Morgunblaðið - 06.08.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.08.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. AGUST 1976 3 Hér heldur Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur á mynd Lista safns Islands af Gunnari f Geysi. Grafíkmyndir heimsfrœgra listamanna á Kjarvalsstöðum 1 DAG kl. 5 verður opnuð á Kjarvalsstöðum sölusýning á graffkmyndum eftir ýmsa heimsþekkta listamenn. Félag- ið Myndkynning stendur að sýningu þessari, en það er fé- lagsskapur sem stofnaður var af áhugamönnum um út- breiðslu myndlistar. Að sögn Aðalsteins ingðlfs- sonar listfræðings er hér um að ræða samansafn graffkmynda af ýmsum stærðum, gerðum og stflum, og fyrir fslenska graffk- unnendur væri sýningin alger hvalreki, þðtt hérlendis hefði verið vel staðið að kynningu listgreinarinnar undanfarin ár. Flest verkanna á sýningunni eru eftir heimsfræga listamenn og má I því sambandi nefna Picasso, Dali, Vasarely að ógleymdum Erró(Guðmundi Guðmundssyni). Þungamiðja sýningarinnar eru án efa 23 verk eftir Erró, hinn afkasta- mikla og víðfræga íslenska mál- ara. Hér er í rauninni um stærstu sýningu á verkum hans að ræða, hérlendis, í 11 ár. Með- al umræddra verka hans er hin japanska myndröð „Made in Japan“. Verkaröð þessa mætti helst kalla „pornógrafíu", en í henni hefur listamaðurinn sett saman erótik úr rekkjusiðabók- um Japana og ofbeldi úr vest- rænum hasarblöðum. Picasso og Dali eiga sitt verk- ið hvor á þessari sölusýningu, en flestum er kunn snilld þess- ara meistara. Þá eru athyglis- verð verk eftir Victor Vasarely sem hefur verið frumkvöðull í optískri afstrakt (sjónhverf- inga-geometríu) undanfarin 20 ár. Aðalsteinn tjáði okkur að Vasarely hefði haft ómæld áhrif á nokkra islenska lista- menn. Sonur Vasarelys, Yvaral, fetar i fótspor hins fræga föður sfns og á verk á sýningunni, en hann hefur getið sér gott orð fyrir strendinga-sjónhverfingar sínar og fágað handbragð. Aðrar listrænar tilhneigingar í evrópskri list eiga hér full- trúa. Má þar nefna Belgíu- manninn Corneille úr Kóbra- hópnum, Italann Gaetano Pompa og furðuveröld hans svo og Frakkann Max Papart sem verið hefur í fremstu röð graf- íklistamanna og bókaskreyt- ingamanna f Evrópu í mörg ár. Alexander Calder sem er eitt stærsta nafn í skúlptúr á öld- inni og reyndar upphafsmaður hreyfilistar á hér athyglisverð verk. Þessi Calder er sonur Calders hins eldra sem gerði styttu Leifs heppna. Auk þess- ara nafna eru óupptalin ýmis nöfn sem eiga athyglisverð verk á aýningunni. Eins og áður segir er hér um sölusýningu að ræða. Verð myndanna er nokkuð misjafnt, og veltur þar helst á fram- leiðslutækni við gerð mynd- anna svo og upplag þeirra. Dýr- asta verkið, og jafnframt það stærsta, kostar 130 þúsund krónur en hið ódýrasta er á 25 þúsund krónur. Sýningin sem opnuð verður í dag stendur yfir til 16. ágúst, og Framhald á bls. 22 Verið var að leggja sfðustu hönd á frágang graffkmyndanna, að Kjarvalsstöðum er Morgunblaðsmenn bar þar að garði f gær. Eyjamenn komnir í þjóðhátíðarskap Herjólfur og Flugfélagið sjá um sjó- og loftbrú til Eyja með tugum ferða ÞAÐ VAR mikill Þjóðhátfðarhug- ur f Eyjaskeggjum I gærdag þeg- ar tjöldun hústjalda hófst á Breiðabakka við Stórhöfða og var miklum fjölda tjaldgrinda og tjalda slegið upp þrátt fyrir rign- ingu. Eyjamenn halda ávallt f lengstu lög f vonina um gott þjóð- hátfðarveður og einnig er það orð- in nokkurs konar þjóðtrú f Eyjum vegna genginnar reynslu að á Þórsþjóðhátfð sé gott veður og Framhald á bls. 22 If Þessi Eyjamær var komin f Þjóð- hátfðarskapið þegar hún tjaldaði á Breiðabakka f gærdag. Ljós- myndir Mbl. Sigurgeir f Eyjum. Markús Jónsson leggur sig allan fram við að koma tjaldsúlunum fljótt og vel saman og yngri kynslóð- in lætur ekki sinn hlut eftir liggja. Húnbogi Þorkelsson, Bogi I Sandprýði, býöur Svenna Hjálmars vænan tóbaksslurk á Bakkanum f gær. Þeir voru báðir búnir að koma sfnum tjöldum upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.