Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 40

Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 40
AUGLÝSINGASÍMINN KR: 22480 2H«r0unl>l<ibit> AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 |H«rsunt>I«t>i{> FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER Verður Tóna- bæ lokað? seldu síld fyrir 21 milljón kr. FJÖGUR fslenzk sfldveiðiskip seldu sfld f Hirtshals f Danmörku f gær fyrir samtals 20.9 millj. kr. og fékkst f öllum tilfellum gott meöalverö fyrir sfldina. Magnús NK seldi 58.2 lestir fyr- ir 4 milij. kr. og var meðalverð pr. kg. kr. 68.89, Kap 2. VE seldi 60.8 lestir fyrir 4.1 millj. kr. og var meðalverðið kr. 67.84, Huginn VE seidi 91 lest fyrir 6.2 millj. kr., meðalverðið var 67.99 og Helga Guðmundsdóttir BA seldi 103.4 lestir fyrir tæplega 6.6 millj. kr. og var meðalverðið þar 63.32. 170 kr. fyrir þorskkílóið „Fiskskortur er nú í Bretlandi” segir Jón Olgeirsson ræðismaður FISKVERÐ f Bretlandi er mjög hátt um þessar mundir og hafa fengizt 155—170 kr. fsl. fyrir kflóið af þorskí og ýsu- verðið er mjög svipað. Þá hafa fengizt 155 til 200 krónur fyrir koiakflóið. „Farið er að kólna f veðri hér í Bretlandi og mikill fiskskortur er, t.d. er sffelit verið að hringja f mig og spyrja hvort fsienzk skip sigli ekkert á næstunni eða hvort hægt sé að útvega frystan fisk frá Is- landi,“ sagði Jón Olgeirsson ræðismaður lslands f Grimsby f samtali við Morgunblaðið f gærkvöldi. Að sögn Jóns seldi togarinn Prince Philip 69.5 lestir af Is- landsmiðum í gær fyrir 32.681 sterlingspund eða 10.7 millj. króna. „Verðið hefur verið mjög hátt síðustu 10 dagana, en þá steig það allt í einu, “ sagði Jón. „Það er ekki þar með sagt að þetta háa verð haldist f allan vetur, en það ætti ekki að vera langt frá þvf. Að vísu hefur verð á ýsu lækkað örlftið og stafar það af miklu framboði frá Skotlandi." Morgunblaðið spurði Jón hvort fiskskortur væri nú í Bretlandi og kvað hann svo vera, enda linnti síminn aldrei látum. „Mér er kunnugt um að einhverjir Islenzkir bátar og togarar hafa hug á að sigla til Bretlands á næstunni," sagði Jón að lokum. Jón Olgeirsson. ■ standa að rekstri Tónabæjar með þeim hætti sem gert hefur verið að undanförnu", sagði Davfð Oddsson formaður Æskulýðsráðs Reykjavíkur í samtali við Mbl. „Ástandið við Tónabæ, og þá einkum fyrir utan staðinn, hefur farið hríðversnandi og keyrði um þverbak s.l. föstudagskvöld. Þá voru mörg hundruð manns fram eftir allri nóttu fyrir utan staðinn og mesta mildi var að ekki fór mjög illa. Unglingar voru illa til reika og tómum áfengisflöskum var fleygt fram og til baka af fullkomnu skeytingarleysi. Ég hef oft undrast þolinmæði nágranna Tónabæjar, sem hljóta að verða fyrir stórkostlegu ónæði þar um helgar. Reyndar hafa kvartanir aukizt mjög sfðustu mánuðina. Ég tel að Tónabær hafi átt rétt á sér á sínum tíma og reyndar væri æskilegt að geta haldið þar uppi dansi fyrir þá mörgu, sem þangað koma í góðum tiigangi. En hinn hópurinn, sem setzt hefur að staðnum fyrir utan með svalli og Framhald á bls. 22 Eldur í Sólbaki á Akureyri Akureyri 8. september — ELDUR KOM upp f lest togarans Sólbaks um klukkan 11.40 f morg- un. Sólbakur lá þá við við- legukant Slippstöðvarinnar og var nýafstaðin 8 ára flokkunar- viðgerð togarans. Verið var að bera rykbindiefni á einangrun f lestinni, en einnig voru járnsmið- ir að logskera lúgukarma á þil- fari. Neisti mun hafa hrokkið nið- ur f lestina og kveikt þar f, svo að upp gaus mikill eldur og bráður. Reynt var að beita handslökkvi- tæki, sem var nærtækt og hafði nærri þvf tekizt að slökkva eldinn með því, þegar innihald tækisins þraut. Þá blossaði eldurinn upp aftur svo af varð mikið eldhaf, sem lék um alla lestina og upp í stjórnpall að aftanverðu, en hann sviðnaði nokkuð að utan. Slökkvi- liðinu tókst greiðlega að slökkva eldinn með þvf að beita froðutæki og einnig var járnið í skipinu kælt með vatni. Mikið tjón varð f elds- voða þessum á einangrun og raf- leiðslum. ,. Framhald á bls. 28 ÖVlST er nú, hvað verður um Tónabæ, sem Reykjavfkurborg hefur rekið sem skemmtistað fyr- ir ungt fólk.llfkur benda til að sú ákvörðun verði tekin að Tónabæ verði lokað f þvf formi, sem rekstur hans hefur verið og hefur Æskulýðsráð Reykjavfkur skipað sérstaka vinnunefnd til þess að kanna framtfð hússins. Astæðan fyrir þvf að Reykjavfkurborg fhugar nú breytingar á rekstri Tónabæjar er slæm reynsla undanfarnar helgar. Hefur hópur ungs fólks haldið til fram eftir nóttu fyrir utan skemmtistaðinn og haft þar frammi alls konar ærsl og óiæti. „Ég fæ ekki séð, að Reykja- víkurborg sé lengur stætt á að Gjaldeyrisstaðan rýrnaði í ágúst um 1.800 milljónir BRÁÐABIRGÐATÖLUR um gjaldeyrisþróunina í ágústmánuði eru ekki eins hagstæðar og tölurnar voru fyrir júní og júlímán- uð og verður batinn, sem þróunin þá tvo mánuði gaf til kynna, þvi ekki eins mikill þegar á heildina er litið. Gjaldeyrisstaðan versnaði í ágústmánuði um rúmlega 1.800 milljónir króna. Þrátt fyrir mjög bætt viðskiptakjör er fyrir- sjáanlegt að mikill halli verður á viðskiptum við út- lönd á árinu og aukning verður á skulda- og lána- byrði landsmanna. Þessar upplýsingar fékk Mbl. f gær hjá Jóhannesi Nordal, seðla- bankastjóra. Hann sagði að þrátt fyrir mjög mikinn bata í gjaldeyr- isþróuninni í júnf og júlí væri búizt við því að heldur drægi úr honum það sem eftir væri ársins og þvf yrði niðurstaða ársins ekki eins góð og búizt hefði verið við. I ágúst eru bráðabirgðatölur gjald- eyrisþróunarinnar þær, að hún Framhald á bls. 28 HURÐ NÆRRI HÆLUM — Islenzka landsliðið f knattspyrnu tapaði með einu marki gegn engu fyrir HoIIendingum á Laugardalsvellinum f gær- kvöidi, en Hollendingar urðu númer 2 f sfðustu heimsmeistarakeppni f knattspyrnu. A með- fylgjandi mynd hefur Matthfas Hallgrfmsson náð knettinum frá hollenska markverðinum og við þetta tækifæri og fleiri skall hurð nærri hælum við mark Hollendinga f leiknum f gærkvöldi. A blað- sfðum 38 og 39 er f jailað um landsleíkinn f máii og myndum. (Ljósm. Friðþjófur). i. * % 'Zf** * , ^ W>fm. m Tveir sigla á V-Þýzkaland TVEIR bátar, Vestri frá Pat- reksfirði og Jón á Hofi frá Þorlákshöfn, eiga að seija netafisk f V-Þýzkalandi f næstu viku. Eru það fyrstu fs- lenzku bátarnir, sem selja á v-þýzkum markaði á þessu ári. Afii bátanna er að lang- mestu leyti stér ufsi, og örlftið af karfa og löngu en þessar fisktegundir henta mjög vel fyrir v-þýzka markaðinn. Vitað er að nokkrir aðrir bátar hafa áhuga á að sigla með fisk til V-Þýzkalands og að sögn Ingimars Einarssonar, framkvæmdarstjóra Félags fsl. botnvörpuskipaeigenda, eiga þessir tveir fyrrnefndir bátar að selja á þriðjudag og mið- vikudag f næstu viku. Sement hækk- ar um 4,3% SEMENTSVERÐ hækkaði síðastliðinn mánudag um 4,3%. Tonnið kostar nú án söluskatts 14,400 krónur og með söluskatti 17.280 krónur, en kostaði áður 13.800 krónur án söluskatts, en með honum 16.560 krónur. Astæður fyrir hækkuninni eru þær, að 200 króna hækkun á tonninu varð vegna hækkun- ar á brennsluolíu sem hækkaði 14. ágúst síðastliðinn. Nam oliuhækkunin 11,8%. Þá varð 400 króna hækkun á gjaldi i flutningsjöfnunarsjóð, en hann greiðir svokallað vöru- gjald sem nýlega hækkaði um 59% Viðræður við Norsk Hydro: Könnunarviðræður um álver við Eyjafiörð 4 bátar VIÐRÆÐUNEFND um orkufrek- an iðnað hefur að undanförnu staðið f sambandi við Norsk Hydro. Hafa farið fram eins kon- ar könnunarviðræður um mögu- leika á gerð álbræðsiu við Eyja- fjörð. Hefur verið skipzt á upplýs- ingum og gerðar ýmsar forkann- anir, sem gætu gert það kleift að viðræður færu fram sfðar. Þessar upplýsingar fékk Mbl. í er hjá Jóhannesi Nordal, seðla- uankastjóra, en hann er formaður viðræðunefndarinnar um orku- frekan iðnað — eins og nefndin hefur verið kölluð. Jóhannes kvað tæknilega undirnefnd hafa haft með höndum viðræðurnar til þessa. Vonir standa til að þessari undirbúningsvinnu ljúki sfðari hluta vetrar og verður þá unnt að taka afstöðu til þess, hvort af við- ræðum verði og þá einnig ef svar- ið verður jákvætt, hvernig að þeim yrði staðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.