Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 38

Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976 Viðbrögð við frelsun gíslanna: Fögnuður á Vesturlöndum — reiði í ríkjum Araba, Afríku og Sovétríkjum Leiðtogar á Vesturlöndum létu í Ijós óskor aða ánægju með árás ísraelsmanna á Entebbe flugvöll í Uganda og frelsun gísl- anna sem þar voru i haldi, og dagblöð um allan heim hafa farið fögrum orðum um aðgerðir ísraelsmanna. Kurt Waldheim aðal- ritari Sameinuðu þjóðanna fór á hinn bóginn hörðum orðum um aðgerðirnar og sama er að segja um fjandmenn ísraels í löndum Araba og ríkjum Austur-Evrópu. Ford Bandaríkjaforseti lét i Ijós „mikla ánægju" með frelsun gíslanna og áhafnar frönsku þotunnar i skeyti sem hann sendi Rabin forsætisráðherra ísraels, en gekk þó ekki svo langt að leggja blessun sina yfir sjálfar aðgerðirnar. Sendiherra Frakka i Israel, Jean Herbly, lýsti þvi yfir við fréttamenn að viðbrögð ísraelsmanna við töku gíslanna væri „siðferðislegur sigur, sigur yfir ofbeldisoflum " Kanslari Vestur Þýzkalands, Hel mut Schmidt, lét í Ijósi fögnuð og létti yfir endalokum málsins og sama gerðu forsætisráðherra Nýja- Sjálands, Robert Muldoon, og forseti Filipseyja, Ferdinand Marcos. Marcos lýsti því yfir að frelsun gísl anna væri sigur „hins góða yfir hinu illa". Meðal hinna fyrstu til að senda stjóm ísraels heillaóskaskeyti að lokinni árás ísraelsmanna var K.B. Andersen utanríkisráðherra Dana. Anker Jörgensen forsætisráðherra fagnaði einnig í ræðu „þessum frá bæru aðgerðum gegn hermdarverka mönnum." Dagblöð í Danmörku og Ítalía: Kommúnisti forseti neðri deildar þingsins Róm - PIETRO - 5 júll — AP Ingrao. sem veriS hefur 168. hjónaband 88 ára manns Teheran, íran, 4 júlí — Reuter YAHYA Ali Akbar ben Noori er 88 ára, og er nú að búa sig undir að kvænast í 168. skipti. Að sögn blaðsins Etelaat er ástæðan fyrir kynorku hans sú að hann borðar daglega eitt kíló af hráum lauk. „Þvf miður þá kunna mjög fáir ungir menn að vinna ástir konu," segir Noori í viðtali við blaðið. „Komið hefur fyrir að ég hef unnið samþykki konu til að gift- ast mér á tíu minútum." Að- spurður kvaðst hann ekki vita hver mörg börn hann hefði getið til þessa. harðlínumaður í röðum kommúnista á Italíu var f dag kjörinn forseti neðri deildar þingsins, þegar þing kom saman f fyrsta sinn eftir kosningar. Þetta er æðsta staða, sem kommún- ista hefur verið trúað fyrir sfðan Palmiro Togliatti flokksleiðtogi var dómsmálaráðherra í rfkisstjórn, sem mynduð var eftir síðari heimstyrjöld- ina Ljóst er, að kjör Ingraos stendur í beinu sambandi við fylgisaukningu kommúnista í kosningunum um dag- inn, en samkomulag um kjör hans náðist þó ekki fyrr en eftir mikil fundar- höld nú um helgina Áður var sósíalist- inn Alessandro Pertini forseti neðri deildarinnar Amintore Fanfani, leiðtogi kristilegra demókrata, sem fjórum sinnum hefur verið forsætisráðherra, var kjörinn for- seti öldungadeildar þingsins, en sú staða gengur næst forsetaembættinu að virðingu Svíþjóð töldu að enda þótt árásin væri ólögleg stríðsaðgerð hefði ísra- el ekki átt annarra kosta völ. „Allir standa á öndinni yfir aðgerð- um ísraels," segir Times f London um málið og Financial Times segir að árásin sýni að hægt sé að ná árangri með því að láta hart mæta hörðu. Daily Mail segir að hugrekki eins og það sem ísraelsmenn hafi sýnt sé sannarlega betra en einhvers konar samkomulag við morðingja. Guard ian hrósar ísraelsmönnum, sem hafi auðmýkt einræðisherraóþokka og sýnt hópi hermdarverkamanna í tvo heimana. Karl Czernetz, austurrískur þing- maður, sem er forseti Evrópuráðsins, sendi ísraelska þinginu heillaóska- skeyti og sagði meðlimi Evrópuráðs- ins vera himinlifandi yfir frelsun gfsl- anna og þeir hörmuðu að samfélagi þjóðanna skyldi ekki takast að vernda almenn mannréttindi í heim- inum. Kurt Waldheim, sem staddur var í Kairó, þegar skýrt var frá atburðun- um í Uganda, lýsti því yfir að aðgerð- irnar væru „skammarleg valdbeiting og brot á fullveldi eins aðildarrfkis Sameinuðu þjóðanna." Waldheim Framhald á bls. 39 Bandaríski fáninn blaktir á Georg Washington-brúnni yfir Hudson-fljót og eldfiaugamóðurskipið Wainwright er í þann veginn að sigla undir brúna s.l. laugardag, þegar undirbúningur undir siglinguna miklu fór fram. Brúin tengir New York-borg og New Jersey. Málaliðar á vegum Líbýumanna stóðu að byltingartilrauninni Kaíró — 5. júlí — Reuter — AP STJÓRNIN í Súdan hefur til- kynnt Arababandalaginu, að Carter leitar að varaforsetaefni Plains. Georgiu, 5. júlí — AP. JIMMY Carter, sem eftir öllum sólarmerkjum að dæma verður örugglega frambjóðandi Demó- krataflokksins við forsetakosning- arnar f Bandaríkjunum I nóvemb- er, er þegar farinn að svipast um eftir varaforsetaefnum. Skýrði hann fréttamönnum frá því á sunnudag að hann ætlaði að ræða málið við að minnsta kosti fimm menn, og fyrstur þeirra yrðu Edmund Muskie öldungadeildar- þingmaður frá Maine. Carter kvaðst þegar hafa rætt við þrjá menn um málið f sfma, en vildi ræða við þá perónulega, auk þeirra tveggja, sem eftir er að ræða við. Þá sagði hann að varaforsetaefnum hans gæti fjölgað enn. I skoðanakönnun, sem gerð var dagana 21.—24. júní, kemur fram að Carter ætti að bera sigur af hólmi í forsetakosningunum, hvort heldur væri gegn Gerald Ford forseta eða Ronald Reagan fyrrum ríkisstjóra. Þó eru ekki allir jafnánægðir með forseta- framboð Carters, því 47% að spurðra demókrata sögðust ánægðir með hann sem frambjóð- anda, en 44% kváðust vilja ein- hvern annan. — segir Súdanstjórn úyggjandi sannanir liggi fyrir um hlutdeild Líbýu f tilrauninni til að steypa Nemeyri forseta af stóli s.l. föstudag. Segir f yfirlýsingu stjórnarinnar, að máfaiiðar frá ýmsum löndum hafi staðið að byltingartilrauninni á vegum Líbýumanna. og hafi þeir haft fyrirmæli um að ráða Nemeyri af dögum og steypa löglegri stjórn Súdans af stóli. Þá skorar Súdan- stjórn á Arababandalagið að gera ráðstafanir til að koma f veg fyrir, að slíkar árásaraðgerðir, sem ógn- uðu grundvelli og öryggi allra þjóða, endurtækju sig. Stjórnmálaskýrendur telja, að málið verði til þess að auka enn á sundrungu innan Arababanda- Iagsins, þar sem klofningur ríkir þó fyrir vegna deilunnar fyrir botni Miðjarðarhafs og styrjaldar- innar í Líbanon. Stjórnin í Súdan hefur kallað heim sendiherra sinn í Trípólí, en samskipti Líbýumanna og Súdana hafa verið stirð um nokkurra ára skeið. í dag óskuðu Súdanir eftir sér- stökum fundi í Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna vegna hinnar alvarlegu árásar, eins og sagði í orðsendingunni, og er talið, að málið verði tekið fyrir í þessari viku. Skotin í móðurkviði Belfast, Norður-lrlandl, 5. júlí — AP. CATHERINE litla Gil- more er aðeins þriggja daga gömul írsk stúlka, en hún er nú á batavegi eftir skotsár, sem hún hlaut í móðurkviði á föstudag. Móðirin, Mary Gil- more, var á leið heim til sín á föstudagskvöld, - er á batavegi komin nærri níu mánuði á leið, þegar hún varð fyrir tveimur skotum úr níu millimetra hríð- skotabyssu. Annað skotið hæfði Mary í fótlegg, hitt fór ofar, straukst viö hrygg ófæddrar stúlk- unnar og hafnaði í kvið hennar. Var Mary flutt tafarlaust í sjúkrahús, þar sem læknar flýttu fæðingunni og gátu fjar- iægt skotið eftir tveggja klukkustunda aðgerð. William Cochran, einn læknanna, sagði á eftir: „Fyrir fullorðna væri þetta mikil aðgerð, hvað þá fyrir ungabarn. Það væri rétt eins og að fá golfkúlu gegnum bakið. En ég vona að Catherine nái sér að fullu.“ Ölympíu- leikarnir í hættu? Montreal — 5. júll — Reuter. FORSETI alþjóðlegu Olympíu- nefndarinnar, Killanin lávarður, sagði I kvöld, að það yrði hættu- legt fordæmi ef Olympiunefndin léti Kanadastjórn ráða þvi hverjir tækju þátt I Olympluleikunum fyrir hönd Kfna. Killanin tók um leið fram, að þessi ummæli mætti ekki skoða sem hótun við Kanadastjórn. og færðist hann um leið undan að svara þeirri spurningu með hvaða hætti al- þjóðlega Olymplunefndin mundi afturkalla viðurkenningu slna á leikunum I Montreal. Sem kunnugt er hefur stjórn kln- verska alþýðulýðveldisins krafizt þess af Kanadastjórn, að hún hafni þátttakendum frá Formósu, en Kanadastjórn itrekaði þá afstöðu sfna síðast í dag, að hún mundi ekki viðurkenna þátt iþróttamanna frá Formósu í Olympfuieikunum sem fulltrúa Lýðveldisins Kina, aðeins sem fulltrúa Formósu, eins og gert var á leikunum f Róm 1960 Talsmaður Kanadastjórnar sagði i kvöld að stjórnin væri von- góð um að hægt yrði að leysa þessa deilu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.