Morgunblaðið - 06.07.1976, Qupperneq 11
11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULI 1976
Skip hennar hátignar á bakborða
strandað skammt innan við
okkur. Nú fékk vélin að sýna hvað
í henni bjó því ekki var viðlit að
komast fram á til að setja upp
segl. Eftir nokkra stund sáum við
ekki betur en við stæðum alveg í
stað en svo fór að síga hægt á móti
veðrinu. Við höfðum varla siglt
meir en tíu mínútur inn fjörðinn
en nú tók okkur rúman klukku-
tíma að komast til baka. Réttu
innsiglinguna fundum við svo um
5 mílum norðar. Það sem mér
hafði sýnst reisulegur viti, var í
raun minnismerki um franska
sjómenn, sem þarna höfðu farist
fyrir löngu. Skipstjórinn á
strandaða skipinu hafði greini-
lega ekki verið eins lánssamur og
við.
Brátt komum við að Dunmore
East, sem er þorp nær fjarðar-
mynninu en Waterford. Hafnar-
stjórinn tók á móti okkur á
bryggjunni og bauð okkur vel-
komna. Hann sagðist skyldu hafa
samband við tollverðina og vita
hvort þeir vildu koma um borð, þó
hann efaðist um það. Ekkert varð
heldur af þeirri heimsókn svo við
fórum í land skömmu seinna.
Sjaldan höfum við séð jafn þrifa-
lega höfn og var okkur sagt að það
væri góðri stjórn hafnarstjórans
að þakka. Notalegt var að komast
I heita sturtu og fara í hrein og
þurr föt enda ekki sjón að sjá
okkur eftir útihaldið. Þarna
kunnum við vel við okkur og það
var með nokkrum söknuði að við
létum í haf við sólarupprás þrem
dögum seinna. Sunnanáttin hafði
gengið mjög óvænt niður frá því
um miðnætti og við fórum strax
af stað án þess svo mikið sem að
kaupa nýjan mat. Nú voru góð ráð
Hesti beitt fyrir járnbrautarlest á I.O.M.
Oban
dýr. Axel hafði tekið með sér
haglabyssu, svona í tilefni af 200
mílunum, og svartfugl var hér úti
um allan sjó. Á matseðlinum þann
daginn hafði kokkurinn fugla-
steik og var ekki laust við að hann
væri svolítið montinn. Að vísu var
báturinn alfiðraður nokkra daga
á eftir, en hvað með það.
Óæskilegur nágranni
Eftir einn og hálfan sólarhring
komum við til Isle of Man, en þar
átti ég kunningjafólk sem tók á
móti okkur. Daginn eftir var
okkur ekið um alla eyjuna í sól og
góðu veðri og okkur sýnt allt það
markverðasta. Sjaldgæft er að sjá
járnbrautarlest dregna af hestum
eins og þar tíðkast og einnig þótti
okkur fróðlegt að sjá stærsta
vatnshjól í heimi, sem þarna var í
fyrndinni notað til að dæla vatni
úr námum. Axel tróð pening í
ævagamla „spiladós" á mótor-
hjólasafni eyjarinnar og við
hlustuðum hugfangnir á tónana
sem þeitta litla apparat gaf frá
sér. Eitthvað hefur spiladósin
kunnað vel við okkur því hún
hætti ekki að spila fyrr en
viðgerðarmaður kom á vettvang.
Þá fengum við líka að skoða þessa
völundarsmíð sem vafalaust á sér
fáar hliðstæður. Ekki var til set-
unnar boðið eftir allar tafirnar
svo við sigldum af stað klukkan
fimm morguninn eftir. Nú var
daginn farið að lengja eftir þvi
sem norðar dró og dagsbirtan
kom í góðar þarfir þvi framundan
var falleg en skerjótt leið. Vind
höfðum við sunnan 6 til 7 vindstig
og nú fór að færast líf i
„tuskurnar". Ákveðið var að sigla
beint til Oban fram hjá
Campbeltown og komum við
þangað á öðrum degi. Þar lögð-
Spiladósin opnuð.
umst við utan á mjög snotra skútu
í höfninni og fórum í land. Hring-
leikahús, likt Colosseum Rómar,
gnæfir yfir borginni og var okkur
tjáð að auðkýfingur okkur hefði
látið reisa þetta mannvirki fyrir
löngu aðallega til atvinnubóta.
Þegar við höfum skoðað okkur
um, snerum við aftur til skips. Þá
kom í ljós að skútan sem við höfð-
um lagzt utan á var, eins og á stóð,
ekki mjög æskilegur nágranni,
Þar birtust nú sjóliðar úr her
hennar hátignar, þetta var þá
þjálfunarskip hersins. Allt fór
samt vel og var okkur boðið um
borð af mikilli kurteisi.
Landhelgisdeilan var rædd og
okkar málstaður fékk góðar
undirtektir. Um hádegi næsta dag
ferðbjuggumst við og það gerði
skip hennar hátignar einnig.
Næsti áfangastaður var
Tobermory en þangað var aðeins
6 tima sigling. Um kvöldið var
kastað akkeri inni á læginu við
Tobermory við hlið gamallar og
virðulegrar seglskútu. Eigandinn,
sem virtist vera a.m.k. jafn
gamall skipinu, benti okkur á að
varpa akkeri þarna ekki langt frá
landi og gerði okkur skiljanlegt
að þar væri gott dýpi. Dýptar-
mælirinn staðfesti þetta og sýndi
20 faðma.
28444
VESTURBERG
4ra herb. 105 fm. íbúð á 3.
hæð. Ibúðin er stofa, skáli, 3
svefnherb., eldhús og bað, vand-
aðar innréttingar. Falleg íbúð —
mikið útsýni.
SELJABRAUT
4ra herb. 105 fm. íbúð á 3.
hæð. íbúðin er stofa, skáli. 3
svefnherb. eldhús og bað. íbúð-
in er ekki fullfrágengin, vantar
tréverk.
KRÍUHÓLAR
3ja herb. 85 fm. ibúð á 6. hæð.
íbúðin er stofa, skáli, 2 svefn-
herb., eldhús og bað. Mjög góð
ibúð.
KARFAVOGUR
3ja herb. 70 fm. risibúð i mjög
góðu ástandi.
GRETTISGATA
3ja herb. 80 fm. ibúð i góðu
ástandi. Laus strax.
ÁLFTAHÓLAR
2ja herb. 60 fm. íbúð á 3. hæð.
íbúðin er laus nú þegar.
VÍÐIHVAMMUR. KÓP:
2ja herb. 65 fm. kjallaraíbúð,
sép inngangur, góð íbúð, laus
fljótlega.
GARÐABÆR
Höfum til sölu 160 fm. raðhús á
tveimur hæðum. Húsin afhend-
ast fullfrágengin að utan, m.a.
með gleri, útihurðum, bílskúrs-
hurð, máluð, jöfnuð lóð. Fast
verð. Traustur byggingaraðili.
FASTEIGNIR ÓSKAST Á
SÖLUSKRÁ
i--------
HÚSEIGNIR
VELTUSUNO11 O ClflD
SlMI 28444 OC
- KAUPENDAÞJÓNUSTAN-----------------------
Jón Hjálmarsson, solustj.
Benedikt Björnsson Igf.
Til sölu við Sundin
Sérlega vönduð 4ra herb. íbúð á fyrstu hæð innst við Kleppsveg.
Sérþvottahús. Kvöld- og helgarsími 30541
Þingholtsstræti 15,
-------------------Sími 10-2-20. —
®0000 ^
EIGENDUR
Volkswagen-, Golf-, Passat- og Audi
Verkstæði okkar verður lokað vegna
sumarleyfa frá 12. júlí til 11. ágúst.
Þeir, sem þurfa 1000 km uppherslu og skoðun
á nýjum bílum, hafi samband við söludeild okkar.
Símar: 21240 og 11276.
Viljum vekja athygli viðskiptavina okkar á því,
að eftirtalin Volkswagenviðgerðarverkstæði verða
opin á þessum tíma: Bílaverkstæði Jónasar,
Ármúla 28, sími 81315 og Vélvagn, bílaverkstæði,
Borgarholtsbraut 69, Kópavogi, sími 42285.
★ SMURSTÖÐ okkar verður opin eins og venjulega ★
HEKLA HF.
Laugavegi 1 70—172 — Sími 21240
Axel við sendistöðina.