Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 22

Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976 Tímaseðill Tímaseðill landskeppninnar er þannig: ÞRIDJUDAGUR 6. JÚLl: 19.30 Selning 19.45 400 m grindahlaup karla — 2 riðlar 19.45 langstökk kvenna 19.45 kringlukast karla 19.45 hástökkkarla 20.00 langstökk karla 20.00 400 metra grindahlaup kvenna — 2 riðlar 20.15 200 metra hlaup karla — 2 riðlar 20.25 200 metra hlaup kvenna — 2 riðlar 20.40 800 metra hlaup karla 21.00 400 metra hlaup kvenna — 2 riðlar 21.00 spjótkast kvenna 21.20 1500 metra hlaup kvenna 21.30 5000 metra hlaup karla 21.55 4x100 metra hlaup kvenna 22.00 4 x 100 metra hlaup karla MIÐVIKUDAGUR 7/7 17.00 Sleggjukast 17.00 Stangarstökk karla 18.30 100 metra grindahlaup kvenna — 2 riðlar 18.30 Kúluvarp karla 18.55 Þrístökk karla 19.10 100 m hlaup kvenna — 2 riðlar 19.25 100 m hlaup karla — 2 riðlar 19.30 Kringlukast kvenna 19.45 spjótkast karla 19.45 spjótkast karla 19.45 hásíökk kvenna 19.55 800 metra hlaup kvenna 20.05 3000 metra hlaup kvenna 20.25 3000 metra hindrunar- hlaup 20.40 400 metra hlaup karla — 2 riðlar 20.55 10.000 metra hlaup karla 21.35 4x400 m hlaup kvenna 21.45 4x400 m hlaup karla. Hreinn Halldórsson — varpaði 19,97 metra á föstudagskvöldið. 1 Kalott-keppninni er ekki ólfklegt að hann sigrist á 20 metra múrnum og skipi sér þar með f röð beztu kúluvarpara heims. ISLENZKA UDIÐ ÍSLENZKA frjálsíþróttalands- liðið sem keppir í Kalottkeppn- inni verður þannig skipað: 100 MKTRA HLAHP: Ingunn fCinarsdóttir. IR Erna (iuómundsdóttir. KR 200 METRA IILAUP: Ingunn Kinarsdóttir. tR Erna (iuómundsdóttir. KR 400 METRA HLAUP: Ingunn Einarsdóttir, IH Ingibjörg fvarsdótlir. IISK 800 METRA IILAUP: Ingihjörg fvarsdóttir. IISK Lilja (íuómundsdóttir. 1R 1500 METRA HLAUP: Lilja Uuðmundsdóttir. fR Anna Haraldsdóttir, FH 3000 METRA HLAUP: Anna Haraldsdóltir. FH Thelma Björnsdóttir. UBK 100 METRA GRINDAHLAUP: Ingunn Einarsdóttir. ÍR Erna (iuðmundsdóttir. KR 400 METRA (iRINDAHLAUP: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. HSK Aslaug Ivarsdóttir, HSK BOÐHLAUP: Ingunn Einarsdóttir. IR, F^rna (iuðmunds- dóttir. KR, Ingibjörg fvarsdóttir. HSK, Lilja (iuðmundsdóttir. ÍR. Marfa Guðhjonsen, ÍR. Sigríður Kjartansdóttir. KA. HÁSTÖKK: Þórdís (iísladóttir. fR Lára Sveinsdóttir. A LANGSTÖKK: Lára Sveinsdóttir. A María Guðjohnsen, tR Kt'LUVARP: Guðrún Ingólfsdóttir, USt Sigurlfna Hreiðarsdóttir, UMSE KRINGLUKAST: Guðrún Ingólfsdóttir. L’SÍJ Ingihjörg Guðmundsdóttir, HSH SPJÓTKAST: Sólrún Astvaldsdóttir. A Arndís Björnsdóttir. UBK KARLAR: 100 METRA IILAUP: Bjarni Stefánsson, KR Sigurður Sigurðsson. Á 200 METRA HLAUP: Bjarni Stefánsson. KR Sigurður Sigurðsson. A 400 METRA HLAUP: Bjarni Stefánsson, KR Vilmundur Vilhjálmsson. KR 800 METRA HLAUP: Agúst Asgeirsson. fR Jón Diðriksson. UMSB 1500 METRA HLAUP: Jón Diðriksson, UMSB Gunnar Páll Jóakimsson, f R 5000 METRA HLAUP: Agúst Þorsteinsson. LJMSB Sigfús Jónsson. f R 10.000 METRA HLAUP: Sigfús Jónsson. f R Gunnar Snorrason. UBK 110 METRA GRINDAHLAUP: Valbjörn Þorláksson, KR Stefán Hallgrfmsson. KR 400 METRA GRINDAHLAUP: Stefán Hallgrfmsson. KR Jón S. Þórðarson. ÍR 3000 METRA IIINDRUNARIILAUP: Agúst Asgeirsson. ÍR Sigurður P. Sigmundsson, FH BOÐHLAUP: Bjarni Stefánsson, KR, Sigurður Sigurðs- son, A. Vilmundur Vilhjálmsson, KR. Magnús Jónason, A. Björn Blöndal. KR. Stefán Hallgrfmsson. KR HÁSTÖKK: Elías Sveinsson, KR Hafsteinn Jóhannesson. UBK LANGSTÖKK: Friðrik Þór óskarsson, ÍR Jóhann Pétursson, UMSS STANGARSTÖKK. Stefán Hallgrfmsson, KR Valbjörn Þorláksson. KR ÞRÍSTÖKK: Friðrik Þór óskarsson. ÍR Pétur Pétursson. HSS KULUVARP: Hreinn Halldórsson. KR Guðni Halldórsson. KR KRINGLUKAST: Erlendur Valdimarsson. KR óskar Jakobsson, fR SPJÓTKAST: Óskar Jakobsson. f R Elfas Sveinsson. KR SLEGGJUKAST: Erlendur Valdimarsson, KR Hreinn við 20 metrana VARPAÐI TVÍVEGIS LENGRA EN ÍSLAIMDSMETIÐ EINS og skýrt var frá i Morgunblað inu á laugardaginn setti Hreinn Hall dórsson, KR, nýtt íslandsmet i kúlu varpi á Ólympiumóti þvi er islenzka Ólympíunefndin efndi til á Laugar- dalsvellinum á fóstudagskvóldið. Skorti Hrein aðeins 3 sm upp á 20 metra markið — 19,97 metra varp- aði hann, sem er stórglæsilegur ár- angur og gefur fyrirheit um góða frammístöðu hans á Ólympíuleikun- um i Montreal, en þar er lágmarkið til þess að komast i aðalkeppnina 19,40 metrar. Hreinn átti tvö önnur gild köst i keppninni á föstudags- kvöldið, varpaði 19,63 metra og 18,97 metra. í upphituninni varpaði Hreinn vel yfir 20 metra. þannig að búast má við þvi að hann nái þeim árangri fyrr en varir og skipi sér þar með í hóp með beztu kúluvörpurum heimsins Til dæmis um hve afrek Hreins er gott má nefna að það hefði nægt til 10. sætis á Ólympiuleikun- um i Múnchen 1972, og nokkrir sentimetrar i viðbót hefðu fært hon- um sæti þar mun ofar. Hreinn hef ði getað staðið aftan við kúluvarpshringinn á föstudags- kvöldið en sigrað samt. Annar i keppninni varð Guðni Halldórsson, KR, sem varpaði 17,10 metra. Það er ekki svo langt siðan að slikt afrek hefði þótt stórglæsilegt hérlendis — t.d. 36 sentimetrum betra en hið fræga met sem færði Gunnari Huse- by Evrópumeistaratitilinn i Brússel 1950. Þriðji i kúluvarpinu varð svo tugþrautarmaðurinn Stefán Hall- grimsson sem varpaði 1 5,30 metra. Annar Ólympiufari var i sviðsljós- inu á fóstudagskvóldið Sá var Er- lendur Valdimarsson. en hann gerði öll köst sin i kringlukastinu ógild. Ekki þar fyrir að þau þyrftu að vera það. Erlendur var einfaldlega ekki ánægður með kastlengd sina. en ekki er ótrúlegt að lengstu köst hans hafi verið um 58 metrar. Erlendur hefur misst nokkuð úr vegna meiðsla, og skortir öryggi i hringn- um. Krafturinn er hins vegar nægur og þegar Erlendur fær betri vinnslu leyfir undirritaður sér að spá þvi að 60 metrarnir verði ekki erfitt við- fangsefni fyrir hann. Sigurvegari í kringlukastinu á mótinu var Hreinn Halldórsson sem kastaði 52,76 metra. Tugþrautarmaðurinn Elias Sveinsson varð annar og náði ágætu kasti, 48,54 metrum. Guðni Hall- dórsson varð þriðji með 47,76 metra. í 100 metra hlaupi kvenna hljóp Ingunn Einarsdóttir mjög vel og fékk timann 12,0 sek. Meðvindur var að- eins of mikill, eða 2,5 m/sek., en má vera 2 m/sek. Önnur i hlaupinu varð Erna Guðmundsdóttir, KR, sem hljóp á 12,3 sek.. Maria Guðjohnsen, ÍR, varð þriðja á 12,5 sek., Kristín Jóns- dóttir. UBK, fjórða á 12,8 sek. og Margrét Grétarsdóttir. Á, fimmta á 12,9 sek. Bærilegur árangur. Meðvindur var eínnig i 100 metra hlaupi karla og öllu meiri en I kvennahlaupinu. Magnús Jónasson, Á, sigraði á 10,8 sek. Björn Blöndal, KR, varð annar á 11,0 sek. og Val- björn Þorláksson, KR, þriðji á 11,5 sek. Valbjörn hafði hins vegar mótvind í 110 metra grindahlaupinu sem hann hljóp ágætlega og fékk timann 15,8 sek. Jón Sævar Þórðarson varð annar á 16,1 sek. Í 400 metra hlaupinu varð Stefán Hallgrimsson öruggur sigurvegari og fékk ágætan tima miðað viðaðstæð- ur: 50,3 sek. Það sem var hvað ánægjulegast við þetta hlaup var að sjá að Stefán gat beitt sér vel, en sem kunnugt er hefur hann átt við i meiðsli að striða. Virtist hann ekki taka það ýkja nærri sér að hlaupa á svo góðum tima. Sigurður Sigurðs- son. Á, varð annar i hlaupinu á 50,9 sek., Þorvaldur Þórsson, UMSS. þriðji á 51,9 sek., Gunnar Þ. Sig- urðsson, FH, fjórði á 54,1 sek., en siðan komu Þorgeir Oskarsson, ÍR, á 54,4 sek. og Hafsteinn Óskarsson, ÍR, á 55,4 sek. í hástökki kvenna sigraði Ólympiufarinn, Þórdís Gisladóttir stökk 1,65 metra. íris Jónsdóttir, UBK. varð önnur með 1,60 metra og Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, Á. þriðja, stökk 1,55 metra. Kalottlandskeppnin í dag EITT mesta frjálslþróttamót sem fram hefur farið á Islandi fyrr og síðar hefst á Laugardalsvellinum í kvöld. Er það hin svokallaða Kalott-keppni, en þar er um að ræða landskeppni með þátttöku íslands og Norður-Noregs, Norð- ur-Finnlands og Norður- Svfþjóðar. Alls verða erlendir keppendur á móti þessu um 200 talsins og Islendingar tefla fram í keppnina fjölmennara landsliði en nokkru sinni hefur keppt í frjálsíþróttalandskeppni enda keppt í öllum greinum bæði karla og kvenna. Þetta er í fjórða sinn sem Is- lendingar taka þátt í Kalott- keppninni, og hafa þeir nú titil að verja, þar sem þeir sigruðu í fyrsta sinn í keppninni í fyrra, og Lilja Guðmundsdóttir — einn Olympíufaranna sem keppa í Kalott-keppninni. kom sá sigur verulega á óvart. Finnar hafa allt frá því að Kalott- keppnin var sett á laggirnar fyrir hartnær 30 árum verið þar mjög sigursælir, enda frjálsar íþróttir sú íþróttagrein sem á hvað mestu fylgi að fagna í Finnlandi. Má búast við því að aðalkeppnin nú standi milii Islendinga og Finna, og af liðskipan finnska liðsins má marka að þeir tefla nú fram miklu sterkara liði en þeir voru með í fyrra og gera sér örugglega góðar vonir um að endurheimta Kalott-meistaratitilinn. Sem fyrr segir er Kalott- keppnin um 30 ára, og nýtur hún mikilla vinsælda á Norðurlönd- um, og er keppni þessi orðin þar verulega þekkt. Þátttökurétt í keppninni hefur iþróttafólk sem búsett er norðan ákveðinna breiddarmarka, og á Norður- löndunum búa á því svæði um 500 þúsund manns í hverju landi, þannig að ísland er enn „litli bróðir1' hvað fólksfjölda viðkemur. í Kalott-keppninni mun athyglin beinast verulega að ís- lenzku Ólympíuförunum, og þá ekki sízt Hreini Halldórssyni, sem búast má við að verði yfirburða- sigurvegari i sinni grein, en keppir samt sem áður við erfiðan andstæðing — 20 metra markið, og eftir hið glæsilega afrek hans á föstudagskvöldið er hann varpaði 19,97 metra, má ætla að honum takist að sigrast á þessum múr í keppninni. — Við vitum að þetta verður harður slagur, sérstaklega við Finnana, sagði Örn Eiðsson, for- maður F"Rl í viðtali við Morgun- blaðið í gær, — og það hjálpar þeim einnig að með þeim mun koma töluverður hópur áhorfenda, en finnskir áhorfendur xeru þekktir fyrir að veita sínum mönnum dyggilega aðstoð í keppni. Við treystum á það að íslenzkir áhorfendur láti ekki sitt eftir liggja og veiti okkar fólki stuðning. Islenzka frjáls- íþróttafólkíð hefur aldrei verið almennt i betri æfingu en nú, og hefur lagt gifurlega að sér. Ég hef því trú á að það standi sig. Auk þess er það örugglega vel þess virði fyrir frjálsíþróttaáhugafólk að koma og sjá það íslenzka íþróttafólk sem ekki hefur sézt á mótum hér heima fyrr í sumar vegna æfinga erlendis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.