Morgunblaðið - 05.09.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1976
21
|St. Jósefsspítali í Hafnarfirði 50 ára í dagl
Mikið þrekvirki
að koma honum
upp og reka
Rakin saga spítalans í stuttu máli
% Hinn fimmta september fyr-
ir fimmtíu árum var vígður St.
Jósefsspítali f Hafnarfirði. Það
var fámennur hópur st. Jósefs-
systra, sem stóð að baki þeirri
miklu byggingu og hafa þær æ
síðan séð um allan rekstur spít-
alans, viðhald og áframhald-
andi uppbyggingu. I dag minn-
ast þær þessa merka áfanga og
þegar skyggnzt er um og leitað
fróðleiks um sögu spftalans og
alls þess starfs, sem þar hefur
verið unnið, kemur það glöggt í
ljós að St. Jósefssysturnar hafa
unnið gífurlegt þrekvirki. All-
an rekstur spftalans og stjórn
hans hafa þær haft á hendi
undir forystu þeirra príorinna
sem þar hafa starfað en þær
eru samtals sjö á þessum fimm-
tíu árum.
Þeir sem hafa fylgzt með
þessum framkvæmdum systr-
anna hafa oft haft orð á því hve
vel sé til vandað og undrast það
hversu mikið þær hafa í ráðizt.
Ekki er það undarlegt þar sem
það er ekki fyrr en á allra síð-
ustu árum að þær hafa notið
nokkurs styrks til byggingar
spítalans og sama er að segja
um reksturinn. Nýjar fram-
kvæmdir við spítalann og end-
urbætur ásamt rekstrartil-
kostnaði er að langmestu leyti
f jármagnaðar með vinnu, spar-
semi og hagsýni þessara f áu
kvenna, sem f spítalanum
starfa. Þar hafa þær unnið í
áratugi og leggja allt sitt f að
bæta aðstöðu þeirra, sem f spít-
alann koma svo að þeir fái bót
sinna meina. Þegar það hrekk-
ur ekki til eins og nú m.a. vegnt
verðbólgu verða þær að taka
stór og dýr lán.
NÝ SKURÐSTOFA
OG FLEIRI
SJUKRARUM
Sigurgeir Guðmundsson er
forstöðumaður spftalans og
hann fræddi blaðamann um
sögu spftalans og þær bygginga-
framkvæmdir sem nú standa
yfir, en hann sér um þær.
Fyrstu starfsárin voru sjúkling-
ar á þremur hæðum í húsinu,
alls um 40 rúm. Arið 1953 var
hafizt handa um viðbyggingu
við norðurenda aðalhússins. Þá
var fyrst komið fyrir lyftu f
húsinu, sjúkrarúmin færð á
tvær hæðir hússins aðeins og
þeim f jölgað í 42. Á árunum
1966—67 voru aðalhæðir húss-
ins lagfærðar til samræmis við
nútímakröfur og fyrir þremur
St. Jósefsspftali f Hafnarfirði. Lengst til vinstri er nýjasti hluti spftalans og lengst til hægri sést f
kapelluna.
árum var hafizt handa um
byggingu við suðurenda gamla
hússins. Nú eru 54 sjúkrarúm í
spftalanum, auk barnastofu
með 4 rúmum. Nýlega hefur
verið stórbætt aðstaða til
sjúkraþjálfunar, komið upp
rannsóknastofu með öllum bún-
aði og unnið er að þvf að full-
gera nýja skurðdeild og nýtt
eldhús, jafnframt því sem bætt
hefur verið aðstaða lækna og
stjórnunar. Framundan eru
framkvæmdir til endurbóta á
aðstöðu hjúkrunarfólks, þ.e.
vaktherbergjum o.fl.
Sigurgeir sagði að allar end-
urbætur á spítalanum eftir
1958, sem hér voru taldar upp,
hefðu verið framkvæmdar und-
ir yfirstjórn og eftir fyrirsögn
núverandi prforinnu, systur
Eulaliu, en hún hefði sýnt
áhuga sinn f að bæta alla að-
stöðu sjúklinganna og starfs-
liðsins, svo sem efni og geta
frekast hafa leyft. Hann sagði
að þær hefðu aldrei notið
neinna styrkja erlendis frá og
það væri ekki fyrr en á sfðustu
árum að styrkir hefðu komið
frá stjórnarvöldunum, eins og
fyrr sagði. Sagðist Sigurgeir oft
hafa orðið var við þann mis-
skilning að þær nytu fjárhags-
aðstoðar erlendis frá.
Þá sagði Sigurgeir að sér
fyndist það hreint ótrúlegt að
þær skyldu hafa getað komið
spitalanum upp og rekið hann
og þau 25 ár, sem hann hefði
— Munu Albanir
Framhald af bls. 25
Ungt fólk hefur verið hvatt til
þess að dveljast f þorpum og
stunda landbúnaðarstörf f
sveitum í stað þess að flykkjast
til borga landsins, og gefur það
ótvfrætt til kynna, að rfkið eigi
við efnahagsörðugleika að
stríða. Nýjasta fimm ára áætl-
unim hefur farið út um þúfur,
og svo virðist jafnvel sem þing
Kommúnistaflokksins og há-
tiðahöld vegna 35 ára afmælis
hans geti runnið út í sandinn.
Hoxha hefur lítið svigrúm til
athafna, ef Kínverja nýtur ekki
við. Hafi þeir snúið við honum
baki, dragazt allar áætlanir um
aukna iðnvæðingu verulega
saman eða verða jafnvel að
engu. Albanir yrðu þá að
byggja afkomu sína á landbún-
aði að mestu leyti án þess að
eiga sér nokkra von um, að úr
rættist fyrir þeim.
En hvað svo sem Hoxha
hyggst fyrir, verður hann að
hafa hraðann á, þvi að valda-
skeið hans er senn á enda. Það
er engum vafa undirorpið, að
hatrömm barátta um eftirmann
hans hefur átt sér stað, og hún
hefur höggvið stór skörð í raðir
flokksins. I Albaníu er fátt um
menn, sem hafa hæfileika og
reynslu á sviði stjórnmála og
stjórnsýslu, og framtíðin virðist
ekki brosa við þessu litla og
torsótta fjallavirki á Balkan-
skaga.
AUGLÝStNGASÍMINN ER:
22480
Sérgrein okkar
er að sjá nemendum í sérgreinanámi tyrir skólavörum.
Úrvaliö hefur aldrei veriö meira.
VERZLANIR: Hafnarstræti 18 Laugavegi 84 Hallarmúla 2
ÞUMALÍNA
BÚÐIN ÞÍN, DOMUS MEDICA, ÞAR SEM ÁÐUR VAR MÆÐRA-
BÚÐIN, BÝÐUR ÞÉR UPP Á FYRSTA FLOKKS VÖRUVAL FYRIR
LITLA BARNIÐ, ÁSAMT ÝMSU FLEIRU OG LANDSINS ÓDÝR-
USTU BLEYJUR. SENDUM í PÓSTKRÖFU.
Þumalína, Domus Medica, s. 12136.