Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 1

Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 1
40 SÍÐUR 208. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mótmæli undir sálmasöng Höfðaborg, Washington, Dar-es-Salaam 8. september — Keuter AÐ MINNSTA kosti sex manneskjur týndu Iffi f nýjum óeirðum f Höfðaborg og Jóhannesarborg f dag. Oeirðirnar brutust aftur ót aðeins örfáum klukkustundum eftir að John Vorster, forsætisráðherra Suður- Afrfku, héft ræðu á ársþingi þjóðarflokksins, þar sem hann gerði að umtalsefni kynþáttaóeirðirnar, sem hafa kostað meir en 300 mannslff sfðustu þrjá mánuði. Dómsmálaráðherra landsins, James Kruger, komst að þeirri niðurstöðu í ræðu sinni á þinginu að aðskilnaðarstefnan væri nauð- synleg til að leysa vandamál landsins. Sagði hann að svertingj- Framhald á bls. 22 Símamynd AP ATLANTSHAFSBANDALAGSLÖND hafa farið fram á að fá að rannsaka Mig-25 orrustuþotuna, sem sovézkur flugmaður flaug til Japans, en hann ætlaði að komast til Bandarfkjanna þar sem hann ætlaði að leita hælis sem pólitfskur flóttamaður. Löndin hafa aðeins borið óformlegar óskir fram en ekki er vitað hver svör japönsku stjórnarinnar verða. Þessi mynd er tekin þegar sérfræðingar japanska flughersins byrjuðu rannsókn sfna á þotunni á Hakodateflugvelli. Varnarmálaráðuneytið sagði að rannsóknin væri til að ganga úr skugga um hvort flugmaðurinn, Ivanovich Belenko, hafi brotið japönsk lög með skyndilegri komu sinni til landsins. Búizt er við að hann fari fljótlega til Bandarfkjanna, þar sem Ford forseti hefur lofað honum hæli. Solzhen- itsyn flyzt til Banda- ríkjanna Washington 8. september — Reuter. SOVÉZKI rithöfundurinn Al- exander Solzhenitsyn hefur flutzt með fjölskyldu sfna frá Sviss til Bandarfkjanna, að sögn bandarfska útlendinga- eftirlitsins. Kom Solzhenitsyn, sem gerður var útlægur frá Sovétrfkjunum f febrúar 1974, til Bandarfkjanna frá Kanada. Borgaryfirvöld f Ziirich f Sviss, þar sem rithöfundurinn hefur búið, segja, að hann hefði tilkynnt um að hann ætl- aði að flytjast úr landi f ágúst. Framhald á bls. 22 Jackie vill verða sendiherra London 8. september AP BREZKA Lundúnablaðið Evening Standard segir í dag að Jacqueline Kennedy ekkja John Kennedys Bandarikjaforseta, hafi áhuga á að snúa aftur til opinberra starfa sem sendiherra lands sins í Paris eða London, ef Jimmy Carter, forsetaefni demókrata, nær kjöri í nóvember- kosningunum. Helzt vildi frú Kennedy verða sendiherra i París, en London er næst á listan- um. Soares veikur: Efnahagsúr- ræðum frestað „Leiðtogarnir í Moskvu tala um frið en undirbúa stríð” Hong Kong 8. september AP — NTB CHIEO Kuan-Hua, utanrfkisráð- herra Kfna sagði f ræðu í Peking f gær, aðbaráttan um heimsyfirráð harðnaði stöðugt og myndi að lokum leiða til nýrrar heims- styrjaldar. Ráðherrann flutti Ráðherrann gagnrýndi einnig Ford forseta og Henry Kissinger utanríkisráðherra harðlega fyrir afstöðu þeirra gagnvart Sovét- rikjunum. Um Kissinger sagði Kuan-Hua, að er ráðherrann stæði andspænis útþenslustefnu Sovétríkjanna væri hann eini stjórnmálamaðurinn, sem vildi að dregið yrði úr spennu og væri jafnvel búinn til að fórna öðrum til að vernda sjálfan sig. Ráð- herrann líkti „deténtestefnu" Bandarikjanna við MUnchensam- komulagið á árunum eftir 1930 og i sagði að Bandaríkin hefðu í raun og veru tekið tigrisdýrsunga í fóstur og að sú stefna hefði fyrr en seinna í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir Bandaríkja- menn. Skoraði hann á Bandaríkin að taka höndum saman við Kína gegn Sovétríkjunum. Fram hefur komið að Kinverjar telja að brotthvarf Schlesingers úr embætti varnamálaráðherra sé móðgun við Kínverja og bendi til þess að Ford forseti skilji ekki afstöðu Kínverja til Rússa. Lissabon 8. september — Reuter. FORSÆTISRAÐHERRA Portúgals, Mario Soares, frestaði til annars kvölds útvarps-ávarpi til þjóðarinnar, sem hann ætlaði að halda f kvöld. Var búizt við að hann myndi tilkynna harðar aðgerðir í efnahagsmálum. Sögðu embættismenn að hann ætlaði að gera þjóðinni grein fyrir hinu alvarlega ástandi efnahagsmála Portúgals og kynna aðgerðir stjórnarinnar þvf til lausnar. Astæðan fyrir frestun ávarpsins er sögð vera Iftils háttar veikindi ráðherrans. Ekki er vitað um hverjar tillög- ur Soares hefur fram að færa, en litið er á ávarp hans sem mikla prófraun fyrir ákveðni og vald minnihlutastjórnar sósialista og hvað hún er reiðubúin að ganga langt til móts við hægriöflin. Hef- ur stjórn Soares verið gagnrýnd fyrir að vera jafn máttlaus og bráðabirgðastjórnirnar sex sem verið hafa við völd í Portúgal síðan 1974. Efnahagsvandamálin hafa hrannazt upp, gjaldeyrisvarasjóð- ir eru tómir og innflutningur er fjármagnaður með lánum, 16% vinnufærra manna eru atvinnu- laus, stöðnun ríkir í iðnaðarfram- leiðslu og fjárfesting er litil sem engin vegna óvissu um stefnu stjórnarinnar í efnahagsmálum. Soares álítur verðbólguna vera 25%, en i raun er hún liklega meiri. Augljósustu aðgerðir, sem stjórnin getur gripið til, er að takmarka launahækkanir og að gera auðveldara fyrir fyrirtæki að losa sig við ónauðsynlegt vinnu- Framhald á bls. 22 þessa ræðu sem haldin var til heiðurs James Schlesinger fyrr- um varnarmálaráðherra Banda- rfkjanna, sem nú er f heimsókn f Kfna. 1 ræðu sinni sagði Kuan-Hua: „Heimsveldissinnaþjóðin, sem kallar sig sósíalíska, talar hátt um að draga úr spennu en beinir allir orku sinni til hernaðaruppbygg- ingar og stríðsundirbúnings. Sovétríkin eru mesta ógnunin við heimsfriðinn í dag, þvi að leið- togarnir í Moskvu tala um frið, en búa sig undir stríð.“ „Við höfum ekki yf- ir neinu að kvarta 9? „ÞAÐ er alveg útilokað að samkomulag náist á þessum fundi. Það verður allsherjarfundur á mánudag, og þar á að ákveða stað og stund fyrir næsta fund,“ sagðl Hans G. Andersen, sendiherra, f samtali við Morgunblaðið, en hann situr nú hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna f New York. Hans sagði að það lægi í loft- árangur hafi þá náðst á þessum inu að næsti fundur ráðstefn- unnar yrði haldinn í New York eða Genf liklega I maí. Þegar Hans var spurður hvort enginn sex vikum, sem ráðstefnan hef- ur setið, sagði hann: „Jú, þetta þokast allt í áttina, en menn togast á fram og aftur. Aðalatriðið er að við höfum ekki yfir neinu að kvarta. Það hefur ekki verið breytt neinu af því, sem við höfum verið að berjast fyrir og sem náðist fram á siðasta fundi." Hans sagði þau mál, sem ráð- stefnan á að fjalla um, væru til umræðu i nefndum, sem hefðu Framhald á bls. 22 — segir Hans G. Andersen um árangur hafréttarráðstefnunnar Hans G. Andersen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.