Morgunblaðið - 07.09.1976, Síða 7
Arftaki
blóðherja
Hitlers
Kommúnistaf lokkur ís-
lands M/L gefur út blaS,
er nefnist Stéttabaráttan.
í 14. tölublaði þessa ár-
gangs, sem út kom hinn
11. ágúst sl. birtist for-
ystugrein um innrás
Sovétmanna f Tékkósló-
vakfu, hinn 21. ágúst fyrir
8 árum. í forystugrein
þessari segir Stéttabarátt-
an: „Þann 21. ágúst eru
átta ár liðin sfðan sovézkir
skriðdrekar héldu innreið
sfna I Prag. Þá var hul-
unni svipt af hinu rétta
eðli sovézku endur-
skoðunarstefnunnar og
örvæntingarfull frelsisbar-
átta tékknesku þjóðarinn-
ar opinberaði fyrir alheimi
að „sovézki rauði herinn"
var ekki lengur tákn
sigursins yfir nazistum,
heldur arftaki blóðherja
Hitlers. Breshnev-klfkan
hikaði þá ekki við að
brjóta frelsisviðleitni
Tékka á bak aftur með
nöktu vopnavaldi, hernám
Tékkóslóvakfu var f senn
órækt vitni um strfðsfyrir-
ætlanir sósfal-
heimsvaldasinnanna og
viðvörun til austantjalds-
landanna um. að Sovét-
rfkin mundu ekki þola
sjálfstæða þróun þeirra
eða vinslit við sig. Alþýða
heimsins hefur ekki
gleymt hetjulegu viðnámi
tékkneskrar alþýðu og
hún hefur ekki gleymt
Jan Palach og félögum
hans, sem hikuðu ekki við
að fórna Iffi sinu til að
vekja samlanda sfna til
meðvitundar um nauðsyn
vopnaðrar baráttu gegn
sovézku innrásarherjun-
um. J:fnframt sýndu at-
burðirnir f Tékkóslóvakfu
1968, að sóvézku kúgar-
arnir munu ekki hörfa frá
Austur-Evrópu, nema fyrir
byssustingjum. Það þarf
alþýðustrfð til að sigrast á
glæpaherjum Sovétrlkj-
anna og tryggja sigur
verkalýðsins f A-Evrópu."
Frelsisbarátta
í Póllandi
Siðan segir f forystu-
grein Stéttabaráttunnar
„Hinir örlagarfku atburðir
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1976
7
f Prag fyrir átta árum
leiða hugann ósjálfrátt að
þeirri frelsisbaráttu, sem
fram fer f Póllandi nú.
Undir forystu Kommún-
istaflokks Póllands
(M—L) reis pólsk alþýða
samhuga upp gegn til-
raunum sovézku heims-
valdasinnanna og leppa
þeirra í Gierek-stjóminni
til að lögfesta stjómar-
skrárákvæði þess efnis,
að vináttan við Sovétrlkin
skyldi vera ævarandi.
Efnahagsörðugleikar
pólsku endurskoðunar-
sinnanna, sem valdið hafa
mikilli verðbólgu og
versnandi kjörum almenn-
ings, sýna að kapítalism-
inn hefur enn að nýju náð
undirtökunum I efnahags-
lífi landsins. Kommúnista
flokkur íslands M/L lýsir
fullum stuðningi sfnum
við réttmæta og hetjulega
baráttu verkamannanna f
Varsjá, Radom og annars
staðar og hvetur fslenzka
alþýðu til virks stuðnings
við frelsisbaráttu pólskrar
alþýðu. Pólskur verkalýð
ur sker sig ekki úr, nema
hvað snertir fómfýsi og
hetjulund f baráttunni. í
Ungverjalandi og Búl-
garfu, A-Þýzkalandi og
Tékkóslóvakfu fer barátt-
an vaxandi, þótt hún hafi
enn ekki náð sömu út-
breiðslu og styrk og í Pól-
landi. Jafnvel f Sovétrlkj-
unum sjálfum eykst and-
spyrnan dag frá degi og
sovézku sósfalheims-
valdasinnunum reynist
örðugra en fyrr að blekkja
verkalýð heimalandsins til
fylgis við hernaðaraðgerð-
ir sínar."
Tengsl AB-
forystunnar við
Sovétríkin
Loks segir Stéttabarátt-
an f forystugrein sinni:
„Það er skylda fslenzkra
verkalýðsstétta að styðja
þessa baráttu með öllum
ráðum og efla baráttuna
hérlendis gegn útsendur-
um sósfal-
heimsvaldastefnunnar.
Þeir sem hérlendis nefna
sig andheimsvaldasinna,
en lúta þó svo lágt að
þiggja heimboð hinna faz-
ísku stjóma A-
Evrópurfkjanna, eru engir
andheimsvaldasinnar.
Þeir eru f sömu sporum og
fslenzkir þjóðernissinnar,
sem gistu Hitlers-
Þýzkaland á fjórða ára-
tugnum. Yfirlýsmgum
Þjóðviljans um að Alþýðu-
bandalagið styðji Sovét-
rfkin ekki, verður ekki trú-
að fyrr en blaðið tekur
upp virka baráttu gegn
grimmdarverkum sovézku
sósfal-
heimsvaldastefnunnar.
Orð slfkra manna eru
ómarktæk, þegar haft er f
huga að AB forystan er f
nánum tengslum við
Sovétrfkin og tekur mál-
stað þeirra f hvfvetna."
0STRATFORD
E N S K I R
PENINGASKÁPAR
þjófheldir — eldtraustir
heimsþekkt —
viðurkennd framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919.
brother
skólaritvélar hafa farið sigurför um landið
og eru nr. 1 ó óskalista allra nemenda í landinu og allra þeirra
sem þurfa að nota ferðaritvélar
Kynnið ykkur skólaritvélina
sem vinnur eins og rafritvél
Vélin, sem hagar sér eins og
rafmagnsritvél með hinni
nýju sjálfvirku vagnfærslu
áfram.
8 stillingar á dálka.
Er í fallegri tösku úr
gerviefni.
Gerð 760TR
Superstar hefir alla kosti geróar 1350 og auk þess segment-
skiptingu, valskúplingu og lausan dálkastilli, þannig að
dálka má stilla inn eða taka út hvar sem er á blaðinu.
Verð ritvéla hefur farið mjög hækkandi
erlendis undanfarió og búist er við frek-
ari hækkunum.
Umboðsmenn
um lond ollt
BORGARFELL
Skólavörðustíg 23, sími 11372.
BROTHER skólaritvélar eru úr stáli, eru
fallegar og traustar, en kosta samt mun
minna en allar sambærilegar vélar. 2JA
ÁRA ÁBYRGÐ.