Morgunblaðið - 19.09.1976, Síða 7

Morgunblaðið - 19.09.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1976 7 HUGVEKJA cfiirsr. Þóri Stephensen MEÐAL þess, sem athygli vek- ur, þegar komið er inn i hina fornu dómkirkju á Hólum i Hjaltadal, eru myndir, sem mál- aðar eru á neðanverða milli- gerðina milli kórs og kirku- skips. Þær sýna höfuðdyggðirn- ar 12 í konuliki, og standa nöfn þeirra ofan við: Spekin, Rétt- lætið, Hófsemin, Styrkleikinn, Trúin, Vonin, Kærleikurinn, Guðhræðslan, Eindrægnin, ör- lætið, Hreinlífið og Forsjálnin. Þessar gömlu myndir veita okkur innsýn í fornan hugar- heim, hvernig helstu dyggðir kristninnar voru persónugerð- ar og þannig litið á þær sem raunverulegt lifandi afl í lífi fólksins, afl sem hafði áhrif á það til góðs. Og staðsetning dyggðanna við dyr hins allra helgasta í hinni öldnu kirkju undirstrikar þá staðreynd, að litið var á þær sem þjóna Guðs, er sífellt vinna í hans þágu. En dyggðirnar voru álitnar fleiri en þær, sem Hólakirkja sýnir. Rússneska skáldið Ivan Turgenjev segir t.d. þá sögu, að eitt sinn hafi Drottinn allsherj- ar boðið dyggðunum til veislu. Þá hittist svo á, að tvær þeirra, sem voru algjörlega ókunnar hvor annarri, settust hlið við hlið. Þetta voru Velgjörðin og Þakklátsemin. Lengri er sagan ekki. Hún þarfnast ekki fleiri orða. Boð- SOLI DEO GLORIA ferð, og hugsunarleysi eða van- þakklæti þeirra 9, sem fóru burt án þess að þakka lækningu sína er furðulegt. Og þessi eini, sem sneri við til að þakka, hann var ekki Gyð- ingur. Hann var Samverji, mað- ur af þjóðflokki, sem Gyðingar litu niður á. En bæði i dag og á sunnudaginn var erum við minnt á það í kirkjunum, að Jesús fann meðal þeirra fyrir- myndir, sem hann gerði eilífar að gildi. Jesú þótti áreiðanlega ekki vænst um, að þessi Samverji kom aftur og laut honum, held- ur hitt, að hann „lofaði Guð hárri raustu" eða eins og Jesús orðaði það: „sneri aftur til að gefa Guði dýrðina“. ar það með því að opna augu okkar fyrir gildi Velgjörðarinn- ar. En hagsæld og velgengni blinda okkur stundum. Tækni- þekking og framfarir færa okk- ur svo mikið, að við höfum vart við að meta það réttilega, og svo verður þetta allt sjálfsagt. Já, þangað til einn daginn, að eitt- hvað kemur fyrir, sem gerir okkur ókleift að njóta þess. Þá verðum við fátæk, kannski mitt í öllum veraldarauðnum, og finnum, að við erum svipað stödd og skáldið sem sagði: „Ég, þessi ölmusumaður, er jafnvel fátækur af þakklæti." Það, sem að er, er það, að Guð er ekki sá raunveruleiki i mannlífinu, sem hann ætti að vera. Við gerum meira að því að tigna verk hans en hann sjálf- an. Við gleymum svo oft „að gefa Guði dýrðina". Ég hóf þessa hugvekju á lýs- ingu mynda í hinum forna helgidómi á Hólum i Hjaltadal. Ég ætla að ljúka henni með frásögn af mynd, sem blasir við, þegar gengið er út úr ann- arri kirkju í Norðurlandi. Yfir innri dyrum hennar er ævagömul rekaviðarf jöl, sem á er letrað skýrum, svörtum stöf- um: SOLI DEO GLORIA, þ.e.: Guði einum sé dýrð. Áður var þessi áletraða fjöl utan á gafli, yfir kirkjudyrunum, og er nú skapur hennar er nægilega skýr. En hann er líka napur. Samt er ekki hægt að neita hon- um um þó nokkurn sannleika. Hið mikla skáld málar hlutina að vísu nokkuð dökkum litum og sterkum, en ekki röngum eða fjarstæðukenndum. Vel- gjörðin og Þakklátsemin hafa ekki nærri alltaf átt samleið. Mannkynið hefur lengi haft snöggan blett, hvað þetta snert- ir. Hann var fyrir hendi fyrir einni öld, þegar Turgenjev skrifaði sögur sínar, og hann var lika fyrir hendi, þegar Jesús læknaði hina 10 likþráu menn, sem guðspjall þessa sunnudags segir frá, og engum getur dulist, að enn er hann ekki horfinn. Þess vegna er saga Lúkasar um þennan at- burð enn lesin og hugleidd. Fyrir elstu kynslóð Islend- inga í dag þarf ekki að lýsa holdsveikinni. Svo algeng var hún hér fram á þessa öld. Þeir.sem yngri eru, þekkja hana varla nema af afspurn. En þarna er ægilegur sjúkdómur á Snöggi bletturinn á lífi okkar er sá að líta á öll gæði lífsins sem sjálfsögð. I guðspjallinu í dag er f jallað um heilsuna. Við vitum fyrst, hvað góð heilsa er, þegar við missum hana, og jafn- vel það virðist ekki nægja nema tíunda hverjum manni að dómi guðspjallsins. Mér koma lika oft börnin í hug. Allir foreldrar óska heit- ast að eignast heilbrigð börn. Og þegar slfkt rætist, þá er virkilega fyrir mikið að þakka. Sagði ekki sr. Matthias: „Fagurt barn er fundinn sjóður, föðurhendi réttur oss, kennir best, að Guð sé góður, geymi hundrað þúsund hnoss." Ef við getum gert okkur grein fyrir raunverulegu gildi hlutanna, þá breytist afstaða okkar til þeirra. Það er stað- reynd, að við njótum þess bet- ur, sem við vitum, að er ekki sjálfsagt. Þá kemui'þakk- látsemin inn í líf okkar og auðg- svo veðruð orðin, að hinir mál- uðu stafir á henni eru sem upp- hleyptir. Þeir hafa ekki veðrast eins og ómálað tréð I kring. Þetta minnir mig á ófullkom- leik og hverfulleik alls þess, sem mannlegt er eða jarðneskt, en jafnframt á eilift og óum- breytanlegt gildi alls þess, sem Guði heyrir. Ef við viljum, að llf okkar eignist öruggan grundvöll, þá hljótum við að leita til Guðs. Ef við viljum, að okkar andlegi þroski öðlist eilíf verðmæti, þá finnum við þau hvergi nema hjá honum.Éf við viljum læra að þjóna mönnunum i kærleika og auðmýkt, þá skulum við lúta honum, sem gefur þetta og allt annað, sem til blessunar leiðir. Af því mun leiða þakklæti og ástúð til mannanna, en jafn- framt staðfesting þess grund- vallarboðskapar, sem Jesús boðar i guðspjalli þessa sunnu- dags, þess sama boðskapar, sem ekki hefur getað veðrast af rekaviðarfjölinni: Guði einum sé dýrð. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINl RÍKISSJÓÐS: 1 965 2 flokkur Kaupgengi pr kr. 1 00 1513 84 1966 1. flokkur 1366 21 1966 2 flokkur 1290.22 1 967 1 flokkur 1229 63 1968 1 flokkur 1078 27 1968 2 flokkur 1014 51 1970 1 flokkur 685 41 VEÐSKULDABREF: 1 — 3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum Höfum seljendur að eftirtoldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100. 1970 2 flokkur 516 56 1972 2 flokkur 350 00 1 973 2 flokkur 268 90 HAPPDRÆTTISSKULDABREF RIKISSJOÐS: Solugengi pr. kr. 100. 1973 B 326 63 1974 D 244.14 1974 E 1 72 76 1g76 H 11 '1 64 ( 6 5% afföll) VEÐSKULDABRÉF: 4ra ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum 6 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 1 0% vöxtum 8 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 1 2% vöxtum PMRFSJTIIKMRFáAG ÍSUUIDS HF. Verðbréfamarkaður Lækjargötu 12, R (Iðnaðarbankahusinu) Sími20580 Opið frá kl. 1 3.00— 1 6.00 alla virka daga — ------- -/ og auðveldar í uppsetningu Fáanlegar í gullálmi, eik, hnotu og teak. Sérlega hagstætt verð Verð frá kr. 1080 per. fm m.sk. TIMBURVÍRZIIININ VÖLINDUR Klapparstíg 1, Skeifan 19, Simar 18430 — 82544

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.