Morgunblaðið - 25.08.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGUST 1976
5
Samgönguáætlun Norðurlands:
10 milljarðar til
vegaframkvæmda
FRAMKVÆMDASTOFNUN
rfkisins hefur sent frá sér sam-
gönguáætlun fyrir Norðurland,
sem unnin hefur verið af áætl-
unardeild stofnunarinnar I
samráði við samgönguráðu-
neytið, Vegagerð ríkisins, Flug-
málastjórn og II: fnamálastofn-
un. Áætlunin er sett fram sem
mat Framkvæmdastofnunar-
innar á samgönguþörfum Norð-
urlands og Stranda, en án allra
skuldbindinga af hálfu rfkis-
stjórnarinnnar eða fjárveit-
ingavaldsins.
Framkvæmdaþörf í vegamál-
um hefur verið metin miðað við
ársbyrjun 1976 og þá tekið tillit
til nýrra vegstaðla og sérstakra
framkvæmdaákvarðana ásamt
endurmati kostnaðar. Niður-
staðan varð 6.626 millj. kr. mið-
að við verðlag í ágúst 1975, en
það er viðmiðunarverðlag vega-
framkvæmda í áætluninni. Sé
bætt við áætluðum kostnaði við
uppbyggingu Norðurlandsveg-
ar með bundnu slitlagi til Akur-
eyrar, er verkefnamat talið
nema 10.300 millj. kr. Mælt er
með því í áætluninni, að heils-
árssamband um vegi verði látið
sitja í fyrirrúmi fyrir slitlags-
og hraðbrautaframkvæmdum,
þótt á þeim sé einnig brýn
nauðsyn. Kostnaðaráætlun
vegaframkvæmda skiptist eftir
byggðum á eftirfarandi hátt
(miðað við verðlag í ágúst
1975).
milljónir kr.
Strandabyggð 158.7
Húnaflóabyggð 1.315.8
Skagaf jarðarbyggð 1.064.5
Eyjaf jarðarbyggð 2.532.9
Skjálfandabyggð 759.1
Norðausturbyggð 795.2
I þessari áætlun er ekki gert
ráð fyrir bundnu slitlagi í sam-
ræmi við það sem segir að ofan,
enda er það talið einsýnt í áætl-
uninni, að meiri þörf sé á að
lengja þann tíma, sem vegirnir
eru opnir og auka burðarþol
þeirra. Áætlanir um vegafram-
kvæmdir svo og aðrar sam-
gönguleiðir byggjast að vísu að
miklu leyti á arðsemismati, en
það er ekki einhlýtt við ákvarð-
anatöku, þar sem það mælir
ekki byggðavanda og félagsleg
atriði.
Framkvæmdaþörf vegna
flugvalla á Norðurlandi hefur
verið metin í einstökum atrið-
um fyrir hvern flugvöll og er
heildarniðurstaðan 1.090 millj.
kr. Eru téknir með allir flug-
vellir sem reglubundið flug er
til, allt frá Gjögri austur í
Vopnafjörð og höfð hliðsjón af
flugumferð o.fl. Segir í áætlun
Framkvæmdastofnunarinnar,
að Norðurland sé allvel skipað
flugvöllum og telur hún ekki
nauðsyn á gerð nýrra flugvalla
á stöðum, þar sem engir eru
fyrir, heldur endurbætur og er
aðeins gert ráð fyrir endur-
byggingu eins flugvallar, sem
ekki þjónar reglubundnu flugi,
þ.e. á Ölafsfirði. Ekki hefur
þótt fært að skipa flugmála-
framkvæmdum niður í ár líkt
og gert er við vegaframkvæmd-
ir þar eð í undirbúningi er
núna 4 ára áætlun hjá flug-
málastjórn og er beðið niður-
stöðu hennar. En miðað við mat
sem byggist á farþegafjölda,
vöruflutningum, tengslum við
umhverfi o.fl. hefur flugvöllum
á Norðurlandi með reglu-
bundnu flugi sumarið 1975
verið skipað í eftirfarandi
flokka, sem hafa má til hlið-
sjónar við röðun framkvæmda í
forgangsröð:
1. Akureyri 2. Sauðárkrókur,
Húsavík 3. Siglufjörður, Þórs-
höfn 4. Gjögur, Grfmsey,
Blöndós, Raufarhöfn, Vopna-
fjörður 5. Mývatnssveit, 6.
Hólmavlk, Hvammstangi,
Kópasker.
Það er skýrt tekið fram, að
þetta er engan veginn endanleg
forgangsröð flugvallaframkv.
I kaflanum um hafnarmál
hafa verið athuguð fjármál
hafnarsjóða, — þjónustuhæfni
og ástand hafnanna. Áætlað er
að um 3.000 millj. kr. muni
kosta aó koma höfnum á
Norðurlandi og á Ströndum í
gott horf og er það um þrefalt
hærri upphæð en gert er ráð
fyrir í 4 ára áætlun Hafnamála-
stjórnar fyrir sama svæði.
Fjallað er um aðferðir til að
mæla, hvernig skipta eigi tak-
mörkuðu fjármagni til hafnar-
framkvæmda milli einstakra
hafna. Nauðsynlegt er talið að
gera einhvers konar mat á gildi
hafna til leiðbeiningar. Ekki er
hægt að styðjast við arðsemis-
athuganir eingöngu, þar sem
gildismat fiskihafna á íslandi
er flóknara fyrirbæri en hjá
stærri þjóðum, og óbein nýting
að jafnaði meiri. Til viðbótar
arðsemis- og öryggissjónarmið-
um koma að auki byggðasjónar-
mið. Aðalreglan hljóti að vera
að saman fari þéttbýlisstaður
og höfn, og hafa verði 1 huga að
enda þótt ástæða sé til að fækka
höfnum eða sameina þær á
nokkrum stöðum á landinu, þá
séu til staðir, þótt smáir séu,
þar sem verður að vera höfn ef
byggó á að haldast.
Fram kemur í áætluninni að
á Norðurlandi og Ströndum eru
skráðar 26 hafnir og þeim lýst.
Telur Framkvæmdastofnunin
að mörgu sé ábótavant í al-
mennri þjónustu þeirra hafna
og að gagnvart þjónustu við tog-
ara sé ástandið enn verra. Að
jafnaði veitir aðeins rúmur
helmingur hafnanna fullnægj-
andi þjónustu fyrir bátaflot-
ann, að undanskildum trillum,
en 37% fullnægjandi aðstöðu
fyrir togara. Þó er aðeins talið
að sex hafnir hafi fullnægjandi
skjól og viðleguaðstöu fyrir tog-
ara. Áætlanir Framkvæmda-
stofnunarinnar taka tillit til
þeirra breytinga, sem nauðsyn-
legar yrðu til að bæta aðstöðu
togara, en í 4 ára áætlun Hafna-
málastjórnar er aðeins gert ráð
fyrir brýnustu þörfum. Þre-
földun kostnaðaráætlunarinnar
mun m.a. rekja rætur sinar til
þessa.
Auk mats framkvæmdaþarfa
i samgöngugreinunum eru i
áætlun Framkvæmdastofnun-
arinnar birtar ýmsar upplýsing-
ar um þjónustustarfsemi flutn-
ingagreina gagnvart Norður-
landi og um samgöngumál al-
mennt. Eins og segir i upphafi
fylgja áætlunarverkinu engar
skuldbindingar af hálfu ríkis-
stjórnar eða fjárveitingavalds
og ekki er miðað við fastmótað
áætlunartímabil, þótt talið sé,
að metnum þörfum vegamála
og flugmála þurfi að mestu að
fullnægja innan áratugs.
Gjafir til
uppbygg-
ingar Hóla
í Hjaltadal
SUNNUDAGINN 3. ágúst færði
Jón H. Þorbergsson fyrrum bóndi
Laxamýri stofnsjóði kristilegs
heimavistarskóla á Hólum í
Hjaltadal, fimmtíu og fimm þús-
und krónur, og hefur hann þá
gefið í þessu skyni á annað
hundrað þúsund krónur. Jon lét
þess getið um leið að hann skoraði
á Norðlendinga að fylkja sé um
þetta málefni, að reisa lýðháskóla
á Hólum, sem hann nefndi mesta
menningar mál þeirra.
Og nýlega bárust mér í hendur
fimmtfu þúsund krónur frá hjón-
unum Birni Jónssyni hreppstjóa
og Kristinu Kristinsdóttur, Bæ
Skagafirði, sem hjónin gefa í til-
efni af gullbrúðkaupi sínu. Þau
votta með þeim hætti hlýhug sinn
til uppbyggingar Hólastaðar. Ég
þakka þessar fögru gjafir og bið
gefendum blessunar Guðs.
Akureyri, 20. ágúst
Pétur Sigurgeirsson
Leiðarvísir
að Vatnsdalsá
GEFINN hefur verið út „Leiðar-
vísir fyrir veiðimenn" í Vatns-
dalsá, sem eins og kunnugt er er
ein af helztu laxveiðiám í Húna-
vatnssýslu. I leiðarvísinum er
ánni lýst frá upptökum til ósa og
birt er loftmynd, sem unnin er af
Ágústi Böðvarssyni hjá Landmæl-
ingum ríkisins. Texti leiðarvfsis-
ins, sem er fremur stuttur, er
bæði prentaður á íslenzku og
ensku. Þrjár litmyndir eru á leið-
arvísinum, sem prentaður er í
Kassagerð Reykjavíkur.
Lítil
loðnuveiði
RÓLEGT var yfir loðnu-
miðunum og svo til engin
veiði síðasta sólarhring að
því er Loðnunefnd tjáði
Mbl. í gær og var það
vegna brælu. í gær var þó
veður eitthvað að batna og
voru bátar farnir að kasta,
en engar spurnir höfðu
fengizt af aflabrögðum. Þó
hafði einn bátur tilkynnt
afla. Var það Rauðsey, sem
fengið hafði 180 tonn.
AliGI.VSINGASlMINN ER:
22480
JR*ríunbtet»ib
Flugvél til sö/u
77/ sölu er flugvélin TF-Örn sem er Piper Aztec
PA 23 — 250 C.
Flugvélin verður til sýnis hjá Guðjóni Sigurgeirs-
syni, flugvirkja, Reykjavíkurflugvelli.
Frekari uppl. gefur flugfélagið Ernir h.f., sími
94-3898.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AIGLYSINGA-
SIMINN ER:
22480
MEGRUNARLEIKFIMI
\ <
Nýtt námskeið
Vigtun — Mæling — Gufa
Ljós — Kaffi — Nudd
Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka
daga kl. 13 — 22.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.