkisins komu m.a.
fram eftirfarandi efnisatriði
(framsöguræða forsætisráð-
herra er birt í heild hér á þing-
síðunni í dag).
0 Gylfi Þ. Gfslason (A): Þrátt
fyrir nær tveggja ára undirbún-
ing til að framkvæma ákvæði
stjórnarsáttmálans um breyt-
ingar á Framkvæmdast. rfkis-
ins, gerir frumvarpið aðeins
ráð fyrir minniháttar breyt-
ingum (að vísu í rétta átt) sem
sýnir, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur fallið frá höfuðgagnrýni
sinni á þessa stofnun.
• Tómas Arnason (F) rakti
starf og þýðingu hinna ýmsu
deilda Framkvæmdastofnunar,
ekki sízt byggðasjóðs, fyrir at-
vinnuuppbyggingu á lands-
byggðinni á liðnum árum.
% Jón Skaftason (F) taldi
rangt að binda í lögum fjáröfl-
un til byggðasjóðs (þ.e.
ákveðna fjárhæð 2% af fjár-
lagaútgjöldum), enda væru
markaðir tekjustofnar og
mörkuð útgjöld rikisins einn
helzti þröskuldur fjárlaga-
gerðar og nauðsynlegs sveigjan-
leika i stjórnun ríkisfjármála,
eins og reynslan hefði sýnt. Þá
taldi hann að sömu reglur ættu
að gilda um stjórnendur Fram-
kvæmdastofnunar (byggða-
sjóðs og framkvæmdasjóðs) og
bankastjóra, að þeir gætu ekki i
senn sinnt þingmennsku og
stjórnun lausfjárdreifingar.
• Lúðvfk Jósepsson (k) sagði
þetta síðbúna frumvarp sýndar-
mennsku. Áætlanadeild héti að
vísu byggðadeild nú og yfir-
stjórn væri breytt i orði — en í
reynd hefði Sjálfstæðisflokkur-
inn horfið frá höfuðatriðum
fyrri gagnrýni.
% Ellert Schram (S) sagði
þetta frumvarp miða í rétta átt.
Að sýnu mati hefði þó átt að
leggja þessa stofnun niður og
stokka málin í heild upp á ný.
Vafasamt væri að binda fast í
lög framlög til sjóða þessarar
stofnunar er miðuðust við
niðurstöður fjárlaga hverju
sinni; og óviðeigandi væri, að
forstjórar svo stórra lánastofn-
ana sem byggðasjóðs gegndu
jafnframt þingmennsku. Hér
ætti að gilda hið sama og um
bankastjóra.
Umræðu var frestað síðdegis
I 'gær og framhaldsumræða
boðuð á kvöldfundi.