Morgunblaðið - 25.08.1976, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGUST 1976
Lada Topas
Mælaborðið Htur mjög þokkalega út. 1 þessum bíl eru aukahlutir
svo sem útvarp, segulband, hiti f afturrúðu og yfirdekk á stýris-
hjðli.
ÁRIÐ 1972 var hafin
framleiðsla á Lada bfl-
unurn f Sovétríkjunum.
Verksmiðjur voru reist-
ar í Togliatti með aðstoð
ftölsku bflaverksmiðj-
anna Fiat. Það er hinn
rússneski Fíat, sem á
Vesturlandamálum kall-
ast Lada. Annars kallast
hann Shiguli VAZ.
Lada 1200 var upphaf-
lega byggður á Ffat 124
gerðinni. Ffnna módel
var fijótlega smíðað og
var það Lada 1500 eða
Lada Topas. Topasinn er
mun Ifkari Fiat 125, sem
var fyrirrennari Fiat
.132. Lada Topas er hins
vegar nokkru þyngri en
125 gerðin vegna annars
efnis, sem í bílinn er not-
að. Topasinn vegur 1030
kg. óhlaðinn.
Lada Topas er sennilega
vandaðasti rússneski billinn,
sem hér er fáanlegur, enn sem
komið er a.m.k. Bráðlega mun
þó vætanlegur hingað bíll, sem
er enn meiri lúxusútgáfa af
Lada.
Vélin er fjögurra strokka,
1452 rúmcm og 84 hestöfl
(SAE) við 5600 snún./mín.
Þjöppun 8,8:1. Viðbragðið er
gefið um 15 sekúndur frá
0—100 km/klst., en vinnslan er
mjög þokkaleg upp í 120
km/klst., þá dregur nokkuð úr
hámarkshraðanum, sem er um
150 km/klst. er ekki náð nema
við hagstæð skilyrði.
Hægt er að keyra í fjórða gír
alveg frá um 30 km/klst. hraða.
Ekki er þó æskilegt að fara
niður fyrir 2000 snún./mín. í
fjórða. Snúningshraðamælirinn
er einn margra mæla í mæla-
borðinu. Auk hans eru hraða-
mælir, bensínmælir, olíuþrýst-
ingsmælir og vatnshitamælir.
Allir eru þeir með rússneskum
áletrunum en auðvelt á samt að
vera að þekkja hver er hvað.
Krafturinn er þannig ágætur
í raun. Ladan er hins vegar
þung í stýri, sérstaklega við
„parkeringar“ og hefði ekki
veitt af vökvaaðstoð á stýri.
Gormafjaðrir eru að framan og
aftan og eru þær fremur stífar,
sem gerir bílinn nokkuð hast-
an. Billinn lætur hins vegar vel
að stjórn í holum. Högg frá
djúpum holum finnast áþreif-
anlega á stýrishjólinu. Lausa-
mölin er öllu varasamari eins
og raunar á flestum bílum, en
Topasinn, sem ég prófaði,
bremsaði nokkuð skakkt en
væntanlega hefur það einungis
verið vegna vanstillingar.
Bremsurnar eru að öðru leyti
mjög góðar, diskar eru að fram-
an en borðar að aftan og vökva-
aðstoð þýðir fislétt ástig.
Lada Topas er sæmilega rúm-
góður aftur í en nokkuð er lágt
til lofts. Sætin eru allgóð en
bök framsætanna mættu vera
hærri. Frágangur bílsins að
innan er allur vandaður og far-
angursrými er gott og vandlega
klætt að innan. Dekkin eru 13
tommu og hæð undir lægsta
punkt er 17 cm. Billinn er 411,5
cm langur og 161 cm breiður.
Bíllinn yfirstýrir nokkuð á
mikilliferð (þ.e. hefur tilhneig-
ingu til að setja afturendann út
á hlið).
Hita- og loftræstikerfið er
gott og miðstöðin er tveggja
hraða. Útsýni úr bílnum er
mjög gott nema hvað glugga-
póstar að aftan eru nokkuð
breiðir.
Lada Topas kostar nú um kr.
1215 þúsund og er ryðvörn inni-
falin. Umboðið hefur Bifreiðar
og landbúnaðarvélar, Suður-
landsbraut 14. br.h
Gott pláss er 1 vélarrúminu og auðvelt að komast að helztu hlutum.
Líbanon:
Stríðsaðilar ræða
vopnahlé á föstudag
Beirút 24. ágúst
— Reuter.
HELDUR dró úr bardögum 1
Líbanon 1 dag er friðargæzlulið
Arababandalagsins gerði nýja til-
raun til að koma á tryggu vopna-
hléi með þvf að kveðja alla aðila
að átökunum ( landinu saman til
fundar á föstudag. Stjórnmála-
skýrendur 1 Damaskus spáðu þvf
ennfremur í dag, að sú ákvörðun
sýrlenzku rfkisstjórnarinnar f
gærkvöldi að samþykkja að taka
þátt 1 nýjum leiðtogafundi Araba-
rfkja um Lfbanonmálið kunni að
verða tilraununum ti að koma á
friði mikill styrkur, þar eð Sýr-
lendingar séu eina þjóðin sem
geti haft nokkur áhrif á strfðsað-
ila f Lfbanon. Til þessa hafa
Ifbanskir hægri menn verið hlið-
hollari sáttatilraunum Sýrlend-
inga en sams konar viðleitni
Arababandalagsins.
Sýrland er sjötta landið sem
samþykkir þennan leiðtogafund,
sem Kuwait stakk upp á í síðustu
viku. Þegar hefur Arababanda-
lagið fengið vilyrði fyrir þátttöku
frá Bahrain, Súdan, Marokkó,
Túnis, Norður-Jemen og
Jórdaníu. Ekkert hefur verið
ákveðið um dagsetningu eða
fundarstað og er ekki búizt við
slíkri ákvörðun fyrr en eftir utan-
ríkisráðherrafund bandalagsins
4. september.
Camille Chamoun, leiðtogi
hægri manna, hitti i dag að máli
Mohammed Hassan Ghoneim
hershöfðingja og yfirmann gæzlu-
liðs Arababandalagsins. Var haft
eftir hershöfðingjanum í útvarps-
stöð hægri manna að allir deiluað-
ilar myndu koma saman til fund-
ar n.k. föstudag til að ræða nýja
vopnahléstillögu sem lögð er fram
af gæzluliðinu. Útvarp vinstri
sinna í Beirút skýrði síðar í dag
frá því, að Ghoneim hershöfð-
ingja hefði einnig tekizt að ná
samkomulagi við herflokka þá
sem staðið hafa í stórskotaliðsár-
ásum á Beirút um að hætta árás-
um á íbúðarhverfin frá og með
deginum í dag. Svipað samkomu-
lag hefur verið gert margoft áður
án árangurs, og bíða borgarbúar
átekta.
Bretar veðja
um lok þurrka
Lundúnum — 24. ágúst — Reuter.
FÁTT er svo með öllu illt, að ekki
boði eitthvað gott, og uppþornaðir
Bretar geta framvegis huggað sig
við að veðja um það hvenær
þurrkarnir miklu taki enda.
Þeir, sem vilja veðja ákveðinni
upphæð um að tiltekinn dag nemi
úrkoma a.m.k. einum tfunda úr
millimetra — sem er minnsta
mælanleg úrkoma — fá upphæð-
ina tffaldaða, ef tilgáta þeirra
reynist rétt.
Veðmál hafa löngum verið þjóð-
arskemmtun Breta, og þátttakan
er þegar orðin mikil. Hingað til
hafa flestir veðjað á 6. september,
sem er mánudagur. Ef það verður
fyrsti rigningardagurinn, verður
sá mánudagur ekki til mæðu, því
að í Bretlandi hefur ekki komið
dropi úr lofti síðan 20. júlí s.l.
Veðurfræðingar spá því, að
næsta öruggt sé, að ekki muni
rigna fyrr en í fyrsta lagi n.k.
föstudag, en lengra nær spáin
ekki. Venjulega verða veðra-
brigði í Bretlandi í september-
mánuði, en þar í landi treysta
menn því ekki lengur að veður-
Líbanar
til Kýpur
Nikósíu — 24. ágúst NTB
YFIRVÖLD f Nikósíu hafa
ákveðid að krefjast vega-
bréfsáritunar af Líbönum,
sem koma til Kýpur.
Ástæðan er sú að mikill
fjöldi Lfbana hefur að und-
anförnu streymt til eyjar-
innar, og hefur útlendinga-
eftirlitið átt fullt í fangi
með að hafa reglu á ferð-
um þeirra þangað.
Vitað er að einnig hefur
fjöldi Palestínuaraba
komið til Kýpur frá hafnar-
borgunum Tripoli, Týros
og Sídon í Líbanon. Telja
yfirvöld á eynni, að alls
hafi milli 25 og 30 þúsund
manns komið til Kýpur frá
Líbanon á undanförnum
mánuðum.
guðirnir hagi sér með hefðbundn-
um hætti eftir það sem á undan er
gengið.
Batman
kom til
bjargar
Jórvík — 24. ágúst — Reuter.
LÖGREGLAN f Jórvfk vissi
ekki hvaðan á sig stóð veðrið
þegar Batman, „leðurblöku-
maðurinn" vígreifi, vippaði
sér inn á stöðina, þar sem ver-
ið var að yfirheyra mann, sem
lá undir grun um að hafa ekið
undir áhrifum áfengis.
Batman hafði ekki verið
lengi innandyra þegar hann
hóf afskipti af máli hins
grunaða manns, en brátt kom í
ljós, að þar fór Michael Ashley-
Brown lögmaður í dularklæð-
um. Hann hafði verið staddur
á grímudansleik, þegar hann
fékk boð um að koma skjól-
stæðingi sínum til aðstoðar.
Svo snarlega brást lögmaður-
inn við, að hann gaf sér ekki
tíma til að fara heim og hafa
fataskipti.
Sismik I
íhöfn
Ankara — 24. ágúst — NTB
TYRKNESKA olfuleitarskipið
Sismik I lauk í dag þriðja
leiðangri sfnum í leit að olfu f
Eyjahafi. Skipið er nú í höfn í
Ismír, þar sem það verður í viku,
en ætlunin er að koma fyrir nýj-
um tækjum um borð.
Skipið hefur að undanförnu
verið við oliuleit I námunda við
grísku eyjarnar Khíos og Ikaríu,
en þær eru rétt vestur af Ismír.
Gríska stjórnin hefur tvívegis
mótmælt olíuleit Tyrkja á þessum
slóðum, þar sem hún stofni heims-
friðnum í hættu og sé í andstöðu
við alþjóðalög.