Morgunblaðið - 02.09.1976, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976
16
Sunnlenzkir bændur heimsóttir við heyannir:
HVORT sem menn vilja taka mark
á þeirri gömlu trú að á höfuðdegi
breytist veður, verður því ekki I
móti mælt, að á þessu sumri,
breyttist veðráttam einmitt þá
Bændur á sunnan og vestanverðu
landinu hafa nú haft þurrk það
sem af er þessari viku og hafa þeir
unnið kappsamlega að því að ná
inn þeim heyjum, sem mögulegt
er að ná inn og bjarga þanmg þvi,
sem hægt er Blaðamaður Mbl
heimsótti í gær nokkra bændur á
Suðurlandi og ræddi við þá og fara
samtölm við þá hér á eftir
Sú jón, sem blasti við blaðamann-
inum á ferð hans var víða næsta
ófögur, gulir mðurrigndir múgar og
lanir umflotnar vatni Þar sem unmð
var að því að rifa upp gamla múga
lagði fnykmn af ornuðu og mygluðu
heyi að vitum En tökum fyrsta
bóndann tali
Á TAKMÖRKUM AÐ
KÝRNAR MJÓLKI
FYRIR FÓÐURBÆTINUM
— Þetta hey sem við erum að
binda nú er búið að liggja flatt i 4
vikur, en hér hefur ekki gert þurrk
frá því um verzlunarmannahelgi þar
til um siðustu helgi Heyskapur í
sumar hefur gengið afskaplega stirð-
lega og þurrkdagarmr ná því ekki
einu sinni að vera 10, sagði Guð-
mundur Þórðarson, bóndi í Kil-
hrauni á Skeiðum. þegar við hittum
hann, þar sem h.inn var ásamt fólki
sínu að viðnna við samantekt á heyi
Það setti nokkuð strik í reikning-
inn hjá Guðmundi að bindivélm á
staðnum var biluð, en von var á
viðgerðarmanni frá Reykjavik innan
tíðar Atvik af þessu tagi minnir
okkur óneitanlega á þá miklu tækni
væðmgu, sem orðið hefur i islenzk
um landbúnaði á síðustu árum Vél-
arnar verða flóknari með hverju ár
inu sem liður, og þær mynda nær
óslitna keðju frá þvi að grasið er
slegið þar til því hefur verið komið
fyrir í hlöðu
— Hér um slóðir eru menn vissu-
lega komnir mislangt á veg með
heyskapmn, en allir eiga þó eitthvað
eftir og þess eru dæmi að menn séu
ekki búnir að ná einu einasta strái i
hlöðu, segir Guðmundur
En hvernig eru heym, sem náðst
hafa? er næsta spurning, sem við
berum fram
— Þau eru ekki góð, því að
megnið af heyjunum er hrakið og úr
sér sprottið Ég hef til dæmis ekki
náð inn tuggu. sem ekki hefur rignt
í Heyin, sem náðust i júlí, voru að
visu sæmileg, en það er Ijóst að
kjarnfóðurgjöf verður mikil með
þessum heyjum, þvi þau eru rýr að
fóðurgildi
— Nytin í kúnum hefur líka fallið
vegna veðráttunnar og það er ekki til
að bæta ástandið Kýrnar mjólka
ekki af þessum heyjum, sem nú hafa
náðst, nema þær fái kjarnfóður með
og þar duga ekki litlir skammtar I
fyrravetur var það á takmörkum að
kýrnar mjólkuðu fyrir fóðurbætin-
um, sem þær þurftu, þannig að
bændur þola ekki að fá annan slíkan
vetur
— Ég á eftir að koma um þriðj
ungnum af minum heyjum í hlöðu
en ég er búinn að slá allt Túnin eru
bara það blaut, að það er illmögu-
legt að komast um þau, og ég man
ekki eftir, að hér hafi tún verið
jafnblaut fyrr, sagði Guðmundur að
lokum
Við kvöddum Guðmund og fólk
hans og vélgnýrinn tók völdin á ný
Það er sama sjónin, sem hvarvetna
blasir við, hey umflotið vatni og
gulir múgar á grænum túnum A
ferð okkar um sveitirnar veitum við
þvi athygli hversu viða bændur nota
tvær snúningsvélar eða svonefndar
fjölfætlur til að snúa heyinu Þann
hátt hafa þeir einmitt á bændurnir í
Miklaholtshelli í Hraungerðishreppi,
Einar og Bjarni Eiríkssynir
FÁ EKKI NÆGJANLEGT
RAFMAGN TIL
SUGÞURRKUNAR
— Hver stund er dýrmæt, þegar
veðráttan er með þeim hætti sem
verið hefur í sumar og það eina, sem
dugir er að halda heyinu á hreyf-
mgu, sagði Einar, þegar okkur bar
að garði og við höfðum orð á því,
hvers vegna þeir notuðu tvær snún-
ingsvélar samhliða
— Flest allir bændur eiga eftir
eitthvað að sínum heyskap og þá
sérstaklega þeir, sem komust seint á
Guðmundur Þórðarson í Kíl-
hraunj.
Einar (t.v.) og Bjarni Eiríks-
synir f Miklholtshelli.
Eyjólfur Pétursson á Nauta-
flötum.
stað Við eigum eftir um 1/4 af
okkar heyskap, en við erum búnir að
slá allt, sem hægt er að komast um
vegna bleytu, segir Bjarni og bætir
við að til þess að bændum takist að
Ijúka heyskap sínum þurfi um hálfan
mánuð, því túnin eru það blaut
— Bændur ættu að geta náð
verulegu af heyjum í þessari viku,
því ekki hefur staðið á sprettunni og
menn tala jafnvel um grasár aldar-
innar En heyin, sem nú nást, eru
lélegt fóður, þvi að þau eru bæði
hrakin og yfir sig vaxin Hey af
þessu tagi kalla á mikla kjarnfóður-
gjöf, ef sæmilegar afurðir eiga að
fást, en kjarnfóður er orðið dýrt og
afkoma bænda er ekki með þeim
hætti, að þeir beri slíkar byrðar
annað árið í röð, segir Einar
— Heyskapur í þessari veðráttu
er bölvað basl og þegar við þetta
bætist, að við fáum ekki nægjanlegt
rafmagn til súgþurrkunar er ekki
nein furða þó menn hugsi til þess að
fara að bregða búi
xAnna
Hér er aðeins einfasa rafmagn og
tæki fyrir það eru dýr auk þess sem
við fáum ekki spennistöðvar, sem
geta tekið við þvi rafmagni, er við
þurfum. Þetta ástand kemur sér
mjög illa í óþurrkasumrum eins og
verið hafa í fyrrasumar og sumar,
sagði Bjarni, og bætti viðaðá þessu
stigi væri ekki hægt að segja fyrir
um hversu mikill heyforði bænda
fyrir veturinn yrði, en næstu dagar
skæru þar úr. — En þó sl skini í
heiði þessa stundina er þegar Ijóst,
að heyin eru mjög léleg
STEFNIR í
MJÓLKURSKORT
í VETUR
Ég get ekki séð annað en það liggi
fyrir að margir bændur hætti með
kýr eftir þetta sumar Það er orðið
mjög kostnaðarsamt að stunda kúa-
búskap þegar hey eru jafn léleg og
þau voru f fyrravetur og koma til
með að verða í vetur sagði Eyjólfur
Pétursson á Nautaflötum í Ölfusi, en
við tókum hann tali þar sem hann
var í óða önn að tína upp bagga. —
Margir bændur voru með kýrnar
nær geldar í fyrravetur í von um, að
sumarið yrði gott og hægt yrði að
afla góðra heyja, en sú von brást.
Ástandið hefur líka ekki skánað við
að nytin hefur fallið mjög í kúnum
seinni hluta sumars vegna veðrátt-
unnar og háarspretta nýtist illa tii
beitar
— Vissulega stefnir allt í að
mjólkurskortur verði í vetur, því
búast má við, að fóðurbætir stór-
hækki og fjárhagur bænda leyfir
ekki að þeir taki á sig aukinn
rekstrarkostnað Sennilega verður
það niðurstaðan að hækka mjólkina
því eitthvað verður að gera til að
sporna við þeirri þróun, að stöðugt
dragi úr mjólkurframleiðslunni
— Bændur hér f Ölfusinu eru
misjafnlega á veg komnir með hey-
skap, en ástandið hér er þó víst
betra en hjá bændum þegar austar
dregur Ég á t.d. ekki eftir að ná inn
nema af 6 hekturum og það er allt
slegið þannig að ef þurrkur helzt
ætti það að nást inn á morgun. í
heild er þó ástandið hjá bændum f
Ölfusinu svipað og á sama tíma og í
fyrra
— Þessir dagar bjarga ekki öllu,
þótt þeir bjargi miklu, því þau hey,
sem nást nú, eru orðin skemmt og
lélegt fóður Við verðum að vona, að
hann hangi þurr áfram, því það er
mikill munur á því að standa uppi
með fullar hlöður af lélegu hey á
móti því að standa uppi með tómar
hlöður, sagði Eyjólfur að lokum
Ferð okkar um sveitir Suðurlands
var nú á enda og þegar við héldum
yfir Hellisheiðina var okkur ósjálfrátt
hugsað til sfðustu orða Eyjólfs og
þeirrar spurningar hvað hann héngi
þurr lengi?
— t.g.
Þeir bræður í Miklaholtshelli láta sér ekki nægja að snúa með
einni snúningsvél, heldur nota þeir tvær samhliða.
Sjón af þessu tagi blasti víða við þeim, sem fóru um Suðurland í
gær. Bændur og búlið var hvarvetna í heyönnum. Ljósm. Mbl. t.g.
náð inn tuggu
semekki
hefur rignt
Sfðustu daga hefur víða orðið að grfpa til hrffunnar til að ná heyi
af svæðum, sem ekki hefur verið hægt að komast um með vélar
vegna bfeytu. Þessar notuðu tækifærið og brugðu sér í bikini f
góðviðrinu á Suðurlandi f gær.