Morgunblaðið - 06.07.1976, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976
I dag er þriðjudagurinn 6.
júlf, 188. dagur ársins 1976.
Árdegisflóð I Reykjavfk er kl.
00.51 og sfðdegisflóð kl.
13.37. Sólarupprás f Reykja
vfk er kl. 03.16 og sólarlag er
kl. 23.47. Á Akureyri er
sólarupprás kl. 02.19 og
sólarlag kl. 24.12. Tunglið er
f suðri f Reykjavík kl. 21.12.
(islandsalmanakið).
Hinir fátæku og voluðu
leita vatns, en finna ekki;
tunga þeirra verður þurr
af þorsta; ég, Drottinn.
mun bænheyra þá; ég!
israels Guð, mun ekki
yfirgefa þá. (Jes.
41.17—18.)
IKROSSGATA
LARÉTT: 1. vera 5. leyfist
7. þvottur 9. leit 10. ruggar
12. forföður 13. snæða 14.
samt. 15. eyddur 17. heiti
LÓÐRÉTT: 2. tunnur 3.
álasa 4. drengur 6. aldan 8.
A um O 9. var 11. hlaupa
14. stök 16. samhlj.
Lausn á sfðustu
LARÉTT: 1. kletta 5. rök 6.
as 9. firrur 11. TÐ 12. aka
13. or 14. nýr 16. óa 17.
nýtir.
LÓÐRÉTT: 1. kraftinn 2.
er 3. töfrar 4. TK 7. sið 8.
grafa 10. UK 13. ort 15. VY
16. ór.
FRÁ HÖFNINNI
Þessi skip hafa farið um
Reykjavíkurhöfn í gær og
fyrradag. Belgíska her-
skipið Godetia fór og einn-
ig fór Hrönn á veiðar. Uða-
foss og grænlenzkur
rækjubátur komu. I gær
kom hingað rússneskt oliu-
skip, Snorri Sturluson kom
af veiðum og Múlafoss og
Urriðafoss komu frá út-
löndum.
BLÖO OQ TÍIVIARIT
NÝLEGA kom út Iðja,
félagsblað verksmiðju-
fólks. Meðal efnis er fjall-
að um nýju samningana,
sagt frá Iðju á Akureyri,
sem er 40 ára um þessar
mundir, grein um Alþýðu-
samband íslands, sem
nefnist „60 ára svaðilför“.
Einnig er greinargerð um
félagsstarfið og sagt frá
ferð í Öræfasveitina, sem
Iðja gekkst fyrir.
KOMIÐ er út 6. tbl. Sjávar-
frétta, sérrits um sjávarút-
vegsmál. í ritinu er m.a. að
finna greinar um markaðs-
mál og fiskvinnslu, sagt frá
Óslóarsamkomulaginu og
ýmsum rannsókna- og
vísindastörfum.
BLAÐINU hefur borizt
Æskan, 5.—6. tölublað, fyr-
ir maí og júní. Blaðið er 52
sfður og meðal efnis má
nefna eftirfarandi: Grein
um Ólaf Jóhann Sigurðs-
son, sem hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs
1976, og ennfremur er birt
ein af barnasögum hans,
sem hann nefnir „Búskap-
ur f tóftarbroti“, kvæðið
„Dóa bá“, eftir Matthías
Jóhannesson ritstjóra,
Elzta æskulýðsfélagið,
Æskan 90 ára, Frásögn um
Svíþjóð. Ur sögu listarinn-
ar, Músabúið við mylluna
eftir Hjörleif Guðmunds-
son, Grund í Eyjafirði,
Kattavinafélag íslands,
ást er . . .
... að byrja smátt, en
vaxa með kærleika.
TM R*fl. U.S. P«l. Oft —All rtghta rasamad
'Ö 1976 Los Artflslss Tlmss m
Síamskettir eftir Guðrúnu
Á. Símonar, Margfaldir
verðlaunahafar. Hvernig
velur þú? Tal og tónar, eft-
ir Ingibjörgu Þorbergs,
Slysavarnarfélag íslands á
94 björgunarskýli, Sjón-
hverfingamaðurinn
Houdini, Þríþraut F.R.l. og
Æskunnar. Þá má nefna
framhaldssögurnar en þær
eru: Glæstir draumar,
Kastrulluferðin, Tarzan
og Tímavélin. Þættir eru
um skip og flug. Margar
myndasögur og margt
fleira, sem væri of langt
upp að telja að þessu sinni.
Ritsjóri er Grímur Engil-
berts.
I heimilisdýfT I
A föstudagskvöld
tapaðist stálpaður kettl-
ingur frá Vesturgötu
11. Hann er hvítur með
brúna og svarta flekki á
baki og haus. Upplýs-
ingar í síma 18667.
Stálpaður högni,
bröndóttur með hvítt
trýni, bringu og hosur,
er i óskilum. Upplýsing-
ar í sima 16722 eða
14594.
Kattavinafélagið.
PEIMIM AVIIMIR
Kristín Harðardóttir
Lyngási
Biskupstungum
Árnessýslu
óskar eftir að komast í
bréfasamband við stelpur
og stráka á aldrinum
11—13 ára. Hún segist
svara öllum bréfum.
VERÐURISLAND
AÐ 0LÍURÍKI?
— rtinnsóknir benda
til oliulinila undir
NA-landi og i
hofinu oustur
af bndinu
Ástæðulaust að gullbrydda faldinn strax góða. Þetta er nú svo sem ekki
alveg víst.
FYRIR nokkru héldu þessar stúlkur hlutaveltu og
söfnuðu rúmlega 20.000 kr., sem þær hafa afhent
Styrktarfélagi vangefinna. Þær heita Dóra, Stína,
Inga og Þóra.
ÞnONUSTR
Dagana frá og með 2. júll til 8. júll er kvöld
og helgarþjónusta apótekanna í borginni sem
hér segir: í Apóteki Austurbæjar. en auk þess
er Lyfjabúð Breiðholts opin til kl. 22.00.
nema sunnudag.
— Slysavarðstofan I BORGARSPÍTALANUM er
opin allan sólarhringinn Slmi 81 200.
— Læknastofur eru lokaðar á laugardögum
og helgidögum, en hægt er aS ná sambandi
við lækni á göngudeild Landspitalans alla
virka daga kl. 20—21 og' á laugardögum frá
kl. 9—12 og 16—17. slmi 21230. Göngu-
deiid er lokuð á helgidögum. Á virkum dögum
kl. 8— 1 7 er hægt að ná sambandi við lækni I
slma Læknafélags Reykjavlkur 11510, en því
aðeins að ekki nái^t I heimilislækni. Eftir kl.
17 er læknavakt í slma 21230. Nánari
upplýsingar um lyfjabúðir og læknaþjónustu
eru gefnar I slmsvara 18888. — Neyðarvakt
Tannlæknafél. íslands I Heilsuverndarstöð-
inni er á laugardögum og helgidögum kl.
17—18.
C H ll/D A UI IO HEIMSÓKNARTÍM-
OjUlxnnllUO AR. Borgarspltalinn.
Mánudaga — föstudaga kl. 18.30—19.30.
laugardaga — sunnudaga kl. 13.30—14.30
og 18.30—19. Grensásdeild: kl. 18.30------
1 9.30 alla daga og kl. 1 3— 1 7 á laugardag og
sunnudag. Heilsuverndarstöðin: kl. 15—16
og kl. 18.30—19.30. Hvlta bandið: Mánud.
— föstud. kl. 19—19.30, laugard. —
sunnud. á sama tlma og kl. 15—16. —
Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla daga kl.
15—16 og 18.30—19.30. Kleppsspltali:
Alla daga kl. 15—16 og 18.30—19.30.
Flókadeild: Alla daga kl. 15.30—17. —
Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15—17 á
helgidögum. — Landakot: Mánud. — föstud.
kl. 18.30 — 19.30. Laugard. og sunnud. kl.
15—16. Heimsóknartlmi á barnadeild er alla
daga kl. 15—17. Landspitalinn: Alla daga kl.
15—16 og 19—19.30. Fæðingardeild: kl.
15—16 og 19.30—20. Barnaspltali Hrings-
ins kl. 15—16 alla daga. — Sólvangur:
Mánud — laugard. kl. 15—16 og 19.30-----
20. — Vlfilsstaðir: Daglega kl. 15.15—
16.15 og kl. 19.30—20.
CnCAl BORGARBÓKASAFN REYKJA
OUrlM VÍKUR: — AÐALSAFN Þing
holtsstræti 29A, slmi 12308. Opið mánudaga
til föstudaga kl. 9—22. Laugardaga kl.
9—18. Sunnudaga kl. 14—18. Frá 1. maf til
30. september er opið á laugardögum til kl.
16. Lokað á sunnudögum. — STOFNUN Áma
Magnússonar. Handritasýning I Árnagarði.
Sýningin verður opin á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum kl. 2—4 siðd.
KJARVALSSTAÐIR — Sýning á verkum eftir
Jóhannes S. Kjarval er opin alla daga nema
mánudaga kl. 16.—22.
ÁSGRÍMSSAFN Bergstaðastræti 74 er opið
alla daga nema laugardaga frá kl. 1.30 til 4
slðdegis. Aðgangur er ókeypis.
BÚSTAÐASAFN. Bústaðakirkju sími 36270.
Opið mánudaga — föstudaga —
HOFSVALLASAFN Hofsvallagötu 16. Opið
mánudaga til föstudaga kl. 16—19. — SÖL-
HEIMASAFN Sólheimum 27. simi 36814.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 14—21.
BÓKABÍLAR bækistöð I Bústaðasafni, slmi
36270. — BÓKIN HEIM, Sólheimasafni.
Bóka- og talbókaþjónusta við aldraða. fatlaða
og sjóndapra. Upplýsingar mánud. til föstud.
kl. 10—12 fsfma 36814. — FARANDBÓKA-
SÖFN. Bókakassar lánaðir til skipa, heilsu-
hæla, stofnana o.fl. Afgreiðsla I Þingholts-
stræti 29A. slmi 12308. — Eng.n barnadeild
er opin lengur en til kl. 19, — KVENNA-
SÖGUSAFN ÍSLANDS að Hjarðarhaga 26, 4.
hæð t.v., er opið eftir umtali. Slmi 12204. —
BÓKASAFN NORRÆNA HÚSSINS. Bóka-
safnið er ötlum opið, bæði lánadeild og
lestrarsalur. Bókasafnið er opið til útlána
mánudaga — fösjudaga kl. 14—19, laug-
ard.-—sunnud. kl. 14—17. Allur safn-
kostur, bækur, hljómplötur, tlmarit er heim-
ilt til notkunar, en verk á lestrarsal eru þó
ekki lánuð út af safninu. og hið sama gildir
um nýjustu hefti tlmarita hverju sinni. List-
lánadeild (artotek) hefur graflkmyndir til útl.,
og gilda um útlán sömu reglur og um bækur.
Bókabflar munu ekki verða á ferðinni frá og
með 29. júnl til 3. ágúst vegna sumarleyfa
— AMERÍSKA BÓKASAFNIO er opið alla
virka daga kl. 13—19. — ÁRBÆJARSAFN
opið klukkan 13—18 alla daga nema mánu-
daga. Strætisvagn frá Hlemmtorgi — leið 10.
LISTASAFN Einars Jónssonar er opið kl.
130—4 síðd. alla daga nema mánudaga. —
NÁTTÚRUGRIPASAFNIO er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. kl. 13.30—16.
— ÞJÓÐMINJASAFNIÐ er opið þriðjudaga.
fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl.
1.30—4 slðdegis. SÆDÝRASAFNIÐ er opið
alla daga kl. 10— 19.
Gallerlið I Kirkjustræti 10 er opið og þar
stendur nú yfir sýning á kirkjumunum I tilefni
af prestastefnunni, sem staðið hefur yfir.
Þessir kirkjumunir eru allir eftir Sigrúnu Jóns-
dóttur og eru þar á meðal hökiar, altaristöflur
og teikningar af gluggum með lituðu gleri. en
tveir þeirra eru útfærðir að hluta.
BILANAVAKT borgarstofnana
svarar alla virka daga frá kl. 1 7 síðdegis til kl.
8 árdegis og á helgidögum er svarað allan
sólarhringinn. Slminn er 27311. Tekið er við
tilkynningum um bilanir á veitukerfi borgar-
innar og I þeim tilfellum öðrum sem borgarbú-
ar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstarfs-
manna.
Í Mbl.
fyrir
50 árum
SAGT er frá
amerísku skemmti-
ferðaskipi sem vænt-
anlegt var til lands-
ins. Hét það
„Carinthia" og var
frá sama félagi og
sent hafði skip hingað undanfarin ár. Far-
þegar voru á fjórða hundrað alls og ætl-
uðu ýmsir þeirra að ferðast til Þingvalla,
til Reykja í ölvesi og Hafnarfjarðar. Enn-
fremur átti að sýna farþegum laugarnar,
svo sem títt var, þegar fefðamannahópar
komu. Atti skipið að hafa viðkomu hér i
tvo daga.
I
I
I
I
GENGISSKRANING
NR. 123—5. júlf 1976
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandarfkjadoilar 183.70 184.10
1 Sterlingspund 330.20 331.20
1 Kanadadollar 189.65 190.15
100 Danskar krónur 2985.10 2993.20
100 Norskar krónur 3293.40 3302.40
100 Sænskar krónur 4125.55 4136.85*
100 Fínnsk mörk 4733.50 4746.40
100 Franskir frankar 3871.60 3882.20
100 Belg. frankar 463.05 464.35*
100 Svissn. frankar 7430.70 7450,90*
100 Gyllini 6748.10 6766.50*
100 V.-Þýzk mörk 7124.40 7143.80
100 Lírur 21.93 21.99
100 Austurr. Sch. 998.35 1001.05*
100 Escudos 585.35 586.95
100 Pesetar 270.45 271.15
100 Yen 62.02 62.19*
100 Reikningskrónur —
Vöruskipt alönd 99.86 100.14
1 Beikningsdollar —
Vöruskiptalönd 183.70 184.10
*Breyting frá síðustu skráningu.
I
I
I
I
I
I