Morgunblaðið - 19.09.1976, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1976
— KFUM og K
Framhald af bls. 3
en því hafa drengirnir mjög
gaman af.
Hver fundur endar á mjög
hefðbundinn hátt og sennilega
hefur það verið svo allt frá upp-
hafi. Sunginn er söngurinn Þú
æskuskari á tslands strönd, og í
miðjum þeim söng standa allir
upp og ganga út þegar söngnum
er lokið.„Fundir 1 KFUK fara
fram nokkuð svipað því sem er
hjá KFUM.“
Þá nefndi GIsli að innan
margra deilda KFUM hefðu
verið starfandi áhugamanna-
hópar um ýmiss konar tóm-
stundir og föndur og hefði það
fengið marga til að vera með I
félaginu, en þetta væri alveg
eftir starfsaðstöðu og starfs-
mönnum, það gætu ekki allir
komizt til að sinna svona verk-
efnum. Einnig sagði Gísli frá
því að þeir sem sæktu vel fundi
væru oft verðlaunaðir á ein-
hvern hátt og í þeim deildum,
sem hann hefði starfað í hefði
verið farið með þá drengi I
heimsóknir I ýmis fyrirtæki og
stofnanir á Reykjavíkursvæð-
inu.
„Við höfum I dag sömu mögu-
leika á að ná til barna og ungl-
inga og áður,„ sagði Gísli, „en
það sem háir okkur mest er
starfsaðstaða, við getum ekki
alltaf brugðist nógu fljótt við
og fylgt börnunum eftir út í
nýjustu fbúðarhverfin, og hitt
er líka alltaf að starfsmenn
mættu vera fleiri.
Annað starf.
KFUM og KFUK standa fyrir
ýmiss konar öðru starfi en hér
hefur verið talið upp og má
m.a. nefna leikskóla sem hóf
starfsemi sína fyrir um það bil
ári síðan. Á vegu m félaganna
er líka starfandi kór, Æskulýðs-
kórinn, en hann skipa ungling-
ar úr báðum félögunum.
Á vegum unglingadeilda fél-
aganna eru svo haldin mót á
sumrin, unglingamót, svonefnd
æskulýðsvika er á haustin og
það er lögð áherzla á að fá fleiri
unglinga og ungt fólk inn í
félögin. Ein deild hefur ekki
verið nefnd sem starfar á veg-
um KFUM og KFUK, en það er
svonefnd aðaldeild. Hún hefur
fundi fyrir félagsmenn og
konur 17 ára og eldri og á
hverju hausti eru námskeið I
Vatnaskógi fyrir þennan
aldurshóp, Bibliunámskeið, þar
sem hægt er að kynnast Bibll-
unni nánar.
Að lokum má nefna að félög-
in standa fyrir almennum sam-
komum á hverju sunnudags-
kvöldi I félagshúsinu við Amt-
mannsstíg.
— Eitt mesta
Framhald af bls. 16
varpað og endurvarpað til Frakk-
lands
Að athöfninni lokinni, sem var
löng og virðuleg voru kisturnar
bornar út á götuna og fóry 12
likvagnar niður Túngötuna og siðan
Kirkjustræti, Pósthússtræti, vestur
Tryggvagötu og að Grófinni og þá
hóf L'Audacieux fallbyssuskothríð til
virðingar hinum látnu Zarzecki ræð-
ismaður birti þakkarávarp í Morgun-
blaðinu daginn eftir og sagði þar
m a ,,Þegar likfylgdin fór um götur
höfuðborgarinnar vottaði fólkið sam-
úð sina á svo hjartanlegan og virðu-
legan hátt að ekki líður úr minni "
Þess má að lokum geta að fleiri lík
fundust rekin i októbermánuði og
voru þau flutt í Landakotsspítala til
að athuga þau og reyna að bera
kennsl á þau Þar á meðal var lík
skipstjórans, Le Conniat, en það
eina sem benti til þess hver hann
var, var hnifur sem hann bar við
beltisstað í sérstökum vasa Jarð-
neskar leifar þessara manna voru
grafnar í Fossvogskirkjugarði
LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER
LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER
s,8-rncnrMi fiknDfsmy (/(J fivV DvU i m
Ai MEÐAN HIN SySTIRlN REVNlR AÐ TROÐA SER l'sKOINN,
ROGAST JÓKI OGGUS/ MEÐ LVKILINN UPP STIöANN...
LiOKSINS HEYRIST HRINGLA i'lYKLUNUM
FVRlR UTAN LÆSTAR DVRNAR...
LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER—LITAVER