Morgunblaðið - 09.09.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976
19
200 mílur við
Grænland um
næstu áramót
Kaupmannahöfn 8. september
— NTB
DANSKA stjórnin mun beita sér
fyrir þvf að fiskveiðilögsagan við
Grænland verði færð út I 200 sjó-
mflur eins fljótt og hægt er eftir
að þjóðþingið kemur saman f
haust, að sögn danska útvarpsins.
Danska utanríkisráðuneytið er nú
í samvinnu við Grænlandsráðu-
neytið að ganga frá lagafrum-
varpi og samkvæmt útvarpinu er
um ný fullveldislög fyrir Græn-
land að ræða. Eiga þau að taka
gildi um næstu áramót og er
reiknað með að um leið taki lög
um 200 mflna fiskveiðilögsögu
gildi.
Ungfrú „Þökk
sé Flokknum"
Hong Kong 8. september
NTB
KlNVERSK kona. sem ól mey-
barn f borginni Tangshan,
skömmu eftir jáðskjálftana
niiklu þar í jiílf hefur skýrt
dóttur sfna Hsieh Tang, sem
þýðir Þökk sé Flokknum.
Farþegar i KLM þotunni, sem rænt var i fyrri viku, ganga frá vélinni £
Larnacaflugvelli é Kýpur, eftir a8 ræningjarnir gáfust upp.
Öryggisverðir 6 Larnacaflugvelli hjálpa ungri, hollenzkri konu og barni
hennar út úr strætisvagni sem flutti þær frá KL.M flugvelli.
TUC heitir stuðn-
ingi við stjórnina
Brighton 8. september
— Reúter.
VERKALYÐSFELÖGIN f Bret-
landi samþykktu með yfirgnæf-
andi meirihluta að halda áfram
samvinnu við rfkisstjórn Verka-
mannaflokksins um lausn efna-
hagsvandamála landsins, en
kröfðust um leið tafarlausra inn-
flutningshafta til verndar inn-
lendum iðnaði. Þau lýstu einnig
ðánægju sinni með hið mikla at-
vinnuleysi f Bretlandi, en um 1.5
milljónir manna eða 6.4% af
vinnuaflinu eru án vinnu. Hvöttu
félögin til aukinna afskipta rfkis-
valdsins af f jármálum og að áætl-
un yrði gerð um enduruppbygg-
ingu iðnaðarins.
1000 fulltrúar verkalýðsfélaga í
Bretlandi sitja nú ársþing alþýðu-
sambandsins, TUC, og lýstu þeir
trúnaði sínum við ríkisstjórnina
og samþykktu að launakröfum
yrði stillt í hóf. Það varð þó áfall
fyrir einingu þingsins að samtök
sjómanna ákváðu að hefja verk-
fall á laugardag f mótmælaskyni
við gerð heildarsamninga, sem
gera ráð fyrir að launahækkanir f
ár verði ekki meiri en 4.5%. Ekki
Framhald á bls. 28
Beirút:
Samgönguleið milli
borgarhluta lokast
Beinit 8. september — Reuter.
EINA samgönguleiðin á milli
þeirra borgarhluta Beirút sem
stjórnað er af hægri og vinstriöfI-
ununi lokaðist f dag vegna fall-
byssuskothrfðar, sem fylgt var af
Argentína:
Afnám verðlagshafta lykill-
inn að baráttu gegn verðbólgu
SU AKVÖRÐUN Argentfnu-
stjórnar að afnema verðlagshöft
reyndist lykillinn að hinum vel-
heppnuðu tilraunum stjórnarinn-
ar til að halda niðri verðhækkun-
um að þvf er Jose Martinez de Hoz
efnahagsmálaráðherra Argen-
tfnu, sagði f vfðtaff við bandarfska
blaðið The Journal of Commerce
nú fyrir skömmu. Þð vmsum hag-
fræðingum kunni að finnast þessi
staðhæfing ráðherrans mótsagna-
kennd, er hann fullviss um að
afnám verðlagsákvæðanna gerði
það að verkum að baráttan gegn
verðbóigunni bar árangur.
Sagði ráðherrann að afnám
haftanna hefði opnað leið inn á
markaðinn fyrir vörur, sem fram-
leiðendur höfðu ekki viljað selja
vegna lítillar hagnaðarvonar auk
þess sem aukin hagnaðarvon
hefði hvatt menn til aukinnar
framleiðslu.
Neytendur og verzlunarmenn
hefðu ekki þurft að kaupa allt,
sem þeir gátu komizt yfir, vegna
ótta við verðhækkanir og þeir
hefðu byrjað að festa kaupum á
ýmsum vörum, sem ekki bráðlá á
er þeir sáu fram á að verðlag yrði
stöðugra. Ráðherrann sagði að í
tfð stjórnarinnar, sem Jorge
Videla hershöfðingi steypti af
stóli I með byltingu án blóðsút-
hellinga í marz sl., hefðu verðlags-
höft orðið til þess að framleiðni
minnkaði og mikill skortur varð á
helztu neyzluvörum. Þess vegna
hefði verið ákveðið að afnema
höftin. Sagði ráðherrann að nú
væri nægilegt framboð af vörum
og auk þess fjármagnaði hagnað-
urinn fjárfestingar í iðnaði og
Iandbúnaði.
Ráðherrann sagði, að eftir að
verðlagshöft voru afnumin hefðu
orðið miklar verðhækkanir, þar
sem hleypa hefði orðið út f verð-
lagið áhrifum 70% gengislækkun-
ar pesosins í stjórnartíð Isabellu
Peron, en sfðan hefði verðbólgan
hjaðnað til muna. Heildsöluverð
hækkaði aðeins um 4,5% i mai á
móti 27 % í apríl og 54 % í marz.
skotum leyniskyttna. Arásirnar á
leiðina, safnhliðið svonefnda sem
er á milli austurbæjarins, sem
stjórnað er af hægrimönnum og
vesturbæjarins, sem vinstrimenn
ráða, hðfst með fallbyssuskothrfð
í nótt og seinnipartinn f dag var
skothrfð leyniskyttna svo áköf að
enginn gat farið um hliðið.
Skothrfðinni var sérstaklega
beint að byggingu nálægt hliðinu,
sem vinstrimenn ráða. Friðar-
gæzlusveitir Araba á mörkum
borgarhlutanna tveggja hafa orð-
ið fyrir skotárasum hægrimanna
frá því á laugardag. Ferðamenn
sem fóru á milli bæjarhluta
snemma í morgun komust óhindr-
að um hliðið en síðar um daginn
var fólki visað frá.
Útvarp hægri falangista sagði
að yfirmaður friðargæzlusveit-
anna hefði haft samband við-fal-
angistaleiðtogann Pierre Gemay-
el og Elias Sarkis, væntanlegan
forseta, til að ræða um opnun
Framhald á bls. 28
Mikil verðmætasóun í útgerð NATÓ
flotans, en stöðlun hjá Rússum
London AP —
JOHN E. Moore, ritstjóri Jane's
Fighting ships segir f inngangs-
orðum að nýjustu útgáfu bókar-
innar, sem kom út um sl. mán-
:ðamót, að gffurleg verðmæta-
sóun eigi sér stað við útgerð
herskipaflota NATO. Segir
Moore, að f f lotanum séu notað-
ar 60 mismunandi gerðir af rat-
siám og skotfæri þurfi f 30 mfs-
munandi byssur og ekkert lát
sé 4 þessari sóun, þvf að nú séu
f byggingu fyrir NATO-rfkin
skip af 11 mismunandi gerðum.
A hinn bóginn noti Sovétmenn
og Varsjárbandalagsrfkin stöðl-
uð skip og rekstraráætlanir.
Moore segir að sovézki flot-
inn sé orðinn að mikilvægu
tæki I utanrikisstefnu Sovét-
rfkjanna með aðstöðu á Kúbu,
Guinfu, Sómalíu, Aden og
Angóla. Moore segir, að tilkoma
fyrsta flugvélamóðurskips So-
vétrfkjanna, Kiev, sem olli
áhyggjum á Vesturlöndum er
það sigldi inn á Miðjarðarhaf
fyrr á þessu ári, hafi aukið getu
Sovétmanna langt umfram hið
yfirlýsta heimavarnatakmark
þeirra.
Moore sagði i viðtali f tilefni
útgáfu bókarinnar, að aukinn
flotastyrkur Sovétrfkjanna
kynni að verða notaður I sam-
bandi við aðgerðir sovézku
leyniþjónustunnár KGB. Segir
hann.að hið pólitíska afl flotans
— segir ritstjóri Jane's Fighting ships
kynni vel að verða notað þegar
KGB vill stofna til vandræða.
T.d. geti sovézk skip án þess að
hleypa af einu einasta skoti
stöðvað eða truflað siglingar
um helztu sund og skipaskurði
heimshafanna, sem flest séu
hlutlaus landsvæði og þessi
möguleiki verði að teljast
meiriháttar pólitiskt vopn, þar
sem 98% af vöruflutningum
heims fari fram með skipum.
Moore segir að þrátt fyrir
miklar umræður f Bandarikjun-
um og takmörkun á hernaðarút-
gjöldum hafi Bandaríkjamenn
yfirburði yfir Sovétrikin hvað
snerti flugmóðurskip og árásar-
kafbáta, en þá vanti enn skip til
að geta fylgzt nægilega vel með
og haldið aftur af skipum hugs-
anlegs fjandmanns.
Moore segir aó ef finna megi
einhvern veikleika í sovézka
flotanum sé hann meðal mann-
anna, sem sigli skipunum. Að-
eins um 30% af þeim 500 þús-
und manns, sem manni flotann,
séu sjálfboðaliðar, hinir gegni
3ja ára herþjónustu og komi til
þjálfunar tvisvar á ári, alls um
60 þúsund manns.
""¦;:. '¦"¦; „^" ** 'ilí'4, ^l^
¦ 0^^' *& íjjjj^ _^^K
""«^*áí IV IPP^ ' ** JriltfÉfl BP"^^^
ÉÉÉfÍ K^^^^^ $
«""•***" .^^Él ~'Wt^^^^ '¦i' #
^&á0^^
W^^ T
Sovézka f lugvélamódurskipið Kiev.