Morgunblaðið - 02.09.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976
23
Haraldur V. Ólafsson:
Ævintýrið
í Hveragerði
GlSLI Sigurbjörnsson, forstjóri
Elli- og hjúkraunarheimilisins
Grundar, brautskráðist úr
Verslunarskóla Islands vorið
1927. Fyrir nokkrum árum tók
hann upp þann sið að bjóða göml-
um Verslunarskólanemendum,
sem brautskráðst höfðu árið 1927
eða fyrr, einu sinni á ári til kaffi-
samsætis að Grund. Þannig hef ég
haft þá ánægju að vera í boði
Gísla árlega síðastliðin 6 ár ásamt
brautskráðum skólafélögum mín-
um. Þessar samverustundir hafa
verið alveg sérstaklega ánægju-
legar þar sem þarna höfum við
fengið tækifæri til að hitta gömul
skólasystkini sem þekktu svo vel
gömlu Reykjavík áður en hún
breyttist I borg nútímans. T.d.
voru viðstaddir síðast Hafsteinn
Bergþórsson, brautskr. 1909, Árni
Öla rithöfundur, brautskr. 1910,
Jón tvarsson, fyrrv. forstj.,
brautskr. 1916, o.fl. Þannig hygg
ég að ég geti mælt fyrir munn
okkar skólafélaga sem braut-
skráðumst úr Verslunarskólanum
vorið 1920, þegar ég segi, að við
höfum allir notið mjög þessara
árlegu samverustunda. Eins tel ég
að við séum sammála um að það
veganesti sem Verslunarskólinn
gamli gaf okkur áður en við lögð-
um út í lífið hafi reynst okkur
öllum vel, enda hefur Verslunar-
skólinn verið óskabarn okkar
allra.
Á siðastliðnu vori gat Gísli
Sigurbjörnsson þess við okkur að
hann langaði til að bjóða okkur til
Hveragerðis til þess að sýna okk-
ur hvað gert hefði verið í málum
gamla fólksins þar austur frá.
Eftir þvi sem mér er tjáð, mun
faðir Gísla, sr. Sigurbjörn Gisla-
son, hafa ásamt fjórum öðrum
stofnað Elli- og hjúkrunarheimil-
ið Grund við Kaplaskjólsveg í
Reykjavík. Sagðí Ólafur Sigurðs-
son forstjóri frá Akranesi mér að
hann hefði sem ungur strákur
stundum farið með Hreini Páls-
syni skipstjóra, söngvara og síðar
forstjóra til þess að skemmta
þessu gamla fólki þar vestur frá.
Frumhugsjón þessara manna
hefur svo Gísli helgað líf sitt eins
og sjá má í þeirri glæsilegu starf-
semi sem fram fer að Grund í
Reykjavík og að Ási og Ásbyrgi í
Hveragerði.
Heimsókn okkar til Hvera-
gerðis var svo farin 13. ágúst s.l.
og fórum við saman 35 eða 36.
Gísli tók á móti okkur í húsi sínu
og fór með okkur strax í
kynningarferð um staðinn. Verð
ég að segja að þetta er heimur
sem ég er viss um, að mikill hluti
landsmanna hefur ákaflega óljósa
hugmynd um. Að minnsta kosti
var ég agndofa yfir umfangi og
myndarskap þeirrar starfsemi
sem þarna fer fram og er það
glöggur vitnisburður um heillda-
drjúgt sambland hugsjóna og
framkvæmda- og fjármálavits
Gísla Sigurbjörnssonar, þess
manns sem stendur að baki allrar
þessarar starfsemi.
Dvalarheimilið Ás/Asbyrgi í
Hveragerði tók til starfa 26. júli
1952. Lagði Árnessýsla til fjórar
húseignir til starfseminnar
endurgjaldslaust og voru gerðir
samningar þar um. Hefur Elli- og
hjúkrunarheimilið Grund reist og
keypt 37 húseignir, reist gróður-
hús og trésmíðaverkstæði og
keypt lóðir til starfseminnalr.
Hefur verið komið upp talsverðri
,Verjum
,0Bgróóur]
verndum'
lancHggf
garð- og gróðurhúsarækt þar sem
vistmenn heimilisins hafa að-
stöðu til að nýta krafta sína og
verja tíma sínum til jákvæðra
framleiðslustarfa. Sem dæmi um
frjótt hugmyndaflug Gisla og um-
hyggju hans fyrir velliðan vist-
manna má benda á, að gróðurhús-
um dvalarheimilisins er svo
haganlega fyrir komið, að gólfin
iiggja talsvert lægra en beð eða
vinnufletir húsanna, þannig að
gamla fólkið þarf mjög litið að
beygja sig við vinnu sína.
Grundvallarhugmyndin að baki
dvalarheimilisins á Hveragerði er
að vistmenn geti verið eins sjálf-
stæðir og frekast er unnt, en samt
notið allrar sameiginlegrar
þjónustu, ef og þegar þeir vilja.
Einnig er ofangreind vinnuaðstða
fyrir þá vistmenn, sem hafa vilja
og þrek til, mjög mikilvægur
þáttur starfseminnar. Fjöldi vist-
manna í hverju húsi er breyti-
legur eftir stærð þeirra, eða frá
fjórum og upp í tíu að jafnaði. I
húsum sinum hafa vistmenn að-
stöðu til að sjá um sig sjálfir að
nokkru leyti og fá til sin gesti og
veita þeim o.s.frv. Er allt efni lagt
til af dvalarheimilinu. Svo fá þeir
aðalmáltíðir i sameiginlegum
matsölum, en sameiginleg matar-
aðstaða er á þremur stöðum. Hug-
myndir Gísla eru fólgnar í því að
alveg eins og hinn vinnandi
maður þjóðfélagsins vill njóta
friðsams kvölds að loknu dags-
verki, eigi fólk skilið að njóta
friðsæls og áhyggjulauss ævi-
kvölds. Og Gísli heldur því fram,
að ekkert sé of gott á ævikvöldi
fyrir fólk sem er búið að vinna
mikið allt sitt lif. Ef til vill er
erfitt að uppfylla þau skilyrði bet-
ur en á Dvalarheimilinu
Ás/Ásbyrgi í Hveragerði, þar sem
óskum eldra fólks um sjálfstæði,
sjálfsforræði og vinnuaðstöðu er
fullnægt eins og frekast er unnt,
jafnframt því sem öll nauðsynleg
samhjálp er veitt og áhyggjum og
erfiði þannig létt af gamla
fólkinu.
Fyrsta árið voru vistmenn 13,
en nú eru þeir 194, 105 konur og
89 karlar. Um næstu áramót
verða vistplássin orðin samtals
214. ÖIl starfsema dvalarheimilis-
ins er á ábyrgð Grundar, og það
sem ef til vill ætti að koma flest-
um á óvart nú á tímum opinberr-
ar forsjár á öllum sviðum, er, að
dvalarheimilið nýtur engra
styrkja og hpldur ekki neinna
gjafa. Segir það talsvert um
fjármálasnilld Gísla Sigurbjörns-
sonar. Ekkert er samt til sparað
til þess að halda umhverfi öllu
sem snyrtilegustu, og eru garðar
allir og umhverfi til fyrirmyndar.
Er hvarvetna sama snyrti-
mennskan og myndarskapurinn
og sjá má umhverfis Elli- og
hjúkrunarheimalið Grund í
Reykjavík.
Enn er ein starfsemin að Ási og
Ásbyrgi í Hveragerði, sem væri
efni í heila blaðagrein og verða
því engin skil gerð hér, en það er
rannsóknarstarfsemi margs kon-
ar sem fer fram í Rannsóknar-
stofnun Neðri-Áss og á vegum
hennar. Ekki væri ég hissa þótt
árangur þeirrar starfsemi ætti
eftir að hafa mikla þjóðhagslega
þýðingu á einhverjum sviðum, en
oft og tiðum er erfiðasti þröskuld-
ur á vegi hagnýtingar slíkra rann-
sókna skilningsleysi og kjarkleysi
ráðamanna, sem skortir oft
víðsýni og framsýni þeirra fram-
kvæmdamanna, sem hugsa stórt.
Eitt af því sem Gisli sagði i spjalli
sinu við okkur, finnst mér segja
nokkuð um viðhorf hans til fram-
taks og áræðni: „Manni miðar
alltaf annaðhvort áfram eða aftur
á bak: Kyrrstaða er ekki til.“
Að lokum vil ég óska Gísla til
hamingju með hinn ríkulega
ávöxt ævistarfs hans, og er ég
þess fullvíss, að á meðán hans
nýtur við miðar starfsemi þeirri,
sem ég hef lýst, fram um veg.
Kyrrstaða, sem hjá Gísla merkir
afturför, er ekki á dagskrá hjá
honum.
— Kvikmyndir
Framhald af bls. 21
ENTEBBE. Verið er að leggja
síðustu hönd á handritið.
Og að lokum, þá er 20th —
Fox TV byrjað á fyrstu sjón-
varpskvikmyndinni af at-
burðunum, og á að frumsýna
hana um jólin
FRETTAPUNKTAR
0 Eftir alllangt hlé frá kvik-
myndaleik er Steve McQueen
nú aftur á fullri ferð. Næsta
verkefni sem hann hefur valið
sér, er svo sannarlega ekki af
verri endanum, nefnilega aðal-
hlutverkið I ÞJÓÐNlÐING
Ibsens. Hans eigið kvikmynda-
framleiðslufyrirtæki, Solar
Productions, kostar myndina,
svo Steve fær vafalaust að ráða
þvl sem hann vili. Hin kunna,
sænska leikkona Bibi Anderson
og Charles Durning fara með
önnur aðalhlutverk. George
Schaefer leikstýrir mynd-
gerðinni, sem byggð er á
þýðingu Arthur Millers á hinu
sígilda drama Ibsen.
0 Langvinsælasta myndin á
þessu ári verður að öllum
likindum hrollvekjan frá 20th
Century Fox THE OMEN. Hún
slær nú öll aðsóknarmet þar
vestra, og er talin komast í hóp
tíu vinsælustu mynda, allra
tíma. Efnisþráðurinn er ekki
ósvipaður og í THE EX-
ORCIST, nema að THE OMEN
þykir öllu vandaðri mynd, með
fáum, ódýrum bellibrögðum.
Með aðalhlutverkin fara þau
Gregory Peck og Lee Remick.
David Warner óg Billie White-
law fara með minni hlutverk.
Richard Ðonner leikstýrir.
0 Enn kemur gamla kempan
John Wayne á óvart. I nýjustu
mynd sinni, THE SHOOTIST,
þykir hann sýna langglæsi-
legastan leik á sínum fjörutíu
ára ferli. I myndinni leikur
hann skotmann (gunfighter),
sem þjáist af krabbameini og
bíður dauða síns í litlu þorpi.
Myndin fjallar reyndar um
síðustu sjö dagana i lífi þessa
manns, sem þegar er orðinn að
þjóðsögu sökum hæfileika
sinna.
Gamli byssubófinn reynir að
nota þessa fáu daga til að koma
ævilöngum hugsjónum sínum i
verk, áður en það er um seinan.
En það eru margir sem ætla að
nota síðasta tækifærið til að
græða á frægð hans, svo að
hinzta vikan verður ærið við-
burðarík. Með önnur aðalhlut-
verk fara þau Laureen Bacall.
James Steward, Richard
Boone, Hugh O'Brian, Harry
Morgan, John Carradine og
Sheree North. Leikstjórinn er í
höndum annars gamalreynds
„vestrasérfræðings", Don
Siegel. Tveir aðrir koma reynd-
ar við sögu, tónskáldið Elmer
Bernstein og kvikmyndatöku-
maðurinn Bruce Surtees, en
báðir hafa þeir bætt margan
vestrann með listfengni sínu á
þessu sviði.
0 Hinn sjaldséði ágætisleikari
Álan Arkin virðist nú ætla að
snúa sér að mestu leyti aó leik-
stjórn í framtíðinni. Hann vinn-
ur þessa dagana að myndinn
FIRE SALE, og tvær aðrar
myndir, sem hann mun leik-
stýra, eru á döfinni.
0 Og enn eigum við von á að
sjá nýja útgáfu af AIRPORT,
þeir hjá Universal virðast ekki
álita að þeir séu búnir að slíta
hugmyndinni. Nú verður það
Jack Lemmon sem fer með
aðalhlutverkið, ásamt Lee
Grant. Ósköpin nefnast AIR-
PORT 77. Þá hefur sama fyrir-
tæki ákveðið að gera fram-
haldsmynd eftir JAWS, og heit-
ir því JAWS II. Fram-
leiðendurnir, Zanuck/Brown,
hafa fengið ekki ómerkari
mann en leikritaskáldið og
Pulitzer verðlaunahafaann
Howard Sackler (THE GREAT
WHITE HOPE) til að skrifa
handritið. Roy Scheider hefur
gengizt inn á að leika lögreglu-
stjórann á nýjan leik, Það er
langt til New York...
(Heimildir: ACTION, VARI-
ETY, THE INDEPENDENT
FILM JOURNAL)
HEIMILISTÆKI
HAFNARSTRÆTI 3
SÆTÚNI 8
1oqc5
sfemmalega bjarc
með philips