Morgunblaðið - 19.09.1976, Qupperneq 48
METSÖLUBÆKUR
AUGLVSINtiASIMINN ER:
22480
jttgttstMfifrfö
A ENSKU I
VASABROTI
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1976
Grímsvatnalægðin séð úr 12.500 feta hæð á flugi milli Köldukvíslarjökuls og
Bárðarbungu. Myndin er tekin úr norð-vestri séð til suð-austurs klukkan 19:20, 30.
ágúst. Sigið fremst á myndinni er sennilega ummerki eftir síðasta Skaftárhlaup.
Hafbrún við sjóndeildarhring.
6—800 unglingar
söfnuðust saman
MIKII, mergð unglinga var f mið-
borg Reykjavíkur f fyrrakvöld, á
Hótel tslandsplaninu og vestan-
verðu Austurstræti. Gizkaði Jón-
as Jónsson varðstjðri hjá miðbæj-
arlögreglunni á, að þarna hefðu
verið 6—800 unglingar þegar
mest var. Að sögn Jónasar hegð-
uðu unglingarnir sér vel og ekki
bar mikið á ölvun. Örfáir voru
teknir vegna ölvunar.
Jónas sagði að unglingar hefðu
byrjað að safnast saman á þessum
stað í sumar þegar Þórscafé var
lokað. Hefði þeim síðan fjölgað
stórlega, þegar Tónabæ var lokað
fyrir skömmu. Er mestur mann-
söfnuðurinn á föstudags- og laug-
ardagskvöldum en í fyrrakvöld
voru þarna fleiri unglingar en
nokkru sinni fyrr, og sagði Jónas
að gott veður hefði þar vafalaust
sitt að segja. Sagði Jónas að ung-
lingar hefðu þráfaldlega spurt
lögreglumenn, sem voru á vakt
þarna í fyrrakvöld, hvenær Tóna-
bær yrði opnaður aftur. Væri
greinilegt að þeir væru mjög
óánægðir með lokun staðarins.
Verður ekkert sjón-
varp um helgina?
Skeiðará:
Horfur á stærra hlaupi
en komið hafa síðustu ár
Mikill viðbúnaður hjá Vegagerðinni
Skaftafelli, — 18. september.
Frá blaðamanni Morgunblaðs-
ins, Þórleifi Olafssyni.
— Það má reikna með, að ein-
hver hluti mannvikjanna hér láti
á sjá f þessu hlaupi, sagði Loftur
Þorsteinsson verkfræðingur
Vegagerðarinnar við Skeiðará f
samtali við blaðamann Mbl. f
morgun. — Hvað það er sem mun
láta sig vitum við ekki, en ef
hlaupið verður verulegt gæti til
dæmis komið fram sig einhvers
staðar.
Rennslið f Skeiðará var yfir 3
þúsund rúmmetrar á sekúndu að
sögn Sigurjóns Rist vatna-
mælingamanns í morgun, en f gær
mældist rennslið 1700 rúmmetrar
á sekúndu. Þá mældist dýpið við
brúna um 4 metrar á hundrað
metra kafla. Sagði Sigurjón að áin
ætti eftir að tvöfaldast og jafnvel
þrefaldast.
Það hefur vakið athygli, að
hlaupið kemur allt f einum stað
undan jöklinum, þ.e. í hinum
venjulega farvegi árinnar við Jök-
ulfell. í Skeiðarárhlaupum síðari
ára hefur hlaupið komið víða und-
an skriðjöklinum og ávallt verið
mikið f Gígju og Súlu.
Loftur Þorsteinsson sagði, að ef
allt vatnið myndi koma á einum
stað undan jöklinum, gæti það
sett verulegt strik f reikninginn,
þvf að þá yrði vatnselgurinn mun
meiri við brúna en f síðasta
hlaupi. Vegagerðin hefur nú mik-
inn viðbúnað hér við Skeiðará —
4 tæknimenn eru komnir á stað-
inn og væntanlegur er hópur
verkfræðingá og annarra tækni-
manna f kvöld. Brúarvinnuflokk-
ur, sem unnið hefur að því að
mála brýrnar á sandinum og átti
að eiga frí um þessa helgi, er
hafður til taks ef eitthvað skyldi
bera út af. Fjórir starfsmenn
Orkustofnunar undir forustu
Hauks Tómassonar jarðfræðings
eru einnig komnir hingað, en þeir
annast aurburðarrannsóknir.
Að sögn Lofts Þorsteinssonar
Enn einn piltur
í gæzluvarðhald
STARFSMENN Ffkniefnadóm-
stólsins handtóku í fyrrakvöld 19
ára pilt vegna rannsóknar nýjasta
hassmálsins, en rannsóknin hófst
á fimmtudagskvöld þegar hass-
hundurinn fann hass f húsi f
Reykjavfk. Piltur þessi var sfð-
degis í gær úrskurðaður í allt að
20 daga gæzluvarðhald. Annar 19
ára piltur situr f 30 daga gæzlu-
varðhaldi vegna þessa sama máls.
Málið er talið tengt stóra hassmál-
inu, sem dómstóllinn hefur f
rannsókn, en vegna þess sitja
tveir ungir menn f gæzluvarð-
haldi. ___( t _____
Stjórn Flugleiða
ræddi flugvéla-
kaupin í gærdag
STJÖRN Flugleiða hf. kom saman
til fundar klukkan 14 f gær til að
ræða hugsanleg kaup félagsisná
tvelmur Tri-Star breiðþotum.
Þegar Mbl. fór í prentun var
fundinum ekki lokið. Alfreð
Elfasson, forstjóri Flugleiða, tjáði
Mbl. fyrir fundinn, að hann ætti
ekki von á því að ákvörðum í
málinu yrði tekin á fundinum.
Bjóst hann við því að málið þyrfti
að skoðast nokkra daga f viðbót.
virðast leiðigarðarnir sem eru
beggja vegna við brúna á
Skeiðará ætla að reynast vel, en
þeir eru til að jafna straumnum
undir brúna. Enginn jakaburður
hefur verið f ánni, en það gæti þó
orðið, ef snöggur vöxtur verður í
ánni.
I sfðasta Skeiðarárhlaupi varð
hlaupið mest um 5700—5800 rúm-
metrar á sekúndu en þá voru um
2 þúsund rúmmetrar f Súlu og
Gígju. Horfur eru þess vegna á
því, að hlaupið nú geti orðið tölu
vert meira en sfðasta hlaup.
STAÐAN í sjónvarpsdeilunni var
óbreytt um það leyti sem Morgun-
blaðið fór i prentun i gær, og þvi
taldar litlar likur á því að sjónvarpað
yrði um helgina nema einhverjar við-
ræður milli deiluaðila hefðu komizt é
i millitiðinni. Af hálfu fjármálaráðu-
neytisins er talið óhægt um vik að
hvika nokkuð frá þeirri megin stefnu
sem mörkuð var i siðustu kjarasamn-
ingum milli ríkis og opinberra starfs-
manna, og sömuleiðis telja starfs-
menn sjónvarpsins sig ekki geta lát-
ið undan siga úr því að deilan sé
komin á þetta stig.
I samtali við Morgunblaðið i gær
sagði Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri i fjármálaráðuneytinu og formað-
ur launamálanefndar rikisvaldsins, að
frá bæjardyrum þeirra er fengjust við
samningagerðina væri aðalatriðið það,
að kröfur um endurskoðun á kjara-
samningi hefðu komið fram með þeim
hætti, sem lög gerðu ráð fyrir, frá
sjónvarpsstarfsmönnum á sl sumri.
Þessar kröfur hafi verið athugaðar í
ráðuneytinu og af þess hálfu hafi siðan
verið sent gagntilboð en sjónvarps-
mönnum hafi fundist þetta gagntilboð
þannig, að þeir hafi ekki talið þjóna
tilgangi að ræða það sérstaklega
Höskuldur sagði, að það sem launa-
málanefnd ríkisins hefði haft engu við
þetta gagnboð að bæta, hafi ekki orðið
úr sérstökum viðræðum milli aðila
Sami háttur hafi verið hafður á i samn-
ingum sjónvarpsmanna og i samning-
um allra annarra aðildarfélaga BSRB
en undanskildum þeim sem samningar
tókust við. Gangurinn hafi siðan verið
sá, að málið hefði farið í kjaranefnd,
eins og lög mæltu fyrir, þar sem aðilar
lögðu fram kröfur sínar og i málflutn-
ingi fyrir kjaranefnd hafi þeir skýrt rök
sin með og á móti þeim kröfum sem
lágu fyrir frá hvorum aðila. Nefndin
hafi síðan fellt fullnaðarúrskurð að mati
þeirra launamálanefndarmanna, i
þessu máli og öllum öðrum, sem fyrir
nefndinni lágu og það væri hlutverk
ráðuneytisins þessa dagana að raða
ríkisstarfsmönnum i launaflokka sam-
kvæmt úrskurði nefndarinnar eða öllu
heldur fella þá undir þau starfsheiti
sem nefndin hefði ákveðið
Höskuldur sagði, að aðgerðir sjón-
varpsmanna kæmu nokkuð aftan að
ráðuneytinu, þar sem lagabreytingar
hafi orðið á siðasta ári, er samþykkt
voru ný lög um samningsrétt starfs-
manna rikisins Þetta frumvarp hafi á
sínum tima verið mjög umdeilt og
mönnum sýnst misjafnt um það hvort
veita ættr rikisstarfsmönnum verkfalls-
rétt, jafnvel þótt takmarkaður væri Ein
megin röksemdin fyrir því, að slikt
væri réttmætt hafi verið sú, að fyrir-
byggja skæruverkföll í likingu við þau
sem áttu sér stað 1975 Þess vegna
hafi niðurstaðan orðið sú, að það væri
betra að aðgerðir af þessu tagi yrðu
með einhverjum lögformlegum hætti i
höndum heildarsamtakanna heldur en
Framhald á bls. 13
Vísindarit í minn-
ingu íslendings
NÝLEGA var gefin út f
New York og Oxford all-
vióamikil og vegleg bók
Dr. Björn Sigurðsson.
um vfrussjúkdóma í dýr-
um og mönnum. Heitir
bókin „Slow virus diseas-
es of animals and man“
og það sem merkilegt er
fyrir íslendinga, er að
bókin er tileinkuð minn-
ingu dr. Björns Sigurðs-
sonar læknis á Keldum,
sem lézt fyrir nokkrum
árum.
Bókin, sem er um 400
blaðsíður, fjallar um
hæggenga veirusjúk-
sóma. Alls rita 20 vísinda-
menn ritgerðir í bókina,
þar af 4 íslendingar, Páll
A. Pálsson, Guðmundur
Georgsson, Halldór
Þormar og Guðmundur
Pétursson. Ritstjóri bók-
arinnar er Bretinn R.H.
Kimberlin.
Kimberlin ritar yfir-
gripsmikinn formála að
bókinni og ræðir þar mik-
ið um rannsóknir dr.
Björns Sigurðssonar og
félaga hans, sérstaklega
á mæðiveiki. Segir Kimb-
erlin að dr. Björn hafi
grein á milli hæggengra
veirusjúkdóma og krón-
iskra sjúkdóma. Bókin er
hávísindalegt rit og því í
raun aðeins rituð fyrir
tiltölulega þröngan hóp
manna.