Morgunblaðið - 02.09.1976, Page 26

Morgunblaðið - 02.09.1976, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976 Marta Andrés- dóttir Kveðja Fædd 18. mars 1900. Dáin 22. ágúst 1974. Þegar mér var tilkynnt andlát Mörtu Andrésdóttur, hváói ég og vissi ekki hvað á mig stóð veðrið, þótt undir niðri hafi ég búist við slíkri fregn. Nú er sóiin setzt í iífi hennar, hvað tekur síðín við er hin mikla lifsins gáta. Marta var góð húsfreyja heim að sækja og allir voru aufúsugest- ir á heimili þeirra hjóna að Jökul- grunni. Hún átti þann stóra kost að vera hreinskilin, og alltaf gat maður treyst orðum hennar. Eg ætla ekki að fara að rekja ætt hennar hér, heldur læt aðra ATIIYGI.I skal vakin á því, að afmælis- og minningar- greinar verða að berast blað- inu með góðuni fyrirvara. Þannig verður grein, sem hirtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi f.vrir hádegi á mánudag og hlið- stadt meðgreinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða hundnu máli. Þær þurfa að vera vél- ritaðarog meðgóðu línubili. um það, þetta eru aðeins fátækleg kveðjuorð. Ég man alltaf hve vel hún þakk- aði heimsóknir okkar hjóna, og hve vel hún bar okkur söguna. Ekki hafði hún trúmál sin i flimtingum, en ég tel að hún hafi lifað mikið eftir kenningunni: „Guð hjálpar þeim sem hjálpar sér sjálfur.“ Síðast er ég heimsótti hana var greinilega farið að draga úr bar- áttuþreki hennar vegna þess sjúk- dóms sem hún átti við að stríða, en samt var hún ekki á því að gefast upp. Eiginmaður hennar var hennar stoð og stytta í lífi hennar allt til hins síðasta. Ég var alltaf velkomin á heimili Mörtu, og það verður örugglega vel tekið á móti henni að loknu ævikvöldi. Við hjónin í Breiðholtinu mun- um alltaf taka vel á móti aðstand- endum hennar, og við munum alltaf minnast hennar með vin- semd og virðingu. Undirritaður biður algöðan guð að styrkja eiginmann hennar Bjarna Benediktsson, og dóttur, Dóru Bjarnadóttur. Góði guð varðveiti minningu hennar og gefi henni eilífan frið. Bened. Viggós. t GUÐMUNDUR PÁLSSON lézt að heimili sinu Húsafelli 30 ágúst Jarðarförin verður að Húsafelli, laugardaginn 4 september kl 5 síðdegis Ástríður Þorsteinsdóttir. t Eigmmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi VALGEIR KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON, Gufuskálum, Leiru, Gerðahreppi, sem lést að heimili sinu 26 ágúst, verður jarðsunginn frá Keflavíkur- kirkju föstudagmn 3 sept kl 2 Fynr hönd vandamanna Halldóra P. Þorláksdóttir. t Móðir okkar MARÍA E EYJÓLFSDÓTTIR Laugavegi 1 33, andaðist i Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg 31 ágúst Kolbrún Jónsdóttir og systkini. t Innilegar þakkir sendum við öllum aðstandendúm og vinum er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa ÁRNA EINARSSONAR. verzluninni Minni-Borg, Grímsnesi. Sérstakar þakkir og kveðjur sendum við öllum Grímsnesingum Einar Arnason, Andrés Árnason, Haraldur Arnason, Arnar Árnason, tengdadætur og barnabörn. t Innilegár þakkir sendum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vmarhug viðfráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu GUÐRÚNAR H. EINARSDÓTTUR, Hlfðarbraut 17, Hafnarfirði. Karl M. Jónsson, Sigurjón Jónsson, Hinrik Jónsson, Guðmundur St. Jónsson, Björn Jónsson, Gyða Antoníusardóttir, barnaborn og barnabarnabörn. Hulda Magnúsdóttir, Marfa Jónsson, Erla Ellertsdóttir, Gísli Jóhannsson, Bústnir svartbakar — sveltandi börn DUNTEKJA er nú ein arösam- asta athöfn á jörðinni: Dún- sæng var og dúnsæng er kon- ungsgersemi. Versti óvinur varpbænda og um leið vargur í véum dún- tekju er veiðibjalla — svartbak- ur. Tæplega hefur sú plága blómstrað betur en nú í allri sögu íslenzkra anna. Það munar minnstu, að svífandi hópar svartbaks byrgi fyrir sólu i sjávarþorpum og verstöðvum víða unj land. Meira að segja endurnar í miðborg Reykjavík- ur fara ekki varhluta af heim- sóknum þessara feitu, sjálfbirg- ingslegu fugla. Þeir eru næst- um orðnir tákn um græðgi nú- timans í veizlum hér á Vestur- löndum. En hver er orsök þess- ara veizluhalda vargsins? Gæti það verið heimska, skammsýni okkar mannvarganna? Er hægt að trúa því, sem sagt er hér á landi á þorskastriðs- timum, þegar fræðimenn og spekingar telja gullkistur hafs- ins að tæmast, að önnur milljónin, sem að bátstokki ber, sé hirt en hinni kastað? Getur það verið að á tímum tækni, iðnaðar og málmblendiverk- smiðja sé dýrmætasta efni úr heilsulindum lífsins gert að vargafóðri og mengun? Er lifur og slógi varpað fyrir borð og þorskhausar og úrgangur, sem ekki er hægt að gera nógu fint fyrir frúr í Ameríku, notað til að eyðileggja annars vegar og ala upp varga hins vegar? Þetta er ekki trúlegt, en mun samt vera staðreynd í dansin- um mikla kringum gullkálfinn á Islandi 1976. En hve mörgum vinnudögum í verksmiðjum og iðnaði er þarna um leið varpað í glatkistu? Hve mörgum milljónum rænt óbeint frá þjóð- arbúinu? Uti i heimi bíða sveltandi börn, sem hafa raunar eitthvað til að tönnla. Og þetta gæti orð- ið þeim uppspretta orku, heilsu og heilla, ef í það væri blandað og með því neytt þeirra efna lífs og krafta, sem lifur, slóg og þorskhausar eru svo auðug af. Hvar er nú öll tæknin og efna- fræðin, matreiðslusnilldin og veizluhönnunin, ef ekki er hægt að gera þessi efni að álit- legri fæðu í fínum umbúðum? Einu sinni lifði fátækt fólk i Islandi af eina plágu af ann- arri, meðan það gat náð í hamsa og hausa, lýsi og þorskhöfuð. Ég veit um konu við Breiða- fjörð, sem var allslaus kona, með eina kú á rýringskoti, átján barna móðir, þótt sum þeirra létust í frumbernsku, samt urðu hin, sem komust á spena eins og hún sagði atorku- söm, hraust og ódrepandi. Hún hafði selspik fyrir dúsu handa þeim og lýsi. Sumir hefðu sagt grút í staðinn fyrir rjóma i pel- ann. Þegar börn nágranna- kvenna veiktust var þeim meira að segja komið undir handarjaðar hennar Guddu og komu þaðan von bráðar sælleg og hraust. Svo hendum vió, menntaða kynslóðin, tæknivædda þjóðin, þessum ódáinsefnum í varga, kveinum svo og kvörtum yfir fiskleysi og auðn þeirra gull- kista sem guð gaf beztar, en við erum að tæma af taumlausri græðgi eftir bezta bitanum. Og úti í heimi magnast svart- bakar öfundar, illgirni og hat- urs til okkar á Vesturlöndum, af þvi að við miðlum ekki meira til sveltandi barna af molum af borði ríka mannsins. Ættum við nú ekki að ganga á undan, þessi kotþjóð úti við Dumbshaf, og hefja sem bezt samskipti við svartar þjóðir? Færa þeim föngin, sem vargfuglum eru nú veitt, til þess að börnin þar megi blómgast eins og hjá gömlu konunni fyrir vestan. — Nú hafa norrænar konur þing- að hér um matvælaframleiðslu. — Eignast þar vini og velunn- ara fyrir viturleg samskipti. Drífa upp verktækni og vinnu- brögð til að hirða hvert einasta hrogn, lifrartætlu og þorskhaus handa þeim, sem vantar þau fæðuefni, sem í þessum auði fátæka fólksins varð upp- spretta lífsins handa fimm þús- und í eyðimörk, örfáir smáfisk- ar þar sem ekkert fór til spillis. Svo hyrfi vargurinn — svart- bakur lífsins, — af sjálfu sér. Sveltandi börn fjarlægra stranda yrðu broshýr og sælleg og meira að segja dúnsængur kæmust aftur i tízku, svona á beztu bæjum. Árelius Nfelsson. Skósmíðavinnustofa Gísla Ferdínandssonar í Lækjargötu á 20 ára af- mæli um þessar mundir. Hér á myndinni, sem tek- in var í gær, sést Gísli (lengst til hægri) ásamt öðru starfsfólki vinnu- stofunnar. t Við þökkum af heilum hug vináttu og samúð við andlát og útför FLEMMINGS THORBERG. Gerður Thorberg og synir. t Innilegar þakkir sendum við öllum sem vottuðu okkur samúð við andlát og útför GUÐRÚNAR STEINÞÓRSDÓTTUR frá Brekku Fyrir hönd vandamanna Árni Guðmundsson. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinsemd við fráfall BENEDIKTS ÞÓRARINS DÚASONAR skipstjóra Theódóra Oddsdóttir Dúa Þórarinsdóttir Baldur Eirlksson Ásgeir Þórarinsson Katrín Valtýsdóttir Brynja Þórarinsdóttir Gunnar Bergsteinsson Ása Þórarinsdóttir Óli Geir Þorgeirsson " Norræn verk- fræðingaráð- stefna um launamál Dagana 26. og 27. ágúst síðast- liðinn var haldin ráðstefna norr- ænna verkfræðinga um launamál —NIL 13 — á Hótel Loftleiðum. Þessar ráðstefnur eru haldnar ár- lega til skiptis á Norðurlöndum. Þetta er 13. ráðstefna, sem haldin hefur verið, og sú fyrsta, sem haldin er hér á landi. Á ráðstefnunni var rætt al- mennt um launamál og atvinnu- mál verkfræðinga á Norðurlönd- um og samvinnu þeirra á milli. Kjarafélag verkfræðinga og Stéttarfélag verkfræðinga buðu til ráðstefnunnar og er gert ráð fyrir að fslenskir verkfræðingar bjóði til þessarar ráðstefnu á 10 ára fresti hér á landi. Verkfræðingafélag tslands Skilti á krossa Flosprent, sími 16480.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.