Morgunblaðið - 25.08.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. AGÚST 1976
3
7. Reykjavíkurskákmótið hófst í gær:
Hér stinga saman nefjum, rétt fyrir setningu mótsins, (talið frá vinstri) Einar S. Einarsson,
forseti Skáksambands íslands, Gunnar Thoroddsen félagsmálaráðherra, GuSmundur
Arnlaugsson rektor, aðaldómari mótsins, Sonja Bachman borgarstjórafrú og Birgir ísleifur
Gunnarsson borgarstjóri.
Það fer vel á með þeim Guðmundi Sigurjónssyni (t.v.) Vladimir Tukmakov, Sovétríkjun-
um, Raymond Keene, Bretlandi, og Jan Timmán, Hollandi (t.h.) á þessu augnabliki, en
allir vita þeir að I keppninni gildir engin samúð með mótherjanum.
Matvæli og
neyzluvenjur
ofarlega á baugi
EINS og fram hefur komið í fréttum var haldið hér
á landi Norrænt húsmæðraþing dagana 20.—23.
ágúst. Á þinginu var Sigríður Thorlacius kjörin
forseti Húsmæðrasambands Norðurlanda og mun
hún gegna starfinu næstu f jögur ár.
Af þessu tilefni hitti blm. Mbl. Sigríði að máli og
ræddi við hana um þingið og starf hennar sem
formaður sambandsins.
„Húsmæðrasamband
Norðurlanda er myndað af
húsmæðrafélögum á Norður-
löndum,“ sagði Sigríður. „Sam-
bandið var stofnað árið 1919 og
strax í upphafi var vilji fyrir
því að fá Island í hópinn, en af
ýmsum ástæðum varð ekkert
úr því fyrr en 1950.
Hér á Islandi munum við
leggja áherzlu á nauðsyn þess
að gerð veri opinber, vísinda-
leg rannsókn á manneldi, en
slíkar rannsóknir eru lang-
þróaðar annarsstaðar á
Norðurlöndum. Okkur finnst
ekki rétt að það hafi forgang
að finna á vísindalegan hátt
hvernig eigi að ala pútur eða
sauðfé, en því enginn gaumur
gefinn hvernig eigi að ala
mannfólkið. Það er ljóst að ef
fyrir liggur vísindaleg rann-
sókn á því hvað hollast sé að
leggja sér til munns, er mun
auðveldara að halda uppi
fræðslu og áróðri bæði fyrir
breyttu mataræði og bættum
framleiðsluháttum.
Húsmæður hafa ákaflega
miklu hlutverki að gegna í
þessu sambandi eins og fram
kom i erindi Björns Dagbjarts-
sonar á ráðstefnunni sem hann
nefndi „Hver verður mettur í
dag?“ Við höfum oft áður gert
ályktanir um þessi mál, en
ekkert hefur gerzt og við
verðum að halda því áfram.
Rætt við Sigríði Thorlacius ný-
kjörinn formann Húsmæðra-
sambands Norðurlanda
Þessi þing eru yfirleitt ekki
hugsuð sem aðili til að fram-
kvæma, heldur til að ræða
ákveðin málefni og búa þau til
kynningar fyrir viðkomandi
aðila. Frá upphafi var litið á
það sem stóran þátt í starfi
sambandsins að auka kynni
milli einstaklinga og þjóða og
standa saman að góðum
málefnum.
Við höfum rætt ýmis marg-
þætt málefni og gert ýmsar
samþykktir og nú á seinni ár-
um hefur okkur þótt eðlilegra
að beina ályktunum okkar til
Norðurlandaráðs frekar en til
ríkisstjórna viðkomandi landa.
Umnæðuefnið á þessum
fundi var „Norðurlönd og um-
heimurinn, matvælaauðlindir
og mataræði" og voru flutt
erindi um þessi mál og vanda-
málin rædd vitt og breitt."
Nú ert þú orðinn formaður
sambandsins. Er eitthvert sér-
stakt málefni sem þú ætlar að
beita þér sérstaklega fyrir?
„Því er aldrei slegið föstu
fyrirfram að hverju verður
unnið, heldur eru tekin upp
þau verkefni, sem okkur
virðast mest aðkallandi hverju
sinni.
En í framhaldi af því, sem
rætt var um á þessu þingi,
munum við leggja mikla
áherzlu á að vinna að því að
vernda og viðhalda matvæla-
auðlindum heimsins og gera
fólki grein fyrir mikilvægi
þess að tileinka sér rétt matar-
æði.
Þetta eru stór verkefni og
það liggur í hlutarins eðli að
alþjóðlegt' samstarf verður
aukið, hvort sem um er að
ræða húsmæður eða aðra ein-
staklinga.
Á ráðstefnunni var þessum
hugmyndum fylgt eftir, því all-
ar máltíðirnar, sem pantaðar
voru á hótelinu, voru fiskmál-
tíðir utan fyrstu máltíðina. Ég
hafði gaman af þvi, að þegar
ég ræddi við hótelstjórann um
ráðstefnuna, sagði hann: „Já,
það er þessi ráðstefna sem á að
svelta."
Ég held að það sé óhætt að
segja að ráðstefnan hafi tekizt
ákaflega vel og meðal fulltrú-
anna ríkti almenn ánægja. Ég
vil taka það fram að ekkert af
þessu hefði tekizt nema vegna
fórnfúsra kvenna, sem lögðu á
sig feikilega vinnu og Hús-
mæðrafélag Islands er ákaf-
lega þakklátt þeim húsfreyjum
í Reykjavík, sem buðu öllum
fulltrúunum á einkaheimili
eina kvöldstund og einnig hér-
aðssamböndum utan Reykja-
víkur, sem tóku á móti gestun-
um af miklum raunsarskap."
I þinglok var samþykkt
ályktun, þar sem öll landssam-
bönd og félagar Húsmæðra-
sambands Norðurlanda voru
hvattir til að vinna að því:
1) að vernda og viðhalda
matvælaauðlindum ianda
sinna, 2) að móta mataræði
sitt og neyzluvenjur f sam-
ræmi við matvælaauðlindir
jarðarinnar og matarþörf
mannkynsins. 3) Ennfremur
leggur ráðstefnan til að lands-
samböndin sendi rfkisstjórn-
um sfnum tilmæli um að að-
stoð við þróunarlöndin beinist
fyrst og fremst að: a) öflun
vatns og áburðar, b) kennslu f
skipulagningu fjölskyldu-
stærðar, c) frummenntun f
skólum.
SJÖUNDA Reykjavfkurskák-
mótið hófst f Hagaskóla f gær
með þvf að Birgir tsleifur
Gunnarsson borgarstjóri lák
fyrsta leik Inga R. Jóhannsson-
ar f skák hans gegn Argentfnu-
manninum Miguel Najdorf. Að
þvf búnu hófust aðrar skákir en
alls taka 16 skákmenn þátt f
mótinu, þar af 8 erlendir.
Keppni hófst eftir stutta
setningarathöfn en mótið var
sett af Gunnari Thoroddsen
félagsmálaráðherra I forföllum
Vilhjálms Hjálmarssonar
menntamálaráðherra, sem
veiktist á síðustu stundu. Ráð-
herra gat í setningarávarpi sínu
að skák væri bæði list og
vísindi, leikur og alvara. Sagði
hann einnig að hún krefðist af
iðkendum mikils hugmyndar-
flugs og mikils andlegs og
likamlegs styrks.
í ávarpi Jóns G. Briem vara-
formanns Taflfélags Reykja-
víkur við setningarathöfnina
kom fram, að kostnaður við
þetta mót mun nema um 5
milljónum króna. S:gði hann
að það væri mikið verk fyrir
svo lítið félag að ráðast í að
halda slíkt mót sem þetta, og að
þar hefðu margir lagt hönd á
plóginn. Félagsmenn TR eru
um 500 þar af um 200 ungling-
ar, og sagði Jón að sumir þeirra
hefðu jafnvel varið sumarfríi
sínu í undirbúning mótsins.
Dregið var um töfluröð kepp-
enda á Hótel Holti nokkrum
klst. fyrir keppnina. Það sem
merkast gerðist þar var að
Friðrik Ölafsson dró töluna 13,
en ekki var að sjá að Friðrik
teldi það ólánsmerki því hann
henti gaman að. I ávarpi aðal-
dómara mótsins, Guðmundar
Arnlaugssonar við þetta tæki-
færi kom fram að mótið væri I
svonefndum 9. styrkleikaflokki
sem þýddi að keppendur þyrftu
10 vinninga til að hljóta stór-
Friðrik hlaut
töluna 13
þegar dregið var um töfluröð keppenda
meistaratitil og 7'A vinning til
að hljóta titil alþjóðameistara. í
þvi sambandi vildi hann benda
mönnum á að þetta mót væri
sérstaklega athyglisvert að því
leyti til að meðal keppenda
væru nokkrir sem hefðu þegar
hlotið hálfan titil og ættu því
möguleika á að öðlast titil að
fullu með góðri frammistöðu á
þessu móti. Hér er um að ræða
Bretann Raymond Keene, sem
hlotið hefur hálfan stór-
meistaratitil, Bandaríkjamann-
in Salvatore Matera, sem hlotið
hefur hálfan alþjóðameistara-
titil, og loks Helga Ólafsson,
hinn tvituga Reykvíking, sem í
síðasta mánuði krækti sér í
hálfan titil alþjóðameistara
með góðri frammistöðu á
sterku skákmóti í Bandaríkjun-
um. Þá er meðal keppenda
Bandaríkjamaðurinn Milan
Vukcevich sem hefur mjög háa
svokallaða ELO-tölu, en hefur
ekki hlotið nafnbót ennþá og á
því möguleika á að krækja sér i
titil hér, að sögn forráðamanna
mótsins.