Morgunblaðið - 25.08.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGUST 1976
19
Gunnar Jónsson
málari—Minning
Dáinn er maður á besta alctri,
stór og stæðilegur, maður ímynd
karlmanlegrar hreysti. Iðinn,
vinnusamur, glaður og reifur í
vinahópi. Gunnar Jónsson var
fæddur þann 6. júlí 1921, dáinn
22. júlí 1976. Kynni mín af
tengdaföður mínum voru ekki
löng, en eru mér bæði minnisstæð
og lærdómsrík. Heim í Gnoðarvog
var ætíð gott að koma, glaðværð
húsbóndans og elskulegheit hús-
móðurinnar réðu þar ríkjum. Þau
giftust 6. nóvember 1943, það var
stórt gæfuspor að ganga að eiga
Margréti Vilhjálmsdóttur, góða
og vel gefna konu, sem var góð
móðir barna sinna. Gunnar var
heilsulitið barn fram eftir aldri
og þurfti oft að dvelja langdvöl-
um á sjúkrahúsum, og reyndi þá
oft á þolgæði móður Gunnars.
Hún missti mann sinn 6. desemb-
er 1931, og reyndi þá á þraut-
seigju og dugnað, og þá dásam-
legu skapgerð sem henni var léð
og mörgum var lærdómsrík og
aldrei man ég eftir að minnst
væri á fátækt á því heimili, því að
hún gat miðlað af visku sinni,
gjafmildi og gleði, og þann arf og
uppeldi fengu þau systkinin í rík-
— Skák
Framhald af bls. 14
a3 — b6, 15. Rel — Rc5, 16.
Re2 — a4, 17. b4 — Rb3, 18.
Habl — c5, 19. b5 — bg4, 20. h3
— Be6, 21. Rd3 — Rd7, 22.
Rdcl — Rd4, 23. Dd3 — f5, 24.
Rc3 — Rf6, 25. Rd5 — Bxd5, 26.
exd5 — Dd6, 27. Re2 — Bg7, 28.
Hel — Rd7, 29. Ddl — e4, 30.
Rxd4 — cxd4, 31. Bxd4 —
Bxd4, 32. Dxd4 — Dxa3, 33. He3
— Dc5, 34. Dxc5 — Rxc5, 35.
Ha3 — Ha7, 36. Bfl — Kg7, 37.
Be2 — Kf6, 38. Kfl — g5, 39.
Hdl — Hd8, 40. Kel — f4, 41.
Kd2 — Ke5, 42. Kc2 — Hf7, 43.
gxf4 — gxf4, 44. Bg4 — Hg7, 45,
Hel — Kd4, 46. Hc3 — Hg5, 47.
Hdl+ — Ke5, 48. Hel —h5, 49.
Bf3 — Kf5, 50. h4 — Hg7, 51.
Bxh5 — Hh7, 52. Be2 — Hxh5,
53. f3 — 23, 54. Kb2 — Hh2, 55.
Hc2 — Hg8, 56. Kc3 — Ke5, 57.
Bdl — Hxc2+, 58. Bxc2 — Hg3,
59. Hhl — Hxf3, 60. Hh5+ —
Kf6, 61. Hh6+ — Kg5, 62. IIg6+
— Kh4, 63. Hg7 — e2, 64. Kd2
— He3, 65. Kel — f3, 66. Hgl
— a3, 67. Bbl — a2 og f þessari
vonlausu stöðu fór hvftur yfir
tfmamörkin.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf,
að afmælis- og minningar-
greinar verða að berast blað-
inu með góðum fyrirvara.
Þannig verður grein, sem
birtast á f miðvikudagsblaði,
að berast í sfðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag og hlið-
stætt meðgreinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í
sendibréfsformi eða bundnu
máli. Þær þurfa að vera vél-
ritaðar og með góðu línubili.
t
Maðurinn minn
BÆRING NÍELSSON
andaðist I sjúkrahúsi Stykkis-
hólms þann 23. ágúst
Ólöf GuSrún Guðmundsd.
um mæli. Gunnar ólst upp í stór-
um systkinahópi og þar rfktu
skemmtilegar frásagnarhæfileik-
ar, og góðmannleg kímnigáfa, sem
aldrei særði neinn og bar þá oft
hæst góðlátlega kímni húsmóður-
innar, sem aldrei særði neinn.
Samband systkinanna var sterkt
og gott og var það sönn gleði að
vera í návist þeirra, þar sem þau
gerðu góðlátlegt grín að því sem á
daga þeirra hafði drifið. Nú er
höggvið stórt skarð á Þrastargötu
9, þar sem Gunnar er sá fimmti af
níu systkinum er hverfur héðan.
Systkini Gunnars voru Ingvar
bóndi á Hofsstöðum í Borgarfirði,
Ingibjörg kona Guðmundar Böðv-
arssonar skálds frá Kirkjubóli, en
þar dvaldi Gunnar oft á sumrin og
minntist hann oft á veru sína þar
hjá þeim hjónum og börnum
þeirra. Næstir voru tvíburabræð-
urnir Kristinn og Guðmundur,
sem dóu báðir fyrir aldur fram.
Gunnar var góður og elskulegur
systkinabörnum sfnum. Mikia
umhyggju bar hann fyrir börnum
Friðriks bróður síns, sem hann
tregaði alltaf. Það var Gunnari
mikil gleði að börn Friðriks eru
mikið mannkostafólk. Systkini
Gunnars sem eftir lifa eru Ingvar
bóndi og Jórunn Jónsdóttir, ekkja
Ásbjörns Jónssonar málarameist-
ara, til heimilis að Hringbraut 45
(Lóa frænka eins og hún er alltaf
kölluð af ættingjum hans), Sigur-
laug, gift Ágústi Kristjánssyni
prentara, Ingibjörg Jóna (Imma),
sem gift er Hafsteini Guðjónssyni
vélsmið, en hún var augasteinn
bróður síns, en hún var aðeins
tvegja ára gömul þegar faðir
henna lést, en þá kom upp í Gunn-
ari bróður- og föðurkærleikurinn
til yngri systkina sinna.
Börn Gunnars og Margrétar
voru sjö, elst var Þóra Júlía, fædd
13. júli 1942, en dó aðeins fimm
ára gömul, næst kemur Jón Frið-
rik, sem giftur er Benediktu Ás-
geirsdóttur og eru þau búsett í
Bolungarvík, þar næst er Þóra
Júlía, gift Ómari Franklinssyni og
kvaddi hún föður sinn daginn áð-
ur en hann dó, því hún var að
flytja búferlum til fjarlægra
landa, þar næst er Karl stýrimað-
ur, kvæntur Kristinu Thórodd-
sen, og Jóhann Hinrik, sem dvel-
ur í heimahúsum, og Vilhjálmur
sem fetar i fótspor bræðra sinna
og stundar sjóinn. Yngstur er
Gunnar, sem stundar nám, og á
hann um sárt að binda að missa
góðan föður og félaga. Ekki ætla
ég mér að hafa þessi fátæklegu
orð mín miklu lengri og ætla ég að
Þorgeir Guðmunds-
son — Kveðjuorð
enda þessar linur með sálmi sem
Guðmundur Böðvarsson orti I til-
efni andláts móður þeirra, sem
hefur verið sunginn yfir öllum
þeim ellefu manns, sem hafa
horfið á níu árum.
Endalaust fellur f eilffðar sæ
elfur vors jarðlffs f stormi og blæ,
hvort sem að streymir hún hægt eða strangt
hvort sem að streymir hún skammt eða langt
Dagar og ár
sorgir og sár
vara oss við
vak þú og bið.
(G.B.)
Margrét min ég votta þér og
börnum þínum samúð og bið alla
góða vætti um að börn þin megi
líkjast föður sinum.
Þin tengdadóttir K.Th.
Þann 24. agúst var vinur okkar
Þorgeir Gulmundsson til moldar
borinn og er okkur systkinum
mikil eftirsjá I svo góðum dregn
sem Þorgeir reyndist okkur þann
tíma sem við umgengumst hann
hérna megin tjaldsins.
Af einkennum Þorgeirs mátum
við mest hlýju hans og vináttu I
hverjum þeim vanda er að steðj-
aði. Þorgeir lá ávallt gott orð til
allra manna og aldrei urðum við
þess vör að hann skipti skapi eða
hagaði orðum sínum svo að nokk-
urn sakaði eða særði. Þetta eru
sjaldgæfir mannkostir sem við
munum aldrei gleyma.
Þorgeir var góður heim að
sækja og reyndist gestum sinum
góður gestgjafi og skemmtilegur í
viðræðu, laus við fordóma og
dómhörku; hafði sinar eigin skoð-
anir og leyfði hverjum að hafa sitt
álit á vandamálum samtíðarinnar
án þess að þrengja sínum skoðun-
um upp á aðra.
Nú grúfir sorg yfir heimili Þor-
geirs og samhryggjumst við inni-
lega ástvinum hans er eftir lifa í
söknuði yfir falli svo góðs manns.
Með sárum trega kveðjum við
þig, Þorgeir, og þökkum þér fyrir
liðnar samverustundir er okkur
líða aldrei úr minni. Vertu sæll.
Anna Torfadóttir
Helgi Torfason
Ólafur H. Torfason
Baldur Hermannsson
Kristján Jóhannsson
Ella Bjarnarson
Signý Pálsdóttir
Björg Karlsdóttir
Jakobína Jónas-
dóttir—Minning
F. 5. 6. 1884.
D. 9. 8. 1976.
„Sælir eru hjartahreinir, þvi að
þeir munu Guð sjá.“
Matt. 5:8
Föstudaginn 13. ágúst fór fram
í Fossvogskirkju jarðarför elsku-
legrar ömmu okkar Jakobínu
Jónasdóttur, Rauðalæk 34 hér I
borg. Hún andaðist í hárri elli i
Borgarspítalanum mánudaginn 9.
ágúst sl.
Við systurnar viljum þakka allt,
sem hún hefur gert fyrir okkur.
Hún tók okkur til sin sem móðir,
þegar foreldrar okkar fluttust
búferlum til framandi lands,
þegar við vorum ungar að árum.
Hjá ömmu leið okkur vel, þótt
ekki væri þar ríkidæminu fyrir að
fara. Þar fundum við alltaf sömu
hjartahlýjuna. Amma missti mik-
ið, þegar afi féll frá, þau voru svo
samrýnd. Hún varð einnig fyrir
mikilli sorg, þegar hún missti
dóttur sina, er ætið hafði búið hjá
okkur.
Svo liðu árin og við stofnuðum
okkar eigin heimili, en alltaf var
sama hjartahlýjan hjá ömmu, og
barnabörnunum var hún sérlega
góð og þau höfðu náið samband
við hana, jafnvel þótt um langan
veg væri að fara.
Við munum öll sakna hennar
mikið og sérstaklega um jólin, því
að við vorum vön að halda með
henni jól á heimili Guðrúnar dótt-
ur hennar. Komu þá saman börn-
in og barnabörnin, það voru hátíð-
legar gleðistundir og nú vantar
mikið, þegar elsku amma er farin.
Amma var trúuð kona, hún átti
mikla elsku og var svo vongóð.
Hún átti létta lund og var bros-
mild og reyndi alltaf að sjá björtu
hliðar lifsins.
Það veganesti, sem hún gaf okk-
ur, er okkur dýrmætur fjársjóður.
Um leið og við þökkum henni, þá
biðjum við algóðan Guð að gefa
henni frið, hvíld og eilífa blessun.
Jóhanna og Jakobina Cronin.
Faðir minn og fósturfaðir
t
MAGNUS MAGNUSSON
frá Lykkju á Kjalarnesi
til heimilis að Fálkagötu 3, andaðist að Sólvangi 23 þ m. Jarðsett
verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 27 ágúst n.k. kl 1 0 30
Fyrir hönd vandamanna
Kristjana Magnúsdóttir Örn Kristjánsson
t
Eiginkona min og móðir okkar
KRISTÍN HELGADÓTTIR
frá Álfatröðum I Hörðudal
andaðist á heimili sfnu Laugarnesvegi 1 1 8 að morgni 24 þ m
Hjörtur Ogmundsson
og dætur
t
Hjartkær móðir. tengdamóðir, amma og langamma okkar,
ÁGÚSTÍNA JÓNSDÓTTIR
Kleppsvegi 6
verður jarðsungin frá Frikirkjunm fimmtudaginn 26 ágúst kl
Blóm afbeðin
Guðfinna Júliusdóttir Jón Júlfusson
3 e.h
Svavar Júllusson
Gunnar JúHusson
Guðjón Júliusson
Bjami Júlfusson
Sigurður Hafliðason
Hanna Pétursdóttir
Jóna Geirsdóttir
Auður Jörundsdóttir
Rfta Júllusson Abbing
Klara Tómasdóttir
bamaböm, bamabarnaböm og barnabarnabamaböm.
t
Ástkðer móðir okkar, amma og langamma,
ÞÓRA MÓLLER KRISTJÁNSDÓTTIR
Ingólfsstræti 1 0.
lézt í Landspítalanum aðfararnótt þriðjudagsins, 24 ágúst
Kristján Hjálmarsson Halldóra Hjálmarsdóttir
Hjálmar Kristjánsson
Þór Kristjánsson
Lilja Kristjánsdóttir
f
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
KJARTAN EINARSSON
húsasmfðameistari
Brávallagötu 18, R.
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, I Reykjavlk, fimmtudaqinn 26
ágúst kl 13.30 Þeim. sem vildu minnast hins látna er bent á
llknarstofnanir
Sæunn Glsladóttir
Margrét H Kjartansdóttir Sólberg Vigfússon
Gfsli J. Kjartansson Júlfana S. Aradóttir
Svava Kjartansdóttir Ingi Adolphsson
Ingibjörg Kjartansdóttir Pétur Pétursson
og barnabörn