Morgunblaðið - 02.09.1976, Blaðsíða 36
Al (.LÝSINí;ASÍMINN KR:
22480
3flot0unblní>i&
AUGLÝSINGASIMINN ER:
22480
iWoröunblfltiiti
FIIVIIVITUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976
haugana, einnig á verkstæði það,
sem hann hafði Iátið smíða lykil
að fbúðinni að Miklubraut og á
fatahreinsun, þar sem hann hafði
látið hreinsa jakka, sem hann var
f, er hann framdi verknaðinn.
Ástæðu þess að Asgeir varð
Lóvfsu að bana, segir hann vera
þá, að hún hafi komið að honum,
Framhald á bls. 20
• MAÐURINN, sem úrskurð-
aður var f 30 daga gæ/luvarðhald
vegna rannsóknar á morðinu á
Lovfsu Kristjánsdóttur í íbúð að
Miklubraut 26 í Reykjavfk sl.
fimmtudag, játaði f gær að vera
valdur að dauða hennar. Maður-
inn heitir Ásgeir Ingólfsson til
heimilis að Reynimel 84, f
Reykjavfk, 42 ára að aldri. Asgeir
kom i gærmorgun boðum til v-
þýzka rannsóknarlögreglumanns-
ins Karls Schiitz, að hann vildi
fá að ræða einsleiga við hann. I
samtali þeirra játaði Asgeir
verknaðinn og f framhaldi af þvf
var tekin skýrsla af Asgeiri, þar
sem hann játaði verknaðinn.
Vísaði Ásgeir sjálfur á verkfæri
það, sem hann hafði notað við
verknaðinn og hann kastað á sorp-
Eru bún-
ir að salta
1800 tunn-
ur á Höfn
UM áttahundruð tunnur af
reknetasfld bárust til Hafnar f
Hornafirði í gær og hefur afli
reknetabáta, er leggja þar upp
glæðzt verulega sfðustu tvo til
þrjá dagana. Sögur berast nú
af mikilli sfld vfða meðfram
suður- og austurströndinni.
T.d. er nú mikil sfd við Vest-
mannaeyjar. Söltun hófst á
Höfn f Hornafirði fyrir 5 dög-
um og er nú búið að salta á
milli 1700 og 1800 tunnur.
Ekkert verð er enn komið á
saltsfdina.
Jens Mikaelsson verkstjóri í
frystihúsinu á Höfn sagði þeg-
ar Morgunblaðið ræddi við
hann i gær, að nokkrir rek-
netabátanna hefðu þá verið
með góðan afla. Steinunn SH
var með 155 tunnur, Akurey
SF var með 121 tunnu, Sax-
Framhald á bls. 20
Morðið við Miklubraut:
Játaði fyrir
Karli Schiitz
Konan kom að þar sem hann var að fjarlægja verðmæti úr íbúðinni
Lovfsa Kristjánsdóttir.
Karl Schutz:
Ljósmynd ÓI.K.M.
Á FERÐ MEI) BORUARSTJÓRA — Blaðamönnum var í gær boðið í skoðunarferð um Reykjavíkur-
borg með Birgi Isleifi Gunnarssyni borgarstjóra. Var víða komið við, en þessi mynd var tekin í
Ræktunarstöðinni í I.augardal, þar sem Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri útskýrði starfsemina. Á
míðopnu blaðsins er nánar greint frá skoðunarferðinni.
„Tel mögulegt að Geir-
íinnsmálið upplýsist”
Segir þó líkurnar hafa verið meiri, ef hann hefði verið kvaddur til fyrr
% IIIN tæknilega hlið sakamála-
rannsókna er á eftir tímanum
hér á landi og tæknideild rann-
sóknarlögreglunnar er illa undir
það búin að takast á við meiri-
háttar afbrotamál í Ifkingu við
þau sem rekið hafa hvert annað
hér undanfarið, sagði v-þýzki lög-
reglumaðurinn Karl Schiitz f gær-
dag við íslenzka blaðamenn, en
hann sat blaðamannafund Saka-
dóms Reykjavfkur vegna morð-
málsins við Miklubraut. Sagði
Schútz að mestra úrbóta væri þörf
á þcssu sviði. Ilann vildi lítið
ræða um rannsókn sína á Geir-
finnsmálinu svonefnda, þar sem
það væri enn á rannsóknarstigi.
Hann kvað þó geysilega vinnu
vera lagða í þetta mál, en erfitt
væri um vik að mörgu leyti vegna
þess hversu langt væri liðið frá
atburðinum og þar af leiðandi litt
hægt að beita tæknilegum aðferð-
um. Schútz sagði þó að hann teldi
engu að sfður enn möguleika á
því að upplýsa mætti Geirfinns-
málið að fullu.
• TÆKNIHLIÐIN
A EFTIR TÍMANUM
Karl Schútz var í upphafi
spurður að því hvernig honum
þætti að vinna hér hjá rann-
sóknarlögreglunni. Schútz lýsti
ánægju sinni með samstarfið við
starfsmenn sakadóms og rann-
sóknarlögreglu. „Mér finnst and-
rúmsloftið hér mjög gott og ég hef
hér mætt sérlega vingjarnlegu
viðmóti hjá öllum, sem ég hef
þurft að skipta við,“ sagði Schútz.
Hvað Miklubrautarmálið snerti
kvaðst hann aðeins hafa liðsinnt
rannsóknarlögreglumönnum og
eftir að hafa unnið með þeim
komizt að raun um, að þeir væru
sérlega dugandi og samvizkusam-
ir starfsmenn, sem lagt hefðu nótt
við dag til að upplýsa málið.
Morgunblaðið spurði Schútz,
Framhald á bls. 20
Þjöðverji
beið bana
í fjallgöngu
á Heklu
VESTUR-Þjóðverji beið bana í
gær er hann hrapaði f f jallgöngu f
Hekluhlfðum, þar sem hann var
við þriðja mann. Annar félagi
hins slasaða fór að leita hjálpar,
en hinn varð eftir hjá honum.
Varnarliðið sendi sfðan þyrlu á
vettvang og flutti hinn slasaða f
Borgarspítalann, en áður en hann
kom þangað var hann látinn af
brjóstholsáverka.
Þjóðverjarnir þrír voru að
ganga á Heklu og voru komnir
upp á öxl fjallsins austanmegin.
Varð þá það slys, að einn þeirra
hrapaði í sprungu, sem Mbl. tókst
ekki í gær að afla sér upplýsinga
um hvort var íssprunga eða jarð-
sprunga. Gerðist þetta snemma i
gærmorgun. Annar félagi hins
slasaða fór þá að sækja hjálp, en
hinn varð eftir á fjallinu. Gekk
maðurinn, sem fór eftir hjálp,
Framhald á bls. 20
Framkvæ m dahraði tekinn
fram yfir rannsóknaþáttinn
„ÞAÐ ER enginn vafi á að á
Kröflusvæðinu er nægileg orka
og fyrr eða síðar heppnast þar
hola. Eru þá Ifkur á að þær muni
heppnast hver á fætur annarri,"
sagði Sveinbjörn Björnsson eðiis-
fræðingur hjá Raunvfsindastofn-
un Háskólans. „Hins vegar hefði
þurft mun betra næði til þess að
rannsaka niðurstöður hverrar
borunar en gefizt hefur. Öll
áherzla er lögð á að flýta fram-
„Boranir munu takast fyrr eða siðar”
kvæmdum og koma virkjuninni f
gang sem fyrst.“
Sveinbjörn sagði, að menn
hefðu dempt sér í virkjunarbor-
anir og borað væri í 24 klukku-
stundir á dag með tveimur bor-
um. Þessum vinnubrögðum kvað
hann fylgja sú staðreynd, að
reynsla af borun kæmi ekki að
haldi fyrr en i þriðju holu næst á
eftir. Byrjað væri á nýrri holu,
þegar hola er hálfboruð. Þetta
hefur í för með sér að fleiri árang-
urslausar boranir verða en skyldi.
Við boranir hefðu menn einu
sinni hitt á góðan stað, þar sem
hola númer 4 var, en hún sprakk
upp eins og kunnugt er. Hola
númer 3 var einnig sæmileg, eja
spilltist, þegar gosið varð í Leir-
hnúk. Hola númer 6 er orðin
feikilega heit, en virðist vera í
þéttu bergi. Þýðir það að menn
verða að flytja sig aftur inn á
svæðið þar sem búizt er við betri
vatnsleiðni í jörðinni. Bæði hola 7
og 8 eru þar.
Sveinbjörn Björnsson sagði að-
alvandann við Kröflufram-
kvæmdirnar vera að menn hefðu
ætlað að sleppa mjög mikilvægum
Framhald á bls. 20