Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976
30
t
Faðir minn
KRISTÞÓR ALEXANDERSSON
forstjóri
andaðist 8 september í Borgarspitalanum
Fyrir mina hönd og annarra vandamanna
Sveinbjórg Kristþórsdóttir.
t
Útför mannsins mins
MAGNÚSAR BERGMANNS SIGURÐSSONAR
Reynimel 80
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 1 0 september kl 1 30
Fyrir hönd dætra okkar
Nanna Pétursdóttir
t
Minningarathöfn um
HALLDÓRU JÓNSDÓTTUR
frá Súðavlk
fer fram i Bústaðakirkju, föstudaginn 10. sept. kl. 16. Jarðað verður
frá Súðavikurkirkju, mánudaginn 1 3 sept kl 1 5
Börn, tengdabörn og barnaborn
t
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför sonar
míns og föður okkar
ÁSGEIRS H. GUÐMUNDSSONAR
verkstjóra
Laugarnesvegi 52
Marta Þorleifsdóttir
Baldursgotu 27
Jenný Ásgeirsdóttir Helga Ásgeirsdóttir
Guðmundur Asgeirsson Hilmar Ásgeirsson
Útför
GUÐMUNOAR A BJORNSSONAR
Skúlagötu 52
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 10 sept kl 3
Guðmunda Ágústsdóttir
Eyþór Guðmundsson Þórdts Sigurðardóttir
Arinbjórn Guðmundsson Ragnheiður Jónsdóttir
Ásmundur Guðmundsson Svava Guðmundsdóttir
og barnabörn
t
Einlægar hjartans þakkir til ykkar allra er auðsýndu okkur samúð og
vinsemd vegna fráfalls vinar okkar
ÞORGEIRS GUÐMUNDSSONAR
frá Sandhólaferju
Digranesvegi 38
Kópavogi
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Gunnars Anna Sumarliðad
Flosi Þorgeirs Herdís R. Þorgeirsd.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar, tengda-
foðurogafa JÓSEPS V. GUÐJÓNSSONAR
Urðargötu 12
Patreksfirði
Þróður Jósepsson Tove Jósepsson
Kristinn Jósepsson Hulda Sveinsdóttir
Guðríður Söbstad Pétur Söbstad
Halldór Jósepsson Kristín Bjarnadóttir
Guðrún Nllsen Knud Nllsen
Reynir Jósepsson
og barnabörn
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
Guðbjörn Gísli
Baldvinsson frá
Akureyri -Minning
Genginn er góður drengur, fall-
ið valmenni.
Guðbjörn Gísli Baldvinsson var
fæddur á Akureyri 30. mai 1937
og þvi ekki nema 39 ára gamall er
hann varð bráðkvaddur að heim-
ili sínu, Stórahjalla 17 i Kópavogi,
snemma morguns hinn 31. ágúst
s.l. Foreldrar Guðbjörns voru
hjónin Snjólaug Baldvinsdóttir
frá Akureyri, sem nú býr I Vest-
mannaeyjum og hefur um margra
ára skeið starfað hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna. Einstök
sæmdarkona, sem i engu má
vamm sitt vita. Faðir Guðbjörns,
Baldvin Sigurbjörnsson, skip-
stjóri frá Ólafsfirði, andaðist hinn
2. maí 1970. Baldvin átti við mikla
vanheilsu að striða hin síðustu
æviár sín, en æðraðist ekki, enda
afburða þrekmenni til likama og
sálar. Baldvin var á sínum mann-
dómsárum einn fengsælasti skip-
stjóri norðanlands. Byrjaði ungur
formennsku á Ólafsfirði og síðan
á Akureyri. Samfara aflasældinni
fór afbragðs sjómennska. Ég
þekkti sjómennsku Baldvins vel
því að ég var um skeið stýrimaður
hjá honum. Ég hygg að ekki finn-
ist margir Norðlendingar, komnir
á og yfir miðjan aldur sem ekki
muna Balda á Bris en svo var
hann nefndur og þá kenndur við
vélbátinn Bris frá Akureyri, sem
hann stjórnaði við mikinn orðstír
um margra ára skeið.
Guðbirni kynntist ég er hann
var um 9 ára gamall, en þá trúlof-
aðist ég eldri systur hans, Erlu.
Kynni okkar höfðu því varað um
30 ára skeið og man ég þar engan
skugga nokkurn tfma hafa á fall-
ið. Allar minar minningar um
hann eru ljósar og bjartar.
Skömmu eftir að Guðbjörn flutt-
ist með foreldrum sinum til
Reykjavíkur árið 1954 hóf hann
vélvirkjanám í Vélsmiðjunni
Héðni og lauk því námi árið 1959.
Að námi loknu var hann um nokk-
urt skeið vélgæzlumaður á skip-
um Eimskipafélagsins. Þegar
hann hætti siglingunum innritað-
ist hann i Vélskóla Islands og hóf
þar nám, en varð af óviðráðanleg-
um ástæðum frá að hverfa eftir
aðeins skamman námstíma. Éftir
að Guðbjörn varð að hætta vél-
stjóranáminu, sem ekki var hon-
um tregalaust, vann hann í landi
við ýmsar iðngreinar.
Siðustu 6 árin vann hann hjá
Olíuverslun Islands við margvis-
leg störf, viða um land og veit ég
það af afspurn að betri þóttu
handtök hans en flestra annarra,
enda báru yfirmenn hans mikið
traust til hans og kvöddu hann
gjarnan til þá er mikið þótti við
liggja.
Guðbjörn kvæntist árið 1958
hinni ágætustu myndarkonu,
Guðbjörgu Þorgeirsdóttur. Guð-
björg er dóttir hjónanna Hólm-
friðar Guðsteinsdóttur, verzlunar-
konu, og Þorgeirs Þórðarsonar
múrarameistara, hinna mestu
sæmdarmanneskja, sem reyndust
Guðbirni með eindæmum í hví-
vetna. Þá má hafa til marks um
dugnað þeirra og elju beggja,
Guðbjargar og Guðbjörns, að
varla getur að lita fegurra og
snyrtilegra heimili en þeirra og er
þá sama hvort um er að ræða
innanhúss eða umhverfis hús
þeirra. Það sem meira er, þá eru
það hannyrðir Guðbjargar sem
mestan svip setja á heimilið innan
dyra en aftur á móti smekkvisi og
elja Guðbjörns' sem umhverfis
prýða.
Þau hjónin eignuðust 3
myndarbörn, Þorgeir 19 ára,
Baldvin 14 ára og Hólmfríði
Maríu 11 ára.
I allri umgengni var Guðbjörn
mikið snyrtimenni, dagfarsprúð-
ur og nærgætinn. Guðbjörn var
tilfinningamaður og átti rika
lund, sem hann flikaði ekki.
Guðbjörn, minn ágæti mágur,
er látinn. Eftir er skilin minning-
in um drenglyndan sómamann,
sem í engu mátti vamm sitt vita,
framúrskarandi heimilisföður og
eiginmann. Ég minnist hans með
sorg og þakklæti. Almáttugur Guð
megi vernda og styrkja eiginkon-
una, börnin, móðurina og alla
aðra hans nánustu.
Kristján Gfslason.
María Eyjólfsdóttir
—Minningarorð
Fædd 18. október 1891.
Dáin 31. ágúst 1976.
Við kveðjum þíg með kærri ást og þökk
og kyrrlát minnumst góðra bjartra stunda.
Af trega sárum tárumst hugar klökk
en tfminn geymir von til endurfunda.
J.
Þessi kveðja var flutt er móðir
mín lést. Hún getur eins átt við
nú, er ég kveð tengdamóður mína
hinstu kveðju.
María Eyjólfsdóttir lést á
Heilsuverndarstöðinni í Reykja-
vík 31. ágúst s.l. á 85. aldursári.
Andlát Mariu kom okkur er
stóðum henni næst ekki á óvart,
hún hafði átt langan starfsdag og
skilað honum með sóma.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvi, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á f mið-
vikudagsblaði, að berast f sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
lfnubili.
Skilti á krossa
Flosprent, sími 16480.
María var dugleg og mikilhæf
húsmóðir og móðir sem lengst af
stóð ein með börn sín og sá þeim
farborða. Þær hafa ekki verið
ófáar stundirnar sem einstæð
móðir varð að vinna til þess að sjá
fyrir 9 börnum, þó ekki kæmust
nema 5 til fullorðinsára. Þá voru
ekki bætur eða tryggingar eins og
nú er orðið.
Tengdamóðir mín var gjöful og
stórlát, kröfuhörð var hún við
sjálfa sig, því ekki mátti hún til
þess hugsa að leita á náðir ann-
arra. Enda þurfti hún þess ekki,
hún var ávalt sú sem veitti.
En hún var ekki ein, elsta dóttir
hennar, Kolbrún, hefur ávallt
búið með móður sinni og stutt
hana og systkini sin. Þegar ég lit
til baka þau 34 ár sem liðin eru, er
ég unglingur tengdist Maríu, þá
er mér efst i huga þakklæti til
hennar frá mér og börnum mín-
um, fyrir það er hún var okkur
öllum, ekki síst barnabörnunum
er hún vildi allt gott og bað þeim
blessunar.
Stormar blésu oft í fang henni
en hún stóð þá ávallt af sér, þar til
nú hin síðustu ár, er aldur og elli
færðust yfir.
Hafi hún kæra þökk fyrir sam-
fylgdina.
Steina.
I dag er til moldar borin heið-
urskonan María Eyjólfsdóttir,
Bankastræti 14, þar man ég hana
lengst og best.
Maria var mikilhæf kona, frið
sýnum og glæsileg, góð og mild
móðir, sem stóð traust að baki
sinum mörgu börnum og studdi
þau alla tíð í gegnum erfiðleika
lifsins, fátæk af veraldlegum auð,
en auðug af hjartahlýju og fórn-
fýsi.
Hún kvartaði aldrei, en vann
huga og hjarta allra er henni
kynntust með sínu fallega og
hlýja brosi og segja mætti mér að
orð skáldsins frá Hnifsdal hafi oft
átt við um hana: „Hún kunni að
brosa og hylja tárin, og brosti
fegurst þá blæddu sárin.“
Maríu Eyjólfsdóttur er i dag
saknað og kvödd i þögulli og ein-
ægri vináttu fyrir liðin ár:
Blessuð veri minning hennar.
Z.
Vegna jarðarfarar Ágústar M. Júlíussonar verður verslun
okkar
lokuð í dag
frákl. 13—15.
Timburverslun Árna Jónssonar & Co hf.
Laugavegi 148.