Morgunblaðið - 19.09.1976, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.09.1976, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1976 „Verst að vera matarlaus...” Syrtra—LanRholtí, 17. sept. SMALAMENNSKU á Hruna- mannaafrétti gengu f alla staði vel nema hvað þoka gerði mönnum stundum erfitt fyrir og einn gangnamannanna, Kol- beinn Sigurðsson í Hvftárholti varð viðskila við félaga sinn og lá úti eina nótt. Féð, sem kom af afréttinum f fyrstu leit, var að þessu sinni óvenjulega margt og er talið að til Hruna- réttar hafi komið um 12 þús- und fjár. Vænleiki fjárins var rétt f meðallagi og má telja að þar hafi úrkoman f sumar haft sfn áhrif. — Það var ekkert fýsilegt að vera þarna einn en verst var þó að vera matarlaus, sagði Kol- beinn Sigurðsson í samtali við Mbl. í gær. Það var iaugardag fyrir viku að hann var viðfjár- leit á Geldingafelli er svarta- þoka skall á þannig að hann missti sjónar á félaga sínum og fann ekki leiðina til hinna gangnamannanna. Þetta var fyrsta skipti, sem Kolbeinn fer á fjall en hann er 20 ára. — Ég var á reið þarna eftir fellinu, þegar þokan skall á. Fyrst reið ég austur að Stóru- Laxá og upp með henni þar til ég fann hófför. Ég fylgdi þeim fram eftir kvöldi en tókst ekki að finna leiðina til gangna- mannanna. Það var því ekki um annað að ræða en halda kyrru fyrir um nóttina en ég var með tvo hesta og tvo hunda. Hestana batt ég við hönd mér en ég svaf mest lítið. — Undir morgun fór að rigna og það var þvf ógjörningur að halda lengur kyrru fyrir, því ég hafði engin regnföt. Þegar ég hafði verið á ferðinni í um þrjá tíma í þokunni fann ég slóð og rakti hana niður í Leppistung- ur. Þar voru gangnamenn með tjald og tóku vel á móti mér. — Ég var ekki mikið áttau en ég fór of mikið í austur í byrjun en það var verst með matinn og þá ekki síst fyrir hundana, því þeir voru orðnir mjög soltnir. Það leið sólarhringur frá því að ég lagði upp á laugardagsmorg- uninn oe bar til ég hitti gangna- „Hefði ekki viljað liggja úti aðra nótt,“ sagði Kolbeinn Sig- urðsson. mennina aftur. Ég hefði ekki viljað liggja úti aðra nótt, sagði Kolbeinn að lokum. Leitun á Hrunamannaafrétti er skipt 1 norðurleit og suður- leit. Norðurleit lagði upp 9. september sl. og voru í henni 11 manns en í suðurleit, sem lagði upp degi síðar, voru 26 manns. Slg. Slgm. Safnið rekið yfir Sandá. Ljósm. Sig. Sigm. Krafla: ERFIÐLEIKAR hafa komið upp við boranir á Kröflusvæðinu sfð- Námskeið fyrir píanókennara F'ELAG Tónlistarkennara gengst fyrir námskeiði, fyrir pfanó- kennara dagana 20., 21 og 22. sept. næstk. Hingað kemur próf. Hans Leygraf, píanóleikari og tónskáld, sem er mörgum að góðu kunnur, frá námskeiði er hann hélt hér haustið 1973 við ágætá aðsókn. Próf. Leygraf er mjög þekktur erlendis sem afbragðs kennari og leiðbeinandi, jafnframt því að hann starfar einnig sem ein- leikari. Þá má geta þess að tveir nemendur hans sigruðu í norr- ænni píanókeppni, sem fram fór hér í Reykjavík fyrir nokkrum árum. Einn ísl. nemandi hefir stundað nám hjá próf. Leygraf um nokk- urt skeið. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Tónlistarskólans í Reykjavík, og er þegar fullskipað. ustu daga. Stóri borinn sem svo er nefndur hefur verið f lamasessi sfðustu daga, vegna bilunar f raf- kerfi hans. Rafvirkjum hefur ekki tekizt að komast fyrir bilun- ina og hefur orðið að panta vara- hluti að utan, sem væntanlegir voru til landsins f gær, svo vonir standa til að boranir geti aftur hafizt f dag eða á morgun. Að sögn Isleifs Jónssonar, for- stöðumanns jarðborunardeildar Orkustofnunar, var borinn kom- inn á um 1624 metra dýpi þegar bilunin varð. Kvaðst ísleifur ekki sjá annað en þessi hola — hin sjöunda á svæðinu — lofaði nokk- uð góðu og væri hún t.d. þegar orðin töluvert efnilegri en hola 6, þar sem um minna skoltap væri að ræða í nýju holunni en var f þeirri fyrri. Gufuborinn er aftur á móti kominn niður á 1115 metra dýpi, og er núna í hrunsvæði, sem gef- ur vonir um að þar sé vatn að finna. „Ég held þess vegna, að þetta líti alls ekki illa út það sem af er hvernig svo sem endanlegur árangur verður,“ sagði tsleifur. Kvótinn er 1000 tonn RANGHERMT var í frétt Mbl. í gær, að rækjukvótinn í Axarfirði yrði 700 tonn á næstu vertfð. Hann verður 1000 tonn, en veiðin f fyrra var 700 tonn. Þá var prent- villa í frétt um djúprækjumið, 6—7 bátar hafa fengið Iefyi til veiða en ekki 67 bátar. Leiðréttist þetta hér með. Prestkosning í Dómkirkjunni PRESTKOSNINGAR fara fram f Dómkirkjunni 10. október næst- komandi. I dag klukkan 11 predikar séra Hjalti Guðmunds- son, en hinn umsækjandinn, séra Hannes Guðmundsson, predikaði fyrir hálfum mánuði. Sr. Hjalti Guðmundsson er fæddur í Reykjavík 9. janúar 1931, sonur hjónanna Guðmundar Sæmundssonar klæðskera- meistara og Ingibjargar Jónas- dóttur Eyfjörð. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1951 og lauk guðfræði- prófi frá Háskóla íslands 1958. Sr. Hjalti var vígður 1959 til prestþjónustu í söfnuðum Vestur- Íslendinga í Mountain, Norður Dakota, Bandaríkjunum og þjón- aði þar til 1962. Fyrri helming ársins 1964 var sr. Hjalti settur prestur við Dómkirkjuna í veik- indaforföllum sr. Jóns Auðuns. Þá um haustið tók hann við starfi æskulýðsfulltrúa Þjóðkirkjunnar og gegndi því í rúmt ár. Haustið 1965 var hann skipaður sóknar- prestur í Stykkishólmi og hefur gegnt þvf embætti síðan. Sr. Hjalti var skipaður prófastur í Snæfells- og Dalaprófastsdæmi 1. okt. 1975. 1 Stykkishólmi hefur sr. Hjalti tekið mikinn þátt í æskulýðs- og félagsmálum og tónlistarmálum og er m.a. formaður Tónlistarfé- lags Stykkishólms og hefur verið stjórnandi Karlakórs Stykkis- hólms frá 1972. Sr. Hjalti hefur sungið mikið með Karlakórnum Fóstbræðrum og var formaður hans 1962—64. Einnig söng hann um ellefu ára skeið í Dómkirkjukórnum. Kona sr. Hjalta er Salóme Ösk Eggertsdóttir. Foreldrar hennar eru Eggert Sveinsson og Helga Halldórsdóttir, en fósturforeldrar hennar eru Öfeigur J. Ófeigsson læknir. og Ragnhildur Ásgeirs- dóttir. Þau eiga tvær dætur, Ingi- björgu 18 ára nemanda i M.R. og Ragnhildi 12 ára. Séra Hjalti Guðmundsson. Prestkosning í Háteigsprestakalli Nýju holumar lofa góðu PRESTKOSNING fer fram í Háteigsprestakalli f Reykjavfk sunnudaginn 10. okt. Þrfr umsækjendur eru, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi sóknarprestur á Suðureyri, sr. Magnús Guðjónsson, prestur við Frfkirkjuna í Hafnarfirði og sr. Tómas Sveinsson sóknarprestur á Sauðárkróki. Sr. Magnús prédik- aði við messu f Háteigskirkju sfðastliðinn sunnudag, en f dag mun sr. Tómas Sveinsson prédika kl. 14 og sr. Auður sunnudaginn 26. sept. Sr. Tómas Sveinsson, umsækj- andi um Háteigskirkju, er fæddur 18. ágúst 1943 og ér sonur hjón- anna Jónasfnu Tómasdóttur (kaupfélagsstjóra Hofsósi, Jónassonar) og Sveins Jónssonar, verkstjóra, (bónda á Keldunúpi á Sfðu, Jónassonar). Sr. Tómas lauk stúdentsprófi 1963 frá Mennta- skólanum f Reykjavík og kandi- datsprófi f guðfræði 1968 frá Háskóla Islands. Var vígður 30. júní sama ár til Norðfjarðar- prestakalls og gegndi þvf til árs- ins 1971, er hann tók við Sauðár- króksprestakalli og hefur þjónað þar sfðan, að undanskildu einu ári, sem hann dvaldist við fram- haldsnám f sálgæzlu meðal sjúkra við St. Lúkasstofnunina f Stokk- hólmi og vann jafnframt sem sjúkrahúsprestur í tengslum við Akademfska sjúkrahúsið I Upp- sölum. Sr. Tómas starfaði f mörg sumur við sumarbúðarekstur á vegum kirkjunnar bæði á námsár- um sfnum og einnig á Austur- landi meðan hann þjónaði þar. Sr. Tómas er kvæntur Unni önnu Halldórsdóttur safnaðar- systur (beykis í Reykjavík, Sig- Leiðrétting 1 Morgunblaðinu á fimmtudag var viðtal við Danfel Snorrason, lögregluþjón á Skagaströnd, þar sem hann lýsti þvf á hvern hátt menn hefðu varpað sprengju inn í hús hans. 1 fréttinni var haft eftir Daníel að mennirnir sem hefðu hent sprengjunni hefðu ekki ver- ið meirí menn en það að henda henni inn um gluggann á meðan hann var ekki heima. Daníel seg- ist ekki hafa sagt þetta við blaða- manninn og hafi verið um mis- skilning milli hans og blaðamanns að ræða. Þetta leiðréttist hér með. Ingi R. Jóhannsson: „Allur metnaður á skák- sviðinu rokinn út í veð- ur og vind fyrir löngu ” „atvinnuskAkmennska hefði vafalaust freistað mfn fyrir 20 árum sfðan ef mér hefði staðið hún þá til boða, en allur metnaður á skáksviðinu er rokinn út f vindinn fyrir mörgum árum,“ sagði Ingi R. Jóhannsson skákmeistari, þeg- ar Mbl. spurði hann f gær hvort ágæt frammistaða hans á Reykjavfkurmótinu hefði kveikt upp f honum löngun til að helga skákínni meiri tfma en hann hefur gert á undan- förnum árum Eins og flestum er kunnugt var Ingi einn sterkasti skák- maður Islendinga fyrr á árum og aflaði sér þá titils alþjóðlegs meistara. Mörg undanfarin ár hefur Ingi sáralítið teflt og missti hann titilinn vegna þess. Á Reykjavíkurmótinu á dögun- um hlaut hann 8 vinninga og náði titlinum aftur. „Ég fór f þetta skákmót til að sjá hvar ég stæði í skákinni. Eg hafði mjög gaman af þessu. Ég tel að ég hafi átt þessa 8 vinninga skilið og með svolitlum meðbyr hefðu þeir getað orðið 9‘A. Ég hef ekki uppi ráðagerðir um að tefla meira en ég hef gert, en reikna með að verða með á einu og einu móti,“ sagði Ingi að lokum. Séra Tómas Sveinsson. urðssonar og konu hans Kristólínu Þorleifsdóttur frá Þverlæk f Holtum, Rangárvalla- sýslu). Unnur var safnaðarsystir (diakonissa) við Hallgrfmskirkju í Reykjavík um fimm ára skeið og hafði á hendi barna- og unglinga- starf f söfnuðinum. Jafnframt vann hún á skrifstofu æskulýðs- fulltrúa kirkjunnar og í mörg sumur var hún sumarbúðastjóri á vegum kirkjunnar. (I Uppsölum veitti Unnur forstöðu forskóla dómkirkjusafnaðarins). Þau hjónin hafa rekið fjöl- breytilegt safnaðarstarf við Sauðárkrókskirkju. Börn þeirra hjóna eru þrjú. Guðsþjónustunni f dag verður útvarpað á miðbylgjum 1412 kíló- hertz eða 212 metrum. INNLENT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.