Morgunblaðið - 02.09.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976
29
fclk í
fréttum
Skipting
út á við
+ Þeir sem hafa I hyggju að
leita sér tilbreytingar utan
hjónabandsins verða fyrst og
fremst að gæta þess að láta ekki
sektarkenndina ná tökum á sér,
segir brezkur læknir, dr. Philip
Cauthery, I virtu brezku lækna-
blaði.
Bezt er að einangra framhjá-
haldið aigjörlega frá öðrum
þáttum daglegs lffs og koma
væntanlegum friðli eða frillu í
skilning um að það sé ekki
meiningin að skaða á nokkurn
hátt maka eða f jölskylduna.
Þess vegna, segir læknirinn,
skuluð þið vera ákveðin í þvl að
játa aldrei neitt.
Dr. Cauthery segir, að konu-
skipti um stundarsakir geti ver-
ið liður I sállækningum og
vegna þess að þeir sem þau
stundi eigi vanalega við ein-
hver tilfinningaleg eða kyn-
ferðisleg vandamál að strfða
beri fremur að líta á þau sem
læknislyf en syndsamlegt at-
hæfi. Konuskipti, sem stunduð
eru um skamman tíma, geta
rennt styrkari stoðum undir
hjónabandið, segir læknirinn,
en hann er ekki enn kominn að
niðurstöðu um afleiðingarnar
af slfku fyrirkomulagi ef það
stendur f langan tfma.
Varúð — vélmenni!
+ Þetta skringilega apparat sem sést hér á leið til ókunns áfanga-
staðar þykir hin mesta völundarsmfð. Tækinu er stjórnað með
rafeindabúnaði og er þvf ætlað að inna af höndum ýmis vandasöm
störf sem mönnum er talin geta stafað hætta af. A umferðarskiltinu
stendur að þar sé vélmenni á ferð og eins og gefur að skilja ber
öllum dauðlegum mönnum að sýna þvf tilhlýðilega virðingu þvf að
sá vægir jafnan sem vitið hefur meira.
Mark Twain upprisinn
+ Þessi skemmtilega mynd er af skáldinu og háðfuglinum Mark
Twain, sem réttu nafni hét Samuel Clemens. Myndin var tekin árið
1908 en Twain lézt tveimur árum sfðar. Aðdáendur skáldsins
hyggja nú gott til glóðarinnar þvf að nú eru komnar fram í
dagsljósið 300 myndir sem einkaritari Mark Twains tók af honum á
sfnum tfma.
Þessi upprisa á ljósmyndum hefði vafalaust glatt Mark Twain
sem lét svo um mælt einu sinni, að „frásagnir um dauða sinn væru
mjög orðum auknar."
Vaknað við vondan draum
+ Það svaf enginn yfir sig f Madsen-fjölskyIdunni, seip býr í Randers f Danmörku, morguninn sem
mikil gassprenging iagði heimili hennar f rústir. Það' var þó lán f óláni og varð fólkinu til lffs að
svefnherbergið féil niður f kjallara um leið og þakið lagðist yfir leifar hússins.
ÚTSALA
Terylenebuxur frá kr. 1975.—
Frakkar frá kr. 3575.—
Nærföt, skyrtur o.fl.
ANDRÉS,
Skólavörðustíg 22 A
HIN FULLKOMNA
VIÐARVÖRN í
15 LITUM
Hin fullkomna viðarvörn heitir Architectural
SOLIGNUM, viðarvörn sem þekur
viðinn varanlega.
Architectura! SOLIGNUM kemur í stað
málningar um leið og það ver viðinn
gegn hvers konar fúa.
HÖLMSGÖTU 4. SÍMI 24120