Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 15

Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JULI 1976 15 STj Fi • i i ENTEBBE -FLU G VELLI SUNNUDAGUR. 27. júnf: Palestfnskir skæruliðar ræna flug- vél frá Air France flugfélaginu sem var KiII^Aq á leiðinni frá París til JU W d'™" Tel Aviv. f flugvél- inni voru 256 farþeg- ar og 12 manna áhöfn. Ræningjarnir krefj- ast þess, að vélinni sé flogið til Benghazi f Libýu. Mánudagur. 28. júnf: Flugvélinni er lent á Entebbe flugvelli f Kampala f Uganda. Idi Amin, forseti Uganda, tekur að sér samninga- umleitanir við flugvélarræningjana. Farþegun- um smalað inn f gamla flugvallarbyggingu, sem var yfirfull af sprengiefni og umkringd her- mönnum frá Palestfnu og Uganda. Þriðjudagur, 29. júní: Flugvélarræningjarnir, sem útvarpið f Uganda segir tilheyra Frelsishreyfingu Palestínu (PLO), krefjast lausnar 53 skoðana- bræðra sinna úr fangelsum f fsrael, Kenya og f Evrópu. Hóta hryðjuverkum ef ekki hefur verið fallizt á kröfur þeirra fyrir fimmtudag, 30. júnf, kl. 12 að brezkum tfma. PLO neitar að standa að baki ráninu. Miðvikudagur, 30. júnf.: Ræningjarnir láta lausar 47 konur, börn og sjúklinga, sem þegar er flogið með til Parfsar. Skæruliðarnir hóta að sprengja flugvélina f loft upp ásamt með gísl- um, verði kröfur þeirra ekki teknar til greina. Fimmtudagur 1. júlf: Ræningjarnir segjast munu myrða alla fsraelsmenn um borð f vélinni kl. 12 á hádegí. ísraelsstjórn ákveður að hefja samningaumleitanir og kveðst reiðubúin til að ræða lausn palestfnskra fanga gegn þvf að fá lausa gfslana. Ræningjamir gefa frest til kl. 11 sunnudaginn 4. júlf, láta lausa 100 gfsla f viðbót. Nú voru eftir 98 farþegar og 12 menn f áhöfn í gfslingu. Föstudagur, 2. júlf: Þeir farþegar, sem gefið hefur verið frelsi, koma til Parfsar. Þeir segja tvo ræningjanna vera Þjóðverja. Idi Amin segir skæruliðana vera fleiri en sex, eins og „heims- veldispressan" hafði haldið fram. Amin fer á toppfund Afrfkurfkja f Mauritius, samningaum- leitanir nú f höndum sendiherra Sómalfu. Laugardagur 3. júlf: Amin kemur aftur til Entebbe. Sunnudagur 4. júlf: fsraelsmenn gera loftárás snemma um morguninn. Gefa út tilkynningu um, að þeir hafi frelsað alla gfslana, sem sfðar þennan dag komu til Tel Aviv. rasm Frá útför eins gíslanna, Idu Borochovich, [ Tel Aviv. Hún var nýflutt frá Sovétríkjunum. Ekki er ijóst hvort flugvélarnar hafa komið við f Nairobi eða flogið beint til Entebbe. Stóðu á skrafi Flugvélarræningjarnir sjö sem höfðu glslana á valdi sinu stóðu að öllum llkindum á skrafi við Uganda- hermenn þegar flugvélarnar laumuð- ust að flugvellinum og flugu svo lágt að þær sáust ekki i ratsjám. Aðrir Ugandahermenn voru á annarri hæð flugstöðvarbyggingarinnar fyrir ofan herbergið þar sem gislarnir sváfu i hitasvækju. Enn aðrir Ugandaher- menn voru á verði á þakinu og i námunda við flugturninn i nokkur hundruð metra fjarlægð. Þó voru þeir flestir nálægt flugstöðvarbygg- ingunni. Ugandahermennirnir og flugvélarræningjarnir voru alls um 80 talsins. Idi Amin hafði farið frá flugvellin- um einni klukkustund áður en árásin var gerð að sögn eins gislanna. „Við beittum nokkrum brögðum," sögðu israelsku hermennirnir um árásina en vilja annars litið ræða um hana i einstökum atriðum. Samkvæmt fréttum frá Nairobi var sprengju varpað á flugvöllinn talsvert langt frá flugstöðvarbyggingunni og fsra- elsmönnum tókst að rugla flugvélar- ræningjana og Ugandahermennina í riminu. Þar með var tilganginum náð og árásin kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Lentu hljóðlega Flugvélarnar lentu hljóðlega, dyr Hercules-flugvélanna voru opnaðar og israelsku hermennirnir óku út i brynvörðum bilum og jeppum búnum fallbyssum. Hermennirnir skiptu sér i tvo hópa: annar átti að tryggja yfirráð yfir flugvellinum, hinn að ráð- ast inn i flugstöðvarbygginguna og frelsa gíslana. Vikingahermennirnir þustu til byggingarinnar og félagar þeirra beindu fallbyssum sinum að sovézk- smiðuðum MIG-þotum sem stóðu ómannaðar og yfirgefnar á flugvell- 1 inum. Sex eða tiu eyðitögðust, um það bil helmingur herflugvéla Ugandamanna. Smám saman áttuðu Úgandaher- mennimir sig á þvi sem var að gerast og fóru að skjóta á árásarliðið. Einn af foringjum ísraelsmanna fékk kúlu i bakið, en hann var eini hermaður- inn sem féll. Lögðust í gólfið Inni i byggingunni voru gislarnir skelfingu lostnir. „Við heyrðum há- vaðann og héldum að Arabar væru komnir og ætluðu að útrýma okkur," sagði einn þeirra, Idit Hirsch. „Þetta gerðist mjög fljótt" sagði annar. „Við heyrðum skothrið og lögðumst á gólfið." Björgunarmennirnir ruddust inn. „Leggist niður vinir minir, hreyfið ykkur ekki, við erum komnir," sagði einn af yfirmönnum þeirra. Flestir hlýddu en lögðust flatir en nokkrir gislar voru hræddir og taugaóstyrkir og hlupu fram og aftur i algeru tilgangsleysi. Þannig atvikaðist það að þrir biðu bana og að minnsta kosti fjórir særðust. „Skothriðin var ekki mjög mikil — hryðjuverkamennirnir fengu ekki ráðrún til að skjóta," sagði einn israelsku hermannanna. „Allt gekk eins og i sögu." Djörf ákvörðun Gur, forseti herráðsins, sagði að öll andspyrna hefði verið bæld niður á nokkrum minútum. Shomron. yfir- maður árásarinnar sagði: „Aðgerðir á jörðu niðri voru tiltölulega auð- veldar: ákvörðunin um að gera árás- g ætti aðeins ur ólifaðar” Það fór ekki á milli mála að Ug- andamenn hjálpuðu hryðjuverka- mönnunum. Sex Palestinumenn til viðbótar biðu eftir flugvélinni þegar hún lenti og Ugandahermennirnir föðmuðu að sér hryðjuverkamennina úr flugvélinni og kysstu þá. Viðhöfð- um ekki sofið i 54 tima og hnigum niður i stóla eða á gólfið. Kvöldið eftir brá okkur i brún. Þeir stóðu i gættinni og lásu upp nöfn ísraelsmannanna. Næsta dag heyrð- um við klappað i hinu herberginu og okkur var sagt að hinir farþegarnir yrðu látnir lausir. Amin kom til okkar og sagði „Shalom" á hebresku. Hann sagði, að við værum saklaust fólk, en hann væri á móti israelsku stjórninni. Ég er viss um að hann hafði samstarf við hryðjuverkamennina. Aðeins Ug- andamenn gættu byggingarinnar okkar megin. Hann hafði gaman af öllu saman. Fyrsta daginn var hann i marskálksbúningi. Daginn eftir kom hann borgaralega klæddur með stór- an kúrekahatt á höfði. Eitt sinn kom hann með konuna og litinn son sinn, sem var klæddur eins marskálksbún- ingi með orðum og öllu tilheyrandi. Þjóðverjarnir töluðu rólega við of- ursta úr Ugandaher fyrir utan þegar skothrfðin byrjaði. Þjóðverji hljóp inn I herbergið til okkar og skothrið- in færðist nær. Siðan heyrðist skot- hríð inni. Ég hélt að Amin hef ði skipt um skoðun og ákveðið að gera út af við hryðjuverkamennina. Ég lagðist flatur á gólfið og sagði vinum minum að beygja sig. Ég hélt að ég ætti kannski aðeins örfáar minútur ólifaðar. Ég lyfti höfðinu dálítið og sá einhvern hlaupa. Hann talaði hebresku og baðaði út öllum öngum. Skæruliðarnir voru þrumu lostnir. Byssur sumra þeirra voru ekki einu sinni hlaðnar. Ég sá konur liggja ofan á bömun- um til að verja þau. Börnin grétu. Skammt frá okkur var blæðandi og dáið fólk. Örfáum mfnútum siðar hætti skothriðin. Einhver sagði okk- ur á hebresku að fylgja sér út i flugvél sem færi með okkur heim. Uti var dimmt og ég sá litið. Flest Ifkin lágu nærri dyrunum. Við vorum óhult. Verst var skothriðin og henni var lokið. Maðurinn við hliðina á mér hnippti i mig hvað eftir annað og spurði: „Ertu lifandi, ertu lifandi." „Já, sagði ég, „ég er lifandi, það er allt i lagi með mig." DAN Shomron, sem stjórnaði björgun gíslanna á Entebbe-flugvelli og ný- skipaður yfirmaður ísraelska fótgöngu- og fall- hlífaliðsins. Hann er 39 ára og hefur barizt í þremur styrjöldum. Hann vildi lítið gera úr björguninni þegar hann kom til Tel Aviv og sagði að hún hefði ekki verið erfið þar sem tekizt hefði að koma andstæð- ingunum að óvörum. Hann er fæddur og uppalinn á samyrkjubúi í Jórdandal. j októberstríðinu stjórnaði hann skriðdrekadeild á Súez-vígstöðvunum. Auk þess sem hann hefur barizt í stríðunum 1956, 1967 og 1973 hefur hann tekið þátt ! fjölda annarra að- gerða í Miðausturlöndum. Aðalræðismaður íslands 1 Tel-Aviv: Aðgerðirnar án samráðs við önnur ríki - segjablöðin MORGUNBLAÐIÐ hafði samband við aðalræðismann íslands í Tel-Aviv, Fritz Naschitz, og innti hann eftir viðbrögðum fjölmiðla og almennings i ísrael. Hann sagði að fregninni af lausn gislanna hefði verið mikið fagnað bæði i blöðum. útvarpi og svo á götum úti. Á sérstökum fundi israelsþings lýstu ráðherrar og aðrir framámenn yfir ánægju sinni með velheppnaða árás á flugvellinum. j israelsku dagblöðunum er lögð áherzla á að israelska stjórnin og herinn hafi tekið ábyrgð og fram- kvæmd árásarinnar i sinar eigin hendur án samráðs við önnur ríki. Þá ræddi fréttamaður Morgunblaðsins við fréttaritara blaðsins í London, Jóhann Sigurðsson. Jóhann sagðist I gær hafa séð viðtöl við nokkra gíslanna i sjónvarpi í gær og hefði greinilega komið fram. hversu hroðalega þeim hafi liðið, margir hefðu brostið i grát af geðshræringu og fögnuði yfir að vera laus úr höndum skæruliðanna. Margir hefðu verið sofandi, þegar árás Ísraelsmannanna hófst, og þegar fyrstu skotunum var hleypt af héldu flestir að um væri að ræða framkvæmd á morðhótunum skæruliðanna. Þó voru nokkrir. sem höfðu á þvi bjargfasta trú, að samningar myndu takast. Að sögn Jóhanns virðast brezku blöðin og útvarp þeirrar skoðunar, að ísraelsmenn hlytu að hafa samið við Kenya og að Bandarikin stæðu á einhvern hátt á bak við árásina Styrkir það nokkuð þá skoðun, sagði Jóhann, að dr. Kissinger mun hafa verið fyrstur til að fá fréttina i skeyti frá ísraelsmönnum sjálfum. Hvað varðaði skipulagningu árásarinnar, kvað Jóhann ísraelsmenn vilja gefa sem minnst upp, enda væru þar eflaust um að ræða hernaðarleyndarmál, sem þeir hugsuðu sér að nota aftur. Brezku blöðin benda á, að her Uganda hefur verið þjálfaður af Israelsmönnum og að Ísraelsmenn þekktu flugvallarsvæðið út i yztu æsar vegna þessa. Um viðbrögð almennings i London sagði Jóhann. að litið væri á árásina sem stórkostlegt afrek ísraelsmanna. Björgúlfur Gunnarsson í Tel-Aviv: „Fögnuður ágötum úti” Þá hafði Morgunblaðið einnig sambandi við Björgúlf Gunnarsson, starfsmann El Al flugfélagsins i Tel Aviv. Björgúlfur sagði, að óskapleg- ur fögnuður rikti þar. Strax og fréttist, að leifturárás hef ði verið gerð og hún heppnazt, hefði fólk tekið að safnast í hópa á götum úti til að ræða árásina og fagna málatokunum. „Aðdáunin á hernum hefur vaxið um allan helming hér i ísrael," sagði Björgúlfur. Ennfremur, að það væri álitið alveg út I hött að halda að nokkurt annað rfki hafi verið i vitorði með ísraelsher eins og látið hefur verið liggja að i fréttum annars staðar frá. Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.