Morgunblaðið - 05.09.1976, Side 48
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JW*1T0Xmllt8llÍb
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1976
Fíkniefnamálin:
2 menn í gæzlu
til viðbótar
7 menn sitja nú inni vegna tveggja mála
FlKNIEFNADÓMSTÓLLINN f
Reykja\ík hefur enn úrskurðað
tvo menn til viðbótar f gæzluvarð-
hald vegna þeirra tveggja ffkni-
efnamála, sem nú eru til með-
Komnir „heim
í Búðardal”
— og sveitarstjórnin
slær upp „svaka partíi”
POPPHLJóMSVEITIN Ðe
Lónlí blú bojs er komin í Búð-
ardal og mun skemmta þar í
dag. Áður en ferðin hófst lýstu
hljómsveitarmenn því yfir, að
líklega myndi sveitarstjórinn
halda þeim kaffisamsæti í
þakklætisskyni fyrir að hafa
fest Búðardal endanlega inn á
landabréfið með laginu „Heim
í Búðardal".
Sveitarstjórnin tók piltana á
orðinu, og efnir í dag til kaffi-
samsætis fyrir piltana. Verður
opið hús í félagsheimilinu og
geta allir Búðdælingar og
íbúar nágrannasveitanna kom-
ið og þegið kaffiveitingar í
boði sveitarstjórnarinnar.
ferðar hjá dómstólnum. Sitja þvf
alls sjö menn f gæzluvarðhaldi
vegna þessara tveggja mála.
1 fyrrkvöld var annar maður
úrskurðaður í allt að 10 daga
gæzluvarðhald vegna nýrra
málsins, en uppvíst varð um það,
þegar tveir varnarliðsmenn
reyndu að smygla um 250 grömm-
um af hassi inn á Keflavíkurflug-
völl. I kjölfar handtöku þessara
manna var síðan maður handtek-
inn í Reykjavík á föstudag, en sá
hafði selt varnarliðsmönnunum
efnið. Síðar um kvöldið þennan
sama dag var síðan annar Reyk-
vfkingur tekinn vegna sama máls.
Allir þessi menn hafa verið
úrskurðaðir í 10 daga gæzluvarð-
hald.
Þá var maður handtekinn f gær-
morgun í tengslum við eldra mál-
ið, sem dómstóllinn hefur haft til
meðferðar undanfarnar vikur, og
Framhald á bls. 47.
ísland — Belgía á Laugardalsvellinum í dag
KL. 18.15 í dag hefst á Laugardalsvellinum landsleikur f knattspyrnu milli tslendinga og Belgfu-
manna. Er leikur þessi liður f undankeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu, en þar leikur
tsland f riðli með Belgfu, Hollandi og irlandi. tslenzku landsliðsmennirnir héldu austur að
Þingvöllum á föstudaginn og dveljast þar við æfingar fram að leiknum f dag, en Belgfumenn sem
komu til landsins á föstudaginn brugðu sér á æfingu á Laugardalsvellinum í gærmorgun og þá tók
RAX þessa mynd af þeim. Búizt er við miklu f jölmenni á leikinn í dag, en forsala aðgöngumiða verður
við Laugardalsvöllinn frá kl. 13.
Heilsugæzlustöðin í Árbæjarhverfi:
Rándýrum
myndavélum
stolið
BROTIZT var inn f verzlunina
Fókus f Lækjargötu f fyrrinótt og
stolið þaðan myndavélum og smá-
hlutum að verðmæti um hálf
milljón króna, að því er verzl-
unareigandinn áætlar.
Sá sem þarna var að verki braut
rúðu í verzluninni og.náði þannig
myndavélum af gerðinni Nikro-
mat EC og Nikon F2 ásamt zúm-
linsu og ýmsum öðrum smáhlut-
um. Biður rannsóknarlögreglan
þá sem verða þess varir, að
myndavélar af þessari gerð eru
boðnar til sölu, að gera sér aðvart.
Þá voru unglingspiltar gripnir,
þar sem þeir voru að brjótast inn í
Vinnufatabúðina. Voru þeir send-
ir á upptökuheimilið í Kópavogi.
Kemst stöðin ekki í gagnið
vegna deilu við ráðuney tið?
FRAMKVÆMDUM er nú að
Ijúka við heilsugæzlustöð Reykja-
vfkurborgar f Arbæjarhverfi og
vilja borgaryfirvöld, að rekstur
hennar hefjist þegar f stað eða
um leið og hún er tifbúin. Sá
ljóður er þó á, að rfkið, sem
greiða á laun starfsfólki stöðvar-
innar, læknum og hjúkrunarkon-
um, telur sig ekki haf a heimild til
þess á fjárlögum að ráða fólk til
stöðvarinnar, auk þess sem engir
samningar séu við lækna á heilsu-
gæzlustöðvum f Reykjavfk .
Heiibirgðisyfirvöfd borgarinnar
telja þó að notast megi við sama
kjarasamning og héraðslæknar
úti á landi hafa við rfkið. Enn er
þvf alls kostar óvfst, hvort heifsu-
gæzlustöðin í Arbæjarhverfi
kemst f gagnið nú f haust eða
ekki.
Þegar undirbúningur að gerð
heilsugæzlustöðvar í Árbæjar-
hverfi hófst árið 1974, skrifaði
Reykjavikurborg heilbirgðisráðu-
neytinu og fór þess á leit, að ríkis-
sjóður greiddi sinn hlut í gerð
tveggja heilsugæzlustöðva. Ráðu-
neytið féllst á eina stöð og á fjár-
lögum 1975 og 1976 er gert ráð
fyrir fjárveitingu til hennar og
lýkur henni 1977.
Árið 1975 hófst vinna við hönn-
un heilsugæzlustöðvarinnar í Ár-
bæjarhverfi og var henni lokið ó
október. Var haft fullt samráð við
ráðuneytið um hana. Var greitt úr
borgarsjóði til þess að standa
straum af framkvæmdum og var
gert ráð fyrir, að þeim yrði lokið á
þessu ári. Samkvæmt lögum um
slfkar stöðvar á ríkissjóður að sjá
nm útvegun starfsfólks í
stöðvarnar og á hann að standa
straum af kostnaði við manna-
hald.
Þegar útséð var, að heilsu-
gæzlustöðin yrði tilbúin f júlf-
ágúst, skrifaði borgarlæknir ráðu-
neytinu bréf í marz, þar sem farið
var fram á, að ráðuneytið stað-
festi stofnun heilsugæzlustöðvar-
innar og jafnframt var beðið um,
að ráðnir yrðu til stöðvarinnar
tveir læknar og tvær hjúkrunar-
konur. Svar barst frá ráðuneytinu
hinn 24. ágúst, þar sem sagt er, að
ekki sé unnt að staðfesta stofnun
stöðvarinnar, nema þrjú skilyrði
séu uppfyllt. I fyrsta lagi að
Reykjavfkurborg afhendi áætlun
að heildarskipulagi heilsugæzlu-
svæða og stöðva í Reykjavík, í
öðru lagi verði tilgreind tímaáætl-
un um það hvenær smíði stöðv-
Alvarlegur vatns-
skortur í Ey j afir ði
Akúreyri, 4. september —
ALVARLEGS vatnsskorts er
nú farið að gæta vfða f sveftum
Eyjafjarðar bæði skorts á
neyzluvatni og vatni handa
nautgripum og öðrum
búfénaði. Þessu vefdur bæði
snjóleysið síðastliðinn vetur og
hinir langvarandi og stöðugu
þurrkar f sumar. Þó er ástandið
mjög misjafnt eftir bæjum og
byggðarlögum og virðist verst f
Öngufstaðahreppi. Á þeim bæj-
um, þar sem bændur hafa á
undanförnum árum lagt langar
og vandaðar vatnsleiðslur hátt
ofan úr fjöllum, er vfðast nægi-
legt og gott vatn, en þar sem
menn hafa treyst á lindir og
bæjarlæki er alger vatnsþurrð
vfða.
Hér fara á eftir ummæli
nokkurra bænda og bænda-
kvenna í Eyjafirði um Vatns-
leysið.
Aðalsteina Magnúsdóttir,
Grund: „Hér á Grund og nokkr-
um öðrum bæjum f nágrenninu
er bæði hreint og tært vatn og
nægilegt vatn enda lögðum við í
mikinn kostnað við margra
kílómetra langa vatnleiðslu
ofan úr fjöllum árið 1969. Hins
vegar veit ég til þess, að á mörg-
um bæjum er vatnsskortur og
sums staðar alger vandræði af
þeim sökum.“
Þuríður Schiöth, Hólshúsum:
„Það er búið að vera vatnslaust
hér annað slagið lengi í sumar,
en nú eru að verða hér hrein
vandræði. Nú er ekki lengur
nokkur lögg í læknum og lind,
sem við höfum áður vatn úr er
líka orðin þurr. Svona er búið
að standa f hálfan mánuð og er
að verða algjört öngþveiti.
Við höfum sótt vatn undan-
farið í haugsugu suður í Finna-
staðaá og látið það í ker í kúa-
haganum. Neyzluvatn er aftur
Framhald á bls. 47.
anna yrði lokið og í þriðja lagi
lýsir ráðuneytið yfir því, að engir
samningar séu í gildi fyrir lækna
til stöðvarinnar, fyrr en slfkir
samningar liggi fyrir.
Framhald á bfs. 47.
Mjólkurlítr-
inn hækkar
um 6 krónur
EINS og frá var skýrt f bfaðinu f
gær náðist samkomulag á fundi
sexmannanefndar með sáttasemj-
ara á föstudagskvöld um 8.83%
hækkun verðlagsgrundvallar
landbúnaðarafurða. Nýtt verð á
mjólkurvörum átti að taka gildi 1.
september sl„ en tekur ekki gifdi
fyrr en rfkisstjórnin hefur f jallað
um það og er gert ráð fyrir, að það
verði á morgun eða þríðjudag.
Breytingar á verði sauðf járafurða
og nýtt verð á kartöflum tekur
ekki gildi fyrr en 15. þessa mán-
aðar. Hver lftri mjófkur hækkar
nú um sem næst 6 krónur, úr 61 f
67 krónur.
Að sögn Guðmundar Sigþórs-
sonar, ritara sexmannanefndar,
verður hlutfallslega meiri hækk-
un á afurðum kúabúanna í verð-
lagsgrundvellinum og er það gert
í þeim tilgangi að sporna gegn
samdrætti í mjólkurframleiðsl-
unni. Þá eru kartöflur nú teknar
út úr verðlagsgrundvellinum og
eru þær verðlagðar sérstaklega,
en það er gert til að meira sam-
ræmi fáist milli framleiðslukostn-
aðar þeirra og söluverðsins.
Verð hvers mjólkurlítra til
bóndans hækkar úr 64 kr. í 71
krónu við þessa hækkun. Sex-
mannanefnd hefur enn ekki lokið
verðlagningu á sauðfjárafurðum
og strandar sú verðákvörðun m.a.
á ágreiningi um verð á gærum.