Morgunblaðið - 02.09.1976, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976
21
Púls kvikmyndaiðnaðarins
Vikublaðið VARIETY hefur
löngu verið kallað „biblía
skemmtiiðnaðarins", enda fjall-
ar það um kvikmyndir, fyrst og
fremst, svo og sjónvarpsefni,
útvarpsmál, tónlist og plötuút-
gáfu og leiksviðsmál (og þá sér-
staklega Broadway). Blaðið
bæði gagnrýnir nýjustu við-
burði á þessum sviðum (hefur
m.a. kvikmyndagagnrýnendur
á sínum snærum í flestum
löndum heims), og flytur ýtar-
legar og ábyggilegar fréttir úr
skemmtiiðnaðinum, ekki aðeins
frá Bandaríkjunum heldur úr
öllum heimshornum, þar sem
eitthvað markvert er að gerast.
En fyrst og fremst f jallar blaðið
um fjárhagslega hlið þessa yfir-
gripsmikla iðnaðar. Þar blasa
við augum staðreyndirnar um
velgengni kvikmynda, hljóm-
platna, sjónvarpsþátta og um
uppfærslu leikhúsa.
Upplýsingaöflun og markaðs-
rannsóknir VARIETY eru hár-
nákvæmar og með þeim er
fylgzt af athygli af drefiaðilum,
forráðamönnum kvikmynda-
húsa, sjónvarpsstöðva og leik-
húsa; öllum þeim sem viðriðnir
eru þen an atvinnuveg og vilja
fylgjast með. Hvað kvikmynda-
iðnaðinn snertir, þá er hér að
finna haldbeztu upplýsing-
arnar um gengi myndanna, og í
VARIETY má finna púls hans,
ef svo mætti að orði komast.
Hann er listinn yfir fimmtíu
mest sóttu myndir vikunnar
sem leið. Þetta yfirlit er byggt á
könnun sem nær yfir tæpan
þriðjung kvikmyndahúsa í
Bandaríkjunum og Kanada.
Til gamans læt ég einn slíkan
fylgja með, og helztu útskýr-
ingar. Fyrst kemur nafn
myndarinnar, þá fyrirtækið
sem dreifir henni, (helstu
skammstafanir: FOX = 20th
Century Fox, COL = Columbia,
U = Universal, WB = Warner
Bros, UA = United Artists, BV
= Buena Vista þ.e. dreififyrir-
tæki Walt Disney, AVE = Avco-
Embassy, AIP = American
International Pictures, PAR =
Paramount, AA = Allied
Artists, NW = New World). I
næsta dálki eru birtar tölur yfir
greiddan aðgangseyri að mynd-
inni f sfðustu viku, og sá næsti
sýnir hvar hún er í röðinni á
listanum. Þá kemur dálkur yfir
innkomu myndarinnar f
vikunni þar á undan og svo
staða hennar þá. Þvf næst koma
fimm dálkar undir yfirskrift-
inni TOTALS. Tölurnar í fyrsta
dálkinum sýna í hversu mörgu
borgum f Bandaríkjunum og
Kanada myndin er sýnd.
Syningarmáti á kvikmyndum
í stórborgum og þéttbýli er í
stórum dráttum þrískiftur:
1. ROADSHOW. Þessi
Gamla kempan John Wayne er sagður vinna leiksigur ævi sinnar f
nýjustu mynd Don Siegel, THE SHOOTIST.
50 Top-Grossing Films
( H K'f.'K F.MHMi Jl l,\ 14)
Compiled by Standard DataCorp.. N.Y.
tlTLE DISTR I THIS WEEK LAST WEEK totals | WÍEKS | TOTAL TO
$ RANK $ «ANK . , flBST SMOW' ROAO' THE L."lt5 RUN CASE SHOW ATRES CHÍRl $
THE 0MEN FOX 2,155,161 1 2 l 3 2,341,182' 1 20 10 118 128 3 7,722,679
MUROER BY DEATH COL 1,358,787 860, 926 1,513,185 2 20 14 111 125 3 4,527,784
MIDWAY u 1,074,777 3 21 1 1 70 81 4 5,315,958
POOR WHITE TRASH - PART II APR 761,11 7 4 4 1 132 133 6 1,864,163
SILENT MOVIE FOX 686,562 5 588,803 7 18 18 18 361 21 1,280,962
ALL THE PRESIDENTS MEN WB 637,041 6 873,358 4 12 8 89 97 14 14,1Q8,150
; LOGANS RUN UA 623,297 7 790,055 5 22 17 34 51 | 3 2,474,804
GUS BV 445,000 8 12 7 55 62 1 445,000
THE OUTLAW J0SEY WALES WB 396,180 9 573,880 8 10 4 45 49 3 999,109
ODE TO BILLY JOE WB 385,262 10 662,476 6 11 8 33 41 4 1,135,643
APPLE DUMPLING GANG BV 262,500 11 1 75 75 11 3,055,937
LADY £ THE TRAMP B V 262,500 12 1 75 75 10 1,841,942
THATS ENTERTAINMENT-PART 2 UA 250,189 13 404,533 9 16 13 51 64 8 2,030,614
[BUFFALO BILL 6 THE IN9IANS UA 246,740 14 359,900 11 18 10 51 61 3 669,499
SAIL0B WHC FELL FBCW GRACE AVE 243,254 15 256,718 13 12 9 40 49 12 1,246,966
ONE FLEW OVER CUCKOOS NEST UA 229,250 16 237,129 17 6 5 86 91 34 26,118,466
J DS REVENGE AIP 198,450 17 256,200 14 9 8 6 14 3 587,750
DRIVE-IN COL 181,600 18 33,338 39 3 1 29 30 6 1,099,940
THE MAN WHO FELL TO EARTH C 5 164,308 19 115,844 22 9 10 3 13 7 672,997
HARRY £ WALTER GO TO NEW YORK COL 155,000 20 154,900 19 1 1 1 4 647,125
THE BIG BUS PAR 152,600 21 349,500 12 13 12 14 26 3 1,077,226
BAD NEWS BEARS PAR 150,845 22 228,130 18 6 5 18 23 14 L 9,936,244
PETER PAN B V 142,405 23 396,492 10 7 9 19 28 9 2,236,591
GOD2ILLA VS MEGALON CSI 105,650 24 17,562 3 7 23 30 2 172,212
TUNNELVISION ww 81,500 25 131,000 21 3 1 10 11 10 1,017,953
SMALL TOWN IN TEXAS AIP 78,100 26 42,700 34 3 1 45 46 5 332,460
LAOY SINGS THE 6LUES/MAH0GANY PAR 75,000 27 89,700 25 7 7 2 9 2 159,665
THE DEVIL WITHIN HER AIP 70,000 28 90,000 24 1 6 6 13 1,044,150
SUNDAY IN THE COUNTRY AIP 65,000 29 1 41 41 4 155,721
THE J0Y OF LETTING GO BWN 55,000 30 1 2 2 1 55,000
FACE TO FACE PAR 48,600 31 41,457 35 6 5 2 7 14 715,787
JAWS U 46,775 32 2,400 3 2 5 7 41 41,831,888
MISTY BEETHOVEN C AT 46,765 33 22,670 44 2 2 2 16 540,520
STRANGER C THE GUNFIGHTER COL 45,000 34 1 9 9 7 554,442
GREAT SCOUT-CATHOUSt THURSDAY AIP 41,000 35 102,300 23 3 1 11 12 3 422,956
BABY BLUE NARINE COL 40,800 36 1,637 1 1 6 7 6 698,807
LIFEGUARD PAR 40,000 37 79,600 26 1 13 13 4 658,624
THE MISSOURI BREAKS UA 39,350 38 60,263 31 2 2 12 14 8 4,430,585
MY EROTIC FANTASIES MIS 39,300 39 37,400 37 1 2 2 2 771 063
BREAKING POIMT FOX 35,900 40 2 1 13 14 2 64,933
SHOOT AVE 35,751 41 4,700 5 4 19 23 1 50,351
AT THE EARTHS CORE AIP 30,475 42 14,500 3 1 13 14 3 123,125
SPECIAL DELIVERY AIP 30,000 43 10,000 1 12 12 1 40,000
FANTASEX CMD 29,500 44 28,500 40 1 1 1 9 347,326
FOOD OF THÉ GODS AIP 29,000 45 137,500 20 2 3 3 6 589, 160
ALICE IN WONDERLANO GNA 28,500 46 21,000 46 3 3 3 4 235,000
GATOR UA 25,000 47 36,000 38 2 i ~4 5 2 88,000
BRUCE LEE - SUPER DRAGON AA 24,500 48 12,000 2 4 4 4 597,700
ATF 23,000 49 11,650 2 1 4 5 T 50,708
EAT MY 0UST NW 22,000 50 i 6 6 í 7 725,639
ALl OTHERS 464,787 1,511,344 94 21! ns 3* 127,301,830
« T 0 T A L 12,645,227 »13,716,283 3 23 453' ?7‘T3í 2747267,168
Listinn f VARIETY yfir 50 mest sóttu myndir vikunnar f Bandarfkjunum og Kanada. oft nefndur
„plús kvikmyndaiðnaðarins.“
sýningarmáti er á þann veg, að
undantekningarlaust er aðeins
eitt kvikmyndahús á markaðs-
svæðinu með myndina til
sýningar. Þetta eru vönduðustu
húsin og aðeins úrvalskvik-
myndir meðhöndlaðar á
þennan hátt. Þessi máti var
fyrst hafður við sýningar á
myndinni THE SOUND OF
MUSIC og gafst vel og var lengi
vel hafður við helztu flagg-
myndir kvikmyndaveranna.
Myndir eins og DR. ZIIIVAGO,
STAR, PAINT YOUR WAGON,
DR. DOOLITTLE, GONE
WITH THE WIND, (endurs ).
og RYAN’S DAUGHTER.
Á þessar sýningar slagaði
verð aðgöngumiða hátt uppi
verð að leiksýningum. En með
þverrandi áhuga almennings á
þessum „dinosaur“-myndum
hefur ROADSHOW sýningar-
mátinn að mestu leyti lagzt
niður. Þó ætlar VARIETY
honum ennþá sinn dálk en
hann er auður eins og sjá má.
2. FIRST RUN. Allar vel
frambærilegar myndir eru
fyrst sýndar f svokölluðum
„first run“ kvikmyndahúsum.
Þetta eru fyrsta flokks kvik-
myndahús, á góðum stað í
sfnum hverfum. Vinsælar
myndir geta veið sýndar í jafn-
vel fimm, sex slikum húsum á
hverju markaðssvæði. Hér er
verðið allhátt, miðinn allt upp i
fimm dali.
3. SHOWCASE er svo þriðji
sýningarmátinn. Þá fá allt upp i
rösklega hundrað, ódýr kvik-
myndahús, vfðsvegar um
markaðssvæðið myndina til
sýningar. Á þennan máta enda
allar myndir feril sinn, þegar
búið er að þurrmjólka þær f
„first run“ og/eða „roadshow”
kvikmyndahúsunum. Þá er
ekki óalgengt að hreinræktaðar
afþreyingarmyndir séu settar
strax í þessa meðhöndlun, þ.e.
myndir sem þurfa ekkert umtal
til að ná til fjöldans. Hér er
aðgangseyrir i lágmarki; yfirl.
1.50 —2.50 dalir.
A eftir dálkinum yfir borga-
fjöldann má semsagt finna
upplýsingar um fjölda kvik-
myndahúsanna sem myndin er
sýnd í, bæði „first run“,
„showcase" og „roadshow"
Síðustu tveir dálkarnir sýna
svo í hve margar vikur myndin
hefur verið á listanum og að
lokum, hversu mikið hún hefur
samtals tekið inn f aðgangseyri.
ENTEBBE VEKUR ÁHUGA
Hvorki meira né minna en
fimm aðilar eru nú komnir f
gang við myndgerðir atburð-
anna á Entebbe flugvelli í
sumar, þegar ísraelskar
víkingasveitir björguðu 103
gíslum úr Air France þotu, sem
rænt var af palestínskum
skæruliðum. Þetta þótti lygi-
lega frækileg aðgerð, enda
hefur bræðin ekki runnið
ennþá af vitfirringnum Amin.
Áætlun Universal kvik-
myndafélagsins lofar mestu á
þessu stigi málsins. Þar ræður
úrslitum, að ríkisstjórnin
fsraelska ákvað að styrkja og
veita alla aðstoð aðeins einni
kvikmyndagerð og varð
Universal fyrir valinu, aðallega
fyrir þá sök að Sir Laurence
Olivier á að fara með hlutverk
Rabins forsætisráðherra, sem
nú stendur höllum fæti f þjóð-
málum. Þá settu og
tsraelsmenn það að skilyrði að
annarhvor þeirra Steve
McQueen eða Paul Newman
færu með aðalhlutverkið , og er
það nú ákveðið.að McQueen fer
með hlutverk yfirmanns
vfkingasveitanna. George Roy
Hill, (BUTCH CASSIDY. . .,
THE STING, THE GREAT
WALDO PEPPER), leikstýrir
og James Earl Jones leikur
illmennið Amin.
Rétt eftir að atburðirnir
spurðust út um heimsbyggðina
ákvað Paramount fyrirtækið að
góma einnig sfna sneið af
kökunni, og keypti kvikmynda-
réttinn að einu bókinni sem
YÖUARE
ONEDAYCLOSER
TOTHEEND
OFTHEWORLD
Omen
Eitt af auglýsingaplakötum
myndarinnar THE OMEN, sem
þessa dagana nýtur gffurlegra
vinsælda vfða um heim.
komið hefur út um þessa vel-
heppnuðu árás. Nefnist hún 90
MINUTES AT ENTEBBE, og
er eftir blaðamanninn Uri Dan.
Bókin þykir hálfgert prump,
svo enginn annar en Paddy
Chayefsky, (MARTY,
HOSPITAL, NETWORK) Var
fenginnn til að sníða af henni
vankantana og semja handritið
og Sidney Lumet á að sjá um
leikstjórnina.
Þátt í þessu „Uganda
veðhlaupi" tekui* einnig Merv
Griffin Production, en forstjóri
þess fyrirtækis varð einmitt
vitni að atburðunum, þar sem
hann var einn af farþegunum í
Air France vélinni, sem var á
áætlunarflugi á milli Parísar og
Aþenu þegar henni var rænt.
Einn af öflugustu kvik-
myndaframleiðendunum
vestan hafs, Elliot Kastner.
þekktur fyrir flest annað en að
hætta við áform sín, er einnig
kominn af stað með sfna kvik-
mynd, ASSAULT ON
Framhald á bls. 23