Morgunblaðið - 25.08.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1976
„ÞEIR vildu svo sem
gera eitthvað úr þessu í
prófnefndinni, en ég
sagðist nú bara vera
manneskja,“ sagði fyrsta
konan, sem tekið hefur
sveinspróf í húsgagna-
bólstrun, Guðbjörg Kat-
rín, þegar blaðamaður
Mbl. innti hana eftir við-
brögðum.
„Mér finnst það ekkert
merkilegt, þótt kona
verði bólstrari, og eigin-
lega er það furðulegt að
konur skuli ekki hafa
lært þessa iðn, hún er
upplögð fyrir okkur.
Þetta er ekki mikil erfið-
isvinna.“
Guðbjörg Katrín er dóttir
hjónanna Guðrúnar Lúðvíks-
dóttur og Sigurbjörns Einars-
sonar frá Kvistum í Ölfusi, en
Sigurbjörn rekur Kjörhúsgögn
á Selfossi. „Það lá þess vegna
beint við fyrir mig að fara út í
bólstrun," sagði Guðbjörg, „Eg
vann hjá pabba og var farin að
hjálpa til á verkstæðinu, svo ég
„..þeirhéldu ég vœri bara í
hárgreiðslu eins og hinar”
ákvað að skrifa undir samning
við hann.
Bóklegu fögin tók ég í Iðn-
skólanum hér á Selfossi, ég er
fyrsti húsgagnabólstrarinn sem
útskrifast austan Fjalls.
Strákarnir héldu lengi fram-
an af, að ég væri bara í hár-
greiðslu eins og hinar stelpurn-
ar og fólki fannst ég vera stór-
skrýtin að taka upp á þessu. En
mér þykir starfið mikið spenn-
andi.“
Sveinsstykki Guðbjargar var
stóllinn á meðfylgjandi mynd.
„Maðurinn minn, Sigurður Óli
Guðbjörnsson, sem er húsa-
smiður, smíðaði fyrir mig
grindina... jú auðvitað væri
gaman að geta farið saman út i
húsgagnasmíði, en til slikra
hluta þarf peninga,“ sagði hinn
nýbakaði bólstrari að lokum.
Það sakar ekki að geta þess,
að Guðbjörg Katrín mun að
sögn formanns prófnefndar,
Gunnars Kristmundssonar,
vera örugg með að hljóta fyrstu
einkunn á sveinsprófinu.
Tónlistarskóli
í Njarðvíkum
TÓNLISTARSKÓLI Njarðvíkur
er í undirbúningi og hefur verið
auglýst eftir umsóknum í stöðu
skólastjóra. Tveir hafa sótt um,
Guðjón Pálsson tónlistarkennari
og organisti í Borgarfirði, og Sig-
uróli Geirsson i Keflavík. Tónlist-
arskóli hefur ekki áður verið
starfræktur f Njarðvík og gera
menn sér vonir um, að skólastofn-
unin verði menningarleg lyfti-
stöng fyrir byggðarlagið — að
sögn séra Páls Þórðarsonar,
fréttaritara Mbl. I Njarðvík.
Páll sagði að ætlazt yrði til að
skólinn hefði samvinnu við Tón-
listarskóla Keflavíkur. Enn er
ekki búið að auglýsa eftir um-
sóknum um skólavist, en það
verður gert um leið og ljóst er
hver verður skólastjóri og starf-
semin getur hafizt. Stefnt er að
þvi að skólinn taki til starfa í
haust.
Séra Páll Þórðarson sagði að
kirkjubygging í Njarðvík hefði
gengið mjög'vel í sumar og væri
það að þakka afburðaduglegum
vinnuflokki, sem fengizt hefði til
kirkjusmíðinnar. Stefnt er að því
að kirkjan verði fokheld í haust
eða snemma í vetur. Þá hafa hita-
veituframkvæmdir gengið mjög
vel og eru jafnvel á undan áætl-
un. Er bjart yfir þvi máli að sögn
Páls, en það hefur verið alllengi á
döfinni.
í fyrri viku varð umferðar-
óhapp í Njarðvík, sem var afleið-
ing allt of mikils hraðaksturs inn i
byggðina. Er mikið rætt um það á
meðal íbúanna að varzla verði
aukin við þjóðveginn hér af þess-
um sökum.
Karl J. Bernstein flotaforingi
sem nú er tekinn við starfi yfir-
manns á Keflavfkurflugvelli.
Yfirmannaskipti
á Keflavíkurflugvelli
YFIRMANNASKIPTI voru hjá
varnarliðinu á Keflavikurflug-
velli i gær og tók þá við yfir-
mannsstarfi Karl J. Bernstein
flotaforingi, en af störfum lét
Harold G. Rich flotaforingi.
HÉR má sjá gamla og nýja tímann fara saman á götu á Húsavík þar sem hesturinn
er teymdur úr bíl. t baksýn er sjúkrahúsið og fyrir framan það eru hafnar
framkvæmdir við grunn nýs eiliheimilis, sem tekin var fyrsta skóflustungan að á
Iaugardag.
Laxar fluttir úr
Kollafirði austur í
Gnjúpverjahrepp
1 SUMAR hefur verið gerð nýstár-
leg tilraun I laxarækt hérlendis.
Félagar i veiðifélaginu Ármönn-
um hafa flutt lifandi nýgenginn
lax úr laxeldisstöðinni í Kolla-
firði austur i Gnúpverjahrepp,
þar sem laxinum hefur verið
sleppt i Kálfá, sem félagið hefur
á leigu. Alls hafa verið fluttir
þangað austur um 150 laxar og
hafa félagsmenn þegar veitt um
50 þeirra aftur.
Að sögn Bjarna Kristjánssonar
rektors, félaga í Ármönnum, mun
þetta fyrsta tilraun sinnar
tegundar hér á landi og hefur hún
gefizt mjög vel. Komið hefði í ljós
að lítil vandkvæði eru á að flytja
laxinn á milli og að hann tekur
agn á nýjum stað en nú væri eftir
að sjá hvort hann mundi hrygna á
þessum slóðum einnig.
Flutningunum verður haldið
áfram til 20. september, en Arni
ísaksson fiskifræðingur hefur
umsjón með þeim. Að sögn
Bjarna hafa Ármenn áform um að
halda þessum flutningum áfram
slðar, en þeir hafa haft Kálfá á
leigu frá árinu 1973 og sleppt í
hana töluverðu af laxi, en göngu-
fiskur hefur ekki enn komið í
ána. Sagði Bjarni að vonazt væri
til að einhver fiskur gengi í ána
nú í september. Ármenn hafa selt
veiðidagana í Kálfá félagsmönn-
um sínum fyrir 2500 krónur á
dag, en í ánni eru tvær stangir á
dag og má veiða fjóra laxa á
hvora.
Úrslit
fyrstu
umferðar
SJÖUNDA Reykjavíkurskák-
mótið hófst með setningaræðu
Gunnars Thoroddsens iðnaðaráð-
herra, en sfðan lék Birgir lsleifur
Gunnarsson borgarstjóri fyrsta
leikinn I skák Inga R. Jóhanns-
sonar og Najdorfs. Úrslit fyrstu
umferðar urðu sem hér segir:
Tukmakov vann Gunnar
Gunnarsson, Timman vann
Westerinen, Najdorf vann Inga
R., jafntefli gerðu: Friðrik Ólafs-
son og Margeir Pétursson, Helgi
Ólafsson og Haukur Angantýsson,
Matera og Antoshin. Skák Vuk-
cewich og Guðmundar Sigurjóns-
sonar fór í bið og sömuleiðis varð
biðskák hjá Keene og Birni Þor-
steinssyni. Báðar biðskákirnar
eru tvísýnar.
Önnur umferð verður tefld í
dag og hefst í Hagaskólanum
klukkan 17.30.
Avísunum stolið
á Raufarhöfn
FARIÐ var inn á skrifstofur út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtækis-
ins Jökuls á Raufarhöfn um helg-
ina og stolið þaðan þremur óút-
fylltum en undirskrifuðum
ávfsanaeyðublöðum og einni út-
fylltri ávísun, sem stíluð var á
póstaafgreiðsluna á Raufarhöfn.
Nemur upphæð þeirrar ávísunar
460 þúsund krónum. Öll ávfsana-
eyðublöðin sem tekin voru eru
frá útibúi Landsbanka tslands á
Akureyri og undirrituð af skrif-
stofustjóra Jökuls. Númer þess-
ara ávísana eru: 848481, 848482
og 848483 á hinum óútfylltu, en
848477 á þeirri útfylltu.
Skv. upplýsingum lögreglunnar
á Raufarhöfn hefur verið farið
Nýr blóð-
söfnunar-
bíll RKÍ
RAUÐI kross tslands hefur ný-
lega fengið nýjan blóðsöfnunar-
bfl og í gær var þessi bfll I Hval-
firði, þar sem starfsmönnum
Hvals h.f. var tekið blóð. Þessi
bíll er að gerðinni GMC og getur
tekið 8 manns í sæti. t honum er
ekki eins fyrirferðarmikill kæli-
Framhald á bls. 27
Tónleikar í
Norræna húsinu
t KVÖLD verða tónleikar í
Norræna húsinu og hefjast þeir
klukkan 20.30. Þar flytja Hafliði
Hallgrfmsson, Halldór Haralds-
son, Helga Ingólfsdóttir, Manuela
Wiesler, Páll Gröndal, Ruth
Magnússon og Snorri Birgisson
tónverk eftir Bach og H.
Hallgrfmsson.
Hér er um sömu tónleikaskrá að
ræða og flutt var síðastliðinn
sunnudag í Norræna húsinu.
inn í skrifstofur Jökuls á tima-
bilinu frá föstudagskvöldi til
mánudagsmorguns og í hirzlur
fyrirtækisins. Engar skemmdir
voru unnar, en vegsummerki gefa
til kynna að sá sem þar var á ferð
hafi verið kunnugur á skrifstof-
unni. Unnið er af fullum krafti að
uppljóstrun málsins á vegum
lögreglunnar á Raufarhöfn.
Hrafn Braga-
son skipaður
umboðsdómari í
ávísanamálinu
dömsmalaraðuneytið
skipaði f fær Hrafn Bragason
borgar dómara umboðsdómara til
að fara með rannsókn ávfsana-
málsins svonefnda, en sem
kunnugt er hefur að undanförnu
staðið yfir frumrannsókn út af
umfangsmikilli notkun á inn-
stæðulausum tékkum og Seðla-
bankinn hefur m.a. skilað til yfir-
sakadómarans f Reykjavfk
skýrslu um þetta efni.
Vegna mikils málaálags við
sakadómaraembættið fór yfir-
sakadómari þess á leit við ráðu-
Framhald á bls. 27
Hrafn Bragason