Morgunblaðið - 25.08.1976, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1976
25
VEL-VAKAINIDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Hvar er-
dráttar-
hesturinn
okkar?
Þorsteinn Jónsson skrifar:
„Já, hvar er dráttarhesturinn
okkar? Var honum útrýmt? Hefur
íslenzka þjóðin að meira eða
minna leyti verið undir stjórn fá-
vita frá striðslokum? Flestar
þjóðir Evrópu eiga enn sín drátt-
arhestakyn og halda þeim vel við.
Nærtækasta dæmið er danski
dráttarhesturinn sem oft sést nið-
ur við höfn fyrir stórum vagni.
Tröllslegur að vexti með skeifur
sem eftir útliti að dæma eru ef-
laust þrjátiu sentimetrar í þver-
mál.
Þá má nefna enska tröllið sem
mig minnir að sé um fjögur þús-
und kíló að þyngd. Og þeir eru
stoltir af þessari skepnu og hafa
fulla ástæðu til þess. Þae eiga
frændur okkar Norðmenn enn
einn dráttarhest, sem er enn i
starfi hjá þeim.
Var islenzka þjóðin virkilega
svo skammsýn, að hún útrýmdi
sínu afburða þoina og þrautgóða
þungavinnuhesti?
Ef þetta reynist rétt, sem ég hef
minnzt hér á, þá ber forystumönn-
um i landbúnaði að fá til landsins
hrossakyn, sem þjálfað verði til
kynbóta við hvers kyns aðstæður
og verkefni sem hesturinn áður
vandist. Þá má nefna kerru- og
vagnhestinn, rakstrarvélahestinn,
jarðabótajötnana sem jafnframt
voru notaðir fyrir sláttuvél, og
svo alhliða hestinn, gæðinginn,
dráttarhestinn — þarfasta þjón-
inn.
Þið þarna hjá Morgunblaðinu
verðið ekki í neinum vandræðum
með að veita upplýsinsar um það
sem um hefur verið spurt. Þvilík-
ur bændavinur og bústólpar sem
þið teljið ykkur vera. Virðingar-
fyllst,
Þorsteinn Jónsson,
Barmahlið 14, R.“
Þarfasti þjónninn er ef til vill
ekki eins þarfur og hann var til
skamms tima. Hestar eru þó mik-
ið notaðir enn í dag og langt er í
land með að honum verði útrýmt.
Hitt er annað, að hlutverk hans
hefur tekið miklum breytingum
og öll þau mörgu verkefni sem
Þorsteinn minnist á i bréfinu eru
horfin, og unnin á annan hátt í
dag. Það er vissulega eftirsjá í
því, en hver á að taka að sér að
rifja þau upp, og þjálfa hesta að
nýju til gömlu verkefnanna?
Þorsteinn nefnir i bréfinu á
landbúnaðaryfirvöld ættu að sjá
I einu sá ég að hann var að skrifa I
mölina. Og eitt einasta orð stóð
þar og það orð var HJÁLP...
Ég hrökk við og við horfðumst f
augu. Þegar hann sá að ég hafði
meðtekið boðin kinkaði hann
kolli svo að varla sást og tók að
fjarlægja krotið með skónum.
Hann tók gulan blýantsstúf upp
úr vasanum.
— Eg er ekki viss um að
Richelieu hafi haft rétt fyrir sér,
þegar hann sagði að peningar
hefðu meira afl en sverðið.
Merkilegur orðsins sigur er enn
ekki orðinn að veruleika — ef svo
verður einhvern tfma. Eða hvað
haldið þér?
Hann blés á blýantsoddinn og
var eins og hann vildi þar með
gefa til kynna að hann hefði fjar-
lægt öll ummerki við fætur sér.
Ilann brosti og lagði blýantinn
niður f vasann aftur.
— Ég ber alltaf blýant á mér.
Ég veit aldrt-i hvenær ég þarf á
honum að halda.
— Skrifið þér alltaf með
blýanti en ekki með penna eða
ritvél, spurði ég og braut ákaft
heilann um hvernig ég ætti að
skilja gjörð hans og hvað hann
væri eiginlega að reyna að segja
til þess að þetta yrði gert og þvi
má ef til vill líka beina til hesta-
mannafélaga, að þau taki upp
nýja liði í sinu starfi. Þau gætu
kannski fengið aðstöðu til að
þjálfa hesta til þeirra verkefna
sem nefnd voru og á þann veg
gefið nýjum kynslóðum tækifæri
til að kynnast þessum störfum.
0 Týnd net —
dauðagildrur
fiska
„I Dagblaðinu 11. júní 1976 er
fréttagrein og tvær myndir sem
sýna stóran þorsk, sem lent hefur
í ónýtum og týndum netadræsum
úti af Snæfellsnesi. Þorskurinn
var afar illa farinn, þótt hann
héldi lífi, því l'A sm för voru um
haus hans aftanverðan og kverk.
Skipverjar á viðkomandi báti
segjast áður hafa veitt fiska sem
líkt var ástatt um. Má geta nærri
hvílikar þjáningar þessi þorskur
hefur verið búinn að líða.
Augljóst er og hefur lengi verið
að net í sjó eru einhver andstyggi-
legustu veiðarfæri, sem um getur,
fyrst og fremst vegna þess að
mjög oft týnast net, oft mörg sam-
an, og halda áfram að veiða i sig
fiska, engum til gagns, en til
ómældra þjáninga fyrir þau dýr
sem í þeim lenda.
Fiskveiðar eru yfirleitt
grimmdarleg atvinnugrein, því
ekki verður komizt hjá að þúsund-
ir og milljónir dýra deyi á kvalar-
fullan hátt. En við menn, sem
teljum okkur hafa rétt til að hafa
allt líf jarðarinnar í hendi okkar
og hagnýta það að eigin geðþótta,
höfum okkur það þó til afsökun-
ar, að við séum að afla okkur
viðurværis og annarra lífsnauð-
synja. Orkar þó oft tvimælis hvort
svo sé i raun og veru, eins og t.d.
það atriði að nokkur hluti sjávar-
afurða okkar fer til að kaupa
áfengi og tóbak, sem illt eitt getur
hlotizt af og nokkur hluti þeirra
kvikmynda og sjónvarpsefnis sem
inn er flutt, einnig fyrir andvirði
sjávarafurða, vel,dur mengun
hugarfars þeirra er á horfa og
spillir þannig siðgæði þjóðarinn-
ar.
Týndnet, sem liggja í sjó vikum
og mánuðum saman, í veiðifæru
ástandi og halda áfram að veiða
fisk, eru óverjandi blettur á veiði-
mennsku okkar. Þar eru á ferð
veiðitæki sem kvelja lífið úr
nytjafiskum á seigdrepandi hátt
og þó engum til gagns.
Vmsir sjómenn eru algjörlega á
móti notkun þorskaneta, vegna
skaða, sem týnd net valda á fisk-
stofnum. Og til eru þeir sem vilja
banna notkun þeirra af þessum
sökum.
Ég er þeim alveg sammála, og
ekki eingöngu vegna fjárhags-
skaðans, sem þau valda, heldur
einnig og raunar mikiu fremur
vegna þeirra langvarandi dauða-
þjáninga, sem þau valda fórnar-
dýrum sinum, engum til gagns.
1 öllum athöfnum okkar til öfl-
unar auðs og lífsgæða skyldi það
ávallt vera fyrsta markmið okkar
að valda lífverunum kringum
okkur sem minnstum þjáningum.
Því í rauninni eiga þær rétt á sinu
lifi eins og við á okkar. Þessu
skyldu'm við ekki gleyma.
Ingvar Agnarsson."
Víst er að fiskveiðar eru ein af
fjölmörgum leiðum til að afla lífs-
viðurværis og þar, sem á öðrum
sviðum, verður að farga dýrum til
manneldis — eins dauði er annars
brauð mætti nefna í þessu sam-
hengi. Hitt er náttúrlega óþarfi að
leggja net fyrir þá fiska sem
aldrei koma til með að verða nýtt-
ir, en hér er sjálfsagt erfitt mál
við að eiga, að finna týnd net.
HÖGNI HREKKVISI
©1976
' * McN.unht
Syndicate, Inc.
BÚNINGSKLEFAR
rv
,Amma! — Högni þarf að fá nýjan sundbol/
G2P S\GGA V/öGA g ýlLVEWM
— Suður-Kórea
Framhald af bls. 1
yfirlýsingu Norður-Kóreustjórnar
þar sem drápin á hermönnunum
voru hörmuð. Áður hafði Banda-
ríkjastjórn sagt að yfírlýsinguna
væri ógerlegt að taka sem af-
sökunarbeiðni, þar eð N-
Kóreumenn tækju ekki ábyrgð á
morðunum. I gær sagði banda-
rfska utanrikisráðuneytið hins
vegar að yfirlýsingin væri
jákvætt skref. Ekki hefur verið
gefin nein skýring opinberlega á 'j
þessari breyttu afstöðu, en svo
virtist sem Bandaríkjastjórn teldi
að N-Kóreumönnum ætti að vera
ljóst að frekari árásir á Banda-
ríkjamenn yrðu ekki liðnar. í
Seoul var skýrt frá því að ríkis-
stjórnin í Washington hefði ráð-
fært sig við stjórn S-Kóreu áður
en tilkynnt var um hina breyttu
afstöðu.
— Líf á Mars?
Framhald af bls. 1
niðurstöður þeirra eigin til-
rauna sýni svo að varla verði
dregið f efa, að ekkert Iff
leynist á reikistjörnunni.
Lfffræðingar eru furðu lostn-
ir vegna þess að nánast hver
einasta niðurstaða sem boð
hafa borizt um frá Mars virðist
boða til möguleika á lifi. Þeir
gerðu meira að segja sérstaka
könnun — svokallaða „eftirlits-
prófun“ — á einu jarðvegs-
sýninu og niðurstaðan varð sú
sama.
En Dr. Klaus Biemann, yfir-
maður lffefnatilraunanna,
hefur hins vegar fengið alveg
gagnstæðar niðurstöður, og
hann kveðst ekki geta komið
auga á neitt sem bendi til að lff
sé hugsanlegt á Mars. Hann og
starfslið hans hafa leitað að lif-
rænum samstæðum sem nauð-
synlegar eru lffrænni starfsemi
á jörðu, en ekkert hefur komið
í leitirnar. Dr. Biemann hefur
einkum leitað eftir merkjum
um kolefni sem öll lífsform á
jörðu byggjast á.
— Fimm féllu
Framhald af bls. 1
uðu í gær að reyna að fá 200.000
blökkumenn í Soweto sem vinna í
hverfum hvftra i borginni til að
leggja niður vinnu í þrjá daga, en
margir verkamannanna brugðust
ókvæða við aðferðum þeirra. Hins
vegar herma fréttir í kvöld að um
60—70% þátttaka hafi verið i
verkfallinu í dag. í gær urðu um
300 vefnaðarverksmiðjur að loka
vegna verkfallsins.
Þurrkar
Framhald af bls. 1
að hafa helmingi minna vatn en
venjulega. „Blómin verða að
sölna, bílarnir verða að vera skft-
ugir, og vatn til baða verður að
nota aftur til að hreinsa salernis-
skálar. Þvottavélar má aðeins
nota einu sinni til tivsvar í viku
og þá frekar með miklum þvotti f
einu en oftar og minni þvotta".
Hann sagði að fólk myndi fá
áfram nægilegt vatn í bili, en það
yrði þó að búa sig undir alls kyns
óþægindi af völdum vatnsskorts-
ins.
Með tilliti til þess að iðnaðurinn
og landbúnaðurinn nota þriðjung
alls vatns í landinu sagði
ráðherrann að hann myndi
mælast til þess að sérstökum
mönnum innan hvers fyrirtækis
yrði falin umsjón með vatns-
notkun þess. Hann sagði að
stjórnvöld íhuguðu nú flutninga á
vatni frá Skotlandi með tankskipi
en þar eru vatnsból vel full, og
einnig að flytja vatn frá Norður-
Wales, þar sem ástandið er sæmi-
Iegt, til Suður-Wales, þar sem
liggur við að sé neyðarástand.
Hann gat þess þó að flutningar
með skipi eða gegnum leiðslur
væru afar dýrir. Þá væri verið að
kanna hugsanlega dýpkun
borhola.
Howell sagði að þótt venjuleg
meðalúrkoma yrði í Bretlandi í
vetur myndu viss héruð eiga i
miklum erfiðleikum næsta sumar.
Að minnsta kosti 152 mm úrkomu
þyrfti til að bleyta í jörðinni áður
en vatn tæki að safnast fyrir að
ráði í vatnsbólunum. Howell mun
fara i ferð um þurrkasvæðin á
fimmtudag og föstudag, og mun
hann fyrst fara til Wales, þar sem
milljónir manns fá nú aðeins vatn
sjö klukkustundir á dag. Þar mun
einnig hefjast skömmtun á vatni
til fyrirtækja frá og með næstu
viku, og munu þau aðeins fá
helming venjulegs vatns.
— Miki snýr
Framhald af bls. 1
Masayoshi Ohira fjármálaráð-
herra. Miki slapp hins vegar
klakklaust gegnum þingflokks-
fund LDP f dag, þar sem hugsan-
legt var að reynt yrði að fá sam-
þykkt vantraust á hann. Slík til-
laga kom ekki fram á fundinum,
sem stóð aðeins stutta stund. Var
einróma samþykkt tillaga þar sem
hvatt er til einingar og umbóta
innan flokksins. Miki sagði i sjón-
varpi í kvöld að hann teldi fullar
líkur á þvf, að unnt yrði að ná
málamiðlun f viðræðum þeirra
Fukuda og Ohira.
— Ford
Framhald af bls. 1
myndi þvf lftið tóm gefast fyrir
hann til að kynna sér nægilega
þau flóknu og umdeildu mál sem
til umræðu yrðu.
Ford stæði að þessu leyti betur
að vígi með reynslu sfna við
stjórnarstörf að bakhjarli, og
kynni staða hans í skoðanakönn-
unum að breytast í samræmi við
það.
Carter skýrði í dag frá því á
fundi með fréttamönnum, að
hann myndi þegar á fyrstu viku
sinni sem forseti náða alla þá sem
neituðu að gegna herþjónustu í
Víetnamstrfðinu. „Ég mun ekki
láta í ljós skoðun á því hvort
þessir ungu menn hafi til sakar
unnið eða ekki. Ég mun láta
nægja að segja að þeim skuli
fyrirgefið það sem þeir gerðu, —
hvort sem það var rétt eða rangt,“
sagði Carter.
— „í heyskap
Framhald af bls. 10
geymslu. Svo þyrfti að þrífa
fjósið og helzt vildi ég geta
málað það lika. Siðan þarf
náttúrlega að þvo vélarnar
og koma þeim í geymslu og
jafnvel að taka þær elztu i
sundur og dytta að þeim á
ýmsan hátt, þvi það má
ekkert bila á sumrin. í hey-
skap á sumrin verður nefni-
lega allt að vera pottþétt ef
vel á að vera.
árós.