Morgunblaðið - 05.09.1976, Síða 25

Morgunblaðið - 05.09.1976, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1976 25 tStít. THE OBSERVER BELGRAÐ — Þeir, sem fylgj- ast með þróun mála á Balkan- skaga, hafa nú fengið nýtt um- hugsunarefni. Vmsar breyting- ar f stjórnmálum Albanfu og pólitfskar hreinsanir hafa nú gert það að verkum, að menn hafa f bili varpað frá sér öllum vangaveltum um hvað taki við, þegar Tftó Júgóslavfuforseti er allur. Enda þótt Albanía sé lítið land og telji aðeins tæpar tvær milljónir íbúa, er talið mjög mikilvægt hvorum megin hryggjar hún liggur á sviði heimskommúnismans. Hingað til hafa Albanir verið dyggir stuðningsmenn Kínverja, en svo kann að fara, að þeir telji heppilegra að halla sér að Rúss- um. Þar með myndu Rússar koma ár sinni fyrir borð á hern- aðarlega mikilvægu svæði á Balkanskaga, og rökrétt afleið- ing þar af yrði sú, að þeir gætu komið sér upp flotastöð á Adríahafi og farið að velgja Jú- góslövum undir uggum. Ýmsir sérfræðingar telja mjög ólíklegt, að Albanir gerist bandamenn Rússa á nýjan leik, en aðrir telja, að svo kunni vel að fara. Máli sínu til stuðnings vísa þeir til yfirlýsingar gömlu kempunnar Enver Hoxha, flokksleiðtoga, um að „flokkur- inn fletti ofan af endurskoðun- arsinnum og samsærisöflum og losaði sig við þau“. tStít THE OBSERVER „Þessir menn vildu spilla vin- áttu okkar við bræðraþjóð okk- ar, Kínverja, og flokk Mao Tse- tung, og þeir vildu binda land okkar á klafa sovézkra endur- skoðunarsinna," sagði Hoxha. Ýmsum þótti ótrúlegt, að and- staða, gagnrýni og samsæri gætu þrifizt í Albaníu, þar sem allt er hneppt f járnaga, og landið hefur ekki haft nokkur samskipti við Sovétrikin í 15 ár. En staðreyndirnar tala sínu máli. Rúmur tugur háttsettra herforingja hefur verið sviptur embætti, og fréttir herma, að þeir hafi verið teknir af lffi. Tveir ráðherrar hafa þurft að víkja, og allmargir embættis- menn hafa verið reknir ú Kommúnistaflokknum, sem hefur stjórnað landinu með harðri hendi siðan í lok síðari heimsstyrjaldar. Hoxha er staðráðinn í því að kveða niður orðróm um, að hann sé heilsutæpur, og hefur því komið fram nokkrum sinn- um opinberlega að undanförnu. Við þau tækifæri hefur hann þrástagazt á þvi, að vinátta og samskipti Albana og Kinverja, væru enn með sama hætti og fyrr. Það þykir hins vegar harla grunsamlegt, að flokksleiðtog- inn telji nauðsynlegt að gefa slfkar yfirlýsingar í sifellu. Griskir og ítalskir sendifull- trúar i Tirana, höfuðborg Al- baníu, hafa lýst yfir því, að svo THE OBSERVER virðist sem kastazt hafi f kekki með stjórnvöldum I Tirana og Peking. Sömu sögu segir fólk af albönsku þjóðerni, sem búsett er í Júgóslaviu, en fengið hefur Eftir Juliet Pearce að heimsækja ættingja sína hin- um megin landamæranna. Ljóst er, að Kfnverjar hafa dregið verulega úr efnahágsað- stoð sinni við Albani með þeim afleiðingum að meiriháttar THE OBSERVER framkvæmdir hafa dregizt á langinn, svo sem við stifluna í Fierza, stálvinnsluna í Elbass- an og olíuvinnslustöðina i Ballsh. Af hálfu Albana hefur engin skýring verið gefin á þessari stefnubraytingu, enda eru stjórnvöld ekki vön því að gera slík reikningsskil. Ýmsir telja, að stjórnir Albaniu og Kinverja greini verulega á i alþjóðamál- um og hafi sú fyrrnefnda megn- an ímugust á auknum samskipt- um við vestrænar þjóðir. Hún framfylgir nær algerri einangr- unarstefnu, en Kínverjar halda hins vegar áfram að efla sam- skipti sín við Vesturlönd. Ekki er ólíklegt, að þessi til- gáta sé á rökum reist. Albanir hafa frá fornu fari verið mjög andvígir öllu þvi, sem erlent er, því að þeir hafa jafnan óttazt ásælni erlendra rikja og kostað kapps um að hrinda árásum út- lendinga á fjallavirki þeirra. Það hefur komið sér vel fyrir þá að eiga bandalag við Kín- verja, sem búa í órafjarlægð og hafa á engan hátt stofnað sjálf- stæði landsins í hættu, þótt þeir hafi að einhverju leyti hlutazt til um málefni þess. Mönnum leikur mikil forvitni á að vita, hvað tekur við f AÞ baniu, þegar Hoxha hverfur af sjónarsviðinu. Fregnir hafa borizt af því, að heimsfrægir læknar hafi komið til Tirana, THE OBSERVER og ennfremur hefur því verið fleygt að Hoxha sé haldinn syk- ursýki á háu stigi. Nánasti sam- starfsmaður hans, Mehmet Shehu forsætisráðherra, er einnig sagður heilsutæpur. Hann hefur leitað sér lækninga í Frakklandi annað veifið og er talið, að hann sé haldinn krabbameini. En að sjálfsögðu hafa engar yfirlýsingar verið gefnar um heilsufar þessara æðstu manna þjóðarinnar, og báðir hafa lagt sig fram um að kveða orðróm þennan niður með því að koma fram opinber- lega að undanförnu. Hins vegar er ljóst að hvorugur gengur heill til skógar. Kvíði og ókyrrð hafa mjög gert vart við sig í Albaníu, og efnahagserfiðleikar þessa smá- ríkis hafa magnazt eftir að vin- áttan við Kínverja tók að kólna. Ráðherraskipti að undan- förnu hafa leitt í ljós, að tals- verð ólga er á stjórnmálasvið- inu. Piro Dodbida, landbúnað- arráðherra, var nýlega látinn víkja úr embætti og við þvi tók ung og óþekkt kona, Themije Thomaj að nafni. Dodbida, sem áður var álitinn gegn og góður flokksmaður og átti sæti í mið- stjórn flokksins, var gefið að sök að hafa „brotið í bága við stefnu flokksins og gert sig sek- an um alvarleg mistök í starfi“. Um svipað leyti var Thoma Deljana, mennta- og menning- armálaráðherra, látinn víkja, og í hans stað var Tefta Cani sett í embætti, en hún er litt þekkt eins og landbúnaðarráð- herrann, og komin af fátæku bændafólki. Ef til vill eru þessi manna- skipti liður i tilraunum Hoxha til að „yngja flokkinn upp“ og skipa ungt fólk í áhrifastöður. Framhald á bls. 21 Munu Albanir halla sér að Rússum á nýjan leik? að gæta. Þegar EBE færir út í 200 mílur, hvenær sem það verður, munu þau síldarmið, sem við höf- um sótt á í Norðursjónum verða innan þeirra marka. Þá vaknar sú spurning, hvort eftir einhverju er að slægjast fyrir okkur að tryggja okkur áframhaldandi rétttilsíld- veiða í Norðursjó. Þær veiðar hafa haft nokkra þýðingu fyrir þjóðarbúskap okkar, ekki sízt vegna þess, að þar hefur tiltekinn gerð fiskibáta fengið verkefni. sem ella hefðu ekki verið fyrir hendi. Þá er óljóst, hvort fisk- veiðilögsaga EBE mun ná til Grænlands en verði svo, að Græn- land verði aðili að fiskveiðilög- sögu EBE-ríkjanna og EBE þar með hafa samningsrétt um fisk- veiðar innan grænlenzkrar fisk- veiðilögsögu hljótum við einnig að meta hvort fiskveiðihagsmunir þar skipta okkur einhverju máli. Nú hafa þrjú aðildarríki EBE samninga við okkur um fiskveið- ar innan 200 milna markanna hér við land. Samningur Breta rennur út hinn 1. desember n.k. en samn- ingar V-Þjóðverja og Belga á næsta ári. Islenzka ríkisstjórnin hefur lýst því yfir, að hugsanleg- ar nýjar viðræður um fiskveiði- réttindi innan 200 mflna mark- anna hljóti einvörðungu að byggjast á gagnkvæmum fisk- veiðiréttindum og að íslendingar muni þá meta, hvort fiskveiðirétt- ur i fiskveiðilögsögu EBE skipti tslendinga svo miklu, að þess vegiia sé réttlætanlegt að hleýpa fiskiskipum frá EBE inn i okkar fiskveiðilögsögu eftir að samning ar þeirra renna út. Það er hins vegar ljóst, að með- an Efnahagsbandalagið er upp- tekið í innbyrðis deilum um þessi mál veit enginn hvað það hefur upp á að bjóða í þessum efnum, eins og forsætisráðherra benti á í viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu, og þar af leiðandienginn leið að gera sér grein fyrir hvort eftir einhverju er að slægjast. En við verðum að fylgjast náið með framvindu mála innan EBE til þess að vera vel undir það búnir að gæta hagsmuna okkar, þegar þar að kemur. Hlutur stjórnarandstöðu Tveggja ára afmæli rikisstjórn- arinnar fyrir viku hefur orðið til þess, að nokkur úttekt hefur verið gerð á störfum hennar á þessu tímabili. Niðurstaða þeirrar út- tektar hefur verið jákvæð. Ríkis- stjórnin hefur náð meiri árangri en menn kannski taka eftir við fyrstu sýn. I fyrsta lagi hefur hún fært fiskveiðilögsögu landsmanna út í 200 sjómílur og tryggt yfir- ráðarétt íslendinga yfir 200 míl- unum — í raun tryggt fullan sig- ur í landhelgismálum Islendinga. 1 öðru lagi hefur hún eytt þeirri óvissu sem um þriggja ára skeið ríkti f öryggismálum þjóðarinnar, með samkomulagi þvi, sem gert var við Bandaríkjastjórn haustið 1974 um dvöl varnarliðsins hér á landi. 1 þriðja lagi hefur henni tekizt að halda fullri atvinnu á krepputíma, þegar nágrannaþjóð- ir hafa staðið frammi fyrir geig- vænlegu atvinnuleysi og í fjórða lagi birtir nú óðum til í efnahags- málum þjóðarinnar. Verðbólgan hefur minnkað um helmihg frá því að núv. ríkisstjórn tók við störfum. A þessu ári verður viðskipta- hallinn við útlönd helmingi minni en hann var á síðustu tveimur árum. Á þessu ári er full ástæða til að ætla, að jöfnuður náist í fjármálum rikissjóðs, tekizt hefur að halda útlánum bankakerfisins innan skynsamlegra marka á síð- asta ári og þessu ári og vonir standa til, að í ár takist að ná tökum á útlánum fjárfestingar- lánasjóðanna. Þegar litið er fram á veg er full ástæða til bjartsýni enda þótt leggja verði áherzlu á, að sá ábati, sem þjóðarbúinu kann að áskotnast á næstu misserum verði notaður til þess að greiða upp erlendar skuldir að verulegu leyti. Þegar á heildina er litið verður því ekki annað sagt, en að rík- isstjórnin hafi haft erindi sem erfiði. En hver er hlutur stjórnar- andstöðunnar á þessum tveimur árum? Venjulega er það svo, að stjórnarandstaða á tiltölulega auðvelt með að ná sér á strik i erfiðu árferði, þegar gera þarf óvinsælar ráðstafanir. Slikir tím- ar hafa verið I okkar þjóðfélagi síðustu tvö ár. Engu að siður munu flestir sammála um, að stjórnarandstaða hafi ekki aukið hróður sinn á þessu tveggja ára tímabili. Bersýnilegt er, að forystulið Al- þýðuflokks og Alþýðubandalags hefur hvað eftir annað gert sér vonir um, að samstarf Sjálfstæðis- flokks og ' Framsóknarflokks mundi fara út um þúfur. Það hef- ur ekki gerzt. Þvert á móti hefur samvinna þessara tveggja flokka styrkzt á þessu timabili. Þá fer ekki milli mála, að flokkarnir tveir hafa hvað eftir annað bund- ið vonir sinar við verkalýðshreyf- inguna og gert ítrekaðar tilraunir til að beita henni fyrir striðsvagn stjórnarandstöðunnar f von um, að hörð átök á vinnumarkaðnum mundu leiða til þess að ríkis- stjórnin yrði að hrökklast frá. Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag hafa litið svo á, að þeir væru hinir einu sönnu verkalýðsflokk- -r og þess vegna gætu þeir vænzt raunhæfs stuðnings verkalýðs- samtakanna í stjórnarandstöðu. Þetta hefur hins vegar ekki gerzt. Það er langt um liðið síðan verka- lýðssamtökin fóru að taka faglega afstöðu til mála og í þeim kjara- samningum, sem gerðir hafa ver- ið í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur verkalýðshreyfingin haldið sig innan þess ramma. Hafi ein- hverrar tilhneigingar gætt hjá einstökum forystumönnum verka- lýðssamtakanna til þess að fara út af þeirri braut er ljóst, að hinir almennu félagsmenn hafa tekið í taumana eins og berlega kom í ljós í vetur, þegar sýnt var, að enginn almanna stuðningur var við þær verkfallsaðgerðir, sem þá var gripið til. Kjarni málsins í sambandi við stjórnarandstöðuna þessi tvö ár er þó sá, að bæði Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag eiga við svo erfið innri vandamál að etja, að í raun og veru hafa báðir þessir flokkar lítið getað sinnt eiginlegu hlutverki sinu á vettvangi stjórn- málanna. Alþýðuflokkurinn berst nú fyrir lifi sinu og enn er ekki ljóst, hvernig þeirri baráttu lykt- ar. Enn hefur ekkert komið fram, sem bendir til þess, að forystu- menn Alþýðuflokksins hafi gert sér grein fyrir því í hvaða farveg þeir eigi að beina flokknum til þess að hann gangi i endurnýjun lífdaga. Fremur benda athafnir þeirra til þess, að þeir hafi ekkert lært og að uppdráttarsýkin hafi enn ekki verið kveðin niður. Siðustu 8 árin hafa verið tiltölu- lega róleg innan Aljiýðubanda- lagsins en nú er ljóst, að ýmsar innri mótsetningar, sem þar hafa verið til staðar, eru að koma upp á yfirborðið á sama tíma og traustir og sterkir forystumenn eru að draga sig i hlé en engir koma í þeirra stað. Þess vegna má búast við þvi á næstu árúm, að vaxandi upplausnarástand riki innan Al- þýðubandalagsins. Þegar þessi innri vandamál eru höfð i huga er kannski ekki við því að búast, að þessum tveintur flokkum hafi tek- izt að hazla sér völl í stjórnarand- stöðunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.