Morgunblaðið - 06.07.1976, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULl 1976
EVERT VILL FA SÖMU VERÐ-
LAUN OG KARLMENNIRNIR
BANDARÍSKA tennisstjarnan
Chris Evert bar sigur úr býtum í
einliðaleik kvenna í Wimbledon-
keppniskeppninni í Englandi, en
leikið var til úrslita í kvenna-
flokki á föstudagskvöldið. Sigraði
Evert áströlsku stúlkuna Evonne
Goolagong 6—3, 4—6 og 8—6 í
úrslitaleik sem stóð tæpar þrjár
klukkustundir. Þótti leikur þeirra
mun tilþrifaminni en margir
leikir í undankeppninni og var
því kennt um að gífurlegur hiti
var meðan á leiknum stóð. Um
17.000 áhorfendur — fleiri en
komast með góðum móti fyrir á
áhorfendasvæði Wimbleton leik-
vangsins fylgdust með viðureign-
inni og var Evert fagnað innilega
að leikslokum, en þetta er í annað
sinn á þremur árum sem þessi 21
árs gamla stúlka sigrar í Wimble-
don-keppninni, en þar er raunar
um að ræða óoDÍnbera heims-
meistarakeppni í tennis. Var
þetta jafnframt í fyrsta sinn sem
Evert bar sigurorð af Goðlagong í
keppni.
Fyrir sigur sinn hlaut Evert
17.500 dollara í verðlaun, en
Goolagkong fékk 9.800 dollara í
sinn hlut. Eftir keppnina sagði
Evert að þarna væri um smá-
peninga að ræða og hún myndi
Chris Evert — framúrskarandi,
en þykir frek.
Jafntefli hjá
Standard Liege
STANDARD Liege, belgiska liðið
sem Ásgeir Sigurvinsson leikur
með gerði jafntefli í leik sinum
við israelska liðið Hapoel Beer-
Sheva, i sumarbikarkeppninni i
knattspyrnu sem hófst i Basle i
Sviss á sunnudaginn. Hovrugt
liðið skoraði mark. Lið frá mörg-
um þjóðum taka þátt i þessari
keppni og urðu úrslit i fyrstu
umferðinni sem hér segir:
Hapoel (ísrael) — Standard
Liege, (Belgiu) 0—0
Kickers Offenbach (V Þýzkalandi)
— Union Teplice (Tékkóslv.)
0—3
Köge (Danmörku) — Hertha
Berlin (V Þýzkalandí) 1 — 5
Landskrona (Sviþjóð) —
Gasshoppers (Sviss) 0—0
Eintracht Braunschweig (V-
Þýzkal.) — AIK (Sviþjóð) 2—1
Næstved
Órebro
St.
Östers (Sviþjóð) -
(Danmörku) 5—0
Zaglebie (Póllandi)
(Sviþjóð) 5— 1
Widzew (Póllandi) — KB (Dan
mörku) 9—1
Row Rybnik (Póllandi) —,
Gallen (Sviss) 2—1
Zurich (Sviss) — Austria
(Austurriki) 4—1
Sturm Graz (Austurriki)
Djurgaarden (Sviþjóð) 1—0
Admira Wacker (Austurriki)
Beitar (ísrael) 1—3
Vin
Bretar slógu Pólverj-
um og Kanadabúum við
BRKTAR sigruðu bæði Kanadabúa og Fóiverja ( landskeppni
karla og kvenna í frjálsum (þróttum sem fram fór á Crystal
Palaee leikvanginum I London um helgina. Kom sásigur nokkuð
á óvart, þar sem fyrirfram hafði verið við þvl búizt að Pólverjar
ættu frábæru frjálsfþróttalandsliði á að skipa um þessar mundir.
(Irslit ( stigakeppninni urðu þau að ( karlagreinum sigraði
Bretland—Pólland 106—103, og Bretar sigruðu Kanadamenn
127—101. Pólverjar sigruðu svo Kanadamenn 131—71. 1 kvenna-
keppninni unnu brezku stúlkurnar þær pólsku 74,5—71,5 og
Kanadastúlkurnar 71—64. Kanadastúlkurnar sigruðu þær
pólsku 70—65.
Sigurvegarar ( einstökum greinum í landskeppninni urðu
eftirtalin:
Kringlukast karla: S. Wolodko, Póllandi 61,14 metrar
Hástökk kvenna: A. Gilson. Bretlandi 1,80 metr.
Kúluvarp kvenna: L. Chewinska, Póllandi 19,10 metrar
1500 metra hlaup karla: D. Hill, Bretlandi 3:41,92 min.
Kúluvarp karla: G. Capes, Bretlandi 20,83 metrar
3000 metra hindrunarhlaup: B. Malinowski. Póllandi 8:22,48
mín.
Þrístökk: A. Moore, Bretlandi 16,41 metrar
4x400 metra boðhlaup kvenna: Sveit Bretlands 3:28,48 mln.
Stangarstökk: T. Slusarski, Póllandi 5,20 metrar.
Spjótkast karla: J. Damszel, Póllandi 80,50 metrar.
4x400 metra boðhlaup karla: Sveit Póllands 3:04,66 mín.
100 metragrindahlaup kvenna: S. Colyear, Bretlandi 13,39 sek.
10.000 metra hlaup: A. Kopijarz, Póllandi 29:27,64 mln.
1500 metra hlaup kvenna: P. Werthner, Kanada 4:10,64 m(n.
Sleggjukast: S. Black, Bretlandi 72,40 metrar
110 metra grindahlaup: B. Price, Bretlandi 13,73 sek.
200 metra hlaup kvenna: S. Lannaman, Bretlandi 22,86 sek.
200 metra hlaup karla: A. Woronin, Póllandi 20,73 sek.
400 metra grindahlaup: A. Pascoe, Bretlandi 50,62 sek.
100 metra hlaup kvenna: S. Lannaman, Bretlandi 11,28 sek.
100 metra hlaup karla: A. Swierczynski, PóIIandi 10,44 sek.
Kringlukast kvenna: D. Rosani, Póllandi 60,72 metrar
Hástökk karla: J. Wszola, Póllandi 2,21 metrar
400 metra hlaup kvenna: D. Murray, Bretlandi 51,89 sek.
400 metra hlaup karla: VT. Jenkins, Bretlandi 45,65 sek.
5000 metra hlaup: N. Rose, Bretlandi 14:03,75 mln.
Langstökk kvenna: D. Jones, Kanada 6,39 metrar.
800 metra hlaup karla: S. Ovett Bretlandi 1:46,70 min.
800 metra hlaup kvenna: Y. Saunders, Kanada 2:01,69 mín.
ekki taka þátt í Wimbledon
keppninni ef verðlaunin yrðu
ekki hækkuð i framtiðinni, a.m.k.
í sömu upphæð og veitt eru i
karlaflokknum, en þar eru 1.
verðlaun 21.875 dollarar.
Chris Evert er tvimælalaust
launahæsta iþróttakona heims og
er talið að hún hafi fengið í sinn
hlut um 220.000 dollara á síðasta
ári. Þykir Evert mjög kröfuhörð
og er farin að ganga undir
nafninu „ungfrú aurabudda“.
Segja talsmenn Wimbledon-
mótsins að ekki komi til greina að
hækka verðlaun í keppninni
fremur en orðið er, enda eigi
þetta fyrst og fremst að vcra
keppni um heiður. Nái
peningarnir yfirhöndinni sé mót-
ið búið að vera.
Evert var mjög umrædd í Lond-
on meðan á Wimbledon-mótinu
stóð að þessu sinni, og þá fyrst og
fremst vegna þess hve mikið hún
virtist vera upp á karlhöndina.
Björn Borg — sigraði glæsilega ( úrslitum Wimbledonkeppninnar.
BORG BURSTAÐI NASTASEI
ÚRSUTUM WIMBLEDONMÓTSINS
SÆNSKA tennisstjarnan Björn
Borg bar sigur úr býtum f einliða-
leik karla í Wimbledon-
tenniskeppninni ( London, en
leikið var til úrslita á laugardag-
inn. Er Björn Borg yngsti sigur-
vegarinn í Wimbledonkeppninni
( áratugi, en hann er nú liðlega
tvltugur að aldri. Jafnframt er
Borg fyrsti Svlinn sem sigrar í
Wimbledon-keppninni, en keppni
þessi er óopinber heimsmeistara-
keppni og að þessu sinni voru
allir beztu tennisleikarar í heimi
meðal þáttlakenda.
Björn Borg lék til úrslita við 29
ára Rúmena, Ilie Nastase og stóð
leikur þeirra í eina klukkustund
og fimmtíu mínútur, að viðstödd-
um eins mörgum áhorfendum og
komust fyrir á áhorfendapöllun-
um. Viðureigninni var einnig
sjónvarpað beint til flestra
Evrópulanda, og er talið að fleira
fólk en nokkru sinni fyrr hafi
fylgst með úrslitaleiknum.
Til að byrja með hafði Björn
Borg umtalsverða yfirburði i
úrslitaleiknum. Hann lék næstum
óaðfinnanlega og lét Nastase
hendast hornanna á milli á vellin-
um. Urslitin í tveimur fyrstu
lotunum urðu 6—4 og 6—2 fyrir
Borg. Eftir það áttu flestir von á
að eftirleikurinn yrði honum auð-
veldur, en Nastase hafði engan
veginn gefið upp vonina og sýndi
ótrúlega mikið þrek í síðustu lot-
unni. Gekk þar á ýmsu en svo fór
að lokum að Borg hafði betur
9—7 og tryggði sér sigurinn. Eftir
leikinn sagði Nastase, að þetta
hefði verið gífurlega erfiður leik-
ur. Upphafssendingar Borgs
hefðu verið næstum fullkomnar
og hann hefði komið sér verulega
á óvart með nýrri tækni sinni við
þær. Ég átti enga möguleika fyrr
en ég var búínn að læra svolitið á
þær, sagði Nastase.
— Mér fannst Nastase mjög
taugaóstyrkur og ólíkur sjálfum
sér á köflum í leiknum, sagði
Björn Borg i viðtali við frétta-
menn eftir sigurinn. — Ég var
búinn að ákveða það fyrirfram að
sækja af hörku, og ég held að
Nastase hafi alls ekki átt von á
því að ég tæki eins mikla áhættu
og ég gérði i raun og veru. Ég
leyfi mér að segja að ég hafi
aldrei leikið betur á ferli mínum
en ég gerði i dag, sagði Borg.
A laugardaginn var einnig leik-
ið til úrslita í tviliðaleik kvenna
og þar sigruðu Chris Evert frá
Bandaríkjunum og , Martina
Navratilova frá Tékkóslóvakíu
þær Billie Jean King frá
Bandaríkjunum og Betty Stove
frá Hollandi i úrslitaleik 6—1,
3—6 og 7—5. Þá sigruðu Tony
Roche frá Ástralíu og Francoise
Durr frá Frakklandi þau Dick
Stockton og Rosie Casals frá
Bandarfkjunum í úrslitaleik
tvenndarkeppninnar 3—6, 6—2
og 7—5.
SPANVERJAR
KAUPA
GERRY Muhren, sem leikið hefur
33 landsleiki í knattspyrnu fyrir
Holland, hefur nú verið seldur
frá hinu þekkta Ajaxliði til
spánska 1. deildar liðsins Betis
Sevilla. Þá hefur annað spánskt
lið, Real Zaragoza, keypt portú-
galska markakónginn Jordao frá
Benfica og ráðið frakkann Lucien
Míiller sem framkvæmdastjóra.
187 Ungverjar til Montreal
187 íþróttamenn frá Ungverjalandi munu keppa á Olympíuleikun-
um ( Montreal og er hluti flokksins þegar farinn vestur um haf.
Segjast Ungverjar sjaldan hafa farið með eins góða íþróttamenn til
Olympíuleika og gera sér vonir um góða uppskeru ( verðlaunabar-
áttunni. Þeir sem helzt eru bundnar vonir við eru tveir tvítugir
sundmenn, Zoltan Verraszto og Andras Hargitay, en báðir hafa þeir
verið I fremstu röð sundmanna í heiminum að undanförnu. Þá er f
hópnum Zoltan Magyar, sem talinn er einn bezti fimleikamaður
heims, og sigraði [ heimsmeistarakeppninni 1974. Tveir gullverð-
launamenn Ungverja frá leikunum ( Munchen munu nú reyna að
verja titla sína. Það eru þeir Laszio Papp sem sigraði I fluguvigtar
keppni hnefaleika og Imre Folke sem sigraði I bantamvigtarflokki í
lyftingum.
Fánaberi Ungverja verður Jenoe Kmuti, sem keppir nú í fimmta
sinn I lyftingum á Olympluleikunum.
150 frá Rúmeníu á OL-leikana
RÖSKLEGA 150 íþróttamenn frá Rúmeníu lögðu af stað frá heima-
landi sínu áleiðis til Montreal í morgun. Er það öllu fjölmennari
flokkur en Rúmenfa hefur áður sent til Oivmpíuleika, ef leikarnir I
Munchen 1972 eru undanskildir.
Meðal íþróttafólksins frá Rúmeníu er hin kornunga fimleika-
stúlka Nadí Comaneci, sem margir spá að verði sigursæl í fimleika-
keppni leikanna. Þá gera Rúmenar sér einnig miklar vonir um að
handknattleikslið þeirra hreppi gullverðlaun á leikunum, en sem
kunnugt er þá eru Rúmenar núverandi heimsmeistarar í hand-
knattleik. Þá eiga Rúmenar marga frábæra frjálsíþróttamenn og
má meðal þeirra nefna Argentina Menis, fyrrverandi heimsmet-
hafa í kringlukasti kvenna og Natalia Andrei Marasescu og Mari-
ana Suman sem álitið er að verði framarlega í 800 og 1500 metra
hlaupi kvenna.
Fleiri Japanir á OL en fyrr
JAPANIR senda fjölmennari flokk fþróttafólks til Olympluleik-
anna í Montrea! en þeir hafa nokkru sinni áður sent til Olympíu-
leika. Alls verða í liðinu 156 karlmenn, 61 kona og 51 farar- og
flokkstjórar. Taka Japanarnir þátt f 19 íþróttagreinum. Sfðustu
Japanarnir sem valdir voru til þátttöku I leikunum var handknatt-
leikslið kvenna sem tryggði sér rétt til að leika ú úrslitakeppninni
með þvf að sigra í undankeppni sem staðið hefur yfir ( Bandaríkj-
unum undanfarna daga.
Talsmaður japönsku Olympíufaranna sagði er flokkurinn lagði af
stað til Montreal í gær, að hann gerði sér vonir um að einhver
gullverðlaunyrðu í farangrinum þegar haldið yrði heim á leið, og þá
sennilega helzt fyrir blak karla eða kvenna en í þeirri grein hafa
Japanir löngum staðið mjög framarlega. — Ég geri mér grein fyrir
þvf, að róðurinn verður þungur — þyngri en áður, og fólk má ekki
gera of miklar kröfur til okkar, sagði fararstjórinn.