Morgunblaðið - 19.09.1976, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.09.1976, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1976 Börnin í Bjöllubæ effir INGIB.IÖRÍÍU JÓNSDÓTTUR aldrei koma sér í háttinn, hugsaöi Jóa Gunna um leið og hún lagðist niður á baðmullarhnoörann við hlið Magga bjöllupabba. Það er gott að sofna í ró og værð og vera sannfærð um, að ekkert sé að börn- unum. Það var þó óvart eitt að. Lilla hafði vaknað, þegar mamma hennar sagði sög- una og nú var hún að brjóta heilann um það, hvernig köngurlær litu út. — Mamma sagði, að þær væru stórar og ljótar, hugsaði Lilla litla liggjandi á baðmullarhnoðranum sínum. — Þær hafa líka loðnar og kræklóttar lappir, en þær geta ekki meitt MIG, ef ég tek Púnta með. Púnti var lítil bjöliubrúða, sem Lilla hafði fengið i jólagjöf og lét alltaf sofa hjá sér. Hún klæddi hana vitanlega ekki í föt, en hún þvoði henni og leyfði henni alltaf að sofa hjá sér. — Ég fer með Púnta alla leið ofan á gólf, sagði Lilla við sjálfa sig. — Ég læt Púnta detta á fólfið fyrst og svo skrið ég niður á eftir. Þið megið nefnilega alls ekki gleyma þvi, að Lilla átti heima í skókassa, sem stóö á borði í rannsóknastofu, svo að það var langt niður á gólf fyrir agnarlitla brúna hveitibjöllu. Lilla skreið ofan af baðmullarhnoðran- um sínum og fram á borðið. Hún dró Púnta á eftir ser og henti honum svo af alefli á gólfið. Síðan skreið hún eftir borðfætinum og alla leið niður, en Púnta sá hún hvergi. Hann var víst týndur. — Púnti, Púnti, hrópaði Lilla. — Komdu hingað, Púnti minn. Komdu til Lillu þinnar. Hún heyrði ekkert til Púnta enda ekki við því að búast, því að brúður geta ekki talað eins og allir vita. Lilla litla skreið um allt gólfið. Hún fór alla leið út í horn þar sem köngurlóin hafði einu sinni átt heima og barist við hana mömmu hennar. Lilla gat ekki hugsað um annað en aumingja litla Púnta sinn, sem var týnd- ur einhvers staðar á gólfinu. Lilla var alls MORö'dfv RAFT/NU GRANI göslari Góðan daginn fröken, — Má ég kynna: Grani göslari Nei, nei, það kom ekkert fyrir mig, en þegar ég kem upp í strætó fæ ég alltaf sæti. Er til nokkuð gegn arfanum, sem lætur hann þjást eitt helv.. áður en hann drepst? Gyðingur og tri voru keppi- nautar í sölumennskunni. Gyð- ingnum var heldur Iftið gefið um þennan keppinaut og hélt þvf fram að hann hefði gert sér margan ógreiða. Eina nótt dreymdi Gyðinginn að engill kæmi til hans og segði honum að hann mætti óska sér alls sem hann vildi. Hann fengi það en frski keppinauturinn fengi þó helmingi meira af hinu sama. — Og þá þótti mér — sagði Gyðingurinn — sem ég svaraði englinum og segði: Ég vildi vera blindur á öðru auga. — O— Þegar þú ert f samkvæmi þá ættir þú ekki að tala um sjálfan þig. Það verður nóg talað um Þig. Þegar þú ert farinn. 25 'kemmsta leiðin hevrði hún vél- ..rhljóð á hæð. Hún sneri við og rór aðra leið. Hun hafði varla riðið meira en um hundrað metra þegar vélar- hljóðið færðist enn í aukana og j androverbfll kom akandi til i ennar. Ilún grcip f taumana. l’.íllinn ók upp að hlið henni og híktjórinn sté út. Hann var f krumpaðri skyrtu og sfðbuxum. Hrukkað andlitið var vindþurrk- að. — Hvað eruð þér að gera hér, fröken? — Góðan dag! Hún fann að hún hafði fengið hjartslátt en hvað gat hann svo sem gert henni ann- að en rekið hana f burt? — Eg spurði hvað þér væruð að gera hér. Þér eruð ekki á yðar landareign hérna. — Eg er frú Carrington og ég hef fulian rétt til að vera hér. — Ó frú Carrington. Hann tók hattinn af og klóraði sér f hnakkanum. — Yðar landareign nær ekki hingað og ég er sannfærður um að yður er kunnugt um það. Hann setti hattinn upp aftur. — Yðar landareign er handan girðingarinnar sem þér virðíst ekki hafa tekið eftir. — Eg er vinur Hr. Everest. Rödd hennar var skræk af reiðí og ótta. — Og þér hafið engan rétt til... Maðurinn greip f taumana og sagði: — Heyrið mig nú. Þér farið sömu leið til baka og þér komuð. F.f þér viljið heimsækja Everest þá skuluð þér koma aðaldyrameg- in. Svona, af stað með yður! Hann herti takið um taumana og sló f hestinn svo að hann hrökk við og prjónaði. Og hestur og riddari þutu af stað f sömu áttina og þau höfðu komið úr. Sue Ann fann máttleysi gagn- taka sig. Hún var agndofa af reiði. Hún vildi ekki viðurkenna að henni hafði að sumu leyti létt — þvf að nú þegar þessu var lokið var augsýnilegt að það hafði ekki borið f sér neina hættu að rfða yfir til Jamie. Eða að minnsta kosti gera tilraun til þess. Hesturinn hægði á sér. Sue Ann leit um öxl. Hún varð fokvond þegar hún sá að hfllinn elti hana. Fjandinn hirði þennan kauða. En hún hafði þá að minnsta kosti sannað eitt — að það var ógerningur að ná sambandi við Helene og Jamie. Rflstjórinn fylgdist með henni unz hann sá að hún var komin yfir girðinguna aftur. Hún reið hnuggin áfram. Hún hafði verið að vona að hún lenti f ævintýrum, léki á verðina og gæti komizt að einhverju sem sannaði eða af- sannaði kenningu Jack Seaverings. Hún leit við þegar hún heyrði dauft flugvélarhljóðið f fjarska. Það var vél Jamies, hún þóttist viss um það. Fróðlegt að vita á hvaða leið hún væri. Nokkrum mfnútum sfðar fann hún til ólýsanlegrar skelfingar. Það var enginn vafi á þvf að vélin stefndi f áttina til hennar. Hún flaug lágt. Vélin flaug yfir höfuðið á henni. Kannski héldu þeir að nauðsynlegt væri að fylgjast með henni alla leiðina. Þetta hlaut að vera Reg Curtiss. Hún fékk allt f einu þá hugmynd að kannski væri Jamie f vélinni og að hann vildi veifa til hennar. Hún bjóst til að veifa til vélarinn- ar. Þegar litla vélin kom aftur og steypti sér niður varð hún skelf- ingu lostinn. Flugmaðurinn ætl- aði sér að ná henni... Og senn myndi hesturinn ærast af skelf- ingu. Hún varð að fara af baki. En áður en hún komst til þess var vélin aftur komin yfir hana. Sue Ann hélt augnablik að vélin myndi skella á þeim. f sömu andrá fældist hesturinn af hræðslu prjónaði tryllingslega og þaut eins og kólfi .væri skotið stjórnlaus af stað. Sue Ann hafði hugann við það eitt að reyna að halda sér ð baki. Þegar hann tók þessi köst fékk ekkert stöðvað hann fyrr en hann hafði hlaupið sig þreyttan. En hættan á að hann dytti f grjótinu var Ifka voðaleg. Þá myndi ekkert geta bjargað henni. Hún velti andartak fyrir sér hvar vélin væri. Var hún að snúa við til að koma aftur? Og þá rak hesturinn annan framfótinn f holu og féll... Hann flaug lágt yfir svæðið þar sem hann hafði sfðast séð þau. Fyrst kom hann auga á hestinn sem stóð og hengdi höfuðið. Hann varð að fljúga þrlvegis yfir unz hann fann hana. Hún lá f mjög annarlegri stellingu alllangt frá. Hann flaug þangað aftur um hádegisbil til að vera viss og aftur átti hann f töluverðu basli með að finna staðinn — einkum af þvf að nú var hesturinn á bak og burt. Loks kom hann auga á hana. Hun lá enn f sömu stellingu. Hann var nú sannfærður um að hún væri dáin. Sama dag var hringt til Jack frá rithandarsérfræðingnum. — Þetta er sama skriftin. Ég get sýnt yður það ef þér viljið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.