Morgunblaðið - 25.08.1976, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGUST 1976
LOFTLEIDIR
S 2 11 90 2 11 88
FERÐABÍLAR hf.
Bilaleiga. sími 81260.
Fólksbílar, stationbílar, sendibíl-
ar, hópferðabílar og jeppar.
Þurrku-
blöð
Gott útsýni með Bosch
þurrkublöðum.
BOSCH
lfiðgerða- 09
varahluta þjónusta
BRÆÐURNIR 0RMSS0N %
LÁGMÚLA 9 SÍMI J8820
AlíiLÝSfNíiASÍMINN ER: 2^22480
Burton í
það heilaga
New York 23. ágúst Reuter
RICHARD Burton leikarinn
heimskunni, og tízkusýningar-
stúlkan Suzy Hunt voru gefin
saman I hjónaband I Arlington I
Vírginíu á laugardag, og strax
eftir athöfnina fengu þau sfm-
hringingu frá fyrrverandi eigin-
konu Burtons, Elizabeth Taylor,
sem óskaði þeim báðum til
hamingju. John Springer, um-
boðsmaður Burtons, sagði að
Tayior, sem tvívegis hefur verið
gift Burton hefði „óskað þeim
mikillar ástar og hamingju."
Suzy Hunt er 28 ára að aldri og
var áður gift brezka kappaksturs-
manninum James Hunt. Þau
Burton sem er fimmtugur að
aldri, voru gefin saman við ein-
falda athöfn í kyrrþey. Dómarinn
sem framkvæmdi vígsluna sagði
eftir hana að hin nýja eiginkona
Burtons væri „mjög aðlaðandi,
sæt og hugguleg, — yndisleg
dama“ og að brúðhjónin hefðu
síðan innsiglað giftinguna með
allmörgum „afar fínlegum, afar
fáguðum“ kossum. Eftir gifting-
una sneru brúðhjónin aftur til
New York og um kvöldið var hald-
in lítil bruðkaupsveizla á frönsk-
um veitingastað, en ekkert brúð-
kaupsferðalag hefur verið ákveð-
ið. Burton vinnur nú í New York
við gerð kvikmyndarinnar
„Exorcist II “ og síðar fer hann til
Toronto þar sem hefjast mun
kvikmyndun á leikritinu
„Equus“.
Útvarp Reykjavík
AIIDMIKUDkGUR
25. ágúst
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Baldur Pálmason les
söguna „Sumardaga á Völl-
um“ eftir Guðrúnu Sveins-
dóttur (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25: Dr.
Páll Isólfsson leikur orgel-
verk eftir Bach.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Milan Bauer og Michal Karin
leika á fiðlu og ptanó Sónötu
nr. 3 í F-dúr eftir Hándel /
Walter Klien leikur Fantasfu
I d-moll (K397) eftir Mozart
/ Ronald Turini og Orford
strengjakvartettinn leika
Píanókvintett op. 44 eftir
Schumann.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
SIÐDEGIÐ
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blómið
blóðrauða" eftir Johannes
Linnankoski
Axel Thorsteinsson les (16).
15.00 Miðdegistónleikar
Tékknesk sinfónluhljóm-
sveit leikur „Litla sinfóníu“
eftir Benjamin Britten;
Libor Hlavácek stjórnar.
Tékkneska fflharmónlusveit-
in leikur „Gullrokkinn"
sinfónfskt Ijóð op. 109 eftir
Antonfn Dvorák; Zdenék
Chalabala stjórnar.
Alfred Brendel leikur á
pfanó með Kennarakórnum
og Fflharmonfuhljómsveit-
inni f Stuttgart Kóralfanta-
sfu op. 80 eftir Beethoven:
Wilfried Boettcher stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.00 Lagiðmitt
Anne-Marie Markan kynnir
óskalög barna innan tólf ára
aldurs.
17.30 Færeyska kirkjan, saga
og sagnir. — fyrsti hluti
Halldór Stefánsson tók sam-
an og flytur ásamt öðrum.
Einnig verða flutt dæmi um
færeysk sálmalög.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
KVÖLDIÐ
19.35 Um rannsoknir og þekk-
ingu á landgrunni Islands
Dr. Kjartan Thors jarðfræð-
ingur flytur erindi.
6Á SKJÁNUM
MIÐVIKUDAGUR
25. ágúst
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Pappfrstungl
Bandarfskur myndaflokkur.
Húsabrask
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.05 Nýjasta tækni og
vfsíndi
Meindýr og sjúkdómar f
gróðri
Flugumferðarstjórn
Fyrirbygging tannskemmda
Umsjón örnólfur
Thorlacius.
21.30 Hættuleg vitneskja
Breskur njósnamyndaflokk-
ur f sex þáttum.
4. þáttur
Efni þriðja þáttar:
l ..........................
Eiginkona Kirbys segir hon-
um að Pierre hafi skilið
eftir bók heima hjá þeim.
Laura viðurkennir að hafa
njósnað um hann.
Kirby fer heim og skoðar
bókina. t hana er ritað nafn
konu og heimilisfang f
Frakklandi. Hann heldur
þangað og hittir konuna að
máli.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.55 List f nýju ljósi
Breskur fræðslumynda-
flokkur.
2. þáttur.
Skoðuð gömul málverk af
konum, og fimm konur láta f
Ijós álit sitt á myndunum.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
22.25 Dagskrárlok.
20.00 Einsöngur: Guðmundur
Jónsson syngur fslenzk lög
Ólafur Vignir Albertsson
leikur á pfanó.
20.20 Sumarvaka
a. Ur dagbókum prestaskóla-
manns
Séra Gfsli Brynjólfsson segir
frá námsárum Þorsteins
prests Þórarinssonar f Beru-
firði; — fjórði og sfðasti
hluti.
b. Kvæði eftir Guðmund
Guðna Guðmundsson
Höfundur les.
c. Pólitfskar endurminningar
Agúst Vigfússon kennari seg-
ir frá kosningaferðalagi með
Hannibal Valdimarssyni.
d. Álfasögur
Ingólfur Jónsson frá Prest-
bakka skráði. Kristján Jóns-
son leikari les.
e. Kórsöngur: Kirkjukór
Hveragerðis- og Kotstrandar-
sókna
syngur nokkur lög. Söng-
stjóri: Jón Hjörleifur Jóns-
son.
Pfanóleikari: Sólveig Jóns-
son.
21.30 Utvarpssagan: „Stúlkan
úr Svartaskógi“ eftir Guð-
mund Frfmann
Gfsli Halldórsson leikari les
(16).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: Ævisaga Sigurð-
ar Ingjaldssonar frá Bala-
skarði
Indriði G. Þorsteinsson rit-
höfundur byrjar lesturinn.
22.40 Nútfmatónlist
Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Klukkan 22:15:
Ný
EH^ HQl ( HEVRH!
kvöldsaga
í KVÖLD byrjar Indriði
G. Þorsteinsson lestur
nýrrar kvöldsögu, Ævi-
sögu Sigurðar Ingjalds-
sonar frá Balaskarði.
Indriði sagði að Sigurður
hefði á margan hátt verið
merkilegur maður, svo
einstakur bjartsýnismað-
ur, að þess muni fá dæmi.
Hann var uppi á seinni
hluta 19. aldar og bjó
lengst af á Balastöðum í
A-Húnavatnssýslu, en
fluttist til Kanada 1898
og deyr þar 1933. Sigurð-
ur var sjósóknari og
Sigurður Ingjaldsson frá Bala-
skarði
búandmaður og stundaði
mikið ferðalög, var oft
sendur með bréf eða til
að sækja hjálp og fór þá í
hvaða veðri og færi sem
var og treysti á Guð og
lukkuna eins og Indriði
sagði. Sem dæmi um
ferðalög hans nefndi
Indriði að hann hefði eitt
sinn vaknað efst á Þyrli
er hann var á suðurleið.
Frásaga hans einkennist
öll af óbilandi bjartsýni
og lífsgleði en hann ritaði
hana um 1930 og kom
hún út hér fyrst árið
1936 og síðan 1957.
Það er fyrri hluti bók-
arinnar sem er lesinn að
þessu sinni, en Indriði
sagði að þar segði hann
frá ævintýrum sínum og
ferðalögum hér, en ekki
væri sagan eins spenn-
andi eftir að til Vestur-
heims væri komið þar
sem þá hefðu flugvæng-
irnir að mestu verið af
honum, en Sigurður var
orðinn þjóðsagnarper-
sóna löngu áður en bók
hans kom út.
Klukkan 22:40:
NúttmatónUst
í ÞÆTTINUM Nútíma-
tónlist, sem Þorkell Sig-
urbjörnsson sér um,
heldur hann áfram kynn-
ingu á verkum frá Inter-
national Rostrum og
Composers ’76. Það er
UNESCO sem stendur á
bak við þessa tónlistar-
kynningu og eru það 34
þjóðir sem sendu verk í
ár. Hver þjóð sendir 2
verk af því sem er talið
bezt á þessu sviði og er
ekki eldra en 5 ára. Eru
þetta verk frá stórþjóð-
um sem smáþjóðum, m.a.
Norðurlöndunum og fjar-
lægum þjóðum s.s. Kóreu
og Japan.
Þorkell Sigurbjörnsson
sagði að það væri mikið
Þorkell Sigurbjörnsson sér um
nútfmatónlist f kvöld
verk að velja úr til flutn-
ings hér, þetta væri efni
sem dygði í marga þætti.
Klukkan 21:55:
List í nýju Ijósi
I ÞÆTTINUM hst í nýju
ljósi verður tekið fyrir
efnið konan í málverk-
inu, sagði Óskar Ingi-
marsson, sem þýðir þátt-
inn. Skoðuð verða gömul
málverk af konum, aðal-
lega nöktum konum og
fimm konur láta í ljós álit
sitt á myndunum. Þær
skýra afstöðu sína til
þessara mynda, til kon-
unnar, og sagði Óskar að
þetta væru forvitnileg
viðtöl, þau tækju mikið
af þættinum og það
kæmu fram ólíkar skoð-
anir hjá þeim.