Morgunblaðið - 02.09.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976
I Jósmynd Ól.K.M.
GÖNGUGATAN — Austurstræti er vinsæll útivistarstaóur á sólríkum dögum. Þá
er þar oft margt um manninn eins og á þessari mynd, þar sem ungt fólk situr
makindalega og lætur fara vel um sig í sólinni.
Hvergi
sést
snjór á
Fjöllum
Grímsstöðum, 1. september—
IIEYSKAP er lokið að fullu.
Vegna óvenjumikilla þurrka var
spretta seint á ferðinni. Heyskap-
ur hófst hér upp úr 20. júlf. Var
spretta sæmilega góð, einkum á
raklendum túnum. Hey eru með
górði nýtingu. Sumarið hefur
verið mjög hlýtt og sólríkt.
Hér á Grímsstöðum hafa staðið
yfir miklar framkvæmdir í
sumar. Tveir ungir bændur eru
að byggja 800 kinda fjárhús með
áburðarkjallara vélgengum. Eru
þetta steinsteypt hús og er verkið
vel á veg komið, því að nú er farið
að vinna við þakið. Vinnuflokkur
frá kaupfélaginu á Kópaskeri sér
um verkið. Einnig fjármagnar
kaupfélagið bygginguna þar til
lánið fæst.
Þá er unnið að nýrri vatnslögn
fyrir öll ibúðarhúsin og útihús.
Skurðgrafa hefur verið hér við
gerð framræsluskurða vegna tún-
ræktar. Gróf hún um 7 km af
skurðum. Umferð hefur verið
mikil i sumar en er nú í rénum.
Göngur hefjast hér um miðjan
september. Sauðfé er lítið komið í
heimahaga. Því veldur góða tíðin.
Nú sést hvergi snjór í fjöllum
og er það mjög óvenjulegt.
Benedikt
Sjö manns sýna á Septem-
sýningunni að þessu sinni, 6
málarar og einn myndhöggvari.
Sýnendur eru Valtýr Péturs-
son, ióhannes Jóhannesson,
Karl Kvaran, Guðmunda Andr-
ésdóttir, Þorvaldur Skúlason,
Kristján Davíðsson og Sigurjón
Ólafsson. Alls verða á sýning-
unni, sem verður i kjallara
Norræna hússins, rúmlega 60
myndir, sem allar verða til sölu.
Valtýr Pétursson sagði, að
gaman gæti verið fyrir þá, sem
skoðuðu einkasafn Gunnars
Sigurðssonar, að koma á þessa
sýningu, því að sýnendur hefðu
átt þar 30 til 40 ára gamlar
„Hótum að halda
áfram að sýna”
segir Valtýr Pétursson, en Septem
sýning hefst á laugardaginn
„ÞEGAR við byrjuðum að sýna
1946 skammaði gamla fólkið
okkur, en nú skammar unga
fólkið okkur. Því er ekki nema
eðlilegt að við spvrjum: Hvar
er okkar tími?“ Þannig fórust
Valtý Péturssyni listmálara
orð, er Mbl. spurði hann I gær
um þriðju Septem-sýninguna,
sem opnuð verður næstkom-
andi laugardag. Hefur Septem-
sýning verið haldin árlega nú í
3 ár. En þrátt fyrir allar
skammir „hótum við að halda
áfram að sýna,“ sagði Valtýr.
myndir. Síðan hefðu þeir þró-
azt sem málarar hver í sína átt,
hefðu „sjóast" í listinni og fyrir
löngu hlotið persónulega mót-
un sem listamenn. Þá sagði Val-
týr, að forsendur fyrir þessum
Septem-sýningum væru tals-
vert svipaðar og þær voru 1946.
Sýnendur vildu leggja áherzlu
á málverkið sjálft eða listaverk-
ið sjálft.
Valtýr Pétursson er nú for-
maður Septem-hópsins, en við
formennsku hefur hann nýlega
tekið af Þorvaldi Skúlasyni.
Með um milljarðí lestum
ÍSLENZK flutningaskip
hafa undanfarið flutt mjög
verömæta freðfiskfarma til
Bandaríkjanna og er verð-
mætasti farmurinn nokkuð
yfir 900 millj. kr„
Benedikt Guðmundsson
V arúðarráðstafanir
frekar en ótti við
smit af hundaæði
VITAÐ er, að einhverjir Islend-
ingar voru staddir í grennd við
Wiesbaden í Vestur-Þýzkalandi,
er þar varð vart við hundaæði á
dögunum. Hefur verið reynt að
hafa uppi á þessu fólki, en það
fulltrúi hjá Sölumiðstöð
hraðfyrstihúsanna tjáði
Morgunblaðinu í gær að í
byrjun ágúst hefði Goða-
foss farið með farm að
verðmæti 940 millj.kr. cif.
og í júnímánuði hefði skip-
ekkí enn gefið sig fram. I viðtali
við Olaf Ólafsson landlækni í gær
sagði hann, að þeir, sem hefðu
verið þarna á tímabilinu 16.—25.
ágúst, væru eindregið hvattir til
að hafa samband við viðkomandi
héraðslækni. Ástæðan til þessa
þryfti ekki endilega að vera að
menn óttuðust, að fólk þetta
gengi með smit, heldúr værí þetta
fyrst og fremst gert af varúðar-
ráðstöfunum.
ið farið með fisk að verð-
mæti 840 millj. kr. Þá var
Hofsjökull að leggja af stað
með fiskfarm að upphæð
840 millj. króna.
— Þetta eru verðmæt-
ustu fiskfarmar sem fluttir
hafa verið úr landinu í
krónum talið, en verið
getur, að einhver farmur
hafi verið verðmætari ef
miðað er við dollara. Ég á
von á að Goðafoss flytji
brátt fisk að verðmæti 1
milljarður, en hann er
stærsta frystiskipið sagði
Benedikt.
„Ég er ekki
lögfróður maður”
— segir Stefán Björnsson for-
stjóri Mjólkursamsölunnar
SAMTÖK fólks, scm vinna gegn
lokun mjólkurbúða, Kaupmanna-
samtök Islands og ASB, félag af-
greiðslustúlkna f brauða- og
mjólkurbúðum, hafa öll látið í
Ijós þá skoðun, að þótt einkaleyfi
Mjólkursamsölunnar sé afnumið
með hinum nýju mjólkursölulög-
um, þá sé samsölunni þar með
ekki bannað að selja mjólk til
neytenda eins og fram kom f máli
forystumanna Mjólkursamsöl-
unnar á blaðamannafundi um
málið nýlega.
Morgunblaðið hafði í gærdag
samband við Stefán Björnsson for
stjóra Mjólkursamsölunnar, og
spurði um þetta atriði frekar.
Stefán Björnsson sagði að hann
væri ekki lögfróður maður, en
hann hefði skilið lögin á þann
veg, að samsölunni væri ekki
heimilt að selja mjólk í smásölu
eftir breytinguna. Þó sagðist
Stefán gera ráð fyrir því að
Mjólkursamsalan myndi fá leyfi
sem aðrir, ef hún sækti um. En
„við verðum að fá lagaheimild til
þess,“ — sagði Stefán, er hann
var spurður að því, hvort Mjólk-
ursamsalan myndi ef til vil fresta
lokun einhverra mjólkurbúða,
svo að allar konurnar yrðu ekki
atvinnulausar í einu.
En Stefán spurði: Hverjar eru
þessar konur, sem verða atvinnu-
lausar? Hvað gera kaupmenn? Ég
veit það ekki ég vil ekki vera með
neinar hrakspár. Eg býst ekki við
að komi til neinna vandræða eftir
1. febrúar, þótt menn láti svo nú.
Það væri þá mikið viljaleysi til að
leysa vandamálið. Þessi nýju lög
hafa verið til umræðu í þinginu í
2 ár og þar hafa menn þæft um
þau. Enginn sagði neitt þá — eng-
inn kemur fram á sjónarsviðið
fyrr en nú. „Við vissum ekki bet-
ur en kaupmenn og neytendur
væru á móti okkur og að þetta
væru þeirra óskir.“
Reykjavíkurskákmótið:
r
Urslitaskákin
telfd í kvöld?
I GÆRKVELDI var tefld 7. um-
ferð Reykjavfkurskákmótsins og
eru úrslit sem hér segir: Timman
vann Guðmund Sigurjónsson,
Keene vann Helga Olafsson og
Vukcevic vann Inga R. Jóhanns-
son. Friðrik vann Björn og Vest-
erinen vann Gunnar, en jafntefli
verð hjá Margeir Péturssyni og
Hauki Angantýssyni. Skák Tuk-
makovs og Matera fór i bið og
sömuleiðis skák Antoshin og Naj-
dorfs.
Skák Guðmundar og Timmans
var fjörleg framan af, en eftir
mistök Guðmundar náði Timman
afgerandi yfirburðum og vann ör-
ugglega. Inga R. varð á óná-
kvæmni snemma í skákinni gegn
Vukcevic og átti sér aldrei við-
reisnar von eftir það. Skák Helga
og Keene var mikil baráttuskák,
þar sem Englendingurinn hafði
frumkvæðið allan tímann. Hann
vann skiptamun, en undir lokin
missti Helgi af jafnteflisleið og
tapaði.
Björn Þorsteinsson hafði lengi
góða stöðu gagn Friðrik, en lék
ónákvæman leik og gerði Friðrik
þá út um skákina á snaggaralegan
hátt. Vesterinen hélt lengst af
uppi harðri sókn gegn Gunnari og
vann laglega. Margeir fékk betra
tafl út úr byrjuninni gegn Hauki,
en Haukur náði sterku mótspili,
sem færði honum peð. Það dugði
þó ekki til vinnings.
1 næstu umferð sem tefld verð-
ur í kvöld, tefla þeir Friðrik og
Timman og virðist flest benda til,
að þar verði um úrslitaskák móts-
ins að ræða.
Hvítt: Timman
Svart: Guðmundur Sigurjóns-
son Kóngsindversk vörn.
1. e4 — g6, 2. d4 — Bg7, 3. c4 —
d6, 4. Rc3 — Rd7, 5. Rf3 — e5, 6.
Be2 — Rgf6, 7. O—O — 0—0, 8.
Hel — c6, 9. Bfl — a5, 10. Hbl —
He8, 11. d5 — Rc5, 12. b3 — Dc7,
13. Rd2 — Bg4, 14. Be2 — Rd3, 15.
Bxg4 — Rxg4, 16. Hfl — f5, 17.
Df3 — Rcxl, 18. Hbxcl — Bh6, 19.
Hcdl — Dd7, 20. c5 — Bf4, 21. g3
— Bxd2, 22. Hxd2 — fxe4, 23.
Rxe4 — Hf8, 24. De2 — dxc6, 25.
dxc6 — Df5, 26. cxb7 — Hab8, 27.
f3 — Rf6, 28. Dc4+ — Kh8, 29.
Rd6 — Dh3, 30. Rf7+ — Kg7, 31.
Rg5 — svartur gafst upp.
Orgeltónleikar
Marteins Hungers
í Kaupmannahöfii
LAUGARDAGINN 4. sept. mun
Marteinn Hunger Friðriksson,
organleikari við Háteigskirkju í
Reykjavík, halda tónleika i St.
Pálskirkju í Kaupmannahöfn. Á
efnisskrá verða verk eftir Pál
ísólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson,
Mendelssohn, Bach og Franck.
Aðgangur verður ókeypis.
H. TIMMAN