Morgunblaðið - 25.07.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JULl 1976
3
Hvað kostár
eggið í mínútum?
Brezkur hagfræðingur, Keith Bush, hefur nýlega gert saman-
burð á kaupmætti í Rússlandi, Bandaríkjunum, Frakklandi,
Þýzkalandi og Bretlandi. I samanburðinum styðst Bush ekki við
beinharðar peningagjaldmiðil, eins og venjan er, heldur metur
hann vörutegundirnar í þeim vinnutíma, sem nauðsynlegur er til
að geta keypt vöruna. Miðað er við venjulega verkamannavinnu.
O fi c C9 > s 4> JS s o C/i taa
* ic u, u ■o
C/5 CÚ c/5 s ■a S s fce
Vöruteg. Kg £ o s o J s,
Brauð 3.0 64 61 67 29 54
Egg 12 stk 21 156 39 28 56
Nautakjöt 1.0 66 144 115 147 166
Hakkað kjöt 0.5 17 104 29 38 50
Þorskur 1.0 49 56 52 98 113
Smjör 0.5 23 71 31 29 39
Mjólk(l) 10.0 66 213 92 108 81
Kartöflur 7.0 58 49 53 160 94
Kaffi 0.5 32 163 75 69 43
Gin/Vodka 0.2 1 19 168 18 59 42
Samkvæmt útreikningum Bush, er kostnaður við vikuleg inn-
kaup til heimilis, mældur í vinnutímum:
Litasjónvarp 17.2 64.6 22.4 28.2 25.7
Mælt í mánuðum 85.6 780.0 191.5 221.6 327.3
Á skýrslum Bush kemur ljós-
lega fram munurinn á lífsaf-
komu fólks í þessum borgum.
Samanburðurinn er ekki sízt
fróðlegur þeim, sem segja
öreiga vestantjaldslandanna
búa við kúgun auðvaldsins ólíkt
starfsbræðrunum í Austur-
Myndin sýnir tvo Rússa velta
vöngum yfir nýjum jakkaföt-
um.
Evrópu. Vert er að hafa í huga
nokkur atriði. T.d. eru margar
vörutegundir, svo sem brauð,
fiskur og kartöflur oft með öllu
ófáanlegar í ríkisverzlunum í
Moskvu, en eru þá til sölu á
mörkuðum á mikiu hærra
Framhald á bls. 39
Neytendasamtökin hvetja til
lagasetningar um neytendavemd
AÐALFUNDUR Neytendasam-
takanna var haldinn á Hótel Esju
12. apríl sl. Eftirfarandi ályktun
var samþykkt á fundinum:
„Aðalfundur Neytendasamtak-
anna haldinn á Hótel Esju þann
12. apríl 1976 beinir þeim tilmæl-
um til viðskiptaráðuneytisins að
draga ekki lengur frágang á
frumvarpi til laga um neytenda-
vernd.“
Til skýringar á ályktun þessari
vilja Neytendasamtökin benda á
eftirfarandi atriði: A undanförn-
um árum hefur komið æ skýrar í
ljós nauðsyn þess að tryggja rétt
hins almenna neytenda. Neyt-
endasamtökin hafa með þjónustu
við neytendur kynnzt náið þeim
vandamálum sem þeir eiga við að
etja. Mikið vantar á að neytendur
hérlendis búi við hliðstætt öryggi
og neytendur í nágrannalöndum
okkar, þar sem neytendalöggjöf
hefur verið komið á. Neytenda-
löggjöf sem tryggði rétt neytenda
væri stórt spor í rétta átt. Ályktun
þessi var send viðskiptaráðherra.
Núverandi aðalstjórn Neyt-
endasamtakanna skipa: Reynir
Caracas — 23. júlí. — Reuter.
50 þúsund manns eru nú heim-
ilislausir vegna gifurlegra
flóða, sem geisað hafa í suður-
hluta Venezuela að undan-
Ármannsson formaður, Jónas
Bjarnason varaformaður, Anna
Gísladóttir ritari, Eirika A. Frið-
riksdóttir gjaldkeri. Meðstjórn-
endur eru Árni B. Eiriksson, Guð-
mundur Einarsson og Gunnlaug-
ur Pálsson. (Fréltatilkynningfrá
Neytendasamtökunum,
dagsett 20. Júlf).
förnu. Tjón af völdum flóðanna
er metið á sex og hálfan millj-
arð íslenzkra króna. Þetta eru
mestu flóð í landinu í þrjá ára-
tugi.
50 þús. heimilislausir
vegna flóða í Venezuela
Nýtt leikfélag í
bígerð í Reykjavík?
ORÐRÓMUR um stofnun
nýs ieikfélags í Reykjavfk
rak tfðindamann Morgunblaðsins
á fund Þorgeirs Þorgeirssonar
kvikmyndagerðarmanns, en hann
er samkvæmt orðrómnum, einn
aðila nýja félagsins. Þorgeir sagði
að þetta væri enn á algjöru
umræðustigi. „Nýtt leikfélag hef-
ur verið mikið rætt af þeim
nemendum Leiklistarskóla ríkis-
íns, sem útskrifuðust nú í vor og
fleirum, sem kothið hafa við sögu
Nemendaieikhússins f vetur, svo
sem Sigurðar Pálssonar og Gunn-
ars Reynis Sveinssonar,“ sagði
Þorgeir. „Þó nokkur hugur er f
fólkinu." Ekki kæmi til greina
samkeppni við eldri leikfélögin f
Reykjavík, heldur yrði væntan-
lega um að ræða féiagsform, er
yrði opið bæði áhugafóiki og at-
vinnufólki.
„Er eitthvað hæft í því, að þið
hafið falazt eftir Fjalakettinum í
þessu sambanda?“
„Það hefur líka verið rætt.
Kostnaður við að gera húsið upp
yrði þó eflaust ofviða þessum
hópi fólks, þetta eru mest blankir
krakkar. En óneitanlega væri
gaman, ef Fjalakötturinn gæti
aftur tekið upp leikhússtarfsemi
— að ég nú ekki tali um hversu
mikið það myndi gera fyrir
Grjótaþorpið," sagði Þorgeir að
lokum.
20 nemendur luku burtfarar-
prófi úr Tónlistarskólanum
TÖNLISTARSKÓLANUM i
Reykjavik var sagt upp föstu-
daginn 28. maí sl. I vetur
stunduðu 270 nemendur nám
við skólann og kennarar voru
45 auk skólastjóra. 12 opinberir
tónleikar voru haldnir á vetrin-
um, þar kom m.a. fram hjóm-
sveit skólans og kór auk fjölda
einleikara. I vor tóKu 20 nem-
endur burtfararpróf og skipt-
ust þannig eftir deildum: 5
tóku einleikarapróf, 4 fiðlu-
kennarapróf, 2 píanókennara-
próf, 1 blásarakennarapróf, 1
organistapróf og 8 tónmenntar-
kennarapróf. Þetta er stærsti
hópur, sem útskrifazt hefur í
einu frá skólanum þau 46 ár,
sem hann hefur starfað.
Nemendur sem luku burtfararprófi úr Tónlistarskólanum á siðast-
liðnu vori.
London
Vikuferoir til London.
Næsta brottför 25. júlí.
r Flugferðir með gistingu og morgunverði
frá kr. 44.600.
Einn glaðværasti baðstaður Evrópu.
Næsta frottför 30. júlí
Fáein sæti laus.
AUSTURSTRÆTI 17
Ferðaskrifstofan
Costa Brava fejÖ^Costa del Solfe
FUENGIROLA
Næsta brottför 26. júli — 3 vikur.
Ein ódýrasta ferð sumarsins.
Fáein sæti laus. VerSfrá kr. 59.200.
TORREMOLINOS
Næsta brottför 1. ágúst.
Vegna forfalla fáein sæti laus
jr
SIMI26611