Morgunblaðið - 25.08.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGUST 1976
13
Einar Ágústsson og Lubomir Strougal
Einar og Strougal ræða
aukin samskipti Is-
lands og Tékkóslóvakíu
Prag — 24. ágúst — Reuter
EINAR Ágústsson utanríkisráð-
herra, sem nú er í opinberri
heimsókn f Tékkósióvakfu, átti f
dag fund með Lubomir Strougal
forsætisráðherra. Að sögn hinnar
opinberu fréttastofu, Ceteka,
ræddu ráðherrarnir um viðskipti
og menningarfeg tengsl rfkjanna.
Strougal sagði að fundinum
loknum, að Tékkar og Slóvakar
hefðu áhuga á þvi að auka við-
skipti við íslendinga, en Einar
tjáði honum, að heimsókn hans til
Tékkóslóvakíu yrði til þess að
auka samskipti ríkjanna á sviði
stjórnmála, menningarmála og
efnahagsmála.
Síðdegis flaug Einar Ágústson
til Bratislövu, þar sem hann hittir
Peter Colotka forsætisráðherra
Slóvakíu að máli.
Á morgun fer Einar áleiðis til
Búdapest, þar sem opinber heim-
sókn hans hefst á föstudagsmorg-
un.
Pólverjar bjóða
Dönum að fylgjast
með heræfingum
Kaupmannahöfn —24. ágúst — Reuter
PÓLVERJAR hafa boðið Dönum
að senda fulltrúa til að fylgjast
með heræfingum Varsjárbanda-
lagsins, sem fram eiga að fara f
Póllandi f næsta mánuði, að því
er danska varnarmálaráðuneytið
skýrði frá í dag. Ekki hefur full-
trúum annarra Átlantshafsbanda-
lagsríkja verið boðið að fylgjast
með æfingunum enn sem komið
er.
Á síðasta ári sendu Norðmenn
og Tyrkir menn til að fylgjast
með heræfingum á áhrifasvæði
Sovétríkjanna, en í Helsinki-
yfirlýsingunni eru ákvæði um, að
NATO-ríkin og austantjaldsríkin
skiptist á um að fylgjast með her-
æfingum hver annars.
Enn er ekki vitað hvort Danir
þekkjast boð þetta, en fyrr á ár-
inu lýsti danska stjórnin áhyggj-
um sírium vegna aukinna umsvifa
flota Varsjárbandalagsins á
Eystrasalti, einkum í námunda
við Borgundarhólm, sem er um 80
kílómetra norður af strönd Pól-
lands.
Gaddafhi
sagður
standa
á bak við
flugránið
Trípóli. Líbíu — Kaíró —
24. ágúst — Reuter
ENN versnaði sambúð
Egypta og Líbíumanna í
dag, og ganga nú brigzlyrð-
in á víxl vegna hins mis-
heppnaða flugráns þríggja
skæruliða í Egyptalandi í
gær. Egyptar segja flug-
ræningjana hafa viður-
kennt að hafa rænt vélinni
að undirlagi Gaddafhi
hershöfðingja í Líbíu, en
stjórn Lfbfu sakar Egypta
um að hafa sett flugránið á
svið til þess eins að geta
kennt Lfbfumönnum um
verknaðinn.
Mamdouh Salem, forsætisráð-
herra Egyptalands, stjórnaði
sjálfur áhlaupi hermanna á flug-
vélina, og sagði hann að farþeg-
arnir, sem voru 96 að tölu, svo og
sex manna áhöfn vélarinnar, hafi
allir sloppið ómeiddir. Sagði for-
sætisráðherrann í dag, að tveir
flugræningjanna hafi verið
Palestinuarabar, en sá þriðji
egypzkur námsmaður. Hafi þeir
viðurkennt að Gaddafhi hafi heit-
ið þeim andvirði 33 milljóna ís-
lenzkra króna fyrir að færa sér
flugvélina ásamt gíslunum til
Tripólí í Lfbíu.
Maður hafi samband við frétta-
stofu Reuters í Kuwait í kvöld og
sagði, að hreyfing, sem hann
nefndi „Byltingarhreyfingu
Palestínumanna“ hefði staðið á
bak við flugránið. Sagði hann, að
hér væri um að ræða aðgerð, sem
ætlað væri að sanna að Palestínu-
menn væru ekki af baki dottnir
þrátt fyrir ófarirnar í Líbanon að
undanförnu, og mætti búast við
svipuðum aðgerðum í framhaldi
af þessari.
í aðalstöðvum PLO i Beirút var
flugránið fordæmt, var þvi bætt
við, að hér væri Palestína bendl-
uð við mál, sem PLO kæmi ekkert
við.
VOPNIN KVÖDD — Þeir hafa nú lagt niður vopn
mennirnir sem kepptu um útnefningu repúblikana á
forsetaefni flokksins, Ronald Reagan, fyrrum ríkisstjóri,
og Gerald Ford forseti. Myndin er tekin er þeir tilkynntu
að þeir hygðust sameinast í baráttu fyrir sigri
repúblikana.
r
N
■ ■■ 1
\f/
ERLENT
Sveinn Benediktsson:
Markaðsfréttir
SVEINN Benediktsson
skrifar markaðsfréttir I ný-
útkomið dreifibréf Félags
fsl. fiskmjölsframleiðenda
og segir þar:
Hinir eindæma þurrkar á
meginlandi Vestur-Evrópu og í
Bretlandi hafa haft mikil og
skaðvænleg áhrif á landbúnað í
þessum löndum. Víða er sviðin
jörð. Ferðamenn sem komu frá
London í gær segja, að hinir
miklu skemmtigarðar þar í mið-
borginni, Hyde Park og Green-
Park, séu svo illa farnir, að þeir
séu bókstaflega sviðnir niður í
rót og ekki eitt einasta sting-
andi grænt strá þar að sjá. Þá
er Thamesáin mjög vatnslítil,
nema þar sem gætir sjávarfalla.
Sama er að segja þar um aðrar
stórár. Margar tjarnir, ár og
lækir hafa þornað og vatnati.sk-
ur drepizt unnvörpum, þar á
meðal eldisfiskar.
Af þessum sökum hafa bænd-
ur í þessum löndum neyðzt til
þess að farga miklum hluta af
búfénaði sínum.
Þetta neyðarástand eykur
framboð á kjöti, einkum nauta-,
svina- og kindakjöti, en rýrir að
sama skapi sölu á kjúklingum,
sem eru aðalkjötmeti almenn-
ings erlendis, víðast hvar.
Þar eð fiskmjöl þykir ómiss-
andi til íblöndunar í kjúklinga-
fóður, þýðir minnkandi neyzla
kjúklinga minni notkun fisk-
mjöls.
Miklar verðsveiflur á soja-
baunum, sojabaunamjöli, maís,
korni, sojabaunaolíu, pálmolíu,
lýsi og á hvers konar mat- og
fóðurvörum hafa verið undan-
farnar vikur í Bandarikjunum.
Gætir þar vaxandi áhrifa frá
Vörumarkaðnum í Chicago,
sem sýnist hafa svo mikil áhrif
vestra á vöruverð, að þeirra
gætir þar strax og síðan um
heim allan, þó mismunandi
fljótt eða mikið í hinum ýmsu
löndum, eftir ástæðum.
Framleiðsla og eftirspurn
ráða mestu um verðlagið, en
stjórnmálaástandið hjá stór-
þjóðunum hefur einnig mikil
áhrif og stundum úrslitaáhrif á
verðlagið. Þá hefur spákaup-
mennska einnig mikil áhrif á
markaðsverðið. Veðurfar á
kornræktarsvæðum Bandaríkj-
anna virðist nú hafa úrslita-
áhrif um verðlag/næstu mán-
uði.
Úr tímaritinu
„Oil World”
Heimsframleiðslan, útflutn-
ingur og neyzla á fiskmjöli hef-
ur farið minnkandi að undan-
förnu og stafar það af því, að
verð á fiskmjöli er svo hátt, að
það er ekki samkeppnisfært, að
því er segir i nýútkomnu hefti
af timaritinu „Oil World“ No.
33/XIX — 20. ágúst 1976.
Lauslega þýtt:
„í kjölfar bata síðustu tvær
vertíðir er búizt við, að fram-
leiðslan minnki um nærri
100.000 tonn á tímabilinu frá
okt/sept. 75/76. Vegna minni
birgða lækka heildarbirgðirnar
jafnvel um 150.000 tonn.
Talið er að neyzlan í heimin-
um muni minnka um það bil
um 90.000 tonn eða 2.1%, en frá
löndum, sem eru utan við
samtök sjö aðal útflutnings-
landanna á fiskmjöli (FEO), er
rýrnunin talin 170.000 tonn eða
4%.
Talið er sennilegt að sam-
drátturinn verði jafnvel enn
meiri I Vestur-Evrópu og á
svæðum, þar sem markaður er
frjáls, vegna lélegrar sam-
keppnisaðstöðu hins dýra fisk-
mjöls. Af sömu ástæðu seljast
ekki allar þær birgðir af fisk-
mjöli, sem til eru í Perú og
fleiri löndum.
Engu að síður er búizt við, að
birgðir af fiskmjöli í 7 helztu
útflutningslöndunum verði
hinn 1. okt. 1976 440.000 tonn
eða um 30.000 tonnum minni en
í fyrra. Er þá reiknað með þvi,
að hin nýja vertíð í Perú hef jist
ekki fyrr eh 1. okt. Búizt er við
hliðstæðum samdrætti í fiskr
mjölsframleiðslunni annars
staðar i heiminum."
Svo sem fram kemur af
skýrslum viðskiptaráðuneytis-
ins yfir veitt útflutningsleyfi á
þorskmjöli (fiskmjöli), karfa-
mjöli, spærlingsmjöli og loðnu-
mjöli og loðnulýsi hefur orðið
mikil verðhækkun á þessum af-
urðum að undanförnu.
Verðið á öllu fiskmjöli hefur
þó verið háð miklum sveiflum
og reyndar einnig á lýsinu.
Siðustu vikurnar hefur sala á
fiskmjöli stöðvazt að mestu m.a.
vegna ótta helztu fóðurblönd-
unarstöðva við að gera mikil
kaup á fiskmjöli fyrr en þær
hafa tryggt sér endursölu,
sökum þess að flestir kaup-
endur vilja aðeins gera kaup
frá degi til dags, til þess að vera
lausir við hugsanlegt verðfall.
Talið er, að uppskera á hvers
konar korni i Sovétríkjunum
muni á þessu ári fara yfir 200
milljónir tonna. Uppskeran er
þó á nokkrum landsvæðum á
eftir áætlun. Miklar rigningar
hafa tafið annir við uppsker-
una.
Sjómannafélögin í Banda-
rikjunum telja, að Sovétríkin
hafi ekki flutt eins mikinn
hluta af því korni, sem þau
hafa fest kaup á í Norður-
Ameriku, með bandariskum
skipum og um var samið og
hafa þess vegna hótað að stöðva
afgreiðslu á vörum, sem þangað
eiga að fara.
Ekki er séð fyrir endann á
þessari togstreitu.
23. ágúst 1976.
s iii i < t ili. ')
f fMLl! ! II
tmniii