Morgunblaðið - 25.08.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1976
27
HAUKAR OG ÍBÍ
DEILDU STIGUNUM
HAUKAR og ÍBl skildu jöfn er
liðin mættust 1 2. deild f knatt-
spyrnu I Kaplakrika á sunnudag-
inn. Skoruðu liðin eitt mark
hvort, en einu áhrifin, sem þessi
úrslit hafa á stöðuna f 2. deild eru
þau að Haukar eru öruggir'um
áframhaldandi veru f 2. deild,
enda væri annað óeðlilegt, þar
sem liðið hefur ágætum leik-
STAÐAN
STAÐAN f 2. deildinni f knatt-
spyrnu er nú þessi:
IBV 14 12 2 0 57:10 26
Þór 14 9 4 1 37:13 22
Ármann 15 6 4 5 25:20 16
Völsungur 14 5 4 5 21:22 14
KA 15 5 4 6 26:28 14
Haukar 14 4 3 7 21:27 11
ÍBf 14 3 5 6 16:28 11
Selfoss 14 3 3 8 21:45 9
Reynir 14 2 1 11 13:44 5
Markahæstu leikmenn eru:
Örn Óskarsson tBV 23
Gunnar Blöndal KA 13
Jón Lárusson Þór 13
Tómas Pálsson IBV 13
^íi iniiiiiiisBa——
IIDróMlrl
mönnnm á að skipa, og óskiljan-
legt hve illa þvf hefur gengið f
sumar.
tsfirðingar voru fyrri til að
skora og var Gunnar Pétursson
þar að verki. Vippaði hann knett-
inum yfir markvörð Haukanna,
sem var framarlega í vítateignum.
Markið verður þó að skrifast á
reikning annars bakvarðarins,
sem urðu á slæm mistök. Kom
markið um miðjan fyrri hálfleik-
inn, en Guðmundur Sigmarsson
jafnaði síðan fyrir Hauka með
föstu skoti af stuttu færi.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð
jafn, en í þeim síðari voru Hauk-
arnir mun atkvæðameiri. En eins
og svo oft áður tókst liðinu illa
upp fyrir framan mark andstæð-
inganna og tókst ekki að skora.
SeHyssingar
tryggðu sig
SELFYSSINGAR tryggðu stöðu
sina í 2. deildinni í knattspyrnu er
liðið vann KA frá Akureyri nokk-
uð óvænt á laugardaginn. Úrslitin
urðu 3:2 og skoraði Guðjón Arn-
grímsson öll þrjú mörk Selfyss-
inga. Markakóngur KA, Gunnar
Blöndal, sá um að skora bæði
mörk norðanliðsins.
Okkur varð heldur betur á f messunni í gær er við birtum mynd af
þeim Björgvini Þorsteinssyni og Einari Guðnasyni og sögðum Einar
vera Þorbjörn Kjærbo. Biðjumst við velvirðingar á þessum mistökum,
en meðfylgjandi er af þeim Þorbirni og Þórhalli Hólmgeirssyni, en
þeir lentu f 2. og 3. sæti f „Opna íslenzka meistaramótinu í golfi“ sem
fram fór í Leirunni um helgina.
Snæborgarkeppni unglinga af Snæfellsnesi og úrBorgarfirði:
HSH sigraði í frjálsum
- Borgfirðingar í sundi
UNGLINGAB 16 ára og yngri úr HSH og UMSB kepptu í frjalsum^
fþróttum og sundi 15. ágúst síðastliðinn. Keppni þessi hefur verið
nefnd Snæborgarkeppnin og fór fram í Varmalandi í fyrsta skipti í
fyrrasumar. Keppnin fór að þessu sinni fram í Ólafsvík og í frjálsum
íþróttum var um mjög jafna og spennandi keppni að ræða, en
Snæfellingar báru sigur úr býtum, hlutu 279V4 stig gegn 276‘A stigi
Borgfirðinga. Sundkeppnina unnu Borgfirðingar hins vegar með yfir-
burðum, hlutu 214 stig gegn 113 stigum HSH.
Úrslit í einstökum greinum SUND
urðu sem hér segir: SVEINAR:
Sveinar:
100 m hl. Erlingur Jóhannsson IISll 12.3 sek.
800 m hl. Arnljótur Arnars. HSH 2:13.3 mfn.
4x 100 m hoóhl. Sveit HSH 50,5 sek.
langstökk Erlingur Jóhannsson HSH 5,29 m
þrfstökk Erlingur Jóhannsson HSH ll,70m
hástökk Hnnar Vilhjálmsson UMSB 1,60 m ,
kúluv. Einar Vilhjálmsson UMSB 13.73 m
kringluk. Einar Vilh jálmsson UMSB 44,88 m
spjótk. Einar Vilhjálmsson l’MSB 47.94 m
MEYJAR:
100 m skriðsund Jón II. Steingrfmsson UMSB 1:06,2 mín
100 m hringusund l’nnar Vilhjálmsson UMSB 1:24,1 mín
50 m haksund Kristján Oddsson UMSB 37,5 sek
50 m flugsund Kristján Oddsson UMSB 36,6 sek
100 m fjórsund Jón II. Steingrímsson l!MSB 1:16,9 mín
4x50 m fjórsund Sveit UMSB 2:23,7 mín
100 m hl. Ólöf Amundad. UMSB 14,0 sek.
800 m hl. Agnes Gudmundsd. UMSB 2:38.9
mfn.
4x 100 m boóhl. Sveit UMSB 58.1 sek.
langstökk Ólöf Amundadóttir UMSB 4,36 m
hástökk Kristjana Hrafnkelsd. HSH 1,45 m
kúluvarp Ingihjörg Bjarnad. UMSB 8,37 m
kringluk. Guórún Kristjánsd. HSH 23,38 m
spjótk. Iris Grönfeldt UMSB 27,50 m
MEYJAR:
100 m skrióstund
Þorgeróur Þráinsdóttir HSH HSH met 1:12,4
mfn
100 m hringusund
Jóhanna Jónasdóttir HSH 1:31.3 mfn
50 m haksund
Þorgeróur Þráinsdóttir HSH HSH met 39,6
sek
— íþróttir
Framhald af bls. 26
liðsins mjög við þetta mark.
Höfðu þeir allt fram að þessu
verið mjög spenntir og tóku enga
áhættu. Eftir markið fóru þeir
hins vegar að leika knattspyrnu
eins og þeir bezt geta. Hvað eftir
annað skall hurð nærri hælum við
mark Þróttara, en marki tókst að
forða þar til á 33. minútu. Það var
Ingi Björn, sem þá skoraði aftur,
en nú eftir að Jóni Þorbjörnssyni
höfðu orðið á mistök I úthlaupi og
knötturinn gengið á kollum
manna nokkra stund áður en Inga
tókst að skjóta í netió.
I byrjun seinni hálfleiks breytt-
ist leikurinn aftur, Valsmenn
virtust allir ætla að skora sjálfir,
en samleikurinn var látinn lönd
og leið. Gekk dæmið engan veg-
inn upp og fleiri mörk voru ekki
skoruð í leiknum. Valsmenn voru
allan timann mun sterkari, en
hins vegar börðust Þróttarar bet-
ur I þessum leik, greinilega
ákveðnir í að selja sig dýrt. Stilltu
þeir liði sínu upp með varnarleik
i huga og skapaði liðið sér því fá
tækifæri í leiknum og tap í þess-
um leik þýðir að Þróttur verður
að vinna Viking í síðasta leik liðs-
ins i mótinu, en á sama tima verð-
ur FH að tapa fyrir KR. Fær
Þróttur þá aukaleik um 8. sætið í
1. deild __áij
— Blóðsöfnunar-
bíll RKÍ
Framhald af bls. 2
útbúnaður og var I gamla bllnum,
heldur eru svokallaðir kælikassar
I bllnum, sem annars er aðeins
notaður til þess að flytja á milli
tæki og starfsfólk.
Samkvæmt upplýsingum
Eggerts Ásgeirssonar, fram-
kvæmdastjóra Rauða krossins eru
bílakaupin styrkt af ávísanasjóði
bankanna og er hann mun með-
færilegri en gamli bíllinn, sem nú
hefur verið seldur.
Ölafur Jensson, yfirlæknir og
forstöðumaður Blóðbankans,
sagði í viðtali við Mbl. i gær að
yfir sumartímann hefði oft verið
erfitt um blóð og nyti Blóðbank-
inn þá jafnan aðstoðar Rauða
krossins. Væri þetta ástand sér-
staklega á meðan skólar væru
lokaðir, en skólanemendur á
aldrinum um og yfir tvitugt væru
beztu blóðgjafarnir. Á sumrin
hefði því verið gripið til þess ráðs
að fara í nokkra kaupstaði og fjöl-
menna vinnustaði til blóðsöfnun-
ar.
- Geirfinnsmálið
Framhald af bls. 28
sóknarlögreglumenn að þessu
máli einu auk SchUtz og Arnar
Höskuldsson fulltrúa. Mikil vinna
er lögð i rannsóknina og öll atriði
málsins könnuð gaumgæfilega á
nýjan leik, en eftir því sem
Morgunblaðið kemst næst hefur
þó ennþá ekkert komið fram sem
varpar nýju ljósi á þetta mál.
— Nafnbirtingar
Framhald af bls. 28
komið upp. Þar á meðal væru
menn sem hann teldi af og frá
að væru nokkuð viðriðnir
málið, án þess þó að hann hefði
neinar sannanir fyrir því, en þó
væri sérstaklega eitt dæmi þar
sem væri augljóslega um mis-
skilning að ræða og mönnum
einfaldlega ruglað saman.
„Ég vil því undirstrika að ég
tel að birta eigi nöfn meira en
gert er almennt séð og tel að í
því felist viss varnarsjónarmið,
eins og ég gat um áðan, og er
þannig algjörlega ósammála
þessum afbrotafræðingum um
að ekki megi gera það. Ég geri
mér alveg grein fyrir því að það
er þungbært fyrir aðstand-
endur afbrotamanna að þurfa
að þola nafnbirtingu, en það
verður líka að líta á þjóðfélagið
í heild og á þá sem verða fyrir
barðinu á afbrotamönnunum
Síðan kemur hitt til — og það á
auðvitað sérstaklega við um
mál eins og ávisanamálið — að
þar eru algjörlega saklausir
menn dregnir inn í það af
almannarómi og alls kyns kvik-
sögur á kreiki í sambandi við
það.“ sagði Sigurður enn-
fremur.
Sigurður kvaðst geta fallizt á
sjónarmið sakadóms, að
embættið ætti ekki gott með að
birta nöfn þessara manna, þar
sem þar væri ekki farið að
fjalla um málið að ráði, og taldi
að eðlilegast hefði verið að
bankarnir hefðu birt nöfn
þessara manna um leið að þeir
létu þau frá sér fara til saka-
dóms. Að vísu skytu bankarnir
sér gjarnan á bak við það að
ekki samræmdist starfsreglum
þeirra að gefa upplýsingar um
viðskiptaaðila og væri banka-
leyndin reyndar kapítuli út af
fyrir sig, sem Sigurður kvaðst
telja að draga ætti stórléga úr.
NAFNBIRTING GÆTI
SKAÐAÐ RANNSÓKNINA
Benedikt Blöndal hæsta-
réttarlögmaður sagði aftur á
móti að samkvæmt mati hans
ætti ekki að birta nöfn þeirra
manna, sem rannsókn ávísana-
málsins næði til, þar sem slíkt
gæti skaðað rannsókn málsins.
„Rannsóknin nú er á þvf stigi,
að ég tel að nafnbirting væri
óviturleg og þeir menn, sem
eru á þessum margumtöluðu
listum er sagðir eru ganga
manna á meðal í borginni, að
láta sér það lynda í bili,“ sagði
Benedikt.
SÖGUSAGNIRNAR
EINAR GERA ILLT VERRA
„Ólafur Ragnar Grímsson
prófessor svaraði þessari
spurningu Morgunblaðsins með
eftirfarandi hætti:
„Félagsleg samskipti á
Islandi einkennast af persónu-
legu návígi, sem skapar ýmis
þjóðfélagsleg sérkenni. Meðal
slíkra sérkenna er mikilvægi
munnmæla i fréttum og
frásögnum. Sögusagnir eru I
reynd fjölmiðill ekki síður en
blöð útvarp og sjónvarp. önnur
afleiðing hinna nánu og
persónulegu félagstengsla er
tilhneiging yfirvalda til að
brengla formlegum reglum og
veita mótsagnakennd fordæmi
— eftir því hver á f hlut. Þessi
tvö sérkenni, fjölmiðlunarhlut-
verk sögusagna og persónu-
bundin afstaða yfirvalda, setja
mjög svip sinn á svonefnt nafn-
birtingarmál. Meðal
almennings hafa munnmælin
þegar auðkennt tiltekna ein-
staklinga sem afbrotamenn, og
tilhneiging yfirvalda til að úti-
loka blöð, útvarp og sjónvarp
frá fjölmiðlunarhlutverkinu og
láta sögusagnirnar einar um
hituna hefur aðeins gert illt
verra. Nafnbirtingar f ýmsum
afbrotamálum á síðustu
mánuðum leiða einnig í ljós al-
gjöran regluskort á þessu sviði.
Formleysi og ruglandi yfir-
valda stuðlar eingöngu að þvf
að draga úr gildi réttarreglna í
íslenzku þjóðfélagi. Skilnings-
leysi rannsóknarmanna á hlut-
verki blaða, útvarps og sjón-
varps, skapar munnmælunum
áfram þann veglega sess, sem
þau hafa um aldir haft með
íslendingum. Það er svo annað
mál hvort slík hollusta við þjóð-
legar erfðir getur ekki til
lengdar orðið réttarkerfinu
hættuleg."
— Líkur fyrir
Framhald af bls. 28
hefur aftur á móti reynzt betra og
hjálpar það eitthvað upp á. Sigfús
sagði að sá hrygningarstofn, sem
þetta góða klak kæmi frá, væri
lélegasti hrygningarstofn, sem
vitað hafi verið um. Sýnir það að
ytri skilyrði ráða ákaflega miklu
um hvernig til tekst með klakið.
Hafa þau verið óvenjuhagstæð í
ár. Vetrarvertíðin var óvenjuléleg
f ár, enda byggist hún aðallega á
hrygningarfiskinum.
Þessar góðu fréttir koma frá
rannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni, en þar er Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur leið-
angursstjóri. Morgunblaðinu
tókst ekki i gær að ná sambandi
við Hjálmar. Jakob Jakobsson
fiskifræðingur sagði hins vegar,
að þetta klak þýddi að hér væri
fyrsta stig eða fyrsta þrep i þá átt
að við fengjum sterkan árgang og
mikla þorskveiði að 6 til 7 árum
liðnum — ef við högum okkur
eins og menn. Ef við högum
okkur hins vegar eins og bandftt-
ar verður góð veiði eftir 3 til 4 ár,
sem verður svo litið meir. Þessar
fréttir létta þvf af manni þungu
fargi og eigum við nú annan
möguleika, sem við héldum að við
værum búnir að tapa.
Þetta er fyrsta þrepið — sagði
Jakob. Seiðin eru komin yfir
krftískan punkt, því að venjulega
deyr megnið af þeim rétt eftir
klakið, en hins vegar verða menn
að gera sér grein fyrir að þau eru
enn ekki orðin að stórþorski og
ýmislegt getur gerzt. Árið 1973
fannst óskaplega mikið af svona
seiðum um allan sjó og allt vestur
til Grænlands. Sá árgangur er
aðeins þriggja ára og við vitum
enn ekki hvernig hann verður, en
hann virðist ætla að skila sér mun
verr en seiðarannsóknirnar bentu
til. „Því er ekki sopið kálið, þótt í
ausuna sé kornið," sagði Jakob
Jakobsson, og bætti við: „Það er
vitað mál, að ef klak mistekst eins
og var i fyrra og hitteðfyrra, þá
eru engir möguleikar. Nú eru
hins vegar mjög miklar líkur. Lik-
urnar á góðum árgangi og góðri
þorskveiði og uppbyggingu þorsk-
stofnsins hafa stóraukizt.“
Jakob sagði að hér væri. ekki
aðeins um þorsk að ræða heldur
og ýsu, loðnu og allar fisktegund-
ir. Hann kvað Hjálmar Vilhjálms-
son að vfsu ekki hafa fundið
mikla loðnu, en í fyrri viku kvaðst
Jakob hafa verið norður í Dumbs-
hafi og þar hafi þá allt verið fullt
af loðnuseiðum. Hjálmar hafi
hins vegar ekki farið nógu djúpt
út, en mikið væri af loðnuseiðum,
sem hann kvað feit og lífvænleg.
Því virtist sem allar fisktegundir
hafi komið sérstaklega vel út f
klaki á þessu vori.
— Umboðsdómari
Framhald af bls. 2
neytið, að sérstökum umboðsdóm-
ara yrði falin meðferð máls þessa,
svo að rannsókn þess gæti farið
fram með nægilegum hraða. Að
sögn Ólafs Walters, deildarstjóra
í dómsmálaráðuneytinu, starfar
slíkur umboðsdómari algerlega
sjálfstætt og í hverju Þvi umdæmi
á landinu, sem hann telur þörf á
vegna rannsóknarinnar.
Hrafn Bragason hefur starfað
hjá borgarfógetaembættinu í
Reykjavík í 11 ár, eða allt frá því
að hann lauk embættisprófi í lög-
fræði frá Háskólanum, en hann
hefur einnig numið í Osló og
Bristol í grein sinni. Hann varð
borgardómari 1972, en hafði áður
starfað sem fulltrúi og sfðan sem
aðalfulltrúi þar til hann var skip-
aður dómari. Hrafn hefur áður
fengizt við rannsóknir, þó að ekki
hafi það verið á sviði sakamála, og
Hrafn var dómari í hinum um-
fangsmiklu meiðyrðamálum út af
undirskriftasöfnun Varins lands
á sínum tíma.
- Vill hagstæðari
Framhald af bls. 28
greiddi þær kröfur, sem lægju til
grundvallar uppboðsbeiðninni,
sem allra fyrst og kvaðst nann
gera það einnig vegna þess
sjónarmiðs, að hann væri einnig
verjandi uppboðsþola i þvi saka-
máli, sem höfðað er á hendur hon-
um og kennt hefur verið við
Klúbbinn. Sagði Ingi að greiðsla
þessara skulda yrði jákvætt inn-
legg í það mál, ef hægt yrði að
gera upp þessa uppboðsskuld.
Ingi kvað það vera rétt, sem
áður hafi komið fram í Morgun-
blaðinu að áfrýjunin hafi átt sér
stað vegna þess að ágreiningur
hafi orðiö um uppboðsskilmála.
Var krafizt rýmri uppboðsskil-
mála en almennra uppboðsskil-
mála. Ingi Ingimundarson kvað
slikt mál áður hafa komið fyrir og
væri til um þetta sérstakur hæsta-
réttardómur, sem felldur var
fyrir allmörgum árum. Morgun-
blaðið spurði Inga, hvaða atriði i
skilmálunum hafi orðið
ágreiningsefni og kvaðst hann
ekki geta skýrt það f stuttu máli.
Meginatriði málsins var að óskað
var eftir hagstæðari greiðsluskil-
málum fyrir hugsanlegan upp-
boðskaupanda heldur en eru i
hinum almennu skilmálum.