Morgunblaðið - 07.09.1976, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1976
Slökkviliðsmenn að störfum við Laugaveg 168. Ljésm.mm.k.ói.
Upptök stórbrunans
á Laugavegi enn óljós
# UPPTÖK eldsvoðans I húsinu á
Laugavegi 168 sl. sunnudag eru
enn ókunn, að sögn rannsóknar-
lögreglu, en miklar skemmdir
urðu þar á húsakynnum og innan-
stokksmunum fimm fyrirtækja.
Standa aðeins útveggir hússins
eftir, og er þvf Ijóst að þarna
hefur orðið milljóna tjón. Mikill
eldur var f húsinu, þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang en þvf tókst
fljótlega að ná tökum á eldinum
og verja næstu hús. Þó mátti ekki
miklu muna að eldurinn næði að
læsa sig f Hekluhúsið, þar sem
þakið var tekið að sviðna.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar,
varaslökkviliðsstjóra, fékk
slökkviliðið tilkynningu um elds-
voðann um kl. 11.36 og þegar
komið var á staðinn var mikill
eldur í húsinu. Vatnið sem
slökkvibilarnir höfðu f tönkum
sfnum hrökk þvf skammt, og var
strax tekið til við að tengja vatns-
slöngur í fimm nærliggjandi
brunahana. Eftir það gekk
slökkvistarfið greitt og sagði
Gunnar að upp úr kl. 12.30 hefði
slökkviliðið verið búið að ná full-
um tökum á eldinum. Gunnar
sagði, að eldurinn hefði verið
mestur í húsakynnum Byggis hf.
þegar slökkviliðið kom á staðinn,
og virtist svo sem hann hefði ver-
ið búinn að búa um sig þar nokk-
uð lengi áður en tók að loga. Til
dæmis hefði maður sem átti leið
þarna framhjá um hálfri klukku-
stund áður en útkallið kom, talið
sig finna megna reykjarlykt en
einskis frekar orðið var. Maður
sem var að vinna i húsinu varð
hins vegar ekki var við neitt óeðli-
legt fyrr en tekið var að loga í
húsinu.
Borgþór Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Byggis hf., sagði að
tjónið af völdum brunans væri
algjört, en fyrirtæki hans hafði f
húsinu skrifstofu, verzlun og lag-
er. Auk þess leigði það út frá sér
húsnæði til Kjartans Ólafssonar,
trésmiðs, sem hafði þar lítið verk-
stæði og einnig fyrirtækinu Sæ-
plasti. Auk þess voru I húsinu
fyrirtækin Tækniver og Bilaraf-
virkinn, og misstu öll þessi fyrir-
tæki húsnæði sitt auk þess sem
mikið tjón varð á innanstokks-
munum, vörum og tækjum. Húsið
var hins vegar i eigu Stillis hf.
— Skák
Framhald af bls. 17
14. c5! — Bf8,
(Enn kom 14. — b4 sterklega
til greina).
15. b4
(Nú er svarta staðan rignegld
niður og mótspilsmöguleikar
svarts sáralitlir).
15. — a5, 16. a3 — Rh5, 17. Rd2
— a4
(Þennan leik taldi Najdorf
slæman, betra hefði verið að
bíða átekta og eiga svarið a4, ef
hvitur léki Rb3. T.d. 17. — h6,
18. Rb3 — a4, 19. Ra5? —
Rxc5!).
18. Hadl — Bg7, 19. Re2 — Rf8,
20. Dcl — Re6, 21. Rf3
Svart: Guðmundur
(Þegar hér var komið skák-
inni kom Najdorf til mín og
sagði: „Sérðu stöðuna mina,
stórkostleg," og eftir skákina
sagði hann Guðmundi, að hér
hefði hann eins vel getað gefizt
upp).
21. — Bd7, 22. Hd6 — Had8, 23.
Hfdl — Bc8,24.g4
(Svartur er gjörsamlega yfir-
spilaður og verður nú að láta af
hendi peð).
24. — Rhf4, 25. Rxf4 — exf4,
26. Bxf4 — Rxf4, 27. Dxf4 —
Be6, 28. e5
(öruggara en leikfléttan 28.
Hxd8 — Dxf4, 29. Hxe8+ —
Bf8, 30. Hdd8 — Dxl + , 31. Kh2
— Df4+, 32. Khl — Dxl + , 33.
Rgl — Dxa3 og svartur hefur
vissa mótspilsmöguleika þótt
hvítur ætti að vinna).
28. — Bd5, 29. Hel — Hd7, 30.
Rd4
(Nú tapar svartur meira
liði).
30. — Hde7, 31. Rxc6 — Bxc6,
32. Hxc6 — Db8, 33. Hb6 —
Dc7, 34. Hb7 — Dd8, 35. c6 og
svartur gafst upp. Hvfta frfpeð-
ið gerir út um skákina.
Ingi R. Jóhannsson hafði
hvítt og lék enska leiknum
gegn Matera. Bandaríkjamað-
urinn fékk jafnt tafl út úr byrj-
uninni og stóð jafnvel öllu bet-
ur á timabili. Staðan bauð hins
vegar ekki upp á mikið og var
samið jafntefli eftir um það bil
30 leiki.
Þá verður næst á vegi okkar
skák Margeirs Péturssonar og
Keene. Eftir óreglulega leikja-
röð kom upp afbrigði af drottn-
ingarbragði. Margeir tefldi stíft
til vinnings og blés snemma til
sóknar á kóngsvæng. En hann
gáði ekki nægilega að sér á öðr-
um hlutum borðsins, lék af sér
peði og síðan manni og tapaði.
Antoshin beitti franskri vörn
gegn Gunnari Gunnarssyni og
er það í fyrsta skipti sem sú
byrjun sést í mótinu. Gunnar
tefldi vel framan af og náði
betri stöðu. I tímahrakinu lék
hann nokkrum ónákvæmum
leikjum og þegar skákin fór í
bið var staða hans lakari.
Viðureign þeirra Vukcevic og
Westerinen var afar fjörug.
Vukcevic beitti tveggja riddara
tafli og virtist fá mjög góða
stöðu út úr byrjuninni. Wester-
inen flækti taflið eftir getu, og
þegar skákin fór í bið var staða
hans a.m.k. ekki lakari.
Og þá er að geta skáka þeirra
Friðriks og Timmans. Friðrik
hafði svart gegn Hauki og var
teflt katalónskt tafl. Skákin var
í jafnvægi allan tímann og bið-
staðan er hreint endatafl. Hún
er þessi:
Svart: Friðrik
Áframhald varð:
41. Rf3 — Rc6. 42. Rd2+ —
Kd5. 43. Ke3 jafntefli.
Timman fékk snemma mjög
erfiða stöðu gegn Tukmakov,
kom ekki út mönnunum og varð
að lokum að fórna tveim peðum
til þess að fá spil. Þegar skákin
fór i bið hafði Tukmakov enn
tvö peð yfir og ætti að vinna
auðveldlega. Skákin birtist með
athugasemdum í blaðinu á
morgun en biðstaðan var þessi:
Svart: Timman
wm m mm • w WB, Hi
■ k. • 4 W- W. . wm ■ i mm w
■ A n i
Pl ' hni.. |ð$
■ p k 9/
■ mrn. Wm,
gp ÉH ||§ mm. ÉH 3
Hvftt: Tukmakov
Hvítur lék biðleik.
Eins og lesendur taka eftir
birtist hér aðeins ein skák úr
10. umferð. Ástæðan er einfald-
lega sú, að aðrar skákir, sem
lauk í fyrstu setu, eru lítt
áhugaverðar. í blaðinu á morg-
un verða hins vegar birtar
nokkrar skákir, sem farið hafa í
bið, en voru fjörlegar og
skemmtilegar.
1 dag, þriðjudag, verður 11.
umferð tefld og hefst kl. 17.30.
Þá tefla saman: Westerinen og
Haukur, Keene og Vukcevic,
Matera og Margeir, Antoshin og
Ingi, Björn og Gunnar, Timman
og Helgi, Guðmundur og
Tukmakov, Friðrik og Najdorf.
Biðskákir voru tefldar í gær
og urðu úrslit þessi: Helgi og
Matera gerðu jafntefli, Gunnar
vann Keene, Margeir vann
Gunnar, Atnoshin vann Gunn-
ar, Ingi R. vann Margeir og
gerði jafntefli við Westerinen,
Antoshin gerði jafntefli við
Najdorf og við Guðmund Sigur-
jónsson og jafntefli gerðu einn-
ig Friðrik og Haukur. Aðrar
skákir fóru aftur í bið, þar á
meðal skák Björns Þorsteins-
sonar og Timmans, sem er nú
orðin 105 leikir.
Staðan í mótinu er rtú þessi:
1. Najdorf 7,5 v., 2. Friðrik 7 v.,
3. Tukmakov 6,5 og biðsk., 4.
Antoshin 6,5 v., 5. Timman 6 v.
og 2 biðsk., 6. Ingi R. 6 v., 7.
Westerinen 5 v. og biðsk., 8—9.
Guðmundur og Keene 5 v., 10.
Vukcevic 4,5 v. og 2 biðskákir
11. Haukur 4,5 v. og biðsk., 12.
Matera 4 v., 13. Helgi 3,5 v., 14.
Margeir 2,5 v., 15—16 Björn og
Gunnar 1,5 v. og biðsk.
Jón Þ. Þór
Getum afgreitt nú þegar, eóa me6 mjög skömmum
afgreiöslufresti CATERPILLAR aflvélar og rafstöbvar
í eftirtöldum stæröum:
aflvélar<
rafstöó
D-398 - 12 strokka - 850 hö viö 1225 s
D-379 - 8 — - 565—- -II- —II —
D-353 - 6 —" — - 425 — -II- —II —
D-343 - 6—— - 365 —- 1800
D-334 - 6 —" — - 220-»- 200
D-3306 - 6 — 'i— - 155-»- 1500
D-3304- 4—..— - 75-»-
D 353
425 hö
1225 sn/mín
yts f.
- /T*“v
JL
Xn
%
Einnig bjóóum vió
hinn vióurkennda ULSTEIh|^skiptiskrúfubúnaó.
Sölu-, viógeróa- og
varahlutaþjónusta í
sérflokki
HEKLA HF
Lauggvegi 170-172, — Sími 21240
Caterpillar, Cat, og IB eru skrósett vörumerki